Dagur - 09.03.1993, Page 8

Dagur - 09.03.1993, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 9. mars 1993 ÍÞRÓTTIR Staðan Körfubolti, A-riðlIl: ÍBK 25 Haukar 24 Njarðvík 24 Tindastóll 25 UBK 24 B-riðill SnæfeU 24 Grindavík 25 Valur 25 Skallagr. 24 KR 24 úrvalsdeild: 22 3 2560:2208 44 17 7 2166:1983 34 12 12 2234:2221 24 9 16 2090:2284 18 2 22 2126:2435 4 14 10 2044:2133 28 13 12 2090:2007 26 12 13 2081:2028 24 12 12 1993:1985 24 9 15 1984:2074 18 Eins og staðan er í dag gæti Tindastóll þurft að leika um sæti sitt í deildinni við það lið sem verður í 2. sæti í 1. deild, sem ekki er ólíklegt að verði Þór eða ÍA. Blak, 1. deild karla: Úrslit: Þróttur N-KA 3:2 Þróttur N-KA 0:3 Stjarnan-ÍS 3:2 1613 3 44:19 44 18 12 6 43:29 43 1611 5 38:27 38 17 61136:34 36 17 7 10 27:36 27 18 2 16 9:52 9 Stigahæstir (vantar leiki helgarinnar): Bjarni Þórhallsson, KA 102/64 Þorvarður Sigfússon, ÍS 100/57 Stefán Þ. Sigurðsson, HK 98/63 Vignir Hlöðversson, HK 96/55 Staðan: HK Þróttur R Is Stjaruan Þróttur N Blak, 1. deild kvenna: Staðan: Víkingur ÍS KA HK Þróttur N Stigahæstar: Oddný Erlendsdóttir, Víkingur 111/50 Jóhanna Kristjánsdóttir, Víkingur 93/50 Jasna Popovich, KA 86/45 Þórey Haraidsdóttir, ÍS 86/46 14 12 2 39:14 39 12 10 2 31:15 31 11 3 8 18:27 18 13 4 9 18:3118 12 2 10 14:33 14 Þýska knattspyrnan: Úrslit: Brenien-Karsruhe 3:0 Núrnberg-HSV 1:0 Bayern Múnchen-Frankfurt 1:0 Wattenscheid-Kaiserslautern 1:0 Dortmunt-Uerdingen 2:0 Gladbach-Schalke 2:0 Saarbrúcken-Bochum 1:1 Stuttgart-Leverkusen 0:3 Staðan: Bayern Múnchen 20 12- 7- 1 42:22 31 Brenten 20 10- 8- 2 35:19 28 Frankfurt 20 10- 8- 2 36:21 28 Dortmund 20 11- 4- 5 37:25 26 Leverkusen 20 7- 9- 4 41:26 23 Karlsruhe 20 9- 4- 7 40:39 22 Núrnberg 20 9- 3- 8 20:24 21 Kaiserslautern 20 9- 2- 9 33:24 20 Stuttgurt 20 6- 8- 6 28:31 20 Saarbrúcken 20 5- 8- 7 29:34 18 Schalke 20 5- 8- 7 18:25 18 HSV 20 3-11- 6 24:26 17 Mönchengladbach 20 5- 7- 8 28:36 17 Dresden 20 5- 7- 8 23:31 17 Wattenscheid 20 5- 6- 9 27:36 16 Köln 20 7- 1-12 27:33 15 Uerdingen 20 3- 6-1117:41 12 Bochum 20 2- 7-11 21:33 11 Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hefst í dag: fslendingar mæta Svíum í opnunarleik mótsins Miklu máli skiptir hvernig liðin í heimsmeistarakeppninni rað- ast niður í riðla. Eins og riðla- skiptingin er mun t.d. aldrei geta farið fram úrslitaleikur um gullverðlaunin milli Rússa og Svía því liðin munu lenda saman í milliriðli. Sama má segja um Spánverja og Frakka, íslendinga og Svía eða Norð- menn og Tékka. Leikir um sæti á mótinu munu ávallt verða þannig að lið úr A eða B riðli mætir liði úr C eða D riðli. Riðlarnir eru þannig skipaðir: A-riðill (Umeá): Spánn. Tékkland. Austurríki. Egyptaland. B-riðill (Karlstad): Rúmenía. Frakkland, Noregur. Sviss. C-riðill (Gautaborg): Svíþjóð. Ungverjaland. Alfreð og Larsen spá í spilin Það er ætíð gaman að spá í spilin og reyna að gera sér grein fyrir líklegum úrslitum á stórmóti eins og heimsmeist- aramóti. Til þess eru gjarnan fengnir menn sem góða þekk- ingu hafa á viðkomandi máli og því eðlilegt að fá þá tvo Akureyringa sem hvað mest lifa og hrærast í handbolta til að spá um röð liðanna á HM. Einnig voru þeir beðnir að rökstyðja spá sína. Þetta eru þeir Jan Larsen og Alfreð Gíslason, þjálfarar Þórs og KA. Jan Larsen 1. Svíþjóð. 2. Spánn 3. Þýskaland 4. Frakkland. 5. Rússland. 6. Noregur. 7. ísland. 8. Rúmenía. 9. Danmörk. 10. Austurríki. 11. Ungverjaland. 12. Tékkland „Það er að sjálfsögðu riðla- skiptingin sem gerir það að verk- um að liðin raðast með þessum hætti, en hún skiptir öllu máli varðandi það hvaða lið leika saman. Að mínu mati er gott að vera í A- og B- riðlinum og á því komast Spánn og Frakkland langt, þess vegna spila þau lið um gullverðlaunin og bronsverðlaun- in. Ég hef líka trú á að Þjóðverj- ar komi á óvart og vinni Frakka í leik um 3. sætið,“ sagði Jan Larsen. Hann spáði Svíum heimsmeist- aratitlinum að nýju. „Það er af þeirri ástæðu að þeir eru á heima- velli og það skiptir miklu máli. Ég tel liðið einnig sterkara en síðast þegar þeir urðu heims- meistarar. Nú er líka loksins komið að Spánverjum að standa sig vel. Það er ekki sama pressa á þeim og oft áður og þess vegna held ég að þeir slái í gegn.“ „íslendingar tefla fram góðu liði sem ég vona að standi undir allri pressunni sem á því er, en liðið getur vonandi nýtt sér þekk- ingu frá tveimur ólíkum þjálfur- um eins og Bogdan og Þorbergi. Ég vorkenni strákunum svolítið því menn ætlast til meira fyrir þetta mót en þegar liðið fór á ÓL og kom á óvart. Guðmundur Hrafnkelsson er á uppleið og það kemur til með að skipta miklu máli að vörn og markvarsla standi sig og það ætti að nægja til að vinna leikinn um 7. sætið við Rúmena, sem hafa lið sem erfitt er að meta. En þeir hafa langa handboltahefð sem hjálpar þeim.“ Alfreð Gíslason 1. Svíþjóð. 2. Frakkland. 3. Rússland. 4. Spánn. 5. ísland. 6. Noregur. 7. Þýskaland. 8. Austurríki. 9. Rúmenía. 10. Ungverjaland. 11. Tékkar. 12. S-Kórea. „Ég reikna með að Egyptar og Svisslendingar sitji eftir í A- og B-riðli, en þó gætu Egyptar kom- ist áfram á kostnað Tékka. Spán- verjar vinna A-riðilinn, sem þó er kannski óskhyggja. Ég hef mikla trú á nýja þjálfaranum sem kemur frá Barcelona og hefur sýnt góða hluti. Baráttan í B-riðli er hörð en þar vinna Frakkar að mínu mati. Bandríkin sitja eftir í C-riðli en við náum 2. sæti því ég reikna frekar með tapi á móti Svíum. í D-riú held ég að Danir sitji eftir því þó þeir séu allt að því á heimavelli þá hafa þeir ein- faldlega ekki nógu gott lið.“ „íslendingar lenda því í milli- riðli á móti Rússum, Þjóðverjum og S-Kóreu og við ættum að vinna tvö þau síðarnefndu. Þjóð- verjar eru með ungt lið og hafa hefð fyrir að tapa á stórmótum. Eftir milliriðil verðum við í 3. sæti á eftir Svíum og Rússum. Úrslitaleikurinn í hinum milli- riðlinum verður milli Frakka og Spánverja og ég held að Frakkar vinni. Þeir leika því um gullið við Svía, Spánverjar um bronsið við Rússa og við um 5. sætið við Norðmenn." Líkt og Jan Larsen þá spáir Alfreð Svíum sigri á mótinu. „Úrslitin geta mikið oltið á dóm- gæslunni, þ.e. hvaða línu dómar- arnir taka. Ef það verður dæmt mjög strangt á mótinu þá eiga Frakkar litla möguleika því þeir spila svo gróft. Ef línan verður sú sama og á Lottómótinu, þar sem mikið var leyft, þá fara Frakkar langt.“ „Ég held að við vinnum Norð- menn og náum 5. sætinu. Það var margt gott í leiknum á móti þeim á Lottómótinu, þó markvarslan væri alveg á núlli í fyrri hálfleik. Við erum ekki með síðra lið en Norðmenn, kamski sterkara og fáum jafnvel meiri stuðning.“ Síðan er að sjá hvort spá þeirra rætist og heimamenn nái að verja heimsmeistaratitil sinn.. ísland. Bandaríkin. D-riðill (Málmey): Rússland. Þýskaland. Kórea. Danmörk. Úr hverjum riðli fara 3 lið í milliriðil þannig að eitt situr eftir. Lið úr A- og B-riðli leika saman og lið úr C- og D-riðli. Liðin sem koma upp úr A-riðli t.d. munu því leika við liðin sem koma upp úr B-riðli. íslendingar munu því leika við liðin úr D-riðli. Að þeim leikjum loknum kemur í ljós um hvaða sæti hvert lið leik- ur. Topplið milliriðlanna munu leika um gullið og þannig áfram og liðin í 6. sæti hvors milliriðils leika um 11. sætið. Utsendingar frá Svíþjóð Ríkissjónvarpið mun sýna beint frá leikjum íslenska liðsins í Svíþjóð. Einnig verða sýndar upptökur frá nokkrum öðrum leikjum og úrslitaleikurinn verður sýndur beint. Útsendingar verða seim hér segir: 9. mars: Island-Svíþjóð kl. 17.45, beint, 10. mars: Dnnmörk-Þýskaland kl. 23.10, uppt. 11. mars: Ísland-Ungverjaland kl. lft.45, beint. 12. mars: Noregur-Frakkland kl. 16.45, uppt. 13. mars: Noregur-Frakkl. endurs. kl. 12.00-12.45 Ísland-Bandaríkin kl. 12.45, beint. 15., 16. og 18. mars verða leikir íslands í milliriðli sýndir. Hafni ísland í 2. sæti C-riðiIs hefst útsendinp kl. 16.45 alla dagana, en ef Island verður í 3. sæti riðilsins hefst útsending kl. 14.45. íslendingar eiga í fyrsta skipti dómara Þetta er tvímælalaust segir Stefán Arnaldsson sem kominn er heims ásamt Rögnvald Erlii Eins og kunnugt er verða tveir íslenskir dómarar meðal þeirra sem dæma á HM í Svíþjóð. Þetta eru þeir Stefán Arnalds- son frá Akureyri og félagi hans Rögnvald Erlingsson. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenkir dóm- arar dæma í heimsmeistara- keppni karla og þar með eru þeir félagar komnir í hóp 12 bestu dómarapara heims. Blaðamaður átti stutt spjall við Stefán skömmu áður en hann hélt til Svíþjóðar. Stefán og Rögnvald hafa áður dæmt í heimsmeistarakeppni kvenna í Seoul og einnig í HM U-21, bæði karla og kvenna. Þar við bætist fjöldi alþjóðlegra móta og landsleikja en alls hafa þeir dæmt á 9. tug milliríkjaleikja á Isíðustu 11 árum. „Við munum að öllum líkind- um dæma í A-riðli,“ sagði Stefán er hann var spurður hvort hann vissi hvaða verkefni biðu þeirra. „Þetta verður að vísu ekki gert opinbert fyrr en við erum komnir út og hittumst allir á fundi seinni part mánudags (í gær). Það koma auðvitað ekki nema A- eða B- riðill til greina og af því sem við jhöfum hlerað eru yfirgnæfandi ilíkur á því að við dæmum í A- riðli.“ Að hans sögn er sá skammtur sem menn dæma á heimsmeist- aramóti 4-5 leikir. Þetta eru oft- ast 2 leikir í riðlakeppninni, 1-2 í milliriðli og síðan jafnvel einn í keppni um sæti og við erum að vona að við losnum við að dæma leik um sæti 13-16 og dæmun 5. leikinn í efri hlutanum. Svo fer þetta auðvitað eftir getu og dags- forminu. Hann gat ekki neitað því að nokkuð öðruvísi væri að dæma á svona stórmótum heldur en venjulegan landsleik. „Það er allt lagt undir hjá öllum. Hins vegar er að okkar mati auðveld- ara að eiga við leiki þar sem besti handboltinn er spilaður. Þá kemst maður oft mun auðveldar frá dæminu. Menn leika agaðar og minna er af klaufabrotum. Eins er handbolti'nn úti víðast hvar byggður á meiri tækni en hér heima þar sem kraftarnir eru óspart notaðir og því kannski auðveldara að eiga við þetta Stefán Arnaldsson með flautuna á loftl. erlendis." Þeir félagar hafa undirbúið sig af kostgæfni fyrir mótið. „Við höfum sogað að okkur alla leiki sem við höfum getað hérna heima, síðan er auðvitað að halda sér í formi. Nú nýlega fór- um við á 2 mót erlendis, beinlínis til að búa okkur undir HM. Þetta voru Lottó-Cup í Noregi og mót í Frakklandi í síðustu viku. Ann- ars leggst þetta vel í okkur og við hlökkum að sjálfsögðu til þó sú tilfinning sé reyndar nokkuð Hér kemur mynd af íslandsmeisturun Olsen, Gunnar Jónsson, Jón Gíslaso Hrafnsson, Eiríkur Eiríksson, Hjörti i

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.