Dagur - 06.05.1993, Blaðsíða 7

Dagur - 06.05.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 6. maí 1993 - DAGUR - 7 Tónlist___________________________ Mikado á Húsavík Við Tónlistarskólann á Húsavík starfar söngdeild. Aðalkennari við hana er söngkonan Natalia Chow. Nemendur við söngdeild- ina á Húsavík eru að sjálfsögðu mislangt komnir í námi sínu, en áhugi þeirra er mikill, sem sést meðal annars á því, að þeir koma víðs vegar að úr Þingeyj- arsýslum, allt frá austanverðum Öxarfirði til dala Suður-Þing- eyjarsýslu. Til þess að gefa nemendum söngdeildarinnar kost á því að takast að nokkru á vió raunhæft verkefni og jafnframt til þess að gefa sýslubúum kost á því að kynnast starfi söngdeildarinnar og framgangi nemenda hennar, var ráðist í það verkefni, aö setja upp Sjallinn: Leikja- keppni fyrir- tækjanna í kvöld verður seinni umferð í undanúrslitum í Spilagosanum ’ 93 í Kjallaranum. Lið íslands- banka og Samlands eigast við og keppir það lið sem vinnur til úrslita við lið DNG, sem bar sig- urorð af liði Ríkisútvarpsins sl. fimmtudag. Keppnin er haldin í samvinnu við Genus í Kringlunni, sem gefur öll verðlaun. Trúbadorinn Oskar Hlynsson leikur fyrir gesti eftir keppnina. (Fréllatilkynning) Þakkir tU Hængs Bocciadeild Völsungs og Félag eldri borgara á Húsavík tóku þátt í bocciamóti sem Lionsklúbburinn Hængur stóð íyrir á Akureyri 30. apríl og 1. maí. Þátttakendur frá félögunum vilja senda lionsmönn- um bestu þakkir fyrir góða skipu- lagningu og framkvæmd mótsins og góðar móttökur á Akureyri. Fyrir hönd keppenda Kristbjörn Óskarsson. Ljóðatímaritið Ský komið út Níunda hefti af ljóðatímaritinu Ský er komið út. Gestaritstjórar þessa heftis eru Bragi Ólafsson og Þór Eldon og hafa þeir séð um efnisval. I tímaritinu er að finna ljóð eft- ir Atla Jósefsson, Valgaró Braga- son, Aðalstein Svan Sigfússon, Óttarr Proppé, Harald Jónsson, Ara Gísla Bragason, Kelly Ann Smith, Jón Marinó Sævarsson og Sjón. Þá birta þeir Bragi og Þór þýð- ingar sínar á ljóðum eftir hið kunna franska skáld Guillaume Apollinaire og á ljóðum sílenska framúrstefnuskáldsins Vicente Huidobro (1893-1948). Einnig eru í heftinu teikningar eftir Hallgrím Helgason og ljósmyndir af alís- lenskum sviðakjömmum sem Spánverjinn Eduardo Pérez Baca tók. Ský kostar 400 krónur og fæst í Bókabúð Máls og menningar og Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar í Austurstræti. Askriftar- beiðnir og bréf berist í pósthólf 1686, 121 Reykjavík. einsöngshluta og kórkafla úr óper- ettunni Mikado eftir tónskáldið Sir Artur Sullivan við leik- og söngtexta W. S. Gilberts. Þessir hlutar verksins voru fluttir á ensku, og þeir tengdir saman með útskýringartexta á íslensku, sem kynnir tónleikana, Jo Clayton, flutti. Tónleikarnir voru haldnir 2. maí í sal Borgarhólsskóla. Stjórn- andi þeirra var Natalia Chow en undirleikarar Helgi Pétursson og stjórnandinn. Mestur hluti undir- leiks var leikinn á flygil, en undir- leikur undir nokkra kórkafla var af tölvu. Tölvusetningin var verk Helga Péturssonar. Undirleikur var gjaman heldur hávær fyrir raddir söngvaranna, einkum þegar um einsöng var aö ræða. Sérstaklega var tölvuundir- leikurinn of þróttmikill jafnvel þó fullur kórinn syngi. Þetta var óþarfa galli á uppsetningunni. Nokkrir félagar úr jazzkómum NA 12 aðstoðuðu við flutning, en velflestir flytjendur eru nemendur við söngdeildina á Húsavík. Hér verður ekki getið einstakra söngv- ara, enda þeir ekki á' því stigi í námsferli sínum, að rétt sé að leggja einstaklingsbundinn dóm á frammistöðu. Hitt má taka fram, að flestir stóðu sig vel og báru þess vitni, að þeir höfðu hlotið til- sögn og nýttu hana. Sérlega vel kom þetta fram í kórhlutum, þar sem iðulega tókst ánægjulega vel til. __ Ymislegt var lipurlega gert í sviðsframkomu; sérstaklega af hálfu kvenna. Nokkrír karlanna gerðu einnig vel, en á meðal þeirra bar einnig mest á til dæmis endurteknum og marklitlum handahreyfingum, sem verkuðu þreytandi. Dansatriði gengu í flestu tilliti allvel og lífguðu veru- lega upp á uppfærsluna í heild. Sviðsbúnaður var einfaldur en fullnægjandi fyrir þessa uppsetn- ingu, sem nánast var konsertupp- færsla. Skemmtilegum blæ var náð með viðeigandi búningum og andlitsförðum, en þetta hvort tveggja var í langflestum tilfellum vel af hendi leyst. Tónleikamir voru afar vel sóttir og mátti heita að hvert sæti væri skipað. Undirtektir voru einnig góóar og mátti greina, að áheyr- endur mátu að verðleikum þann dug flytjenda og annarra aðstand- enda að leggja í verkefni sem þetta. Þaó er vonandi vísir fram- tíðaratburða af svipuðum toga, þar sem greina má vaxandi framfarir og þrótt í þessari hlið starfsemi Tónlistarskólans á Húsavík. Haukur Ágústsson. NQ breiitt beh'i búð ViO breqHum og bæltum í tilefni pess bjóðum við ijhhur fimmtudag og föstudag ‘cn c=n

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.