Dagur - 09.03.1993, Qupperneq 11
Þriðjudagur 9. mars 1993 - DAGUR - 11
Séð yfir sviðið. Gerrit Schuii stjómaði Kammerhljómsveit Akureyrar nú í fyrsta skipti og stóð sig frábærlega.
Hljómsveitin komst þegar á heildina er litið vel frá sínu og hlutur Kórs Dalvíkurkirkju, en í honum voru 44 manns
að þessu sinni, var rnjög góður. Myndir: Óskar Þór Halldórsson
Fjölmenni á Vínartónleikuiii
Eftir því sem næst verður komist
lögðu á áttunda hundrað manns
leið sína í íþróttaskemmuna á
Akureyri sl. sunnudag á Vínar-
tónleika Kammerhljómsveitar
Akureyrar. Og þessir fjölmörgu
áheyrendur urðu ekki fyrir von-
brigðum, ef marka má frábærar
viðtökur sem listafólkið, hljóm-
sveitin, einsöngvararnir Jón Þor-
steinsson og Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir og Kór Dalvíkurkirkju,
fengu. Áheyrendur komu víða
að. Flestir voru frá Akureyri, en
þekkja mátti fjölda andlita frá
Dalvík, úr Svarfaðardal og Ólafs-
firði. Blaðamaður var í Skemm-
unni sl. sunnudag og tók með-
fylgjandi myndir. óþh
Kór Dalvíkurkirkju. Næst eru karlar í bassa og konur í alt.
Annáll eftiahagsmála 1988-1992
Þjóðhagsstofnun hefur gefið út
14. ritið í ritröðinni um þjóðar-
búskapinn. í þessu riti er birtur
annáll íslenskra efnahagsmála
frá árinu 1988 og fram á árið
1992. Markmiðið með ritinu er
að gefa yfirlit yfir helstu
atburði á sviði efnahagsmála á
umræddu tímabili.
Annállinn nær til flestra þátta
sem snerta þróun efnahags- og
atvinnumála. Þar eru meðal ann-
ars tíundaðar ráðstafanir stjórn-
valda í ríkisfjármálum og pen-
inga- og gengismálum og dregin
saman helstu atriði efnahagsað-
gerða hverju sinni. Þá er sagt frá
ráðstöfunum stjórnvalda í launa-
og vinnumarkaðsmálum og
greint frá niðurstöðum kjara-
samninga. Jafnframt er getið
helstu breytinga í félags-, trygg-
inga-, verðlags- og viðskiptamál-
um. Efni annálsins er raðað í
tímaröð en í ritinu er efnisflokka-
skrá sem gerð er með það fyrir
augum að auðvelda mönnum að
finna efni sem tengist sama mála-
sviði.
Síðast var annáll með þessu
sniði birtur árið 1988 og náði
hann til árabilsins 1977-1988.
Með þessu riti hefur annállinn
verið framlengdur og liggur nú
fyrir samræmt efni frá árinu 1977.
Framvegis verður stefnt að því að
birta sérstakan annál um efna-
hagsmál á nokkurra ára fresti og
jafnframt verður unnið að því að
samræma efni annála frá því fyrir
1977 sem ekki hefur áður birst á
einum stað. Að auki verða að
venju birtir styttri annálar í öðr-
um útgáfum Þjóðhagsstofnunar.
Einsöngvararnir Jón Þorsteinsson, tenór, og Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
sópran, komust vel frá sínu og var klappað lof í lófa.
Iðntæknistofnun vinnur að tækniþróun og aukinni framleiði í
íslensku atvinnulífi. Á stofuninni eru stundaðar hagnýtar
rannsóknir, þróun, ráðgjöf, gæðaeftirlit, þjónusta, fræðsla og
stöðlun. Áhersla er lögð á hæft starfsfólk til að tryggja gæði
þeirrar þjónustu sem veitt er.
Tveir sérfræðingar
á Akureyri
Iðntæknistofnun vill ráða tvo sérfræðinga til
starfa á Akureyri.
Störfin felast í rannsókna- og ráðgjafastarfsemi jafn-
framt kennslu við rekstrar- og sjávarútvegsdeildir
Háskólans á Akureyri.
Umsækjendur þurfa að vera verkfræðingar eða hafa
sambærilega menntun. Leitað er eftir sérfræðingum
á sviði framleiðslutækni eða matvælatækni. Æski-
legt er að þeir hafi reynslu úr atvinnulífinu eða af
rannsóknum.
Starfsmönnunum er ætlað að byggja upp tengsl við
fyrirtæki í útgerð, fiskvinnslu og almennum iðnaði.
Þeir verða starfsmenn Iðntæknistofnunar en hafa
starfsaðstöðu við Háskólann á Akureyri. Val á starfs-
mönnum fer fram í samstarfi við Háskólann.
Hvatt er tii að jafnt konur sem karlar sæki um stöð-
urnar. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir ásamt staðfestingu um nám og fyrri störf
sendist til Iðntæknistofnunar fyrir 10. apríl nk.
merktar „Akureyri".
Iðntæknistof nun I ■
I0NTÆKNIST0FNUN ÍSLANDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
Sími (91) 68 7000