Dagur - 27.02.1993, Side 19

Dagur - 27.02.1993, Side 19
Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 19 Kaldbakur er tignarlegur. Út með fjallinu er Látraströndin og Látrar sem hin dularfulla Látra- Björg kenndi sig við. Pað var einhverju sinni um þessar mundir, að Látra-Björg var sjónarvottur að hryllilegum atburði. Maður hrapaði fyr- ir björg og beið bana, en jafnvel svo átakanleg sjón gat ekki lengur freistað hennar til að gefa eðlilegum tilfinningum lausan taum, heldur varpaði hún fram þessari alkunnu vísu, sem er jafnminnis- stæð fyrir hina skörpu skáldsýn sem hina yfirþyrmandi beiskju og kulda. Fallega það fer og nett, flughálkan er undir. Hann er að hrapa klett afklett, kominn niður á grundir. Verður fólki naumast láð, þó að það hafi lítt kunnað að meta slíka kaldrænu, enda hefur það sennilega ekki haft í huga rök, er til hennar lágu. En hvort mun Látrá-Björg eícki éinmitt hafa séð sjálfa sig í falli þessa hrapandi manns, sem hún var að lýsa? Að minnsta kosti er auðsætt, að eitthvað hefur brostið hið innra með henni um þessar mundir og orðið þess valdandi, að los komst á líf hennar. Hún festi ekki framar yndi á æskustöðvunum, heldur lagði hún land undir fót. Þar með hófst sú skuggalega píslar- ganga, sem lauk fyrst mannsaldri seinna - í fjarlægum kirkjugarði. En jafnvel ævilöng helganga lætur ekki endilega eftir sig þau tíðindi, sem færð séu í annála. Sá, sem þar er á ferð, leitar sér sjaldan samfylgdar og verður því að jafn- aði einn um sögu sína. Þess vegna svarar það ekki heldur kostnaði að þreifa fyrir sér um samfelldan æviþráð Látra-Bjargar. Hann verður aldrei rakinn. En allt að einu sést sums staðar hilla undir mynd hennar, þar sem hún lætur svo lítið að staldra við og hefur ýmist merkt sér viðkomustaðinn með fleygri vísu eða áhrínsorðum. Hvergi verður þess vart, að Látra-Björg hafi neytt ættgöfgi sinnar sér til framdrátt- ar, en hins þótti tíðum gæta, að hún væri öðrum djarfmálli við höfðingja. Segir Gísli Konráðsson af því þessa sögu: „Þegar Björg var á flækingi - kom hún eitt sinn á Möðruvelli í Hörgárdal. Var þar þá kominn Stefán amtmaður Þórarinsson. Gast honum illa að vergangi og betli. Spurði hann komu Bjargar og hljóp út. Var hann maður örlyndur og bráðsinna. Hún heilsaði honum sem einfaldlegast og sagði: „Sæll vertu, Stefán minn.“ Reiddist hann bæði ósnyrtni hennar og flakkinu og tók nú að vítaí:hana sem harðlegast og heita henni hö’rðu, ef hún héldi slíku áfram. Kvað þá Björg þessa vísu: Þó að gæfan mér sé mót og mig í saurinn þrykki, get ég ekki heiðrað hót hofmóðuga gikki. Og gekk við það af stað. En eigi var hún komin nema út fyrir túnið, er amtmaður kallaði til hennar. En hún ansaði því ekki, hann hljóp á eftir henni og skipaði að bíða. Við það stansaði hún, en ógerla heyrðu menn, hvað þau töluðust við, en það sáu menn, að þau settust niður, skammt hvort frá öðru, áður hann hljóp heim og lét færa henni ull og smjör. Sagði hann hana eigi vit skorta, en ærin norn væri hún. Furðaði marga, hve ríflega hann lét gefa henni...“ Eins og fyrr segir, var flakk Látra-Bjarg- ar yfirleitt látið afskiptalaust, en þó var að minnsta kosti ein undantekning frá þeirri reglu. Þá var sýslumaður norðlenskur, að sjálfsögðu er Jón hét, Benediktsson, hinn merkasti maður og bjó að Rauðuskriðu. Stefndi hann Björgu á sinn fund, ávítaði hana harðlega fyrir flakk og krafðist þess, að hún gæfi eiðfest loforð um að leggja það niður. Svaraði hún fyrst fáu til og horfði í gaupnir sér, en leit síðan fast og beint í augu sýslumanns og sagði: Beiði ég þann, er drýgði dáð og deyð á hörðum krossi leið, að sneyða þig af nægt og náð, ef neyðirðu mig að vinna eið. Varð sýslumanni felmt við, en lét þó ekki af uppteknum hætti og hótaði að kveða upp yfir henni sektardóm, ef hún bætti ekki ráð sitt. Svaraði þá Björg fyrir sig með annarri vísu: Dómarinn Jón, þú dæmir mig. Dómarinn sá er skæður. En dómarinn sá mun dæma þig, sem dómunum öllum ræður. Fleiri landfleygum vísum varpaði Látra- Björg fram af tilefni þessu, en annars er ekki vitað, hversu viðskiptum þeirra sýslu- manns lauk. Hitt var á allra vitorði, að varla var Björg fyrr farin frá Rauðuskriðu, í þetta sinn, en að sýslumaður kenndi verkjar í fótum. Ágerðust þau veikindi, uns hann lamaðist að mestu, og dró sótt þessi hann loks til dauða. Kirkja og staðar- hús, sem hann hafði látið reisa með mikl- um myndarbrag, voru þá hvort tveggja rifin, og þótti almenningi einsætt, að þar væri til fullnustu kominn fram sá eftir- minnilegi dómur, sem Látra-Björg hafði kallað yfir hann. Það er ekki mót von, að þeim Látra- búendum hafi verið neitt kærkomið að fá erlend skip eða duggur að þessum afskekkta stað og síst af öllu Björgu. Eitt sinn sást á siglingu svart skip og var með stefnu á Látra. Óhug setti að fólki, því það taldi að ræningjaskip væri þarna á ferð. Þá kvað Látra-Björg eftirfarandi vísu: Sunnan og vestan sendi vind, sjálfur heilagur andi, stýri þeirri strauma-hind strax frá voru landi. Ekki verður þess neins staðar vart, að Látra-Björg hafi sjálf haldið því á lofti, að hún væri kraftaskáld, enda þurfti hún þess ekki með. Almenningur hafði nægar sönn- ur fyrir, að svo væri, og trúði því fullum fetum, eins og mýmörg dæmi sýna. Var og tíðum leitað til hennar um liðveislu í vandamálum, sem ofar stóðu mannlegum mætti, og gat þá oltið á ýmsu um undir- tektir frá hennar hendi. En trúin á kynngi og kraftaskáldskap Látra-Bjargar var ekki einvörðungu til þess fallin að greiða götu hennar. Hitt gat líka borið við, að þessi sami átrúnaður yrði henni til dómsáfellis að ósekju. Þannig kom hún eitt sinn á gamalsaldri að Skútu- stöðum, en þar var þá prestur séra Vigfús Björnsson. Tók prestur henni kuldalega og veitti henni harðar átölur fyrir fjölkynngi og vergang. Engar sögur fara af því, hverju hún svaraði til, og ekki hafði hún neinn kveðskap yfir í það sinnið, en hitt var á orði haft, að mjög hefði hún verið þykkjuþung á svip og augnaráðið hel- dimmt, en hún hvarf þegjandi á burt og án þess að kveðja. Prestur átti fósturbarn ungt, sem hann hafði lagt mikla ást við, en nú bar svo við, að jafnsnemma og Látra- Björg var farin, tók barnið sótt svo þunga, að því var vart hugað líf. Þótti þá einsætt, að þar væri að verki hin aldna seiðkona, og hefði hún valið þessa leið til að koma fram hefndum yfir prest. Dró ekki úr þeirri trú, þegar fóstru barnsins dreymdi eina nótt- ina, að Látra-Björg kæmi til sín og byðist til að vaka yfir barninu. Það andaðist þessa sömu nótt, og þurfti þá ekki framar vitn- anna við. Látra-Björg tók þennan atburð mjög nærri sér, þó að hún bæri þann harm sem annan í hljóði. Ekki verður með sanni vitað, hversu víða Látra-Björg hefur lagt leið sína, en sennilega hefur hún gist flest héruð landsins. Víst er um það, að hún hefur eitt sinn komið til Viðeyjar og þá sennilega til Reykjavíkur. En vorið 1785 er hún aftur komin á forn- ar slóðir, norður á Langanesi. Þetta er ár dauðans. Skuggi Móðuharðindanna hvílir yfir landinu. Þrátt fyrir það gerir hún ná- grönnum sínum eftirmæli: Loddarar á Langanesi búa. Að liðnum þeirra lífdögum þeir legstað eiga í kvölunum. Sjálf er Látra-Björg komin að fótum fram, orðin þreytt og þjáð. Hún er stað- ráðin í að ljúka helgöngu sinni á sömu slóðum og hún lagði upp í hana - fyrir hartnær mannsaldri. Þá yrkur hún eina af síðustu vísum sínum: Langanes er Ijótur tangi. Lygin er þar oft á gangi. Margur ber þar fisk í fangi, en fáir að honum búa. - Nú vil ég heim til sveitar minnar snúa. Og þetta tekst. Með nærfellt yfirmann- legum vilja bera hinstu kraftar skininna beina þennan undarlega einfara og seið- konu heim á hrikalegar æskuslóðir; þar deyr hún 26. september um haustið 1785. Legstaður hennar er í Höfðakirkjugarði í námunda við sýslumanninn Sæmund Hrólfsson afa hennar - týnt nútímanum eins og vera ber. i VVít t • | 1 w ; : '1 Bláa kápan hjá LA 1961. Frá vinstri: Björg Baldvinsdóttir, Jóhann Ögmundsson, Egill Jónasson, Haraldur Sigurðsson, Sigtryggur Stefánsson, Sigríður P. Jónsdóttir, Ragnhildur Steingrímsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, Brynhildur Steingrímsdóttir, Halldór Helgason, Jóhann Konráðsson og Júlíus Oddsson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.