Dagur - 25.02.1993, Blaðsíða 4

Dagur - 25.02.1993, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 25. febrúar 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Fylgið miraikar Enn fækkar þeim landsmönnum sem styðja ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. í nýgerðri skoðanakönnun Félagsvís- indadeildar Háskóla íslands reyndust aðeins 24,6% þeirra sem svör gáfu styðja stjómina en 54,6% vom henni andvígir. Er þetta nokkur breyting frá síðustu könnun deildarinnar en í nóvember á síðasta ári mældist stuðn- ingur við ríkistjórnina 29,5% á móti 51,5% sem þá vom henni andvígir. Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr stærsti flokkur þjóðarinnar með 33,3% fylgi þeirra er afstöðu tóku en Framsóknarflokkur mælist með 23,9% og Alþýðubandalagið með 21,2%. Athygh vekur að fylgi Sjálfstæðisflokksins er sam- kvæmt skoðanakönnuninni komið niður í 35,5% í höfuð- borginni - einu sterkasta vígi hans þar sem hann hefur haldið meirihluta í borgarstjóm utan eitt kjörtímabil á undanförnum áratugum. Einnig vekur verðskuldaða athygh mikið fylgishmn Alþýðuflokksins sem fékk 15,5% fylgi í kosningunum 1991 en mæhst nú aðeins með 6,8% fylgi. Þá vekur ekki síður athygh að einungis 42,5% kjós- enda Alþýðuflokksins eru hlynntir ríkisstjórninni en 35% þeirra andvígir henni. Niðurstöður þessarar skoðanakönnunar em með þeim verstu sem ríkisstjórn og ríkisstjórnarflokkar hafa hlotið ef miðað er við kjörfylgi þeirra í undangengnum kosning- um. Þótt ætíð verði að taka skoðanakönnunum með nokkmm fyrirvara og gera ráð fyrir ákveðnum skekkju- mörkum innan þeirra þá gefa þessar niðurstöður ákveðna vísbendingu um hvaða hug landsmenn bera til aðgerða núverandi ríkisstjórnar. Fólk skynjar úrræðaleysi og áhugaleysi ráðamanna á að bregðast við þeim alvar- lega atvinnuvanda sem nú fer vaxandi. Fólk á erfitt með að bera auknar álögur á sama tíma og eftirtekjan minnkar - á sama tíma og þeim er best em settir er hlíft. Fólk kann einnig misjafnlega við þann hrokafulla tón sem oft vill kveða við hjá núverandi ráðamönnum og þeim hefur gjör- samlega mistekist að túlka nauðsyn erfiðra aðgerða og fá almenning í hð með sér. Nú er svo komið að Morgunblaðið - eitt aðalmálgagn ríkisstjórnarinnar - getur ekki lengur vikist undan að taka þessi mál til umræðu. í Reykjavíkurbréfi þess síðast- hðinn sunnudag er gerður samanburður á nýrri stjórn Bih Clintons, Bandaríkjaforseta og starfsbræðum þeirra hér á landi. Blaðið bendir á að staða íslensku stjórnarinnar sé verri en hún þyrfti að vera og segir síðan að draga megi lærdóm af vinnubrögðum Chntons og hans manna. Kynn- ing á málefnum á meðal almennings skipti ekki síður máli en málefnin sjálf og blaðið kemst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórn íslands hafi mistekist að því leyti. Hvað sem kynningarmálum ríkisstjórnarinnar og túlk- un Morgunblaðsins hður er ljóst að almenningur í landinu hefur fengið nóg af stjórnarathöfnum og framkomu ráða- manna þjóðfélagsins. Að ráðast að þeim sem minna mega sín á ekki greiðan aðgang að þjóðarsálinni og íslendingum hefur aldrei geðjast að því að hafa ekkert að gera. Ef ríkisstjórninni á að takast að vinna sig í álit meðal þjóðarinnar á nýjan leik verður hún einkum að huga að tvennu: Koma verður í veg fyrir að ójöfnuður aukist á meðal þegna þjóðfélagsins þótt leggja verði þyngri byrðar á þá sem betur mega sín í því sambandi auk þess sem leita verður ahra leiða th að sporna við atvinnuleysinu. Verði ekki hugað að þessum þáttum þurfa stjórnvöld ekki að vænta aukins fylgis í skoðana- könnunum á næstunni. ÞI Forsætísráðherra snúi firá villu sinni Sunnudaginn 14. febrúar hélt Davíð Oddsson forsætisráð- herra almennan fund í Safna- húsinu á Sauðárkróki. Þar sem ræðutími var takmarkaður þá lauk ég ekki máli mínu á fundi hans og þykir því rétt að fá það birt í heild, auk eftirmála. Forsætisráðherrann Á sínum tíma hafði ég nokkurt álit á Davíð sem borgarstjóra í Reykjavík en gat ekki sætt mig við það fjármagn er hann eyddi í Perluna. Sölvi Helgason kvað á sínum tíma um sjálfan sig: „Ég er gull og gersemi, gimsteinn elsku ríkur. Ég er djásn og dýrmæti Drottni sjálfum líkur. “ Vísa Sölva kemur mér í hug þegar ég sé forsætisráðherrann á sjónvarpsskerminum og oft minnir hann mig á hortugan og kjaftforan strákling sem ekki viðurkennir misgjörðir sínar og fer undan í flæmingi, en þegar hann þarf að gangast við verkum sínum og mistökum þá er öðrum um að kenna en honum sjálfum. Fátækrastétt Muni ég rétt þá lét Davíð þau orð sér um munn fara nýlega, að atvinnuleysið í landinu væri sam- kvæmt áætlun. Þessi orð kom mér ekki á óvart að heyra. Hann og hans félagar í þingliði stjórn- arflokkanna, einkum Sjálfstæðis- flokknum, hafa ljóst og leynt og við öll tækifæri og það ítrekað, í ræðu og riti, innprentað hjá þjóð- inni að „hæfilegt" atvinnuleysi væri óhjákvæmilegt og æskilegt hagstjórnartæki. Fólk skal heila- þvegið hvað það varðar. Þrátt fyrir alla þá eymd og allt það volæði og þá niðurlægingu er atvinnuleysi fylgir. Ríkisstjórn- arflokkarnir virðast ætla að ganga með oddi og egg fram í því að koma hér á fátækrastétt. Þeir eru að hluta til komnir vel á veg við það ætlunarverk sitt. Verðbólga og vextir Samningurinn um EES breytir engu til batnaðar hvað varðar minnkandi atvinnuleysi og aukin atvinnutækifæri. Þvert á móti að mínu áliti. Það færi betur að aðild okkar að EES snerist ekki í höndum núverandi ríkisstjórnar, þvert á við það sem ætlað er. Þegar frændur okkar írar sóttu um aðild að EB á sínum tíma, ætla ég að atvinnuleysi þar hafi verið um 10% en í dag mun það vera rétt innan við eða jafnvel komið yfir 20%. Ég lái núverandi ríkisstjórnarflokkum ekki þó þeir gorti af lágri verðbólgu á sl. ári. Það hefði farið betur að verð- bólgan hefði haldist nokkuð stöðug eins og hún var mestan hluta sl. árs. Nú er spáð a.m.k. 10% verðbólgu á þessu ári. En það er annað sem ekki gengur upp í lágri verðbóigu og það eru háir vextir. Vextirnir voru allt of háir og eru allt of háir. Háir vext- ir eru að sliga bæði atvinnuvegina og einstaklinga. Efnahagsaðgerðirnar Ríkisstjórnarflokkarnir skvettu oli'u á eld þegar þeir lækkuðu gengið sl. haust eftir eina eða tvær vökunætur. Þeir létu ekki þar við sitja heldur lækkuðu þeir persónuafsláttinn og hækkuðu skatta, auk margra annarra smá- skatta og aukaútgjalda á lág- launafólkið í landinu. Allar umframtekjur til ríkissjóðs frá fyrra ári eru sóttar í vasa þeirra efnaminni og bíleigenda. Aðstöðugjöld af rekstri fyrir- tækja og einstaklinga voru lögð af. Við það minnkuðu tekjur sveitarfélaganna. Til að bæta úr hluta þess tekjumissis þá voru hækkaðir skattar á lágtekjufólki, en við hátekjumönnum mátti ekki hrófla. Hversu óréttlátt sem aðstöðugjaldið kann að hafa ver- ið þá voru stór mistök að leggja það af. Ekki síst þar sem sveitar- félögum var ekki fundinn annar jafnhár tekjustofn. Sveitarfélögin mega ekki við þessari tekjuskerð- ingu þar sem sú tilhneiging er ríkjandi, í auknum mæli, að ýta verkefnum frá ríkinu yfir á þau, án færslu tekjustofna í hlutfalli við það. Skuldasöfnunin Davíð vill kenna Steingrími Hermannssyni og ríkisstjórn hans um mikla erlenda skulda- söfnun ríkissjóðs. Þetta gengur ekki upp hjá Davíð og er rangt miðað við það að 1989 munu er- lendar skuldir hafa verið 46,6% af vergri landsframleiðslu; 1990 46,1%; 1991 46,9%; 1992 50,7% og 1993 er spáð að erlendar skuldir verði 56,9% hlutfall af vergri landsframleiðslu. Það er 10% hækkun á tveimur árum. í ár eru heimilaðar lántökur hins opinbera 51,3 milljarðar króna, þar af lántökur erlendis 18,9 milljarðar. Samkvæmt tölum frá Seðla- bankanum voru útlán þann 30.09. 1990 alls kr. 522 milljarð- ar; 1991 602 milljarðar og 1992 640 milljarðar. Hækkuðu um litla 128 milljarða. Þessir 640 millj- arðar skiptast þannig: Ríkið 98 milljarðar. Sveitarf. 22 milljarðar. Atvinnuv. 287 milljarðar. Heimili 233 milljarðar. Skuldir heimilanna voru 159 milljarðar 1990 og 205 milljarðar 1991. Hvernig geta íslensk heimili risið undir þessum skuldum? Þær tölur, sem ég hef nú bent á, gefa það ótvírætt til kynna að forsætis- ráðherra vor fer með rangt mál þegar hann kennir forverum sín- um um slæma skuldastöðu Ríkis- sjóðs. Hann ætti að líta sér nær, blessaður. Heilbrigðisráöherrann Heilbrigðisráðherra er eitt vand- ræðabarnið í núverandi ríkis- stjórn. Mér virðist að það sé að verða munaður að leita til læknis. Mér sýnist að velferðarkerfið sé að líða undir lok í höndum nú- verandi ríkisstjórnar. Það er kaldhæðnislegt að Alþýðuflokks- menn, sem eignað hafa sér trygg- ingalöggjöfina sem sett var á fimmta áratugnum, skulu ganga harðast fram í því að hræra í henni fram og til baka. Til- gangurinn virðist oft á tíðum sá einn að breyta einhverju flestum í óhag, en ekki er sparnaðinum í heildina fyrir að fara. Það er margt til í því sem Árni Helgason í Stykkishólmi lét sér um munn fara um sl. áramót: Stóri bókamarkaðurinn í Höfðahlíð: Áhugi íslendinga á bókum virðist ekkert minnka Meðal þeirra bóka sem þessir ungu menn skoðuðu var Villt af vegi. Stóri bókamarkaðurinn var opnaður sl. föstudag í Höfða- hlíð 1 þar sem áður var til húsa KEA-Nettó. Strax á fyrsta degi var töluvert um fólk að skoða þær bækur sem þar eru á boðstólum en bókatitlarnir eru um 3000, þar af um 700 frá Skjaldborg hf. Það er Félag íslenskra bókaútgefenda og Skjaldborg hf. sem standa að þessum bókamarkaði. Á þessum bókamarkaði eiga flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, en þar má m.a. finna íslenskar skáldsögur, endur- minningar og ævisögur, erlendar skáldsögur og barna- og ungl- ingabækur. Ekki kaupa allir bæk- ur sem á bókamarkað koma en aðir gera stór innkaup, jafnvel tugi bóka. Þórunn Hjálmarsdóttir var meðal þeirra sem litu inn á bóka- markaðinn fyrsta daginn sem hann var opinn. Aðspurð um það hvort hún biði eftir því að bóka-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.