Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 27. febrúar 1993
Fréttir
Bæjarsjóður Dalvíkur:
Mikfl óánægja með gjaldskrá vegna sorphirðu
Töluverðrar óánægju hefur
gætt hjá ýmsum forráðamönn-
um fyrirtækja á Dalvík með þá
ákvörðun bæjarstjórnar Dal-
víkur að gjaldfæra fyrirtæki
vegna sorphirðu í bænum, en
gjaldið er innheimt til að
standa straum af kostnaði
vegna sorphirðu og flutningi á
því á urðunarstað frammi á
Glerárdal ofan Akureyrar.
Margir álíta sem svo að með
þessari gjaldskrá sé verið að
láta fyrirtækin greiða hluta af
Sjávarréttakvöld
6. og 13. mars
40-50 tegundir sjaldgæfra sjávarrétta,
heitra og kaldra á hlaðborði.
★
Veislan hefst kl. 20.00 með hanastéli og
ljúfri tónlist. Dansað til kl. 03.00.
★
Vinsamlega pantið tímanlega því þegar
er mikið bókað.
Síminn er 61488 og 61405.
★
SÆLUHÚSIÐ DALVÍK
Sprengihelgi
Coka Cola 11/2 lítri 69 kr.
Diet Coke 11/2 lítri 69 kr.
Vanilluísstöng áður 369 kr.
nú 259 kr. (heimilispakki)
Akra sntjörlfki 500 g 75 kr.
Epli rauð 65 kr. kg
Pampers lukkuleikur
Sunnudagur
P.S. vörukynning
Sjáumst í Nettó
Verið hagsýn - Verslið í Nettó
Ódýr markaður
Allra hagur
Kreditkortaþjónusta
Opið mánudaga-föstudaga kl. 12-18.30.
Laugardaga kl. 10-16. Sunnudaga kl. 13-17.
J*
þeim kostnaði sem fylgir sorp-
hirðu heimilanna á Dalvík og
eins eru margir óánægðir með
það hvernig fyrirtækin eru
flokkuð niður í gjaldflokka og
telja að þar sé lítið sem ekkert
tillit tekið til hversu mikið sorp
berst frá viðkomandi fyrirtæki
og vilja að flokkunum sé fjölg-
að til þess að meira samræmis
sé gætt milli einstakra fyrir-
tækja.
Fyrirtækin eru flokkuð í fjóra
gjaldflokka eftir stærð og öll
greiða þau fast grunngjald kr.
5.000. Fjögur fyrirtæki, Kaup-
félag Eyfirðinga - kjörbúð,
Kaupfélag Eyfirðinga - frystihús,
Sæplast hf. og Söltunarfélag Dal-
víkur eru í 1. flokki en þar er
gjaldið kr. 200.000 á ári.
í 2. flokki er gjaldið kr.
100.000, í 3. flokki kr. 50.000 og
í 4. flokki og jafnframt þeim
flokki sem langflest fyrirtækin
lenda í er gjaldið kr. 5.000. í
gjaldskrá um sorphirðu í Dalvík-
urbæ segir svo m.a. í 2. gr.: „Inn-
heimt skal kr. 4.000 af öllum
íbúðum á Dalvík fyrir hirðingu
og förgun sorps. Innheimt skal
kr. 5.000 af öllum atvinnufyrir-
tækjum á Dalvík fyrir förgun
sorps og framleiðsluúrgangs sem
til fellur." Af hverri íbúð skal því
greiða kr. 4.000 á ári og lægsta
gjald hjá fyrirtæki er kr. 10.000.
Heimilt er þó að fella álagningu
sorphreinsigjalds niður ef eigend-
ur annast alla hirðingu og flutn-
ing sorps á förgunarstað sjálfir,
þ.e. upp á Glerárdal ofan Akur-
eyrar. Ef allir einstaklingar og
fyrirtæki sem eru með rekstur á
Dalvík nýta sér þjónustu bæjar-
ins verður heildarupphæð
greiðslna samtals kr. 3.910.000.
Samkvæmt samþykkt Bæjar-
stjórnar Ólafsfjarðar er sorp-
hirðugjald á íbúðarhúsnæði þar
kr. 3.500 sem er 14% lægra en á
Dalvík og auk þess 18 km lengra
frá Akureyri tii Ólafsfjarðar en
til Dalvíkur og fyrir Ólafsfjarðar-
múla og gegnum jarðgöngin að
fara. Fimm aðilar á Ólafsfirði eru
í hæsta sorphirðuflokknum sem
er kr. 84.000. Síðan kemur
gjaldflokkur að upphæð 42.000.
þá 28.000, 21.000, 14.000, 7.000
Útvarpsmál Ólafsfirðinga:
Lagning jarðstrengs ekki á
dagskrá hjá Ríkisútvarpinu
- aðalvandamálið hefur verið sjávarselta
Umdæmissstjóri pósts og síma,
Ársæll Magnússon, ræddi við
forráðamenn Olafsfjarðarbæj-
ar í vikunni og kynnti þeim
m.a. þá áæltun RARIK að fyr-
ir dyrum stæði að skipta út
Skeiðfossvirkjun til Ólafsfjarð-
ar inn undir Kálfsá en síðan
verður sú lögn notuð fyrir
sveitalínuna á þessu svæði.
Akureyri:
Fjölmenni á
námskeiðum
fyrir at-
vinnulausa
Á annað hundrað atvinnulaus-
ir einstaklingar á Akureyri
hafa síðustu daga stundað nám
af kappi á fjölbreyttum nám-
skeiðum á vegum Verkmennta-
skólans á Akureyri og hjá
Tölvufræðslunni á Akureyri.
Félagsmálaráðuneytið fjár-
magnar námskeiðahaldið.
Námskeiðin hófust um miðjan
febrúar og þeim lýkur um miðjan
mars. Brynja Skarphéðinsdóttir,
fræðslufulltrúi Verkalýðsfélags-
ins Einingar, segir að mikil og
almenn ánægja hafi verið með
námskeiðin. Mestur áhugi var
fyrir tölvunámskeiðum og að
sögn Helga Kristinssonar hjá
Tölvufræðslunni á Akureyri hafa
á milli 55 og 60 manns sótt þau.
Helgi sagði að um væri að ræða
byrjendanámskeið og þátttak-
endur væru á öllum aldri.
En fleiri námskeið hafa reynst
vinsæl. Brynja nefndi ensku,
matreiðslu og saumaskap. Hins
vegar var ekki mikill áhugi fyrir
stærðfræði og dönsku. óþh
og loks 3.500 eins og áður er
getið. Samtals greiða einstakling-
ar og fyrirtæki í rekstri í Ólafs-
firði kr. 1.410.500 í sorphirðu-
gjald og er augljóslega verulegur
munur á hæsta gjaldflokki á Dal-
vík og í Ólafsfirði sem og reyndar
allri gjaldskránni.
Dalvíkurapótek er einnig með
rekstur í Ólafsfirði og ætti starf-
semin að flokkast svipað. Sam-
kvæmt gjaldskránni á Dalvík
greiðir fyrirtækið kr. 55.000 en í
Ólafsfirði kr. 14.000.
Mánudaginn 15. febrúar sl. var
haldinn fundur á Sæluhúsinu á
Dalvík þar sem þessi mál voru
rædd og einn aðili á Dalvík, Stef-
án Friðgeirsson, hefur lýst áhuga
sínum á að gera tilboð í flutning á
sorpi frá fyrirtækjum á Dalvík á
förgunarstað upp á Glerárdal.
Safnað var undirskriftarlistum
með nöfnum forráðamanna
þeirra fyrirtækja sem áhuga hafa
á því að kanna það hvort hægt er
að framkvæma sorphirðuna með
ódýrari hætti, t.d. með samning-
um við Stefán Friðgeirsson. Stef-
án hefur verið að ræða við ýmiss
fyrirtæki á Dalvík undanfarna
daga til að kanna hvort einhver
grundvöllur er fyrir því að gera
þeim tilboð. Stefán á sorpbíl og
igámabíl og þarf því ekki að fjár-
festa í nýjum tækjum til að geta
tekið þetta verkefni að sér ef um
.semst. GG
Þessar umræður tengjast því
að endurvarp fyrir Ríkis-
útvarpið og Sjónvarpið er á
sveitalínunni við Burstabrekku
og dettur hnan iðulega út ef eitt-
hvað álag myndast og Ólafs-
firðingar þar með sambands-
lausir sem er mjög bagalegt því
allar tilkynningar vegna t.d.
náttúruhamfara eiga að fara
fram gegnum Ríkisútvarpið.
Aðalvandamálið á þessu svæði
hefur verið sjávarselta en við
þessa breytingu batnar rekstrar-
öryggið nokkuð. Lagning jarð-
strengs frá Ólafsfjarðarbæ að
endurvarpsstöðvunum er mjög
kostnaðarsöm, áætlaður kostnað-
ur 1,5 milljónir króna, og Ríkis-
útvarpið getur eins og er ekki
ráðist í slíkar framkvæmdir.
Ársæll Magnússon segist kynna
yfirstjórn Pósts og síma málið
með bréfi en vill taka það sér-
staklega fram að Póstur og sími
hafi ekkert með lagningu jarð-
strengs að gera, það sé alfarið
ákvörðun Ríkisútvarpsins að
fjármagna þá framkvæmd en
Póstur og sími sé aðeins verktaki.
Öryggi Ólafsfirðinga í útvarps-
málum var aðeins hluti af þeim
viðræðum sem Ársæll átti með
þeim. Einnig kynnti hann þeim
þær breytingar sem orðnar eru
þar á símakerfinu en í desem-
bermánuði sl. var tekin þar í
notkun ný, stafræn símstöð. Jafn-
framt voru póstflutningar á
dagskrá, en um tíma hefur bætt
póstþjónusta við Ólafsfjörð, Dal-
vík og Hrísey verið til umræðu en
Héraðsnefnd Eyjafjarðar óskaði
eftir því við samgönguráðuneyt-
ið að gerð yrði úttekt á flutninga-
málum í Eyjafirði og hefur borist
skýrsla um þetta mál frá Byggða-
stofnun en henni var falið að ann-
ast úttektina. Með hliðsjón af
þessari skýrslu mun endurskoðun
póstflutningamálanna við utan-
verðan Eyjafjörð eiga sér stað.
GG
Siglufjörður:
Bæjannála-
punktar
■ Á fundi bæjarráðs fyrir
nokkru var lagt fram bréf frá
Herning kommune í Dan-
mörku þar sem skýrt er frá
hugmyndum um sameiginleg
evrópsk mótmæli gegn þjóð-
remþu og pólitísku ofbeldi.
■ í umsögn bæjarráðs Siglu-
fjarðar um skýrslu sveitar-
félaganefndarinnar svonefndu
kemur fram að „það sé grund-
vallaratriði að ná samkomu-
lagi um breytingar á verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélag-
anna áður en endanlegar tölur
um breytingar á umdæmum
þeirra verða til.“
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að veita afslátt af gjaldskrá
skíðalyftunnar í Skarðsdal yfir
páskahátíðina.
■ Theodór Júlíusson, leikari,
mun hafa yfirumsjón með
Síldarævintýrinu ’93 á Siglu-
firði um verslunarmannahelg-
ina í sumar. Bæjarráð hefur
samþykkt að óska eftir því við
Örlyg Kristfinnsson, Sturlaug
Kristjánsson, Guðna Sölva-
son, Baldvin Valtýsson og
Björn Valdimarsson að sitja í
undirbúningsnefnd ásamt
Theodóri.
■ Áfengisvarnarnefnd mælir
ekki með vínveitingaleyfi fyrir
Nýja Bíó hf. í bókun nefndar-
innar segir: „Ekki er ástæða til
að ætla að fjölgun þeirra staða
sem bjóða til sölu áfengi utan
ojmunartíma útsölustaða
ÁTVR, hafi þau áhrif að
minnka áfengisneyslu, heldur
þvert á móti auka hana og þar
með frekar auka en draga úr
þeim vandamálum sem þegar
eru til staðar í okkar samfélagi
og rekja má til notkunar
áfengis. í ljósi þessa er öll
nefndin sammála um að mæla
ekki með vínveitingaleyfi fyrir
Nýja Bíó hf.“