Dagur - 09.03.1993, Side 4

Dagur - 09.03.1993, Side 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 9. mars 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 íslendingar geta verið samhentir Því er stundum haldið fram að hér á landi sé hver höndin upp á móti annarri og aldrei náist sam- staða um nokkurn skapaðan hlut. Vissulega má það til sanns vegar færa að íslenska þjóðin er á stundum sundurlynd og þrætugjörn og að ófá við- fangsefni hennar hafa mistekist vegna skorts á samstöðu. Þjóðin getur hins vegar sýnt á sér allt aðra og betri hlið, þegar henni sýnist. Þegar íslendingar etja kappi við aðrar þjóðir á íþróttasviðinu, fylgist almenningur grannt með keppnisfólkinu sínu og styður við bakið á því eftir fremsta megni. Þjóðarsamstaðan kemur ekki síður skýrt fram þegar íslendingar telja sér hættu búna af yfirgangi erlendra þjóða. Þá leggjast allir á eitt þar til fullur sigur er unninn Þó kemur samkenndin og einhugurinn líklega aldrei eins glöggt fram eins og þegar minnihluta- hópar í þjóðfélaginu leita ásjár hjá samborgurum sínum á neyðarstundu. Nýjasta dæmið er söfn- unarátak, sem Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna gekkst fyrir síðastliðinn föstudag í sam- vinnu við íslenska útvarpsfélagið, Búnaðarbank- ann, Gulu línuna og fleiri aðila. Markmiðið var að setja á laggirnar sérstakan sjóð, sem hafi það hlut- verk að bæta aðbúnað krabbameinssjúkra barna hér á landi til jafns við það sem tíðkast hjá ná- grannaþjóðum okkar og styrkja þær fjölskyldur krabbameinssjúkra barna, sem þurfa á fjárstuðn- ingi að halda. Það er skemmst frá því að segja að á örfáum klukkustundum söfnuðust rúmlega fimm- tíu og þrjár milljónir króna og má búast við að sú tala eigi enn eftir að hækka. Þessir fjármunir munu væntanlega reynast hinum sjúku, börnum, foreldr- nm þeirra og öðrum aðstandendum ómetanleg stoð í erfiðri baráttu. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir lögðust á eitt um að gera söfnunina sem árangursríkasta og afraksturinn fór fram úr björtustu vonum aðstandenda. Fjárhæðin sem safnaðist jafngildir því að hvert einasta mannsbarn í landinu hafi látið rúmlega 200 krónur af hendi rakna og segir það sína sögu um það hve stórkostlecjur árangur náðist. Sérstök ástæða er til að þakka Islenska útvarpsfélaginu svo og öðrum, sem að söfnuninni stóðu, fyrir gott og göfugt framtak. Á föstudaginn sýndi íslenska þjóðin það enn einu sinni í verki að hún er einstök í sinni röð. Hún sinnti hjálparkalli Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna eins og stór og samhent fjölskylda og með slíkri reisn að sérhver íslendingur má vera stoltur af. BB. Er þjóðfélagið í helgreipum lögmanna? Ég var að lesa grein Braga Bergmann, ritstjóra Dags, sem hann skrifar í blað sitt þann 30. janúar síðastliðinn. Þar skrifar hann um réttarkerfið og afbrota- mennina. Ekkert er ofsagt í þess- ari grein, enda ekki auðvelt að segja of mikið um þessi mál eins og jiau standa um þessar mundir. Þessi ágæta grein vakti með mér margar spurningar og má segja að fyrirsögnin hér að ofan spegli innihald þeirra. Hvernig mér gengur að gera læsilega grein úr þessum heilabrotum mínum verður svo að koma í ljós. Lögmenn hafa mikil ítök í þjóðfélaginu Það er best að byrja á efninu, sem ritstjórinn fjallar um í grein sinni. Stór sakamál, sem allir vita um, sofa í kerfinu árum saman án þess að nokkur virðist hreyfa hönd né fót. Hvaða eftirlit er með því að svona gerist ekki og hverjir eiga að framkvæma það? Hvað verður um embættismenn sem svona standa sig? Úr hvaða stétt eru þeir menn sem standa fyrir þessum misfellum í því kerfi sem á að sjá um að réttlætinu sé framfylgt í landinu? Það virðast vera að stórum hluta lögmenn, sem koma að þessum málum, og í sumum tilfellum eru þeir einir með réttindi til þess að vinna að þeim. Lögmenn virðast hafa býsna mikil og margvísleg tök á þjóð- félaginu og þau eru ekki öll þjóð- inni til góðs. Það er ótrúlegt hversu víða þeir eru í athafnavef þjóðfélagsins. Á Alþingi sitja margir úr þessari stétt og smíða lög sem eiga að gera þjóðfélagið okkar betra. í embættum ráðu- neyta og fógeta sitja lögmenn og eiga að sjá um að þessi lög nái fram að ganga. Það eru mjög augljós dæmi um misbresti í þeirri embættisfærslu. Samt heyr- ist lítið um það að menn missi embætti fyrir slíkar sakir. Þessi stétt er líka í störfum hjá sveitar- félögum og fréttir, sem fjölmiðlar flytja okkur af þeim vettvangi, hníga í sömu átt. Vanræksla virðist vera nokkuð algeng hjá þessari stétt og mikill Brynjólfur Brynjólfsson. seinagangur ríkjandi, þótt málin séu að lokum kláruð. í ríkis- stjórnum sitja menn úr þessari stétt og hafa mikil áhrif á það sem þar er gert. Fasteignasala er að stórum hluta í höndum lög- manna og sumt af því sem fjöl- miðlar segja frá úr þeim geira er ekki stéttinni til framdráttar eða álitsauka. Margir lögmenn eru duglegir og ábyggilegir fyrir hönd skjólstæðinga sinna og koma málum frarn á eðlilegan hátt ef þeir lenda ekki á slóðum hjá embættunum. Slóðarnir í stéttinni Og þá erum við komin að slóðun- um í stéttinni. Þeir eru fyrir hendi í þessari stétt sem öðrum og til vandræða þar sem annars staðar. Það verður að teljast eðli- legt að ungir lögmenn, nýkomnir úr skóla, leiti til þess opinbera eftir vinnu. Þeir eru aura- og reynslulausir og öruggast að bæta úr því á þann hátt. Margir af þessum ungu mönnum eru dug- legir og ábyggilegir og reynast vel í starfi og vaxa upp í að verða góðir embættismenn í kerfinu. Sumir af þessum ungu lögmönn- um fara út í sjálfstæðan rekstur í sfnu fagi þegar búið er að safna reynslu og aurum. Það veltur svo á persónugerð þessara einstak- linga hvernig til tekst. Það er mjög þýðingarmikið fyrir þjóðfélagið að hver maður í þessari stétt standi sig vel og ekki síður fyrir lögmannastéttina í heild og orðspor hennar. Mjög hætt er við því að slóðarnir lendi helst hjá því opinbera í starfi - og oft með tilstyrk vina eða vanda- manna, sem hafa ítök í pólitísk- um flokkum til þess að fá embætti fyrir þessa menn. Hættan er því sú að á leið mála í kerfinu séu víða slóðar sem verka sem drag- bítar á annars eðlilega unnin mál og gefi þar með óeðlilega heildar- mynd af störfum þessarar stéttar. Afkastamenn Það er hugsanlega fyrir slóðaskap einhvers úr þessari stétt að síbrotamenn eru hlaupandi um götur og torg, frjálsir ferða sinna og í miklum önnum við iðju sína. Það breytir engu hversu iðnir lög- reglumenn eru við að handtaka þessa eljumenn, þeir eru komnir á stjá mjög fljótt aftur og halda áfram þar sem frá var horfið. Þeir eru svo athafnasamir að slóðarnir í réttarkerfinu hafa ekki við þeim í starfi. Sá er munurinn á síbrota- mönnunum og slóðunum í réttar- kerfinu, að þeir fyrrnefndu er afkastamenn en þeir síðarnefndu ekki. Hætt er við að slóðaskapur og skilningsleysi ráði of miklu í þess- um málum, allt frá stjórnvöldum og niður gervallt kerfið. Þing- menn okkar keppast við að setja lög sem embættin í réttarkerfinu eiga svo að framfylgja. En á sama tíma er þessum sömu embættum skammtaður minni mannafli til þess að vinna þessi síauknu verk. Af fréttum um Hæstarétt að dæma, er helst að skilja að í garð hans hafi ríkt algert hirðuleysi af hálfu stjórnvalda; bæði hvað húsnæði og mannahald varðar. Álitshnekkir Ástandið í fangelsismálunum er öllum kunnugt. Húseignir ríkis- ins eru að hruni komnar, eins og fjölmiðlar greina frá, og eflaust mætti tína fleira til. Slóðaskapur- inn virðist vera sjálfberandi í kerfinu, sem þýðir að hann við- heldur sjálfum sér. Útkoman verður sú, sem ritstjóri Dags stendur alveg undrandi frammi fyrir, að sjálfsögðu: Maður brýst inn í fyrirtækið, sem ritstjórinn stjórnar, og fremur grófan þjófn- að og lögbrot. Rannsóknarlög- reglan gerir skyldu sína og upp- lýsir afbrotið en réttarkerfið virð- ist ekki ráða viða að beita viður- lögum. Útkoman virðist líka vera sú að stétt lögmanna bíður álits- hnekki. Brynjólfur Brynjólfsson. Höfundur er matreiðslumeistari á Akur- eyri og áhugamaður um þjóðfélagsmál. landi. niolw henni vaileflt tum ofl um tii* upp- úmsviioþrotmemrn k veiið iltað k bieflðast við . •dtniefnavá. dieiiinflu ötota n* f n “ ■ „uinlngl. nasse SMSVrrsíií iSs&sass ÍS?SS«..»»->»*“ « '■“ÆS'SSu.. V, u,a.<»u >rt» .«.-J SsÆsss-a rsssssSíf „„Þ6«i .«».<■« ■ ®»l sakbotningan | vai kona fundin 1 á Kókalni enda taldí*‘ .\ sannaö. Hina v«fl« \ £S“»Slu,l..<»rt.dfL Magnús Aðalbjörnsson: Þakkir til Valgerðar og Tómasar Laugardaginn 6. mars efndi Kennarasambandið til uppeldis- málaþings. Yfirskrift þingsins var: Alhliða menntun í dreifbýlu landi. Veltu menn fyrir sér þeirri spurningu hvort skólinn væri á tímamótum. Mikið fjölmenni var á fundin- um og sóttu hann kennarar á Norður- og Austurlandi. Það vakti athygli mína að Valgerður Sverrisdóttir og Tómas Ingi Olrich fylgdust vel með þeirri umræðu er fram fór um hugsan- legan flutning grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga. Það gefur okkur kennurum vonir þegar þingmenn hlusta á rök okkar og mótrök og það hlýtur að veita þeim styrk þegar þeir að lokum taka ákvörðun um málið á Alþingi íslendinga. Við kennarar tökum eftir því hvaða þingmenn sýna málefnum menntunar og uppeldis í landinu skilning og hverjir hreyta í okkur ónotum. Hafið heila þökk fyrir kom- una. Virðingarfyllst, Magnús Aðalbjörnsson, formaður F.S.N.E. Höfundur er formaður Félags skólastjóra á Norðurlandi eystra.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.