Dagur - 20.04.1993, Side 1
Leiðbeinendur frá Slysavarnaskóla sjómanna mættu á Húsavík um helgina og skóluðu til nemendur tíunda bekkjar,
sem eru að Ijúka námi til 30 tonna réttinda, og smábátasjómenn. Myndin er tekin á bryggjunni þar sem hópurinn
er mættur í flotbúningum til að Iæra að bjarga sér og öðrum úr sjónum. Mynd im
Akureyri:
Ölvaðir og próf-
lausir í umferðinni
Tveir réttindalausir ökumenn
voru stöðvaðir af iögreglunni á
Akureyri um helgina. Annar
þeirra hafði misst prófið ævi-
langt fyrir nokkrum árum og
hinn var ekki búinn að taka út
tveggja ára ökuleyfissviptingu.
Þá voru þrír ökumenn stöðv-
aðir og færðir í blóðprufu
vegna gruns um ölvun við
akstur.
Tilkynnt var um tvo smávægi-
lega árekstra í gær og á sunnu-
dag. Að minnsta kosti tveir öku-
menn voru stöðvaðir fyrir hrað-
akstur, annar var á 92 km hraða
innanbæjar og hinn á 121 km
hraða á Svalbarðsstrandarvegi.
Brotist var inn í Hafnarstræti
Endanlegir reikningar Kaupfélags Eyfirðinga:
Tólf milljóna hagnaður móðurfélagsins en
230 nnlljóna tap af dótturfyrirtækjum
Samkvæmt endanlegum reikn-
ingum Kaupfélags Eyfirðinga
fyrir síðasta ár skilaði félagið
12 milljóna króna rekstrar-
hagnaði, þ.e. án áhrifa dóttur-
fyrirtækja. KEA á meirihluta í
9 starfandi hlutafélögum og
einu sameignarfyrirtæki og
samtals nam tap þeirra tæpum
230 milljónum króna á árinu.
Aðeins þrjú af þessum félög-
um skiluðu hagnaði. í tilkynn-
ingu frá Kaupfélagi Eyfirðinga
í gær segir að þessi afkoma
dótturfélaga sé mun verri en
milliuppgjör á síðasta ári hafi
gefiö tilefni til að ætla. Afkom-
an hafi versnað mjög á síðustu
Aðalfundur Þormóðs ramma:
3,5% arður til hluthafa
- gert ráð fyrir 20% veltuaukningu á þessu ári
Á aðalfundi Þormóðs ramma
sl. föstudag var samþykkt að
greiða hluthöfum 3,5% arð á
þessu ári, en á síðasta ári var
greiddur út 10% arður. Stjórn
fyrirtækisins var endurkjörin,
en hana skipa Óttar Proppé,
formaður, Marteinn Haralds-
son og Jóhannes Egilsson. Á
árinu 1992 varð 45 milljóna
króna tap á Þormóði ramma.
Róbert Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma,
segir að á þessu ári sé áætluð
20% veltuaukning hjá fyrirtæk-
inu. „Við gerum ráð fyrir örlitl-
um hagnaði í ár. Áherslan í
rekstrinum hefur breyst. Þannig
var bolfiskur fyrir um þrem árum
nær 100% af veltu, en í dag er
hann um 40% af veltu á móti
60% í rækju og reyktum laxi,“
sagði Róbert.
Rækjuvinnsla Þormóðs ramma
hefur stórlega aukist eftir að
fyrirtækið festi kaup á Sunnu SI,
sem gerð er eingöngu út á rækju.
Nýlega var hafin vaktavinna í
rækjuvinnslunni og er nú unnið á
tveim átta tíma vöktum, frá kl.
04 til 12 og kl. 13 til 21. óþh
Ólafsijcjrður:
Harður árekstur
Allharður árekstur varð í
Ólafsfirði í hádeginu í gær, svo
til beint fyrir framan lögreglu-
stöðina. Jeppi og pallbíll
skullu saman og urðu töluvert
miklar skemmdir á bílunum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Ólafsfirði urðu ekki
slys á fólki en ökumaður annars
bílsins kvartaði þó um eymsl í
baki.
Helgin var róleg í Ólafsfirði en
lögreglan lét einn sofa úr sér í
fangageymslum.
Á Dalvík og Siglufirði voru
menn spakir og umferðin gekk
klakklaust, en lögreglunni á Dal-
vík var kunnugt um einn bíl sem
hafði lent út af veginum. Öku-
maðurinn hafði misst hann út af
vegna krapa á veginum en engin
vandræði hlutust af. SS
mánuðum ársins og valdi geng-
istap þar mestu um.
Brúttóvelta KEA og dótturfyr-
irtækja var um 9,7 milljarðar á
árinu 1992 og lækkaði um 6% frá
fyrra ári. í aðalrekstri félagsins
var veltan 8,6 milljarðar og sam-
dráttur varð á öllum sviðum.
Hlutdeild KEA í afkomu dótt-
urfélaga er gjaldfærð á rekstrar-
reikning félagsins þannig að tap
af Útgerðafélagi Dalvíkinga er
112,3 milljónir, af Akva hf. 43,6
milljónir, af Hafnarstræti 87-89
33,9 milljónir, af Dagsprenti hf.
7,1 milljón, af Vöruborg hf. 9,1
milljón, af Þórshamri hf. 1,4
milljónir og af dótturfélögum
sameinuðum KEA 33,2 milljón-
ir. Hagnaður varð hins vegar af
hlutum í Efnaverksmiðjunni
Sjöfn hf. um 3,7 milljónir, af
Garðræktarfélagi Reykhverfinga
hf. um 1,2 milljónir og af Kaffi-
brennslu Akureyrar hf. 6,5 millj-
ónir.
Frekari grein verður gerð fyrir
rekstri og afkomu móðurfélags
og dótturfyrirtækja á aðalfundi
KEA næstkomandi mánudag en
samkvæmt tilkynningu félagsins í
gær er tap af Útgerðarfélagi Dal-
víkinga aðallega tilkomið vegna
gengistaps og fyrninga af veiði-
heimildum sem samtals voru um
90 milljónir króna. Hvað varðar
afkomu Akva hf. segir að rekstur
þess gangi í samræmi við áætlanir
þar sem gert hafi verið ráð fyrir
verulegum útgjöldum umfram
tekjur á sl. ári. í ár sé búist við
auknum tekjum og minni tap-
rekstri og að á næsta ári verði
hagnaður af vatnsútflutningnum.
JÓH
Atvinnuástandið í mars 1993:
Aldrei mælst fleiri
atvinnuleysisdagar
Samkvæmt yfirliti Vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneyt-
is voru skráðir atvinnuleysis-
dagar í sl. marsmánuði 145
þúsund á landinu öllu, um 79
þúsund hjá körlum en um 66
þúsund dagar hjá konum.
Samkvæmt þessu hefur skráð-
um atvinnuleysisdögum fjölg-
að um 11000 frá mánuðinum á
undan en fjölgað um 63 þús-
und frá marsmánuði 1992.
Framangreindur fjöldi skráðra
atvinnuleysisdaga í mars sl., sem
er sá mesti sem skráðst hefur í
einum mánuði hér á landi, jafn-
gildir að tæplega 6700 manns hafi
að meðaltali verið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum. Þar af
eru um 3600 karlar og um 3100
konur. Þessar tölur jafngilda tæp-
lega 5,4% af áætluðum mannafla
á vinnumarkaði samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar eða 5,9% hjá
konum og 5,0% hjá körlum. Það
er að meðaltali rúmlega 500 fleiri
atvinnulausir en í síðasta mánuði
og um 2900 fleiri en í mars í
fyrra. Atvinnuleysi á Norður-
landi vestra nemur 4,7%, en á
Norðurlandi eystra 6,6%.
Atvinnuleysi er mest á Suður-
nesjum, þ.e. 6,8%, en á höfuð-
borgarsvæðinu 5,2%.
100 og nokkur glös brotin en ekki
teljandi skemmdir unnar.
Á laugardaginn fletti vangefinn
piltur sig klæðum á Ráðhústorgi.
Lögregla var kölluð til og ók hún
piltinum til síns heima. SS
Sauðárkrókur:
Innbrot í
heildverslun
- málið upplýst
Brotist var inn í heildverslun-
ina Röst á Sauðárkróki nú um
helgina. Engar skemmdir voru
unnar og litlu stolið. Málið er
upplýst.
Tilkynnt var um innbrotið til
lögreglunnar í gærmorgun. Er
líklegt að brotist hafi verið inn á
sunnudagskvöld eða aðfaranótt
mánudags. Engar skemmdir voru
unnar á húsnæðinu og litlu stolið.
Málið er að fullu upplýst að sögn
lögreglu. sþ
Hrútafiarð-
arbrú
endurbætt
og breikkuð
- þjóðvegurinn færður til á
700 m kafla við Staðarskála
Ákveðið hefur verið að ráðast
í sumar í endurbætur á brúnni
yfir Hrútafjarðará við veitinga-
skálann Brú og jafnframt verð-
ur legu þjóðvegar 1 við Staðar-
skála breytt.
Samkvæmt skipulagsuppdrætti
var gert ráð fyrir byggingu nýrrar
brúar yfir Hrútafjarðará fyrir
neðan Staðarskála, sem hefði
jafnframt þýtt að gamla Hrúta-
fjarðarárbrúin og brúin yfir Síká
hefðu lagst af. Þessum hugmynd-
um vildu heimamenn alls ekki
una og var ákveðið að taka tillit
til vilja þeirra og fresta fyrirhug-
aðri brúarbyggingu og breytingu
á legu þjóðvegar 1 í Hrútafirði
um óákveðin tíma.
Jónas Snæbjömsson, umdæmis-
verkfræðingur Vegagerðar ríkis-
ins á Sauðárkróki, segir að brúar-
vinnuflokkur Vegagerðarinnar
muni í vor og sumar gera gagn-
gerar endurbætur á brúnni yfir
Hrútafjarðará, en hún var byggð
árið 1912 og því orðin gömul og
lúin. Gert er ráð fyrir að steypa
undir burðarvirkið í brúnni og
setja styrktarbita á hliðar hennar.
Jafnframt verður brúin breikkuð
um helming.
Við Staðarskála verður þjóð-
vegurinn færður fjær söluskálan-
um á um 700 metra löngum kafla.
Jónas segir þetta gert til þess að
aðgreina þjóðveginn og athafna-
svæði Staðarskála. Hann segir
stefnt að útboði á þessari vega-
gerð. óþh