Dagur - 27.02.1993, Page 9
Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 9
„Ég vil vera í nábýli við þá
sem eru að takast á við
listagyðjuna í Grófargili"
- segir Þyrí Eydal, tónlistarkennari, í helgarspjalli
Viðtal:
Óli Q. Jóhannsson
Mynd: Robyn
degi. Sögu get ég sagt er við stelpurnar feng-
um að flengja Júlíus bankastjóra.
Við vinkonurnar fórum snemma á fætur
til að flengja ættingjana og þáðum bollur
fyrir. Eftir að hafa gætt okkur á bollunum
vorum við staddar fyrir framan Útvegsbank-
ann, en þar réð Júlíus Sigurðsson ríkjum.
Ragnheiður konan hans var í bakgarðinum
að gefa hænunum þegar ein stelpan spurði
hvort við mættum flengja bankastjórann.
Ragnheiður tók málaleitan okkar vel og
dreif okkur upp á loft, þar sem bankastjór-
inn svaf undir þykkri dúnsæng. Júlíus vakn-
aði við fyrsta höggið og varð eitt sólskins-
bros, hafði gaman af uppátækinu. Þegar við
yfirgáfum bankastjórahúsið bauð frúin okk-
ur í bollukaffi síðar um daginn, sem var
þegið með þökkum. Þennan dag bragðaði
ég í fyrsta sinn rjómabollu, en heima hjá
mér voru alltaf rúsínubollur á boðstólum.
Öskudagurinn var einnig litríkur og bún-
ingarnir voru heimagerðir. Kötturinn var
sleginn úr tunnunni með tilþrifum og liðin
voru margmennari en í dag. Félagsandinn
réð ríkjum og við lögðum mikla vinnu í að
æfa sönginn. í dag hefur orðið breyting á til
hins verra. Ekki er vandað til söngsins og
krakkarnir hugsa aðeins um að bera sem
mest úr býtum og eru því gjaman tvö og tvö
saman. Efnishyggjan nú til dags ræður ríkj-
um á öllum sviðum.“
Alla tíð hef ég búið hér
við Skessunefið
„Tíminn hefur flogið hratt. Sjötíu og fimm
ár er þónokkur aldur og ég telst heppin að
fá að kenna enn. Tvisvar í viku fer ég inn í
Tónlistarskóla til að sinna nemendum
mínum. Heilsubót mikil er að fara í göngu-
ferðir þegar vel viðrar. Starf eldri borgara á
Akureyri er viðamikið, en ég hef ekki fund-
ið þörf hjá mér til að taka þátt í því. Margir,
sem eru komnir á minn aldur, hafa selt hús
sitt og búa nú í þjónustuíbúð. Ég hef ekki
getað hugsað mér það hlutskipti enn sem
komið er. Alla tíð hef ég búið hér við
Skessunefið, er orðin bundin staðnum. Ég
man vel eftir læknum sem rann hér niður
Grófargilið og brúnni fyrir framan húsið þar
sem Bautinn er nú. Steinþró var þarna
einnig, sem bændur brynntu hestum sínum
í, þegar þeir komu í kaupstaðinn. Hesthúsið
í Carólínu Rest var hér ofar í gilkjaftinum
og Mjólkursamlagið var hér við hliðina, fyr-
ir sunnan og neðan húsið okkar. Á hverjum
morgni vaknaði ég eldsnemma við skarkal-
ann frá Samlaginu og varð því mjög fegin
þegar tankbílarnir voru teknir í notkun.
Með tilkomu tankvæðingarinnar gat ég sof-
ið ögn lengur á morgnana. Nú eru listamenn
bæjarins að hreiðra um sig í Grófargili og
iðnrekstur Kaupfélags Eyfirðinga er á braut
að mestu. Ráðgert er að Ketilhúsinu verði
breytt í tónlistarhöll. Ég vildi gjarna lifa
þann dag að vera í nábýli við tónlistar-
musteri Akureyrarbæjar í Grófargili. Vaxt-
arbroddur menningar er mikill í bænum
okkar og ég lít til framtíðar björtum augum
hvað það varðar. Nei, það kemur ekki til
mála að ég flytji mig um set. Ég vil vera í
nábýli við þá sem eru að takast á við lista-
gyðjuna í Grófargili." ój