Dagur - 09.03.1993, Blaðsíða 9

Dagur - 09.03.1993, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 9. mars 1993 - DAGUR - 9 Forskot Bayem Miinchen eykst - allt gengur á afturfótunum hjá Stuttgart Nú um helgina fór 20. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fram. Þegar 14 umferðum er ólokið hefur Bayern Miinchen náð þriggja stiga forustu og fátt virðist geta komið í veg fyrir að liðið vinni sinn 13. meistaratitil í vor. ■ Á laugardaginn fékk liðið Eintracht Frankfurt í heimsókn, sem var aðeins einu stigi á eftir Bayern fyrir þessa umferð. Leikurinn þótti afskaplega vel leikinn og þegar upp var staðið sigraði Bayern, 1:0. Fjöldamörg færi litu dagsins ljós, en mark- verðir beggja liða áttu mjög góð- an leik og það var aðeins stór- stjörnunni Lothar Matthaus sem tókst að koma boltanum í netið, á 28. mín. með glæsilegu skoti af 20 metra færi, efst í markhornið, óverjandi fyrir Uli Stein, mark- vörð og fyrirliða Frankfurt. í seinni hálfleiknum sóttu leik- í lokakeppni HM: toppuriim í hóp bestu dómara ígssyni kvíðablandin. Þetta er auðvitað toppurinn í dag og því ætti maður ekki að vera sæll með það?“ Ekki var hægt að sleppa Stefáni án þess að fá hann til að spá fyrir um gengi íslendinga. „Ég held að þeir geti staðið sig ágætlega. Þeir fara ekki með neina pressu á sér og það er lykilatriði. Ég hef ekki trú á að liðið lendi neðar en í 8. sæti og gæti allt eins náð 4.-5. sæti. Ég held reyndar að okkar undirbúningur sé ekki eins góður og hjá mörgum öðrum, en hópur- inn er sá öflugasti sem völ er á, ég held að það sé engin spurning.“ Hann sagði lítinn tíma gefast til afslöppunar þegar út verður komið. „Það er með ólíkindum hversu mikil dagskrá er í kring- um þetta. Ef þú ert ekki að dæma sjálfur þá ertu varadómari og þarft að vera klár í búningnum og flesta daga er þetta dagskrá frá 8 á morgnana og jafnvel fram að miðnætti.“ Það er því ljóst að nóg verður að gera hjá þeim félögum en án efa verður frammistaðan jafn góð og vant er. menn Frankfurt án afláts en án árangurs. ■ Undirritaður var staddur á Neckar leikvanginum í Stuttgart og sá þar vægast sagt afspyrnu- slakan leik, þ.e.a.s. af hálfu leikmanna Stuttgart, þegar liðið fékk Bayer Leverkusen í heim- sókn. Stuttgart fékk ekkert ein- asta færi í öllum leiknum og ætli liðið sér að enda í einu af fimm efstu sætunum, þarf mikið að breytast, bæði í hugarfari leik- manna og öllum leik liðsins. Leikurinn endaði 0:3 fyrir Lver- kusen. í liði gestanna fóru þýsku landsliðsmennirnir Thom og Kirsten á kostum og þeir tveir gerðu fyrstu mörk leiksins, á 15. og 37. mín. Það þriðja gerði Hap- al á 65. mín. Eyjólfur Sverrisson lék eins og aðrir leikmenn Stutt- gart langt undir getu og það var greinilegt að hann hefur ekki náð sér að fullu eftir flensuna sem hrjáði hann í síðustu viku. ■ Werder Bremen er á mikilli siglingu þessa dagana og gæti, ásamt Dortmund og Frankfurt, veitt Munchen keppni um meist- aratitilinn. Á laugardaginn tók liðið Karlsruhe í kennslustund á heimavelli og urðu úrslit leiksins 3:0. Austurríkismaðurinn Herzog og hin nýja stjarna Bremen, Hobsch, fóru á kostum og á 24. mín. náði sá síðarnefndi forustu fyrir heimamenn og á 33. mín. gaf hann glæsilega sendingu fyrir markið og þar var Herzog mættur og skallaði knöttinn af öryggi í markið. Á 64. mín. innsiglaði síðan Rufer sigur heimamanna með fallegu marki. Með sigrinum tókst Bremen að koma sér upp í annað sætið með jafn mörg stig og Frankfurt, en betra marka- hlutfall. ■ Dortmund heldur fjórða sæt- inu eftir sigur á Uerdingen, 2:0. Lið Dortmund var miklu sterkari aðilinn í leiknum og sigur liðsins var aldrei í hættu. Daninn Povl- sen og Matthias Sammer gerðu mörk liðsins á 19. og 46. mín. ■ Nurnberg skaust upp í sjö- unda sætið með sigri á heimavelli gegn HSV, 1:0. Eckstein gerði eina mark leiksins á 70. mín. ■ Köln, með nýjan þjálfara Wolfgang Jerat, sem áður þjálf- aði áhugamannalið félagsins, vann mikilvægan sigur í botn- baráttunni, er liðið lagði Dynamo Dresden að velli, 3:1. Keuler gerði fyrsta mark leiksins á 18. mín. og það á fremur sér- stæðan hátt, með báðum höndum, en dómarinn sá ekkert athugavert og markið því gott og gilt. Á 65. mín. bætti Sturm öðru marki við fyrir heimamenn, en á þeirri 78. lagaði Maucksch stöð- una fyrir gestina. Á 86. mín. inn- siglaði síðan Fuchs sigurinn fyrir Köln. ■ Wattenscheid vann einnig mikilvægan sigur í botnbaráttunni, þegar liðið fékk Kaiserslautern í heimsókn. Eina mark leiksins gerði Tschiskale á 81. mín. Loka- tölur urðu því, 1:0. ■ Borussia Mönchengladbach vann Schalke á heimaveili, 2:0. Bæði mörk leiksins voru gerð í fyrri hálfleik, það fyrra kom á 29. mín., en þar var Fach að verki og það síðara gerði Kastenmaier á 45. mín. ■ Eina jafntefli umferðarinnar leit dagsins ljós í Saarbrúcken, þar sem heimamenn og botnlið Bochum leiddu saman hesta sína. Leikurinn endaði 1:1 og það voru þeir Christians, sem skoraði fyrir Bochum á 4. mín. og Kristl, sem jafnaði leikinn á 50. mín. sem skoruðu mörkin. Sagt eftir leikinn í Stuttgart ■ „Lélagasti leikurinn frá því ég hóf að leika hér,“ sagði Eyjólfur Sverrisson. „Eina jákvæða við þetta allt saman er að þetta getur alla vega ekki versnað. Daum gerir örugglega breytingar næst og ég geri mér þó nokkrar vonir um að ég fái þá að reyna mig í framlínunni." ■ Christoph Daum þjálfari Stuttgart: „Þetta er óskiljanlegt og ekki hægt að afsaka. Þó svo að nokkrir leikmanna liðsins hafi verið veikir undanfarið, þá afsak- ar það ekki þessa hörmung. í leiknum gegn Karlsruhe um næstu helgi munuð þið fá að sjá gjörbreytt lið.“ ■ Reinhard Saftig þjálfari Leverkusen: „Þetta var fjögurra stiga leikur í baráttunni um Evrópusæti, en það eru enn fjórtán umferðir eftir og margt gæti átt eftir að breytast.“ ■ Bjarni Jónsson, fyrirliði knatt- spyrnuliðs KA og stuðningsmað- ur Stuttgart: „Það eina góða við þennan leik voru pylsurnar sem ég keypti mér bæði fyrir leik og í hálfleik." Árni Hermannsson, Þýskalandi. n SA í flokki 9 ára og yngri. Fremri röð frá vinstri: Ólafur Hermannsson, Björn n og Birgir Þrastarson. Aftari röð frá vinstri: Pekka Santanen þjálfari, Stefán ir Davíðsson, Andri F. Magnússon og Sölvi Oftesen. Mynd: Bcnni Blak, 1. deild karla: Tap og sigur hjá KA-strákum Karlalið KA í blaki hélt til Neskaupstaðar um helgina og spilaði tvívegis við heimamenn í 1. deildinni. Þróttarar höfðu betur í fyrri leiknum 3:2, en í þeim síðari gaf KA engin grið og vann 3:0. Stefán Jóhannesson þjálfari KA sagði að skýringar tapsins á föstudagskvöldið mætti rekja til þess hversu seint þeir komu á staðinn. Þeir komu til Neskaup- staðar eftir 5 tíma ferðalag, í þann mund sem leikurinn átti að byrja. „Við vorum því með allt á hælunum,“ eins og Stefán orðaði það. Hrinurnar fóru 15:3, 4:15, 5:15,15:10 ogoddahrinan 15:13. Á laugardaginn mættust liðin að nýju og þá sýndi KA klærnar. Liðið átti góðan dag og vann 3:0. Hrinurnar fóru 11:15, 4:15 og 10:15. Þar með voru 5 stig í höfn út úr ferðinni. Halldór Arinbjarnarson Keppendur FRA í þrepi 4A og 3. þrepi. Sitjandi frá vinstri: Gyða Bergsdótt- ir, Harpa Helgadóttir, Petra S. Stefánsdóttir, Magna Oddsdóttir, Sigríður Ingólfsdóttir og Ásta Ólafsdóttir. Krjúpandi frá vinstri: Selma Heimisdóttir, Margrét ísleifsdóttir og Borghildur Marinósdóttir. Fimleikar: Vel heppnað Andrésínumót Um helgina var haldið svokall- að Andrésínumót í fímleikum í Reykjavík. Frá FRA fóru 15 stelpur og stóðu þær sig allar vel. Keppnin er hópkeppni en einnig eru veitt 1. verðlaun fyr- ir hæstu einkunn á hverju áhaldi. í flokki 9-11 ára kepptu 6 stelp- ur frá Akureyri í gráðu 4B sem er sú léttasta í fimleikastiganum. Þær stóðu sig allar vel á sínu fyrsta móti í Reykjavík. Stiga- hæst þeirra samanlagt var Eva Sigurjónsdóttir með einkunina 31,05. Þá náði Harpa Viðarsdótt- ir 7. sæti á hesti með 8,90 í eink- unn og Máney Sveinsdóttir varð 10. á jafnvægisslá með 8,40. Stelpurnar í 4. gráðu A, sem voru 5 frá FRA, stóðu sig einnig vel og urðu í 3. sæti af 6 í hóp- keppninni. Borghildur Marinós- dóttir náði þeim frábæra árangri að krækja í gull á hesti (stökki) með einkunina 8,80, en keppend- ur voru 28. í hópakeppni 3. gráðu kepptu 4 stelpur og náðu einnig 3. sæti. Þar náði Margrét ísleifsdóttir bestum árangri, vaði 4. á hesti með 7,45. Að sögn þjálfara og fararstjóra fór mótið frábærlega vel fram er Ármenningar sáu um mótshald. Undirbúningur var greinilega mikill, skemmtiatriði voru í boði og veitingar að keppni lokinni fyrir alla. Þá fengu allir keppendur heiðurs- skjöl. Íshokkí: Öruggur sigur hjá SA á liði SR - SA vann deildarkeppnina Skautafélag Akureyarar vann öruggan sigur á félögum sínum í SR þegar liðin mættust í Reykjavík á laugardagskvöld. SA vann leikinn 19:5 og hafði mikla yfírburði í leiknum. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 6:3, SA skoraði 8 mörk í þeim næsta og sá síðasti fór 5:2. SA hafði algera yfirburði á vellinum meðan ekkert gekk upp hjá SR. Þá var dómgæslan með því besta sem hefur sést. Svo virðist sem æfingar Pekka Santanen, hins finnska þjálfara SA, hafi skilað verulegum árangri og liðinu hef- ur farið mikið fram tæknilega. Nú tekur við úrslitakeppni um íslandsmeistaratitilinn milli SA og SR og fyrsti leikurinn verður lyrir sunnan um næstu helgi. Leikið verður uns annað liðið hefur unnið þrívegis. Þá kemur í ljós hvort SÁ tekst að verja titil sinn. Stig/stoðsendingar SA: Pekka Sant- anen 6/2, Patrik Virtanen 6/0, Heið- ar I. Ágústsson 3/1, Sigurgeir Har- aldsson 1/3, Magnús E. Finnsson 1, Heiðar G. Smárason 1, Héðinn Björnsson 1, Ágúst ÁsgrímssonO/2. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstudaginn 12. mars 1993 kl. 10.00, á eftirfarandi eignum: Aðalstræti 63, Akureyri, þingl. eig. Kristján Jóhannsson og Anna G. Torfadóttir, gerðarbeiðendur Lands- banki (slands, Sjóvá Almennar hf. og Tryggingastofnun ríkisins. Bragholt, Arnarneshreppi, þingl. eig. Guðrún Á. Jónasdóttir, gerðar- beiðendur Stofnlánadeild landbún- aðarins og Vátryggingafélag ís- lands hf. Fjólugata 13, neðri hæð, Akureyri, þingl. eig. Anna S. Arnarsdóttir og Sigurgeir R. Gissurarson, gerðar- beiðandi Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar. Furuvellir 5, A-hluti, þingl. eig. A. Finnsson hf., gerðarbeiðendur Iðn- lánasjóður og Vátryggingafélag fslands hf. Heiðarlundur 6 b, Akureyri, þingl. eig. Pétur Jósefsson, gerðarbeið- endur Húsnæðisstofnun ríkisins og innheimtumaður ríkissjóðs. Karlsrauðatorg 24, efri hæð, Dalvík, þingl. eig. Jón Þórarinn Tryggva- son, gerðarbeiðandi innheimtumað- ur rlkissjóðs. Lækjargata 4, neðri hæð, Akureyri, þingl. eig. Verönd hf., gerðarbeið- endur Ingvar Helgason hf. og Verð- bréfamarkaður fslandsbanka hf. Sandskeið 20, n.h., Dalvlk, þingl. eig. Vigdís Bragadóttir, gerðarbeið- andi Tryggingastofnun ríkisins. Smárahlið 18 j, Akureyri, þingl. eig. Halldóra K. Kjartansdóttir, gerðar- beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins. Smárahlíð 4 g, Akureyri, þingl. eig. Björn Valdimarsson, gerðarbeið- endur Húsnæðisstofnun ríkisins, Landsbanki fslands, Lífeyrissjóður Sóknar, Pétur Bjarnason, Sjóvá Almennar hf. og íslandsbanki hf. Spitalavegur 1, efri hæð, Akureyri, þingl. eig. Stefán Aðalsteinsson, gerðarbeiðandi íslandsbanki hf. Sýslumaðurinn á Akureyri 8. mars 1993.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.