Dagur - 20.04.1993, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 20. apríl 1993
IÞRÓTTIR
Handknattleikur, íslandsmót yngri flokka:
Fádæma glæsilegur árangur KA
KA virðist á góðri leið með að
byggja upp mikið stórveldi I
handbolta. Um það vitnar
árangur félagsins í yngri
flokkum. Alls kepptu 4 yngri
flokkar karla á íslandsmótinu
og 3 þeirra náðu Islandsmeist-
aratitli. Þetta er afrek sem, eft-
Skíði, íslandsgangan:
Fjarðargangan í Olafsfírði
Fjarðargangan á Ólafsfirði,
sem er hluti íslandsgöngunnar,
var haldin í Skeggjabrekkudal
sl. sunnudag. Veður og færi
var eins og best verður á kosið,
hiti um frostmark, sól og goia
af austri og nýfallinn sjór.
Auk þeirra sem tóku þátt í
göngunni voru nokkrir trimmarar
nættir á staðinn og gengu utan
tímatöku. Gengið var með hefð-
bundinni aðferð. Eftir göngu
voru bornar fram veitingar í boði
skíðadeildar Leifturs. Úrslit urðu
þessi:
17-34 ára, 20 km:
1. Sigurgeir Svavarsson, Ól.
2. Árni Freyr Elíasson, fs.
54,05
56,29
3. Kristján Hauksson, Ól. 1:01,46
4. Kári Jóhannesson, Ak. 1:05,10
5. Sigurður Sigurðsson, Ól. 1:05,19
35-49 ára, 20 km:
1. Sigurður Gunnarsson, fs. 1:03,50
2. Jóhannes Kárason, Ak. 1:06,58
3. Konráð Gunnarsson, Ak. 1:11,41
4. Ingvar Þóroddsson, Ak. 50 ára og eldri, 20 km: 1. Björn Þór Ólafsson, Ól. 1:17,59
1:03,48
2. Elías Sveinsson, ís. 1:08,42
3. Svavar B. Magnússon, Ól. 1:24,04
13-16 ára, 10 km:
1. Þóroddur Ingvarsson, Ak. 35,04
2. Gísli Harðarson, Ak. 35,36
3. Helgi Jóhannesson, Ak. 44,46
17 ára og eldri, 10 km:
1. Bergur Björnsson, ÓI. 36,20
2. Brynjar Sæmundsson, Ól. 46,23
ir því sem næst verður komist,
ekkert félag hefur áður leikið
og ekki líklegt að verði endur-
tekið í bráð. Um helgina
kepptu 2., 3. og 4. flokkur
félagsins til úrslita í Valsheim-
ilinu, 3. og 4. flokkur náðu Is-
landsmeistaratitli og 2. flokkur
varð í 4. sæti. Áður hafði 5.
flokkur KA orðið Islands-
meistari.
Strákarnir í 2. flokki léku fyrst
við KR og töpuðu 13:16 eftir að
staðan hafði verið jöfn í hálfleik
8:8. KA keppti því um 3. sætið
við FH, hafði yfir 9:5 í hálfleik en
náði ekki að fylgja því eftir og
FH marði sigur 14:13. Helgi Ara-
son var markahæstur með 10
mörk, Leó Örn Þorleifsson,
Ómar Kristinsson og Atli Þór
Samúelsson skoruðu 4.
KR-ingar voru einnig and-
stæðingar KA í 3. flokki. Nú gaf
KA engin grið og vann 17:15 eftir
að hafa haft yfir í hálfleik 7:5.
Þar með var tryggt að liðið myndi
leika um íslandsmeistaratitilinn.
Þar voru andstæðingar Akureyr-
inga Valsmenn, sem léku á,
heimavelli. KA tók leikinn föst-
Hæfileikamótun, átak KSÍ í þjálfun efnilegustu leikmannanna:
Beinist ekki síst að
aðstoð við Mu félögin
Á dögunum kynntu forráða-
menn KSÍ áætlun sem miðar
að bættri þjálfun efnilegustu
leikmannana. Stefnt er að því
að auka gæði allra þátta í
knattspyrnuumhverfi bestu
Ieikmanna okkar á aldrinum
14-19 ára, þannig að þeir verði
með tímanum frambærilegir á
alþjóðlegum vettvangi. Mark-
miðið er að A landslið Islands
verði komið í 3. styrkleika-
flokk fyrir riðlakeppni HM
1998 og að bestu íslensku fé-
lagsliðin komist í 3. umferð í
Evrópukeppni félagsliða fyrir
1997. Til að forvitnast nánar
um þessa áætlun var haft sam-
band við Eggert Magnússon,
formann KSI og hann spurður
nánar um hvað hér væri á ferð-
mm.
„Auðvitað erum við ekki á
byrjunarreit því við höfum verið
með svona starf í gangi undanfar-
in ár. Við höfum Iagt mikla
áherslu á yngri landsliðin og
árangur 16 og 18 ára landsliðanna
að undanförnu sýnir að við höf-
um verið á réttri leið. Við höfum
spilað fullt af leikjum og verið
með æfingar meira og minna allt
árið. Við erum því komnir vel af
stað en nú erum við kannski að
gera þetta meira markvisst til
þess að finna betur þessa hæfi-
leikamenn sem eru út um allt
land og síðan reyna að gera
meira fyrir þá en nú er gert.“
Hann lét þess einnig getið að
KSÍ hafi verið í fararbroddi sér-
sambanda ÍSÍ hvað fræðslustarf
áhrærir. „Við höfum reynt að
koma inn hugarfarsbreytingu t.d.
varðandi þjálfaramál og leggjum
ríka áherslu á að félög ráði ekki
þjálfara nema þeir hafi tekið
eitthvað af þeim námskeiðum
sem mönnum stendur til boða hjá
sambandinu. Sem betur fer hefur
líka þróunin verið í þessa átt.“
Landinu skipt í 8 svæði
Framkvæmd áætlunarinnar verð-
ur með þeim hætti að landinu er
skipt í 8 svæði sem eru kjördæm-
in og er hverju svæði stýrt af
svokölluðum trúnaðarmanni.
Trúnaðarmenn eru í raun lykil-
menn áætlunarinnar. Þeir bera
ábyrgð á vali, eftirliti og hæfi-
leikamótum efnanna á svæðun-
um. Hann fer í heimsóknir til
félaganna og heldur upplýsinga-
og fræðslufundi með þjálfurum
og stjórnar hópæfingum leik-
manna á sínu svæði. Síðan kemur
landsliðsþjálfarinn einnig í reglu-
legar heimsóknir.
Áætlunin er í raun ekki farin af
stað sem slík. Eggert sagði nauð-
synlegt að vanda mjög allan
undirbúning. „Við sjáum fyrir
okkur að búið verði að velja
trúnaðarmennina fyrir haustið.
Eins og gefur að skilja skiptir
miklu máli að velja hæfa menn
sem trúnaðarmenn. Þetta verða
að vera menn sem njóta virðingar
á sínu svæði og menn sem aðrir
treysta." Að öðru leyti sagði
Eggert enga ákvörðun hafa verið
tekna um valið á mönnunum.
Beinist að aðstoð við
litlu félögin
Tekið er fram í áætluninni að eft-
ir sem áður fer megin hluti upp-
byggingarinnar fram innan félag-
anna sjálfra og þjálfarar eru því
míkilvægir samstarfsaðilar. Trún-
aðarmennirnir eiga sem fyrr segir
að fara inn í félögin og sjá hvað
þar.er verið að gera og koma með
tillögur um úrbætur ef þarf.
„Þessi áætlun beinist því ekki síst
að aðstoð við litlu félögin. Trún-
aðarmaðurinn velur síðan með
aðstoð hvers landsliðsþjálfara,
bestu efnin á svæðinu. Það verð-
ur því miklu stærri hópur sem
verður fylgst með. Landshluta-
æfingarnar eru til að finna bestu
efnin innan svæðisins og síðan
koma menn inn í knattspyrnu-
skólann og landsliðsæfingarnar.
Fara allir í bestu félögin?
Bent hefur verið á að þessi stefna
geti leitt til þess að menn skipti í
auknu mæli í bestu félögin og þá
ekki kannski síst í félögin á
Reykjavíkursvæðinu. „Það er
hlutur sem hefur viðgengist í
mörg ár að þeir sem eru mestu
efnin sækja í bestu félögin og það
verður aldrei stoppað. Með því
sem verið er að gera núna erum
við skapa betri aðstæður hjá öll-
um félögum. Landsliðið og bestu
félagsliðin verða aldrei betri
nema grunnurinn batni. Við vilj-
um gjarnan finna þessa miklu
hæfileikamenn sem leynast út um
allt land og veita þeim þá aðstoð
sem hægt er. Það merkir ekki að
við viljum að þeir gangi í eitthvað
félag hér fyrir sunnan heldur að
þeir hafi tækifæri til að æfa
betur.“
Skapa þarf betri aðstæður
á landsbygðinni
Eggert sagði að stærsta málið
væri kannski að reyna hafa áhrif á
að betri aðstæður skapist til
knattspyrnúiðkunnar út um land.
„Það er auðvitað engin hemja að
knattspyrnumenn á Akureyri t.d.
geti ekki æft knattspyrnu nema
nokkra mánuði á ári. Þarna verð-
ur að skapa ákveðinn þrýsting. í
þessu sambandi hefur t.d. verið
bent á að reisa skemmu sem væri
kannski 40x70 og bara með möl.
Þá væri hægt að æfa á fullu í
skjóli fyrir veðri og vindum.
Framfarir eiga sér ekki stað nema
menn hafi aðstæður til að æfa við
sem best skilyrði.“ Eggert lét
þess að lokum getið að hann,
ásamt fleirum hefði ferðast tals-
vert um landið til að kynna áætl-
unina og allsstaðar hlotið góð
viðbröð þegar búið hafi verið að
útskýra um hvað málið snýst og
öllum misskilningi hafi verið eytt.
um tökum strax í upphafi og
hleypti Valsmönnum í raun aldrei
að. Sigurinn byggðist á sterkri liðs-
heild, en að öðrum ólöstuðum
var besti maður vallarins Atli Þór
Samúelsson. Hann var marka-
hæstur í leikjunum með 17 mörk,
Matthías Stefánsson skoraði 7,
Sverrir Björnsson 6 og Heimir
Haraldsson 3.
KA er með besta lið landsins í
4. flokki. Það kom berlega í ljós
á þessu íslandsmóti. Liðið lék
alls 22 leiki, vann 21 og tapaði
einum. Þjálfari liðsins er Jóhann-
es Bjarnason en hann gerði 5.
flokk einnig að íslandsmeisturum
fyrir skömmu síðan. Það er því
vægt til orða tekið að Jóhannes
geti verið ánægður með afrakstur
vetrarins.
í úrslitunum um helgina lék
KA fyrst við Þór Vestmannaeyj-
um og vann öruggan sigur 20:13.
í úrslitaleiknum voru síðan and-
stæðingarnir FH. Liðin höfðu
leikið saman fyrr í vetur og þá
voru 2 KA-menn teknir úr
umferð allan leikinn. Svo var
einnig að þessu sinni en nú voru
KA-menn viðbúnir. Búið var að
þjálfa línumann liðsins, Vilhelm
Jónsson, í stöðu skyttu og fór
hann hreinlega á kostum í leikn-
um og var að öðrum ólöstuðum
maðurinn á bak við sigurinn. KA
var yfir allan leikinn og vann sig-
ur 20:16. Leikurinn var vel spil-
aður af beggja hálfu og hin besta
skemmtun. Halldór Sigfússon
skoraði 7 mörk fyrir KA, Vil-
helm Jónsson 6, Þórir Sigmunds-
son 4 og Axel Árnason 3. Þess
má geta að þrír af leikmönnum
4. flokks urðu einnig meistarar
með 3. flokki.
íslandsmeistarar 3. flokks KA. Efri röð frá vinstri: Hall
Tómas Jóhannesson, Heimir Haraldsson og Árni Stefá
Magnússon, Atli Þór Samúelsson, Hörður Flóki Ólaf
Islandsmeistarar 4. flokks KA. Efri röð frá vinstri: Jó
insson, Guðmundur Brynjarsson, Axel Árnason, Arn
Níelsson liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Hlynur Erlin
Flóki Ólafsson, Þórir Sigmundsson, Hákon Örn Atlas
Knattspyrna:
Guðmundur Benediktsson
undir hnífínn í fjórða sinn
leikur ekki knattspyrnu næstu mánuði,
óvíst með framtíð hans hjá Ekeren
Guðmundur Benediktsson,
atvinnuknattspyrnumaður hjá
Ekeren í Belgíu, þarf að gang-
ast undir enn einn uppskurð-
inn í byrjun næsta mánaðar.
Hann verður þá skorinn upp á
vinstra hné og liðbönd skoðuð.
Það er því ljóst að Guðmundur
leikur ekki knattspyrnu næstu
mánuði en í herbúðum Þórs á
Akureyri hafði verið gælt við
þá hugmynd að Guðmundur
léki með Þór í sumar.
Þetta er í fjórða sinn sem Guð-
mundur er skorinn upp við
meiðslum í hné og í þriðja sinn á
því vinstra, frá því að hann gerð-
ist atvinnumaður árið 1990.
Hann hefur verið einstaklega
óheppinn frá upphafi atvinnu-
mannaferils síns og ekki náð að
sýna hversu snjall knattspyrnu-
maður hann er.
Guðmundur verður skorinn
upp þann 4. maí nk. og í fram-
haldi af því kemur hann til
íslands í maílok. Samningur hans
við Ekeren rennur út í vor og alls
óvíst með framtíð hans hjá félag-
inu. Rætt hefur verið um að Guð-
mundur verði í einhverjum
tengslum við Ekeren áfram og
nái hann sér vel á strik á ný, að
gerður verði við hann nýr samn-
ingur. -KK
Þýska knattspyman
Úrslit:
Núrnberg-Kaiserslautern 0:0
Bremcn-Dresden 3:0
Bochuni-Hamburg 1:2
Dortinund-Wattenscheid 6:0
Stuttgart-Frankfurt 2:2
Leverkusen-Uerdingen 1:0
Karlsruhc-Schalke 0:0
Gladbach-Bayern Múnchen 2:2
Saarbrúcken-Köln 0:3
Staðan:
Bayern Múnchen 26 14- 9- 3 50:29 37
Breinen 26 14- 8- 4 43:23 36
Frankfurt 26 12-10- 4 46:30 34
Dortmund 26 14- 5- 7 50:31 33
Leverkusen 26 10-11- 5 50:32 31
Karlsruhe 26 10- 9- 7 45:43 29
Mönchengladbach 26 9- 9- 8 45:44 27
Schalke 26 8-10- 8 27:31 26
Kaiserslautern 26 9- 7-10 36:28 25
HSV 26 6-13- 7 34:31 25
Stuttgart 26 7-11 8 36:38 25
Saarbrúcken 26 5-13- 8 35:43 23
Núrnberg 26 9- 5-12 23:36 23
Dresden 26 6- 9-11 28:41 21
Wattenscheid 26 7- 7-12 33:51 21
Köln 26 9- 1-16 35:45 19
Uerdingen 26 5- 7-14 25:52 17
Bochuin 26 4- 8-14 32:44 16