Dagur - 20.04.1993, Blaðsíða 6

Dagur - 20.04.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 20. apríl 1993 Haukur Halldórsson, formaður Stéttasambands bænda: Landbúnaðínuin verði skapaðar þær að stæður að hann geti þróast eðlilega Með niðurfellingu útflutnings- bóta, lækkun niðurgreiðslna, umsaminni framleiðnikröfu og samdrætti í mjólkur- og kinda- kjötsframleiðslu hefur raun- verð á búvörum lækkað og ríkisvaldið og neytendur því sparað mikla fjármuni. Aðrar greinar landbúnaðar hafa einnig lagt mikið af mörkum til að lækka verð til neytenda. En því miður hefur ríkisvaldið staðið heldur laklega við sinn hlut í þessu þróunarferli land- búnaðarins. Aðkoma þess í aðlögun hans að breyttu og harðara rekstrarumhverfi hef- ur meðal annars falist í skert- um framlögum til Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins og að sáralitlu af umsömdum fjár- munum hefur verið varið til landgræðslu og skógræktar. Þetta kom meðal annars fram í ræðu Hauks Halldórssonar, formanns Stéttarsambands bænda á ráðstefnu um framtíð landbúnaðar í nýrri Evrópu fyrir skömmu. Haukur ræddi sölumál búvara í ljósi þeirra aðstæðna er erlend samkeppni getur skapað. Hann sagði að vonandi yrðu breyttar forsendur stéttinni til farsældar en benti jafnframt á að á hinn kantinn gæti hrunið orðið mikið og snöggt kynnu menn ekki fót- um sínum forráð. Varast verði að afurðastöðvar fari að berjast blóðugri baráttu með undirboð- um og taumlausri samkeppni. Um niðurstöður slíkra átaka séu nægjanlega mörg dæmi til að unnt sé að varast þau. Því sé félagsleg samstaða á meðal bænda og afurðastöðva mikilvæg- ari en nokkru sinni fyrr. Haukur Halldórsson benti á að framleiðendur landbúnaðar- afurða á norðlægum slóðum, til dæmis í Svíþjóð og Finnlandi hafi lagt sérstaka áherslu á að styrkja stöðu landbúnaðar vegna samn- ingaviðræðna við Efnahags- Haukur Halldórsson. bandalag Evrópu. Á það megi einnig minna að innan EB-ríkja viðgangist umfangsmikið stuðn- ingskerfi til styrktar landbúnaði í dreifðum og erfiðum byggðum Leiklist Tobacco Road á Hólmavík Á Hólmavík hefur verið reist nýtt félagsheimili. Með tilkomu þess hafa orðið mikil skil í starf- semi leikfélags Hólmavíkur og án efa ekki síður í öðru samkomu- og skemmtanalífi byggðarinnar. Aðstöðunni verður ekki jafnað saman við þá, sem leikfélagið hafði í gamla samkomuhúsinu, bragganum, í miðju bæjarins, heldur er hér að verða til að- staða, sem sæmir svo ötulum fé- lagsskap sem Leikfélag Hólma- víkur greinilega er. Leikfélag Hólmavíkur frum- sýndi Tobacco Road 10. apríl, en undirritaður komst á aðra sýn- ingu, 12. apríl. Tobacco Road er fyrsta verkið, sem upp er sett í nýja félagsheimilinu og annað verkið, sem leikfélagið færir upp á þessu leikári. Hið fyrra var Allt í plati, sem upp var sett fyrir ára- mót og sýnt fram í janúar. Leik- félagið hefur haft tvær uppsetn- ingar á verkefnaskrá sinni undan- farin ár, sem er ekki lítið afrek í ekki fjölmennari byggð en Hólma- vík og nágrenni er. Leikstjóri uppsetningar Leik- félags Hólmavíkur á Tobacco Road er Skúli Gautason. Skúli hefur unnið verk sitt talsvert vel. Bragur verksins er skemmtilegur. Heildartúlkun nær umtalsverðri dýpt, ekki síst í fyrsta þætti, sem gengur best upp þáttanna þriggja. Almennt hefur vel tek- ist að móta einstakar persónur í samvinnu við þá leikara, sem með þær fara. Þá er val búninga við hæfi og leikmynd góð. Hún er einföld en fullnægjandi og fer vel á hinu rúmgóða sviði félags- heimilisins. Lýsing er ekki flókin, enda greinilega æskilegt að búa húsið betur ljósum. Þrátt fyrir nokkra vöntun á þessu sviði tókst vel að ná fram áhrifum með ljósa- notkun, svo sem í lokaatriði, sem verkaði sterkt og vel. Helsti gallinn á verki leikstjór- ans er það, að flæði verksins er í hægasta lagi á köflum. Þessa gæt- ir minnst í fyrsta þætti og þriðji þáttur sleppur þokkalega hvað þetta snertir. Annar þátturinn líður hins vegar talsvert fyrir of hæga ferð og allt að því hik á stundum. Önnur atriði, sem bet- ur hefðu mátt fara, eru til dæmis ýmsar átakasenur, sem hefði þurft að vinna nokkru betur og gera heitari; hið dramatíska atriði undir lokin, þegar Ada Lester er að deyja, en það nær ekki nógu vel áhrifamætti sínum; og það, að einstaka sinnum hendir, að leikarar detta út úr hlutverkum og bíða greinilega eftir innkomum sínum. Umhverfi og sögusvið leikrits- ins Tobacco Road er talsvert fjarri íslenskum veruleika. Baksvið og reynsla persónanna, þjóðfélagsgerðin, sem þær hrær- ast í, og jarðvegurinn, sem þær eru sprottnar úr eru okkur hér á landi að mestu ókunnug. Þessi atriði eru þó einungis ytra borð leikritsins. Að baki framandlegu atferli og kringumstæðum er hin sammannlega undiralda við- bragða hörmulega staddra með- bræðra okkar og systra, þegar neyðin sverfur að, þegar engin leið virðist til bjargar og alger uppgjöf er það eina, sem virðist I bjóðast brotnum manni. Það að ná þessari undiröldu og túlka hana í bland við kímilega þætti textans er sá vandi, sem helst er við glímt í uppsetningu þessa vinsæla leikverks. í heild standast leikarar og leikstjóri Leikfélags Hólmavíkur þessa raun vel. Fas og framsögn er í flestum tilfellum vel við hæfi. Því hefur orðið til uppsetning, sem skilar talsvert vel innri anda verksins jafnframt kímni þess. AÐALFUNDUR Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri mánudaginn 26. apríl nk. og hefst kl. 10.00. Dagskrá 1. Rannsókn kiörbréfa og kosning starfsmanna fund- arins. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Skýrsla kaupfélagsstjóra. Reikningar félagsins. Umsögn endurskoðenda. Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun eftirstöðva o.fl. 4. Afgreiðsla reikninga og tillagna félagsstjórnar. 5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA. 6. Erindi deilda. 7. Þóknun stjórnar og endurskoðenda. 8. Kosningar. 9. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv. félags- samþykktum. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga bandalagsríkjanna. Haukur ræddi einnig um breytilegar aðstæður vegna stærðar vinnslu- eininga og sagði meðal annars í því sambandi að til að vinna hverja milljón lítra þyrfti 5,7 ársverk hér á landi á móti 1,9 ársverkum í Danmörku, 2,5 ársverkum í Svíþjóð og 2,6 ársverkum í Noregi. Haukur Halldórsson benti á að helsta vörn okkar í harðnandi samkeppni væri gæði þeirra búvara sem framleiddar séu hér á landi. Einnig verði að hafa í huga að bændur á Norðurlöndunum ætli að berjast við innflutning erlendis frá með nákvæmlega sömu rökum og því sé sérstaða okkar harla lítil í því sambandi. Því sé megin krafa íslensks land- búnaðar sú að honum verði skapaðar þær rekstrarforsendur hvað varðar skattlagningu og samkeppni frá öðrum löndum að hann geti þróast eðlilega við breyttar aðstæður. ÞI í þessu á Sigurður Atlason, sem fer með hlutverk Jeeters Lesters, stóran hlut ásamt helstu mótleikurum sínum, Maríu Guð- brandsdóttur í hlutverki Ödu Lesters og Arnari S. Jónssyni í hlutverki Dudes Lesters. Állar þessar lykilpersónur skila persón- um sínum í flestu tilliti vel. Sigurður á stórgóðar stundir og er víða sterkur, en því miður fell- ur leikur hans á stundum nokk- uð, einkum í öðrum og þriðja þætti. Maríu bregst sem næst aldrei bogalistin, en þó einna helst í samleik við dóttur sína, Pearl, í þriðja þætti og í andláts- atriði sínu. Árnar á í flestu góðan leik og þróttmikinn, en fellur einstaka sinnum um of út úr hlut- verki sínu og virðist bíða. Salbjörg Engilbertsdóttir leik- ur Systur Bessie Rice, fagnaðar- erindisboðann, og gerir það vel. Hún nær skemmtilega trúartil- þrifum Bessiear og ekki síður holdlegum losta hennar. Ýmis atriði, sem þau, sem tengd eru sköðum á bíl hennar, eru ekki eins vel unnin. Lov Bensey er leikinn af Einari Indriðasyni. Einar skilar vel þess- ari umkomuleysislegu persónu og nær sérlega skemmtilegum tökt- um í til dæmis samleik með Her- dísi Rós Kjartansdóttur í hlut- verki hinnar afskiptu Elliear May Lester. Einar nær hins vegar ekki nógu vel til dæmis átakasenunni við Pearl. Herdís Rós Kjartansdóttir ger- ir vel í hlutverki Elliear May Lester. Hlutverkið er ekki orð- margt, en fas verður að vera við hæfi, og því nær Herdís Rós vel í langflestum tilfellum. í smærri hlutverkum eru Stein- unn B. Halldórsdóttir sem Amma Lester, Jóhanna K. Svav- arsdóttir sem Pearl Lester, Sigurður Sveinsson sem Henri Peabody, Matthías Lýðsson sem Captain Tim og Vignir Pálsson sem George Payne. Oll fylla hlut- verk sín allvel og að fullu skammlaust. Því miður hafa aðstæður valdið því, að undirritaður hefur ekki átt þess kost að sjá svo margar uppsetningar hjá Leikfélagi Hólmavíkur og vilji hefur staðið til. Það er miður. Af þeim litlu kynnum, sem komin eru af verk- um félagsins, er ljóst að það hef- ur á að skipa hæfu fólki, sem hef- ur bæði getu og metnað til þess að gera vel. Um það ber heildar- bragur uppsetningarinnar á Tobacco Road glöggt vitni. Haukur Agústsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.