Dagur - 20.04.1993, Síða 11
Þriðjudagur 20. apríl 1993 - DAGUR - 11
Þessi gamia mynd er frá því Zion var vígt árið 1933, en konur í kristniboðsfélagi kvenna byggðu húsið. Myndin er
úr fórum Kristins G. Jóhannssonar, en hann bjó í húsinu frá 1938 og fram yfir stríð. Kristinn varð fyrstur til að opna
myndlistarskýningu í Listhúsinu Þingi.
Áður en Zion varð Þing
- saga kristniboðshússins í stuttu máli
Listhúsið Þing er nýtt gallerí á
Akureyri. Þórhallur Arnórs-
son festi kaup á húsinu að
Hólabraut 13 og gerði það
upp, eins og fram hefur komið
í Degi. Hús þetta er þekkt
undir nafninu Zion og hýsti
það kristniboðsstarf um langt
árabil en samkomusalurinn
verður nú helgaður listagyðj-
unni en til fróðleiks verður
saga Zion hér rifjuð upp í
stuttu máli.
Kristniboðsfélag kvenna á
Akureyri var stofnað 1. nóvem-
ber 1926. Á fundi í félaginu 6.
september 1931 vakti ritari
félagsins, Sigríður Þorláksdóttir,
máls á því hvort ekki væri tíma-
bært að hyggja á byggingu til
samkomuhalds. Jóhanna Þór var
þá formaður félagsins en Gíslína
Friðriksdóttir gjaldkeri. Við-
brögðin urðu þau að þegar var
efnt til byggingarsjóðs og var
stofnfé hans 56,25 krónur en síð-
an var áætlað að afla fjár til
sjóðsins með happdrætti.
Það var svo á fundi 13.
nóvember 1932 sem félagskonur
fylltust eldmóði og var þá kosin
nefnd til að undirbúa fram-
kvæmdir. Þá voru 360,00 kr. til í
byggingarsjóði.
Konurnar báru grjót í
grunninn
í ársbyrjun 1933 var efnt til fjár-
söfnunar meðal bæjarbúa og
söfnuðust þá 2.150 krónur, auk
þess sem vinnuframlagi var lofað
sem nam 3.428 krónum, og efni
sem metið var á 250 krónur. Nú
þótti ekki lengur til setunnar
boðið enda konurnar þess full-
vissar að Guð væri með í verki og
starfið fánýtt án hans.
Snemma vors 1933 hófust
byggingarframkvæmdir og unnu
konurnar þau störf sem til féllu
og báru m.a. grjót í grunninn og
svo rösklega var að verki staðið
að 10. desember það sama ár var
samkomusalurinn á efri hæð
hússins fullbúinn og vígður með
viðhöfn.
Allar götur síðan hefur starfið
í Zion verið fastur þáttur í bæjar-
lífinu. Þar var haldið uppi öflugu
kristilegu starfi um árabil, sunnu-
dagaskóli fyrir börn og kvöld-
samkomur fullorðinna. Hin síð-
ari ár átti starf KFUM og K einn-
ig athvarf í húsinu og eflaust
margir sem eiga minningar
þaðan, hafa hlýtt á Björgvin
Jörgensson og séð myndir frá
kristniboðsstarfinu í Afríkulönd-
um.
Sögu kristniboðsins í Zion er
lokið og húsið að Hólabraut 13
hefur fengið nýtt hlutverk á sviði
lista og menningar. SS
Þingsalyktunartillaga um lög um greiðsluaðlögun:
Gætu leyst vanda margra heimila
sem eiga í greiðsluvandræðum
Fram er komin á Alþingi þings-
ályktunartillaga um að félags-
málaráðherra verði falið að
skipa nefnd til undirbúnings
samningu laga um greiðslu-
aðlögun til aðstoðar fólki í
verulegum greiðsluerfiðleik-
um. Flutningsmenn tillögunn-
ar eru þingmennirnir Ossur
Skarphéðinsson og Sigbjörn
Gunnarsson. I þingsályktunar-
tillögunni er tekið fram að
nefndin skuli hafa hliðsjón af
sambærilegum lögum annars-
staðar á Norðurlöndunum og
afla upplýsinga um reynslu af
þeim.
í greinargerð með þingsálykt-
unartillögunni segir meðal annars
að skuldir heimilanna hafi aukist
mjög á síðasta áratug og láti
nærri að þær hafi fjórfaldast frá
árinu 1981 til loka ársins 1992.
Samkvæmt upplýsingum Neyt-
endasamtakanna hafa þær aukist
úr, 60,5 milljörðum króna á árinu
1981 í allt að 226,7 milljarða á
síðasta ári eða um 377%. Sé mið-
að við hlutfall af landsframleiðslu
'á sama tíma hafa þær aukist úr
14% í tæp 54%.
f greinargerðinni segir einnig
Sigbjörn össur
Gunnarssun. Skarphéöinsson.
að orsaka þessarar þróunar sé
ekki síst að leita í mikilli hækkun
raunvaxta á bankalánum. Á
árinu 1983 hafi vextir verið nei-
kvæðir um 14,2% en voru orðnir
jákvæðir um 15,9% á árinu 1989
er þeir fóru hæst. Bent er á að
hækkun raunvaxta hafi þyngt
greiðslubyrði heimilanna og hafi
fólk neyðst til að mæta henni
með auknum lántökum og af
þeim sökum skapast illrjúfanleg-
ur vítahringur sem í mörgum til-
vikum hafi leitt til gjaldþrots og
hörmulegra afleiðinga. Versn-
andi atvinnuástand auki enn á
þennann vanda þar sem örðugra
sé nú að leysa úr mikilli greiðslu-
byrði með því að taka að sér
mikla aukavinnu.
í greinargerð sem Sólrún Hall-
dórsdóttir, hagfræðingur Neyt-
endasamtakanna, hefur unnið
um þessi mál kemur fram að
markmið laga um greiðsluaðlög-
un sé að hjálpa einstaklingum
sem eigi í miklum og viðvarandi
greiðsluerfiðleikum og sjái ekki
fram á að geta greitt vexti og
afborganir til lengri tíma. Með
löggjöf um greiðsluaðlögun geta
þeir sem falla undir skilgreiningu
viðkomandi laga fengið lækkun á
greiðslubyrði - til dæmis með
lækkun vaxta, lengingu lánstíma
eða breytingum á skammtíma
lánum í lengri tíma lán. Ef talið
er að slíkar aðgerðir dugi ekki til
að leysa vanda viðkomandi aðila
gefa slík lög einnig möguleika á
að fá lækkaðan höfuðstól eða
niðurfellingu skuldar sem ekki er
nægjanlega tryggð með veði. ÞI
Fyrir sumardaginn
fyista
Full búð af afskornum blómum og
gjafavöru.
Fagnið sumri með blómum.
Vandið valið.
*
AKLJR
KAUPANGIV/ MYHARVEG 602 AKUREVRI
SÍMAR 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498
Opið sumardaginn fyrsta frá kl. 09.00-18.00.
Bílastæði við búðardyrnar.
Gleðilegt sumar!
Hús til sölu
Til sölu er Laugarbrekka 14, Húsavík, tveggja hæða steinhús með
stórri og góðri lóð. Húsið er byggt 1947, 165 m', endurnýjað og lag-
fært töluvert á árunum 1978-82 og 1991-92.
Einbýlishús eða tvær íbúðir.
í húsinu eru tvær fbúðir með
sameiginlegu þvottahúsi og
geymslu á jarðhæð, með sam-
eipn er íbúð á jarðhæð um 65
m , en á efri hæð er íbúðin um
100 m2, auðvelt að breyta í
einbýlishús.
Verðhugmynd: kr. 7.500.000
að teknu tilliti til greiðslu
fyrirkomulags.
Skrifleg tilboð, er tilgreini verð og greiðsluskilmála þurfa að berast
undirrituðum fyrir 10. maí 1993.
Öllum tilboðum verður svarað fyrir 20. maí 1993.
Húsið er til sölu í heild. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er.
Allar nánari upplýsingar um húsið og sölu þess gefur Stefán Jón
Bjarnason, Norðurvöllum 20, Keflavík. Heimasími 92-14070, vinnu-
sími 92-15200.
Aðalfundur
Kaupmannafélags
Akureyrar
veröur haldinn þriðjudaginn 27. apríl
kl. 20.00 að Hótel KEA.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Nýtt
símanúmer
Frá og með 17. apríl er nýtt símanúmer
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
96-30100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.