Dagur


Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 3

Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 3
Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Spáð i veðrið. Mynd: Robyn Sundlaug Glerárskóla til umræðu í bæjarráði: Áætlaður kostnaður við skápa og loftræstingu 3,7 milljónir - bæjarráð tekur undir sjónarmið íþrótta- og tómstundaráðs Eins og Dagur greindi frá í gær er loftræstikerfi Sundlaugar Glerárskóla mjög gallað og skápar í búningsklefum ónýtir. Aætlaður kostnaður við að lagfæra þessi atriði er hátt í 3,7 milljónir króna. Þetta kom fram í bókun íþrótta- og tóm- stundaráðs sem tekin var til umræðu á fundi bæjarráðs Akureyrar sl. fimmtudags- kvöld. Að sögn Sigurðar J. Sigurðs- sonar, formanns bæjarráðs, er áætlaður kostnaður við lagfær- ingu á loftræstikerfinu 672 þús- und krónur og kostnaður við að skipta um alla skápa í búnings- herbergjum er áætlaður 3 millj- ónir króna. Pá hafa þau atriði sem kippt hefur verið í liðinn og getið var um í frétt Dags í gær kostað samtals 1,5 milljónir Punktarór Ejjafjarðarsveit ■ Á síðasta fundi sveitar- stjómar Eyjafjarðarsveitar var ákveðið að lækka fasteigna- skatt á þessu ári úr 0,4 í 0,36. ■ Á sama fundi var rætt um stöðu atvinnumálaverkefnis, sem er fullum gangi og að standa Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Sval- barðsstrandarhreppur og Hálshreppur. Nokkrir hópar starfa að þessu átaksverkefni og var rætt á fundinum erindi frá einum þeirra, sent fjallar um gæða- og markaðsmál. í erindinu er velt upp hugmynd urn að opna skrifstofu sem myndi aðstoða smáfyrirtæki við að koma framleiðslu sinni á markað. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar tók vel í erindið og er hún tilbúin til viðræðna uni málið. ■ Þá var lagt fram erindi frá Hreiðari Hreiðarssyni, veit- ingamanni í Vín og rekstrar- aðila Hótel Vinjar, þar sem hann viðrar hugmynd um hótelrekstur í gamla skólanum að Laugalandi í Eyjafjarðar- sveit. í hugmyndinni er gert ráð fyrir að jafnvel verði um að ræða heilsárshótel. Þetta mál var ekki afgreitt á þessum fundi sveitarstjórnar. króna, þar af 493 þúsund vegna gallaðra hreinsikúta og 456 þús- und krónur kostaði að skipta um gólfefni í sturtu- og búningsklef- um. Bæjarráð tók undir þau sjón- armið íþrótta- og tómstundaráðs að bæjarverkfræðingi og bæjar- lögmanni verði falið að kanna réttarstöðu Akureyrarbæjar gagnvart hönnuðum og verktök- um sundlaugarinnar og huga um leið að innra eftirliti bæjarins. Skoðað verður hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við hönnun, byggingu eða eftirlit og hver beri ábyrgðina. „Petta verður skoðað og auð- vitað er nauðsynlegt að fá það upp á borðið hvað þarna hefur gerst. Þótt ekki sé óeðlilegt að einhver frágangsvinna komi upp við nýbyggingar hefur mönnum fundist að of mörg atriði hafi far- ið úr skorðum í sundlaugarbygg- ingunni og vitanlega er íþrótta- og tómstundaráð ekki sátt við að taka fjármuni út úr sínum rekstri til að mæta svo miklum viðhalds- kostnaði við byggingu sem ráðið á að taka við fullfrágenginni,“ sagði Sigurður. SS Könnun Bylgjunnar á Akureyri: Yfir helmingur þátttakenda ber ekki fiillt traust tíl forystu- manna verkalýðshreyfingarinnar - og telur að verkfall skili ekki bættum lífskjörum Umsjónarmenn þáttarins „Þessi þjóð“ á útvarpsstöðinni Bylgjunni stóðu fyrir könnun í þessari viku, þar sem spurt var um traust almennings til for- ystu verkalýðshreyfingarinnar annars vegar og hins vegar hvort allsherjarverkfall launa- fólks geti bætt lífskjörin. Á Akureyri lágu atkvæðaseðlar frammi í Hagkaup og barst 191 svar. í könnuninni kemur í ljós að yfir helmingur þeirra er þátt tóku telja að allsherjarverkfall geti ekki bætt lífskjörin og yfir helm- ingur þátttakenda ber ekki fullt traust til forystumanna verka- lýðshreyfingarinnar. Fyrri spurningin hljóðaði svo: „Telur þú að allsherjarverkfall launafólks í dag geti bætt lífs- kjörin"? Já sögðu 70, eða 36,7%, Nei sögðu 103, eða 53,9% en hlutlausir voru 18, eða 9,4%. Seinni spurningin hljóðaði svo: „Berð þú fullt traust til forystu- manna verkalýðshreyfingarinn- ar“? Já sögðu 59, eða 30,9%, Nei sögðu 108, eða 56,5%, hlutlausir voru 24, eða 12,6%. -KK Bæjarráð Akureyrar: AtvirmumálaneM hafi forgöngu um átaks- verkefni í ferðamálum Miklar umræður spunnust um ferðamál á fundi bæjar- ráðs Akureyrar sl. fímmtudag og var samþykkt bókun sem kemur til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnnr Akureyrar nk. þriðjudag. Eins og fram hefur komið hafa margir aðilar unnið að undanförnu að ýmsu sem lýtur að ferðamálum. Á sínum tíma vann atvinnumálanefnd bæjar- ins að stefnumótun í ferðamál- um og fyrir liggur skýrsla sam- starfshóps um ferðamál, skýrsla Björns Björnssonar fyrir Iðn- þróunarfélag Eyjafjarðar um jólasveina og fleira, erindi frá Umferðarmiðstöðinni um hækk- un á framlagi til upplýsingamið- stöðvar, erindi frá Ráðstefnu- skrifstofu íslands um hlutdeild Akureyrarbæjar í henni, erindi frá Gísla Gestssyni, þar sem hann býður fram aðstöðu fyrir upplýsingamiðstöð í væntan-, legu húsi við Kaupvangsstræti og erindi frá Ferðaþjónustu Akureyrar. „Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að atvinnumála- nefnd hafi forgöngu um að vinna átaksverkefni á sviði ferðamála, sem yrði unnið af hálfu atvinnumálanefndar, Iðn- þróunarfélagsins, héraðsnefnd- ar og hagsmunaaðila á svæðinu. Markmiðið með þessari vinnu yrði að fá fleiri ferðamenn til þess að heimsækja þennan landshluta og dvelja hér lengur í senn. Við viljum gjaman sjá að sá tillögu- og upplýsinga- grunnur sem fyrir er verði nýtt- ur til þess að vinna að verkefni sem spanni að minnsta kosti þrjú ár og lögð verði áhersla á Eyjafjarðarsvæðið sem eina heild og eitt markaðssvæði," sagði Sigurður J. Sigurðsson, formaður bæjarráðs Akureyrar. óþh Ákveðið að ræða við Úrbótamenn Eins og fram kom í Degi í gær er stefnt að því að svokallaðir Úrbótamenn standi á næstunni að stofnun fyrirtækis um end- urvinnslu plast- og pappírs- úrgangs. Fyrir bæjarráðsfundinum sl. fimmtudag lá erindi frá Úrbóta- mönnum um hugsanleg kaup á húseign Akureyrarbæjar að Réttarhvammi 3, þar sem Tré- smiðjan Tak hf. er nú til húsa. Sigurður J. Sigurðsson sagði að bæjarráð hafi ákveðið að hitta Úrbótamenn í næstu viku og jafnframt skoða umrædda hús- eign við Réttarhvamm. „Menn eru ekki neikvæðir út í að þetta húsnæði verði nýtt, spurningin er með hvaða hætti skynsamleg- ast sé að bærinn komi inn í þessa mynd," sagði Sigurður. óþh Eyjafjarðarsvæðið verði tekið inn í byggðaáætlun Töluverðar umræður hafa spunnist í þjóðfélaginu að undanförnu um byggðáætiun fyrir 1993 til 1996, sem Byggðastofnun hefur unnið. Bæjarráð fjallaði um þetta plagg á fundi sínum sl. fímmtudag. „Segja má að í meginatriðum lýsum við stuðningi við þau stefnumótandi atriði sem þar koma fram. Hins vegar viljum við leggja sérstaka áherslu á að eitt svæði verði byggt upp sem öflugt mótvægi við höfuðborg- arsvæðið og segjum að Eyja- fjarðarsvæðið sé eini raunhæfi kosturinn í því sambandi. Við teljum að inn í þessa áætlun eigi að setja sérstaka áætlun þar að lútandi. Ef verið er að tala um að flytja starfsemi frá höfuð- borgarsvæðinu út á land, þá teljum við skynsamlegast að flytja hana á stað sem getur sýnt öflugt mótvægi,“ sagði Sigurð- ur. óþh Norðurland vestra: Þátttaka í opiirni viku grunnskólaima misjöfti - foreldrar sem tóku þátt mjög ánægðir Þátttaka í opinni viku grunn- skólanna á Norðurlandi vestra var misjöfn, að sögn Ingibergs Guðmundssonar formanns Kcnnarasambands Norðurlands vestra. Þar sem vel tókst til voru foreldrar mjög ánægðir og Ingibergur telur fulla ástæðu til að endurtaka opna viku síðar. Opna vikan stóð yfir dagana 8.-12. febrúar að tilhlutan Kenn- arasambandsins. Þátttaka skól- anna var misjöfn, flensan setti víða strik í reikninginn og sums- staðar var ekkert gert. Þar sem skólar tóku þátt í opnu vikunni tókst yfirleitt vel til og aðsókn foreldra var ágæt. Aðsóknin var best í yngri bekkjunum. Ingi- bergur kvað foreldra hafa verið afar ánægða og lagði á það áherslu að foreldrar séu alltaf velkomnir í skólana. Hann segir fulla ástæðu til að foreldrar kynni sér hvað fram fer í skólastarfinu, enda séu börnin allt að 6-8 tíma á dag í skóla. Ingibergur sagði að þrátt fyrir misjafna þátttöku þá hefði opna vikan sannað gildi sitt. Hann sagði áhuga foreldra talsvert kominn undir virkni for- eldrafélaga og einnig hvatningu frá skólunum. sþ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.