Dagur - 27.02.1993, Page 23
í UPPÁHALDI
Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 23
„Eldamermska í uppáhaldi enda er ég nautnamanneskja“
Elfa Ágústsdóttir dýralæknir
kom til starfa á Akureyri
1985 og hefur frá upphafi
starfað með föður sínum,
Ágústi Þorleifssyni og Guðmundi
Knudsen og hefur auk þess sérstak-
lega sinnt umönnun gæludýra. Elfa er
að byggja dýraspítala upp í Lög-
mannshlíð sem tekinn verður í notk-
un í haust og verður hann sambyggð-
ur hesthúsi og hestaspítala og verður
það algjör bylting á allri aðstöðu.
Elfa er „original" Akureyringur,
fædd og uppalin hér, faðir hennar er
ættaður frá Hrísey en móðir hennar
Akureyringur. Eiginmaður Elfu er
Höskuldur Jónsson tamningamaður.
Hvað gerirðu lielst ífrístundum?
„Mínar fáu frístundir tengjast allar
hestamennsku og sameinast þannig
vel starfið og frístundimar."
Hvaða matur er í mestu uppálialdi hjá
þér?
„íslenska lambakjötið og fískisúpa
Maríu Grenó.“
segir Elfa Ágústsdóttir
Elfa Ágústsdóttir.
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu?
,JEg kaupi Dag og Moggann, Eiðfaxa
og Hestinn okkar og fleira sem ég
kemst yfir ef það tengist hesta-
mennsku á einhvem hátt.“
Hvað horfirðu helst á í sjónvarpi?
„Fréttir og ýmislegt afþreyingarefni.
Það er enginn sérstakur sjónvarps-
þáttur sem heillar mig öðrum frem-
ur.“
Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mest álit?
„Það er best að svara þessari spum-
ingu þannig að af stjómarliðinu tel ég
að Halldór Blöndai landbúnaðarráð-
herra hafi staðið sig best.“
Hvar á landinu vildirðu helst báa fyrir
utan heimahagana?
„Ætli ég vildi ekki bara vera bónda-
kona á litlu býii frammi í afdal t.d.
fremst í Bárðadal því ég vildi vera á
rólegum stað í sveit. Bárðadalur upp-
fyllir ágætlega þau skilyrði."
Hvað myndirðu kaupa ef þú fengir
100 þúsund kaU upp úrþurru?
„Þetta þarf lítillar umhugsunar við.
Ég mundi kaupa flísar á nýja dýra-
spítalann og þar með væri peningur-
inn uppurinn."
Uppáhaldsdrykkur?
„Tvímælalaust bjór, rauðvín og sóda-
vatn.“
Ertuhamhleypa til allra verka á heim-
iiinu?
„Ég geri það sem gera þarf en ég
held að ég sem mest hamhleypa við
eldamennskuna, enda í nokkru uppá-
haldi. Það dregur hins vegar frekar úr
því þegar kemur að því t.d. að ryk-
suga eða þurrka af.“
Spáirðu mikið í heUsusamlegt líferni?
„Nei, alls ekki neitt. Ég er mikil
nautnamanneskja, sérstaklega á mat
og ég tel að það hollasta sem maður
gerir er að láta sér líða vel. Það er
mitt „rnottó" gagnvart heilsusamlegu
lífemi.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
,Æg er að lesa bók sem heitir „Sálm-
ur að leiðarlokum" eftir Norðmann-
inn Erik Fostnes Hansen og fjailar
hún um síðustu ferð Titanic-skipsins.
Það er mjög skemmtileg og athyglis-
verð bók sem nýlega var þýdd á (s-
lensku."
Hvaða hljómsveitltónlistarmaður er í
mestu uppáhaldi hjá þér?
„Ég hlusta á ýmislegt, ætli það sé
ekki hægt að segja að við hjónin sé-
um alætur á músík og því ekkert sér-
stakt í uppáhaldi. Ég er ekki mjög
músíkkölsk."
Uppáhaldsíþróttamaður?
„Norsku skíðagöngukappamir Ul-
vang og Dhælie.“
Hvemig myndirðu eyða þriggja vikna
vetrarfríi?
„Ég held að ég mundi fara á sólar-
strönd. Það skiptir ekki máli hvort
það er á Ítalíu, Spáni eða kannski á
Flórída en hins vegar stendur örugg-
lega ekkert vetrarfrí fyrir dyram á
næstu árum.“
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Um helgina er ég á vakt þannig að
það er vinnan sem er framundan
þessa helgi. Það getur stundum verið
nokkuð að gera um helgar og nú era
kýmar svolftiÖ famar að bera og því
fylgir ýmiss fæðingarhjálp t.d. hjá
kvígunum. Það má því segja að það
sé að renna upp svolítill annatími
hvað varðar blessaðar kýmar. Annars
era kýmar mjög hraustar.*1 GG
PÓSTKORT FRÁ PAU
Hvað víta Frakkar
um ísland?
Kæri vinur!
Alltaf höfum við íslendingar
talið okkur til stórþjóða þrátt fyr-
ir fámennið, enda ríkidæmi okk-
ar með eindæmum. Okkur þykir
sjálfsagt að allur heimurinn þekki
ísland og sérstaklega þá íslend-
inga sem komist hafa í sviðsljósið
erlendis, t.d. fyrir „einstæð
afrek“ á sviði lista. Ég hef í vetur
gert lítillega könnun á því hvað
fólk suður undir landamærum
Spánar veit um okkar ískalda
land og fengið mörg forvitnileg
svör. Samkvæmt könnuninni
leikur enginn vafi á, að við erum
stórþjóð, því þegar ég hef beðið
fólk að giska á hversu fjölmennir
íslendingar séu, þá hef ég fengið
að heyra ótrúlegustu tölur. Sú
allra hæsta var hjá einum frönsk-
um háskólastúdent sem byrjaði á
að segja 26 milljónir. Ekki fjarri
lagi ef við myndum hafa sama
íbúafjölda á ferkílómetra og
Frakkar, en ansi langt frá hinni
raunverulegu kvartmilljón, sem
fær fólk alltaf til að glenna upp
glyrnur og galopna ginið. í aug-
um heimsbyggðarinnar erum við
milljónaþjóð, þ.e.a.s. hjá þeim
sem lítið sem ekkert vita um
ísland.
Þeir sem komnir eru yfir þrítugt
virðast vita aðeins betur en þeir
sem yngri eru. Margir hafa spurt
hvort það sé ennþá kona sem
stjórni okkur sem forseti eða þá
hvernig eldfjöllunum líði. Sumir
segjast hafa lesið eða skoðað
ferðabækur um ísland og séð í
þeim hina hrikalegu náttúru
okkar. í framhaldi af því hafa
þeir síðan lýst yfir áhuga sínum á
að ferðast til þessa kalda lands í
norðri.
Til að kynna mér hvað þeir
hefðu lesið í þessum bókum og
bæklingum fyrir ferðamenn, brá
ég mér um daginn inn í verslun
með slíkan varning. Þar rakst ég
á tvær nokkuð vandaðar, lit-
prentaðar og bundnar bækur um
Isiand og þótti þær komast nokk-
uð vel frá hlutverki sínu. Hins
vegar er ég ekki yfir mig hrifinn
af þeim orðum sem ein af þekkt-
ustu leiðsögubókaseríum
Frakka, fer um ísland. Af
skiljanlegum ástæðum eru ferða-
langar þar varaðir við hvað allt
kosti mikið og m.a. bent á að
reyna að versla sér egg og lopa-
peysur hjá bændum en ekki í
verslunum þéttbýlisins. Öll
kjötvara er sögð dýr nema
lambakjöt og síðan náttúrulega
hvalkjöt. Því miður fyrir okkur
íslendinga er sá sem skrifaði
þessa grein einnig mikill hvalfrið-
unarsinni, því í bókinni stendur-
með stórum stöfum: „Ekki
kaupa hvalkjöt“ og til að fyrir-
byggja allan misskilning er greint
frá því undir hvaða heitum það
finnist í kjötborðum verslana.
Svo nokkuð sé nefnt er síðan
auðvitað farið fögrum orðum um
skemmtanagleði landans um
helgar og fólki bent á að tilvalið
sé að blanda geði við heimamenn
með að kaupa sér eina flösku af
sterku áfengi og leita uppi íslend-
inga í gleðiham. Allt er þetta
auðvitað satt, en...
í þessum ferðabókum stendur
lítið um hina heimsfrægu tónlist-
argáfu okkar íslendinga og engan
Frakka hef ég enn hitt sem kann-
ast við Sykurmolana eða Kristján
Jóhannsson. Kannski engin furða
þegar jafnaldrar mínir frá Sví-
þjóð telja Molana vera breska
eða ameríska. Einhvers staðar
rakst ég hins vegar á einn sem
kannaðist við Messoforte, en þú
getur aftur á móti aldrei giskað á
hvað er eina íslenska lagið sem
ég hef heyrt í frönsku útvarpi.
Þannig var mál með vexti að ég
sat inni á frönskum skyndibita-
stað og var að gæða mér á ham-
borgara og frönskum. Þá allt í
einu stóð ég sjálfan mig að því,
að vera farinn að raula með lag-
inu sem glumdi í hátalarakerfi
staðarins. Þegar ég lagði eyrun
betur við áttaði ég mig á, að
þarna var á ferðinni; „Hægt og
hljótt" eftir Valgeir Guðjónsson í
ensku útgáfunni. Útlit er því fyrir
að þrátt fyrir að ekki hafi tekist
að vinna sigur í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva með
laginu á sínum tíma, þrátt fyrir
góðar líkur, þá hafi Valgeiri og
Höllu Margréti tekist að syngja
sig inn í rómantísk hjörtu
Frakka, sem ég ætla að fræða þig
betur um í næsta pistli.
Ton ami
SBG
Tilboð óskast
Vátryggingafélag íslands hf., Akureyri, óskar eftirtil-
boðum í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum.
Renault 21 Nevada, 4x4
Cherokee Laredo....
MMC Lancer GLX ...
Subaru Justy J 10 ...
Skoda 130 GL ......
Nissan Pulsar SLX ..
Daihatsu Cuore, 4x4
MMC Lancer F ...
Isuzu Trooper...
Ranger Rover....
MMC Colt .......
árgerð 1992
árgerð 1991
árgerð 1988
árgerð 1988
árgerð 1988
árgerð 1987
árgerð 1987
árgerð 1983
árgerð 1983
árgerð 1985
árgerð 1987
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð
VÍS að Furuvöllum 11, Akureyri, mánudaginn 1.
mars nk., frá kl. 9.00 til 16.00.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16.00 sama
dag.
W
VÁTRYGGINGAFELAG
ÍSLANDS HF
Akureyri.
Bókasafnsfræðingur
Laus er til umsóknar staða bókasafnsfræð-
ings við Amtsbókasafnið á Akureyri.
Ráðið verður í starfið frá 1. júní nk. eða eftir nán-
ara samkomulagi. Laun samkvæmt Kjarasamn-
ingi STAK og Akureyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið gefa amtsbókavörður í
síma 96-24141 og starfsmannastjóri í síma 96-
21000. Umsóknareyðublöð fást í starfsmanna-
deild Akureyrarbæjar í Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 12. mars nk.
Starfsmannastjóri.
Félagsráðgjafar
Félagsmálastofnun Akureyrar óskar eftir því
að ráða félagsráðgjafa í apríl nk.
Laun samkv. kjarasamningi STAK og Akureyrar-
oæjar.
Upplýsingar veita deildarstjóri ráðgjafadeildar í
síma 96-25880 og starfsmannastjóri Akureyrar-
bæjar í síma 96-21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 1993.
Starfsmannastjóri.
Elskulegur eiginmaður minn,
VALDIMAR SIGURÐSSON,
Víðilundi 18, Akureyri,
lést á Hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
mánudaginn 22. febrúar.
F.h. aðstandenda,
Hrafnhildur Þorvaldsdóttir.