Dagur - 09.03.1993, Blaðsíða 1

Dagur - 09.03.1993, Blaðsíða 1
Viðræður um kaup ÚA á þýska útgerðarfyrirtækinu: Fóru yfir málið á fundi í Danmörku „Málið liggur nú að mestu leyti fyrir og ég vænti þess að fljót- lega verði rekinn endahnykkur á það,“ sagði Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Utgerðarfélags Akureyringa hf., um viðræður um kaup félagsins á meirihluta ■ þýska útgerðarfyrirtækinu Rostocker Hochseetisherei. Gunnar Ragnars og Björgólfur Jóhannsson, fjármálastjóri ÚA, áttu um helgina fund í Dan- mörku með fulltrúum eignaraðila þýska útgerðarfyrirtækisins. Gunnar sagði að á þeim fundi hafi verið farið yfir ýmis atriði málsins, þar á meðal nýjar sam- þykktir félagsins og samstarfs- samning. „Það má segja að þessi vinna sé langt komin,“ sagði Gunnar Ragnars og bætti við að enn sé miðað við að skrifa undir samninga um kaupin í þessum mánuði. óþh Fjölmenni fylgdist með Vetrarleikum íþróttadeiidar Léttis s.I. laugardag og þar mátti berja augum margan glæsi- iegan fákinn. Nánari umfjöllun síðar. Mynd: ój Viðbygging við Hvamm á Húsavík: Smáverktakar buðu lægst Breyting á reglugerð vegna löggildingarmála iðnmeistara: Átthagaflötrar úr sögumii - segir Haukur Þór Adolfsson, pípulagningarmeistari, og er ánægður með reglugerðarbreytinguna Smáverktakar á Húsavík áttu lægsta tilboð í 2. útboð á 1. áfanga viðbyggingar við Hvamm, dvalarheimili aldraðra. Tilboðið nam tæplega 55,9 milljónum eða 83,94% af kostnaðaráætlun, sem er tæpar 66,6 milljónir. Alls bárust fimm tilboð í verk- ið og voru þau opnuð hjá Tækni- þjónustunni hf. sl. föstudag. Ver- ið er að yfirfara tilboðin og eftir er að taka afstöðu til þeirra. Um er að ræða fullnaðarfrá- gang á fokheldri þriggja hæða viðbyggingu, alls 1900 fm. og eru verklok miðuð við vorið ’94. í húsinu eru 16 íbúðir og sameigin- Skagfírðingur SK-4 seldi 117 tonn af karfa í Bremerhaven á mánudagsmorgun. Meðalverð- ið var 121 króna á kílóið sem er talsvert lægra en meðalverð- ið sem Skagfírðingur hf. hefur fengið. Að sögn Gísla S. Ein- arssonar útgerðarstjóra Skag- fírðings er hér fyrst og fremst um að kenna sölu á ódýrum karfaflökum frá íslenskum fyrirtækjum. Heildarverðmæti afla Skagfirð- ings SK-4 voru 14,2 milljónir króna. Meðalverð útgerðarinnar er um 146 krónur, þannig að Húsavík: Ölvun við akstur Ökumaður sem grunaður var um ölvun við akstur var tekinn á Húsavík á laugar- dag. Að öðru leyti var rólegt hjá lögreglu um helgina og að sögn hennar fór dansleikur á föstudagskvöld býsna vel fram. Þá um kvöldið lauk dilli- dögum nemenda Framhalds- skólans með árshátíð. IM legt rými. Smáverktakarnir sem áttu lægsta tilboðið eru bygginga- meistarar á Húsavík, þeir reka smærri fyrirtæki sem starfa að ýmsum greinum byggingariðnað- ar og tóku sig saman um útboðið undir þessu nafni. Trésmiðjan Bjarg, sem annast fyrri áfanga verksins, átti næstlægsta boðið, tæplega 64,7 milljónir eða 97,16% af kostnaðaráætlun. Fjal- ar hf. bauð tæpar 65 milljónir, eða 97,65 af áætlun, Eykt hf. Reykja- vík var með tæpar 67 milljónir eða 100,60% af áætlun og Helgi Vigfússon var með rúmlega 71,1 milljón eða 106,90 af áætlun. IM meðalverðið sem nú fékkst var talsvert undir því. „Þetta er hærra en meðalverðið þarna úti, en við erum samt ekki ánægðir með það“, sagði Gísli. Hann tel- ur meginskýringuna vera þá að nú hafi íslendingar tekið við af Færeyingum við að flytja út fersk karfaflök á alltof lágu verði. Gísli segir að þessi fyrirtæki séu að Brotist var inn í Gagnfræða- skólann á Sauðárkróki nú um helgina. Er þetta í annað sinn á skömmum tíma. Þó nokkrar skemmdir voru unnar á hús- næði skólans og bæði stolið munum og peningum. Málið er í rannsókn. Tilkynnt var um innbrotið á sunnudagsmorgun, en óvíst hve- „Þessi breyting felur það í sér að ef menn geta sýnt fram á þriggja ára starfsreynslu eftir viðurkenningu bygginganefnd- ar, þá hafa þeir sama rétt til viðurkenningar og aðrir sem hafa farið í meistaraskóla,“ segir Aðalheiður Jóhannsdótt- ir, lögfræðingur í umhverfís- ráðuneytinu, sem var formað- ur nefndar er skipuð var 3. aprfl 1992 til þess að kanna selja flökin á meira en helmingi lægra verði m.v. heilan fisk og það sé ekkert vit í því. „Eina sem við sjáum til bjargar er að sett verði lágmarksverð á þennan fisk og þessir aðilar hætti að afhenda fisk á þessu verði. Þetta eyðilegg- ur fyrir okkur og öllum sem eru að flytja út ferskan fisk“, sagði Gísli. sþ nær um helgina það var framið. Fjórar hurðir á kennslustofum voru brotnar upp og þrjár þeirra gjöreyðilagðar, auk annarra minniháttar skemmda. Stolið var geislaspilara, myndavél og 12 þúsund krónum í peningum. Ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki, en málið er í rannsókn. sþ framkvæmd viðurkenningar- mála iðnmeistara og gera til- lögur um úrbætur. Nefndin skilaði af sér í des- ember sl. og þann 24. febrúar sl. tók gildi reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð nr. 177 frá 1992 sem gerir ráð fyrir að auk þeirra iðnmeistara, sem lokið hafi meistaraskóla eða hlotið hlið- stæða menntun, veiti byggingar- nefnd á hverjum stað viðurkenn- ingu „öðrum iðnmeisturum sem hafa að staðaldri haft umsjón með og borið ábyrgð á bygging- arframkvæmdum í a.m.k. þrjú ár eftir viðurkenningu byggingar- nefndar þar sem ekki var meist- araskóli í byggingarnefndar- umdæmi eða næsta nágrenni." Löggildingarmál iðnmeistara hafa verið mikið í umræðuni á undanförnum árum og hefur mál Hauks Þórs Adolfssonar, pípu- lagningarmeistara á Akureyri, verið oft nefnt í því sambandi. Hann hefur tekið að sér fjölda verka á höfuðborgarsvæðinu og fengið heimild bygginganefnda í Hafnarfirði, Kópavogi, Garða- bæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Besstastaðahreppi til þess að standa fyrir byggingafram- kvæmdum í þessum sveitarfélög- um. Haukur Þór óskaði sömu- leiðis eftir löggildingu í Reykja- vík, en enn þann dag í dag hefur hann ekki fengið hana. Reyndar samþykkti borgarráð Reykjavík- ur að veita honum löggildingu með bréfi dagsettu 11. mars 1992, en þrátt fyrir þá afgreiðslu synjaði byggingarnefnd Reykja- víkur honum um löggildingu með bréfi dagsettu 30. júlí 1992. Eins og áður segir var skipuð nefnd á síðasta ári til að skoða þessi löggildingarmál og var tilefnið nokkur mál sem upp höfðu komið, þar á meðal mál Hauks Þórs Adolfssonar. Aðal- heiður Jóhannsdóttir, lög- fræðingur, var formaður nefndar- innar, en aðrir í henni voru Har- aldur Sumarliðason, forseti Landssambands iðnaðarmanna, Rán Tryggvadóttir, lögfræðingur í iðnaðarráðuneytinu og Magnús Óskarsson, borgarlögmaður, fulltrúi Sambands íslenskra sveit- arfélaga. Haukur Þór Adolfsson sagðist í gær vera afar ánægður með þessa nýsettu reglugerð og með henni væru úr sögunni svonefndir átthagafjötrar iðnmeistara, sem óneitanlega hafi verið til staðar. Haukur sagði að þarna væri um að ræða mjög stórt hagsmunamál allra iðnmeistara, sama væri að hvaða starfsgrein þeir kæmu. Undir þetta tók Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi. Hann sagði þessa niðurstöðu mjög ánægjulega og í höfn væri stórt hagsmunamál iðn- meistara. óþh Söfnun til styrktar krabba- meinssjúkum börnum: 52,8 mfflj- ónir króna Alls söfnuöust 52,8 milljónir króna til styrktar krabba- meinssjúkum börnum er Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna stóö fyrir söfnun og áheitum sl. föstudag, í samráði við ýmsa aðila. Jafn- hliða því ákváðu ýmsar versl- anir að Iáta ákveðna % af veltu föstudagsins renna til söfn- unarinnar og seldir voru bolir til styktar verkefninu og verða þeir áfram til sölu meðan birgðir endast. A sunnudag var uppboð á mál- verkum á Gallerí Borg til styrkt- ar krabbameinssjúkum börnum og þrjú fyrirtæki, flugfélagið Atl- anta, OLÍS og Samvinnuferðir Landsýn gáfu ferð til Dublinar að verðmæti 1,8 milljónir króna. GG Skagfirðingur SK seldi í Þýskalandi: Kenni um ódýrum flökum frá íslandi - segir Gísli S. Einarsson um lágt meðalverð á karfa Sauðárkrókur: Brotist irm í Gagnfræðaskólann - þjófnaður og skemmdarverk

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.