Dagur - 25.02.1993, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 25. febrúar 1993
íþróttaskóli fyrir þau yngstu á Húsavík:
„Stelpumar skara framúr“
- segir Guðrún Kristinsdóttir um fyrstu nemendurna
Hjónin Guðrún Kristinsdóttir og Ingólfur Freysson.
Hjónin Guðrún Kristinsdóttir
og Ingólfur Freysson, íþrótta-
kennarar á Húsavík, starf-
rækja íþróttaskóla fyrir börn á
aldrinum 4-6 ára. Guðrún
byrjaði með fyrsta vísi að
skólanum 1987 og var þá með
sex ára stelpur sem hún segir
að greinilega hafi haft gott af
þjálfuninni og séu bæði sterkar
og liðugar í dag. Það var
heilmikið fjör í Höllinni er
Dagur leit þar við og heimsótti
unga fólkið í tíma, það var príl-
að og hoppað hring eftir hring
í áhöldunum og unga fólkið
var ánægt eins og sjá má á
myndunum.
„Þátttaka hefur verið mjög góð
og börnin mæta í tíma tvisvar í
viku. Þetta eru duglegir krakkar.
Þau fara í svona áhaldahring og
leiki og æfingar. Tilgangurinn er
að börnin fái góða hreyfingu og
þetta eflir hreyfiþroskann hjá
þeim. Ég sé mikinn mun á þeim
frá hausti og fram á vor. Það sem
þau voru skíthrædd við að gera á
haustin leika þau sér að á vorin,“
segir Guðrún.
- Nú er mikil umræða í þjóð-
félaginu um að börn fái ekki
næga hreyfingu.
„Við höfum ekki orðið mikið
vör við þetta hér á Húsavík, en
samt höfum við orðið þess vör.
Við sjáum tilfelli þar sem börn
hafa greinilega ekki verið nógu
mikið að leika sér. Hreyfingarnar
eru það stirðar að þau hafa ekki
verið mikið úti. íþróttaskólinn er
ein leið til að laga þetta. Þau
leika sér t.d. með bolta hérna.“
- Er fullseint að börn fari að
stunda leikfimi á skólaaldri?
„Þetta er ein leiðin til að berj-
ast á móti hreyfingarleysinu. í
Reykjavík er farið að koma þess-
um þætti inn í leikskólana, reyna
að breyta róluvöllunum sem eru
jsvo litlir að þar er ekkert svæði til
að hlaupa og hamast á. Þar hafa
bara verið rólur og sandkassar
þar sem börnin sitja mikið kjur.
Þetta er þó ekki eins mikið
vandamál hjá okkur og fyrir
sunnan."
- Koma sömu nemendurnir ár
’eftir ár í skólanum?
„Litlu krakkarnir eru svona
tvö ár í íþróttskólanum og annað
hvort fara þau í fótboltann, eða
áfram í fimleikana. íþróttaskól-
inn er undirstaða og ég er farin
að sjá árangur. Stelpur sem hafa
verið hjá mér síðan ’87 skara
framúr, eru sterkar og liðugar.
Þær skara ekkert síður fram úr í
handbolta og fótbolta heldur en í
fimleikum. Þetta er alhliða góð
undirstaða. Þetta eflir hreyfi-
þroskann og samhæfinguna og
krakkarnir læra leikreglur, hvað
má og hvað ekki. Krakkarnir
herðast á að glíma við þetta.
Hugmyndaflugið er óheft og ég
man eftir ungri dömu sem sat á
bolta með húllahring og sagðist
vera að prjóna ullarsokk. Það
veltur margt skemmtilegt upp úr
þeim. Krakkar þyrftu að fara í
gegn um svona þjálfun áður en
þau velja sér ákveðna grein, þá
rokka þau síður milli greina og
vita betur hvað þau langar að
æfa.“ IM
Stelpurnar eru liðugar og sterkar.
Hólmavík:
Grunnskólaböm fá endurskinsborða
Fyrir skömmu gaf Lionsklúbbur-
inn á Hólmavík öllum grunn-
skólabörnum á aldrinum 6-10 ára
endurskinsborða. Ætlunin er að í
framtíðinni fái 6 ára börn borða
er þau hefja skólagöngu.
í vetur verður keppni á milli
bekkja þannig að sá bekkur, sem
duglegastur er að mæta með
borða eina vikuna, fær Bart
Simpson til sín vikuna á eftir í
viðurkenningarskyni.
.Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar Benedikt Grímsson, full-
trúi Lionsklúbbsins og Höskuld-
ur Erlingsson, lögregluvarðstjóri,
afhentu 1. bekk grunnskólans og
kennara hans, Hrafnhildi Guð-
björnsdóttur, borðana.
AMV, Hólmavík.
Húsavík:
Hljómsveitin Curse í hæfileikakeppni
Hljómsveitin Curse á Húsavík
hyggst taka þátt í Músíktil-
raunum í vor.
„Við spilum dauðarokk,"
sögðu meðlimir hljómsveitarinn-
ar með mikilli áherslu, er þeir
komu við á skrifstofu Dags á
dögunum og voru spurðir hvort
þetta væri þungarokkshljóm-
sveit. Hljómsveitina skipa fimm
piltar úr efstu bekkjum Borgar-
hólsskóla. Þeir eru kallaðir:
Fribbi, Stjáni, Siggi, Böddi og
Óskar. Þeir hófu æfingar í haust
og hafa spilað á tónleikum, og
svo vona þeir að þeim gangi vel í
þessari hæfileikakeppni Tóna-
bæjar. IM
Drangur var 74 rúmlestir byggður í Noregi árið 1902. Mynd: gk
„Og alltaf tók Siglu-
flörður undir kveðjur
Póstbátsins Drangs“
- segir módelsmiðurinn Grímur Karlsson
Módel það sem gefur að líta á
myndinni er af Drang gamla,
sem var byggður úr stáli í
Noregi árið 1902. Hagleiks-
maður sá er smíðaði módelið
er Grímur Karlsson frá Siglu-
firði, nú búsettur í Njarðvík.
Póstbáturinn Drangur var 74
rúmlestir. Hann var í ferðum til
fjölda ára um Eyjafjarðarsvæðið,
Tröllaskagahafnir og Grímsey.
Módelsmiðurinn Grímur, sem
var skipstjóri til fjölda ára, segir
að dugnaður Drangs og áhafnar
hafi verið hreint ótrúlegur. „Póst-
báturinn sleppti helst aldrei ferð
vegna veðurs og hlekktist samt
aldrei á að ég best veit. Þegar
Drangur kom til Siglufjarðar, þar
sem ég átti heima, öskraði hann
alltaf í miðjum firðinum með
sinni einstöku flautu og alltaf tók
Siglufjörður undir kveðju skips-
ins og bauð það velkomið með
bergmáli fjallanna. Stundum
þegar Drangur kom til Siglu-
fjarðar í vondum veðrum var því
hvíslað, að ýmis botngróður og
jafnvel smá möl hefði verið á þil-
fari. Þá hlýtur fjarðarkjafturinn
að hafa verið hálf ófær, en alltaf
slapp Drangur.
Drangur þjónaði Norðlending-
um vel og lengi. í dag ber skrokk-
urinn uppi bryggjudekkið í höfn
fyrir smábáta á Akureyri. Segja
má að Drangur sé eftir mætti
ennþá í sinni heimabyggð, nú á
tíræðisaldri. Mér er það alltaf
jafn mikil ánægja, þegar ég á leið
um Akureyri, að gera smá stans
og ganga út á bryggjuna til að líta
niður um rifurnar á útlínur þessa
einstaka skips, sem ég ferðaðist
svo oft með sem drengur," segir
hagleiksmaðurinn Grímur Karls-
son í Njarðvík. ój
00
Reykingar á
. meögöngu
J ógna heil-
brigöi móður
og barns.
LANDLÆKNIR