Dagur - 20.04.1993, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 20. apríl 1993 - DAGUR - 9
Halldór Arinbjarnarson
Idór Sigfússon, Ólafur B. Ólafsson, Sverrir Björnsson, Matt hías Stefánsson,
nsson þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Óskar Bragason, ísleifur Einarsson, Birkir
sson, Bjarni Bjarnason og Arnar Arnason.
>hannes Bjarnason þjálfari, Vilhelm Jónsson, Kári Jónsson, Anton Ingi Þórar
ar Arnason, Arnar Már Vilhjálmsson, Guðmundur Pálsson og Gunnar
gsson, Heimir Örn Árnason, Hafþór Einarsson, Halldór Sigfússon, Hörður
ion Og Sinári Stefánsson. Myndir: Sigfús Karlsson.
Ásta Halldórsdóttir hefur sýnt mikið öryggi á Fis-mótunum hérlendis.
Mynd: Robyn
Icelandic Cup á skíðum:
Ásta sterk
- Kristinn náði sér einnig vel á strik
Bayem náði aðeins öðm
stiginu í Mönchengladbach
- á meðan að Werder sigraði Dresden
Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði
var sterk á Icelandair Cup
skíðamótunum sem fram fóru
hér á landi um helgina og sigr-
aði á þeim öllum. Tveimur af
sex þurfti reyndar að aflýsa
vegna veðurs, einu í Hlíðar-
fjalli og einu í Bláfjöllum.
Á föstudag var keppt í stór-
svigi í Hlíðarfjalli. í kvenna-
flokki var þrefaldur íslenskur
sigur, Ásta fyrst, síðan Harpa
Hauksdóttir og María Magnús-
dóttir Ólafsfirði 3. Frakkinn
Moguel sigraði hjá körlunum og
Vilhelm Þorsteinsson varð annar.
í Bláfjöllum var keppt í svigi á
sunnudag og þar náði Kristinn
Björnsson frá Ólafsfirði sér vel á
strik og vann karlaflokkinn. Vil-
helm Þorsteinsson frá Akureyri
varð annar en hann sýndi fádæma
öryggi á þessum FlS-mótum og
ætti að hafa tryggt landsliðssætið.
Nú þegar að átta umferðir eru
eftir af þýsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu, hefur gífurleg
spenna færst í keppnina, bæði
á toppi og botni deildarinnar.
Bayern Miinchen varð að sjá á
eftir öðru stiginu til Borussia
Mönchengladbach, en það lið
hefur komið mest á óvart eftir
vetrarfríið og þykir leika allra
liða best um þessar mundir. Á
sama tíma lagði Werder
Bremen, Dynamo Dresden að
velli og er liðið nú aðeins einu
stigi á eftir Bayern, sem hefur
leitt deildina í allan vetur.
■ Leikur Mönchengladbach og
Bayern var mjög skemmtilegur
og vel leikinn. í fyrri hálfleik
voru leikmenn Bayern miklu
sterkari og allt virtist stefna í sig-
ur þeirra. Á 12. mín. náði Ziege
forystu fyrir Bayern, eftir glæsi-
legan einleik í gegnum vörn
Gladbach. Tólf mínútum síðar
náðu gestirnir síðan tveggja
marka forystu, þegar Scholl sendi
knöttinn í netið af stuttu færi. í
seinni hálfleik komu heimamenn
tvíefldir til leiks og strax á fyrstu
mínútunni náði Svíinn Martin
Dahlin að minnka muninn fyrir
Gladbach, með fallegu skalla-
marki. Hann var síðan aftur á
ferðinni á 71. mín. þegar hann
tryggði liði sínu annað stigið,
með öðru skallamarki.
■ Werder Bremen átti ekki í
vandræðum með slakt lið Dynamo
Dresden og sigraði, 3:0. Legat
gerði fyrsta markið á 21. mín.
eftir glæsilegan einleik upp allan
vallarhelming gestanna. Wolter
bætti öðru marki við á 25. mín.
og varnarmaðurinn Beiersdorfer
bætti síðan því þriðja við undir
lok leiksins.
■ VfB Stuttgart gerði enn eitt
jafnteflið, þegar liðið fékk
Frankfurt í heimsókn. Allt virtist
stefna í öruggan sigur Stuttgart,
því eftir að Fritz Walter hafði
náð forystu fyrir liðið á 8. mín.
var Schmitt, framherja Frank-
furtarliðsins vikið af leikvelli. En
leikmenn Frankfurt gáfust ekki
upp og á 17. mín. fékk liðið
dæmda vítaspyrnu eftir að
Eyjólfur Sverrisson, sem nú lék í
allra öftustu línu hafði brotið á
Yeboah. Ur spyrnunni skoraði
sían Kruse. Þegar atvikið var
skoðað í sjónvarpi eftir leikinn
kom greinilega í ljós að Yeboah
var fyrir utan vítateig þegar
Eyjólfur braut á honum. Strax í
upphafi síðari hálfleiks losnaði
Yeboah síðan aftur úr strangri
gæslu Eyjólfs og það var ekki að
sökum að spyrja, snillingurinn
frá Ghana sendi knöttinn af
öryggi fram hjá Immel markverði
Stuttgart. Eftir þetta mark var
Eyjólfur færður framar á völlinn
og hann var tvisvar sinnum
nálægt því að jafna leikinn, en
það var ekki fyrr en á 88. mín. að
varamanninum Kienle tókst að
skora og tryggja þar með liði sínu
annað stigið. Skömmu fyrir
jöfnunarmarkið átti Buchwald,
fyrirliði Stuttgart, hörkuskoti í
markslána og þaðan skaust
knötturinn inn fyrir marklínu
gestanna, án þess að línuvörður
eða dómari tækju eftir því.
■ Borussia Dortmund vann
stórsigur á Wattenscheid á heima-
velli, 6:0. Svisslendingurinn
Chapuisat gerði þrennu og hin
þrjú mörkin gerðu þeir Sammer,
Mill og Michael Rummenigge
sem lék sinn þrjúhundruðasta
deildarleik og var af því tilefni
fyrirliði liðsins í þessum leik.
É Þýska lyfjafyrirtækið Bayer á
tvö lið sem leika í úrvalsdeildinni,
Leverkusen sem er í toppbarátt-
unni og Uerdingen sem er svo
gott sem fallið í aðra deild. Á
laugardaginn mættust þessi lið á
heimavelli þessa fyrrnefnda, í
leik sem þótti afspyrnu slakur.
Leikurinn endaði 1:0 og það var
Andreas Thom sem geri eina
mark leiksins á 25. mín.
■ Köln virðist aðeins vera að
klóra í bakkann í botnbaráttunni
og á laugardaginn tókst liðinu að
leggja Saarbrucken að velli, 0:3.
Henri Fuchs gerði fyrsta markið
á 31. mín. og í síðari hálfleik
bættu þeir Heldt og Ordeniwitz
hvor sínu markinu við.
■ Bochum varð að lúta í lægra
haldi fyrir HSV á heimavelli, 1:2.
Pólverjinn Furtok kom gestunum
Eyjólfi Sverrissyni og félögum geng-
ur ekki sem best.
Fyrsta knattspyrnumótið á
Norðurlandi vestra stendur nú
yflr en það er Feykisbikarinn
sem fréttablaðið Feykir stend-
ur fyrir. í mótinu taka þátt lið
frá Hvöt, Neista, Þrym og KS.
Þremur leikjum er lokið og
mótið því hálfnað. Mótið hófst
með leik Hvatar og Þryms þar
sem Hvöt vann örugglega 6:0.
Sigurður Ágústsson skoraði 2
mörk fyrir Hvöt og Hermann
Arason, Páll Jónsson, Helgi Ara-
son og Hörður Guðbjörnsson 1
hver.
yfir á 37. mín. og síðan bætti
Búlgarinn Letchkov öðru marki
við á 54. mín. Á 61. mín. náði
Aden að laga stöðuna fyrir
heimamenn, en lengra komust
þeir ekki og nú blasir ekkert ann-
að en fall í aðra deild við.
■ í Karlsruhe fengum heima-
menn Scahlke í heimsókn og
niðurstaðan í þeim leik varð
markalaust jafntefli.
■ Sömu úrslit litu dagsins ljós
þegar Nurnberg fékk Kaisers-
lautern í heimsókn á föstudags-
kvöldið.
Árni Hermannsson, Þýskalandi.
Knattspyrna:
Gummi Torfa
ekki á leið
í Þór
Sigurður Lárusson, þjálfari 1.
deildar liðs Þórs í knattspyrnu,
sagði það af og frá að Guð-
mundur Torfason væri á leið til
Þórsara.
Greint var frá því í laugar-
dagsblaði Dags að Þórsarar hafi
talað við Guðmund en Sigurður
sagði svo ekki vera. Hann sagði
einnig að ekki væri verið að leita
að sóknarmanni í stað Bjarna
Sveinbjörnssonar. Ekki hefur
tekist að ná í Guðmund sjálfan
vegna þessa máls.
Um páskahelgina léku Neisti
og KS á Hofsósi og lauk þeirri
viðureign með jafntefli 2:2. Helgi
Torfason og Hafþór Kolbeinsson
skoruðu mörk KS en Hazeda
Mirale og Kristján Jónsson mörk
Neista.
Neisti og Hvöt léku á Blöndu-
ósi um síðustu helgi og unnu
heimamenn 3:1. Hörður Guð-
björnsson skoraði 2 mörk fyrir
Hvöt og Hermann Arason 1 en
Kristján Jónsson skoraði mark
Neista. KS og Þrymur leika vænt-
anlega um næstu helgi á Siglu-
firði.
SlbBÓTTflFÉlAGI D Aðalfundur
@□(1 íþróttafélagsins Eikar
Ukureyri verður haldinn í Iðjulundi föstu-
daginn 23. apríl kl. 18.00.
Stjórnin.
Starfsfólk óskast
til að vinna vaktavinnu í rækjuvinnslu.
Vinnutími kl. 06.00-14.00 og 14.00-22.00.
Upplýsingar í síma 21466, aðeins á milli kl. 17.00
og 19.00 í dag.
STRÝTA HF.
Knattspyrna, Feykisbikarinn:
Mótið nú hálfnað