Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 13
Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 13
Ljód
Von gegn von
Tilboðsdagar
Rýmum fyrir vorvörunum
dagana 2., 3. og 4. mars 1993
Marga lætur marglát,
myrk sig spekin dýrka,
virðum leiðir varðar
vörðum höggorms gjörða.
Efla myrkraöflin
afl að skuggatafli.
Dimmur verður dimmri
dómur spilltum heimi.
Hatur þjóðir hvetur
heift að brýna oftast,
myrkrið elska að marki
meir en ljósið skæra.
Út í brimsog atalt,
æði stríðsins, hraða
sér og valda sárri
sorg í sveit og borgum.
Neyðin bitur næðir,
nístir sál og kvistar
von, sem grætur vanheit,
virt með orðasnyrting.
Nauð er hrokans niðji,
níðist vald á auðnu,
heggur náðarhöggi
hinztu vörn þeim minnsta.
Skortur þrönga skyrtu
skorið hefir firum,
sem um binda saman
sárt, en eigi kvarta.
Auð og glysi eyðir
eldur, réttvís geldur
laun, þeim svipta láni
lítilmagnann grátinn.
Pjóð mín, sjá hvað þáðir
þú af valdagrúa:
Bruðl, en samt þeir biðla
brattir þig um skatta!
Millíarðar milli
mektarbokka vigta
eins og fiður anzi
einum goludansi.
Menningar-
verðlaun DV
afhentí
finuntánda sinn
- verðlaun fyrir list-
sköpun í sjö listgreinum
Menningarverðlaun DV voru
afhent í fímmtánda sinn sl.
fímmtudag. Menningarverð-
laun DV eru veitt fyrir list-
sköpun á nýliðnu ári í sjö list-
greinum; bókmenntum, mynd-
list, leiklist, tónlist, kvik-
myndalist, byggingarlist og
listhönnun.
Skipaðar voru þriggja manna
dómnefndir sem fyrst tilnefndu
aðila sem að þeirra mati komu til
greina sem menningarverðlauna-
hafar. Eftirtaldir hlutu Menning-
arverðlaun DV að þessu sinni:
Bókmenntir: Linda Vilhjálms-
dóttir. Leiklist: Ólafur Haukur
Símonarson. Tónlist: Petri Sakari.
Listhönnun: Kolbrún Björgólfs-
dóttir. Myndlist: Pétur Arason.
Byggingarlist: Margrét Harðar-
dóttir og Steve Christer. Kvik-
myndir: Snorri Þórisson.
Verðlaunaafhendingin fór
fram í hádegisverðarboði í veislu-
salnum Þingholti í Reykjavík.
Ótal verða ýtar
auðs af völdum snauðir;
mitt í gullsins mætti
megna smátt að gagni.
Eigingirni ægir
elsku, sem hið falska
lýsir skæru ljósi,
leynd svo verði hrundið.
Hýrt í geði hjartans
hvílir von, sem bælir
allan kvíða, ella
yrði lífið byrði.
Andinn sækir yndi
inn í hugarkynni,
frjáls, þó bundinn frelsi
fyrir Orð, sem varir.
Víst, ó, Guð minn, vizku
veitt þú getur beitta,
svo að orðs með sverði
svæfist ógn við hæfi.
Ljós þitt sortann lýsi
leiftrum með, svo aftur
björt þín leið mér birtist,
blessuð sólarkossum.
Leng minn dag, og löngun
ljá mér, að ég fái
enn um hríð að annast
efni munahafnar.
Dæm mig ei að dómi
dauðans grimmu auðnar.
Pökk þar enginn þekkir
þylja hlýju máli.
30% afsláttur af öllum
vörum verslunariimar
Blíðust náðin breiðir
birtu inn í hjarta
það, sem ást Guðs þíðir
þótta úr og ótta.
Dreymir lífið drauma:
Dýrð Guðs hylji jörðu.
Hefir ráð svo hafið
hæstur Guð í Kristi.
Jón Hilmar Magnússon.
Varahlutaverslun
Óskum eftir að ráða vanan starfskraft í vara-
hlutaverslun á Akureyri.
Um heilsdags starf er að ræða. Framtíðaratvinna.
Áhugasamir leggi nafn, heimilisfang, kennitölu og
símanúmer á afgreiðslu Dags fyrir 3. mars merkt:
„Varahlutaverslun."
IVIenningarsamtök IXIorðlendinga og dagblaðið Dagur
hafa ákveðið að efna til samkeppni í ljóðlist.
Höfundur Ijóðsins, sem dúmnefnd metur best, fær að launum tvö meistaraverk
íslenskrar bókmenntasögu; Ritverk Jónasar Hallgrímssonar og 5turlunga sögu.
Höfundur Ijoðsins, sem dómnefnd mestur næstbest, hlýtur Sturlunga sögu að launum.
Þau Ijóð, sem hljúta verðlaun eða
viðurkenningu, verða birt í Degi og
ef til vill einnig í riti á vegum
IVIENDR. Aðstandendur keppninnar
áskilja sér rétt til að birta önnur
Ijúð sem send verða.
Engin mörk eru sett um lengd Ijóð-
anna og þau mega vera hvort sem
er hefðbundin eða óbundin.
Ljnðin skal senda undir dulnefni en
með skal fylgja rétt nafn, heimilis-
fang og símanúmer í Inkuðu um-
slagi, auðkenndu dulnefninu.
Skilafrestur Ijúða er tii 1B. mars
nk., sem er síðasti pústlagningar-
dagur.
Ritverk Jónasar Hallgríms-
sonar er glæsilegt safn. í
fjórum bindum og veglegri
öskju. alls rúmar 2.DDD blað-
síður að stærð. I. bindið ber
heitið „Ljóð og lausamál",
II. bindið „Bréf og dagbækur”.
III. bindi Náttúran og landið
og IV. bindi „5kýringar og
skrár”. Ritstjórar verksins eru
þeir Haukur Hannesson. Páll
Valsson og Sveinn Yngvi
Egilsson.
Útgefandi er
Mál og menning.
Utanáskriftin er.-
Menningarsamtök IMorðlendinga
b/t Únnu Helgadúttur
□uggugerði 2
670 Kúpasker
5turlunga saga. Hér er um að
ræða mjög veglega útgáfu:
þrjú bindi í fallegri öskju. alls
um 1.5DD blaðsíður að stærð.
Texti 5turlunga sögu. með nú-
tímastafsetningu. er í tveimur
bindum en í þriðja bindinu er að
finna orðskýringar, ættartalur.
nafnaskrá. kort og gmsa
texta. sem tengjast Sturlungu.
Útgefandi er Mál og menning.
Menningarsamtök IMarðlendinga - Oagur