Dagur - 06.05.1993, Page 8

Dagur - 06.05.1993, Page 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 6. maí 1993 Spurning vikunnar Hvaö ætlar þú aö gera í sumar? (Spurt í Síðuskóla á Akureyri) Brynja Hrönn Ólafsdóttir 14 ára Ég fer í enskuskóla til Skot- lands 20. júlí. Ég hef aldrei komið til útlanda og hlakka því mjög til að fara. Guðjón Már Þráinsson 13 ára Ég fer sennilega í sveit í Vallakot í Reykjadal, þar sem afi og amma búa. Hildur Bára Leifsdóttir 13 ára Ég fer í vinnuskólann og svo ætla ég að reyna að fá pössun. Guðmundur Ólafur Her- mannsson 13 ára Eg æfi knattspyrnu í sumar með 4. flokki Þórs og svo ætla ég að leika mér í körfubolta. Gauti Gunnarsson 13 ára Ég veró aó hjálpa pabba, sem er smiður. Á landssambandsfundi Soroptimista, Sigurlaug Barðadóttir, ritari landssambandsins, Hildur Hálfdanardóttir, for- seti iandssambandsins, Luisa Bjarnadóttir, scndifuiltrúi, og Björg Friðriksdóttir, forseti Soroptimistaklúbbs Húsa- víkur og nágrennis. Mynd im. Landssambandsfundur Soroptimista á Húsavík: „Ómetanlegt hvað ég hef kynnst mörgum góðum konum,“ - segir Hildur Hálfdanardóttir, forseti landssambandsins Landssambandsfundur Sorop- timista var nýlega haidinn á Húsavík. Þetta var 19. lands- fundur sambandsins en 15 klúbbar eru starfandi á landinu og félagar rúmlega 400. Fyrsti íslenski klúbburinn var stofnað- ur í Reykjavík 1959. Soroptim- istaklúbbar eru starfsgreindir, eins og Rotaryklúbbar, en það var einmitt maður sem vann að stofnun Rotaryklúbbs í Banda- ríkjunum snemma á öldinni sem stofnaði fyrsta Soroptimista- klúbbinn. Hann átti pantað við- tal við skólastjóra til að bjóða honum inngöngu í klúbbinn, en þegar í Ijós kom að skólastjór- inn var kona fæddist hugmynd- in um að stofna hliðstæðan klúbb fyrir konur. Ekki er hægt að sækja um inngöngu í Sorop- timistaklúbba, heldur er þátt- taka boðin einni konu úr hverri starfsgrein og þurfa allar klúbb- systur að vera samþykkar að bjóða nýrri systur inntöku. Vinátta og skilningur eru kjör- orð Soroptimista, sem vilja hið besta fyrir konur, frá konum. Sor- optimistar hafa ýmist nefnt sig Bestusystur eða Bjartsýnissystur og hafa unnið að ýmsum fram- fara- og líknarmálum, bæói innan- lands og erlendis. Markmið Soroptimista eru: Að gera háar kröfur til siðgæö- is á sviði viðskipta, starfa og ann- arra þátta mannlífsins. Að vinna að mannréttindum og einkum að því að auka réttindi kvenna. Að efla vináttu og einingu meðal Soroptimista allra landa. Að auka hjálpsemi og skilning meóal manna. Að stuðla að auknum skilningi og vináttu á alþjóðavettvangi. Alþjóðasamtök Soroptimista hafa vítt starfsvið sem skipt er niður í sex verkefnasvið, eins starfa landssamböndin og hver ein- stakur klúbbur. Verkefnasviðin eru: Alþjóðleg vinátta og skilning- ur. Efnahags- og félagsleg þróun. Mannréttindi og staða konunnar. Mennta- og menningarmál. Heil- brigðismál. Umhverfismál. Soroptimistar eiga m.a. aðild að Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóöanna (ECOSOC) og eru þar í hópi óháðra félaga- samtaka sem eiga hlutdeild í því að draga úr vandamálum á hverj- um tíma og marka leiðir fyrir framtíðina. Sambandið innur einn- ig með UNICEF, bamahjálpar- sjóði Sameinuðu þjóðann, að því að hjálpa konum og bömum í þriðja heiminum meó fræðslu, þar sem áhersla hefur verið lögð á heilbrigðismál og fjárhagsaðstoð. Landssambandsstjórn hélt blaóamannafund í upphafi fundar- ins á Húsavík og þar spurði Dagur nokkrar forsvarskonur samtak- anna hvers virði það væri fyrir þær að vera Soroptimistar. Hildur Hálfdanardóttir, for- seti Soroptimistasambands ís- lands: Mér finnst yndislegt að vera Soroptimisti. Mér finnst það lífs- fylling að finna að ég get oróið öðrum að liði. Svo finnst mér ómetanlegt hvað ég hef kynnst mörgum góðum konum. Eg er í Kópavogsklúbbnum en hef verið nokkuð lengi í stjóm landssam- bandsins, í ýmsum embættum. Það er engin undantekning frá því að allar konur sem ég hef kynnst í starfi Soroptimista eru yndislegar og ég hef eignast margar vinkon- ur. Mér finnst vera svo mikil hlýja, vinátta og einlægni á milli okkar. Þegar ég fer út fyrir land- steinana er það mjög sérstök til- finning, og kom mér í fyrstu tals- vert á óvart, að mér fannst eins og ég væri að hitta ættingja þegar ég hitti Soroptimista erlendis. Við er- um bestu systur, sem vinnum að því sama hvar sem er í heiminum og þó að við búum við afskaplega ólíkar aðstæður. Markmiðið er, að reyna að láta eitthvað gott af sér leiða. Sigurlaug Barðadóttir, ritari landssambandsins: Eg hef starfað í Kópavogs- klúbbnum síðan hann tók til starfa 1975. Það var dálítið erfíð fæðing þegar við vorum að stofna klúbb- inn og fá systur til að starfa með. Það hefur verið óskaplega gaman og gefið mér mikla lífsfyllingu að fylgjast með klúbbnum, frá því hann var að slíta bamsskónum og til þess sem hann er orðinn í dag. Aldrei hef ég iðrast að hafa geng- ið í þessi samtök sem hafa gefiö mér ómælda lífsfyllingu. Það er þessi hlýleiki og góðvilji allsstað- ar, við mætum svo mikilli hlýju og systurkærleik hvar sem vió komum, hjá systrum sem við höf- um þó aldrei séó áður. Luisa Bjarnadóttir, sendifull- trúi landssambandsins: Eg er í Hafnarfjarðar- og Garðabæjarklúbbnum og við ætl- um að halda uppá 20 ára afmæli klúbbsins í sumar. Mér fínnst dá- samlegt að vera Soroptimisti. Það er hlutur sem virðist fylgja þér, þú lærir markmið Soroptimista og lif- ir samkvæmt þeim. Eg starfa í heilbrigðiskerfinu og hef alla tíð unnið á fjölmennum stað, en í samtökum Soroptimista hef ég kynnst miklum fjölda elskulegra kvenna, sem ég hefði ekki haft nokkum möguleika á að hitta ann- ars. Það standa margar dyr opnar Soroptimistum, hvar sem er í heiminum. Um páskana var ég í Sviss, í skíðaferð. A þremur stöð- um í bænum sá ég merki Sorop- timista, gekk inn og um leið og ég sagðist vera Soroptimisti komu systur meó útbreiddan faðminn á móti mér. Það er svo auðvelt að umgangast þessar konur og eins og þú fallir inn í hópinn. Eg hugsa að grunnurinn að þessu séu mark- mið Soroptimista. IM Tónlistarskólinn á Akureyri: Fjölmargir tónleikar á næstunni Um helgina og í næstu viku verða fjölmargir tónleikar á vegum Tónlistarskólans á Akur- eyri. Fyrst skal nefna að nk. sunnu- dagskvöld, 9. maí, verða brottfar- artónleikar nemanda við gítar- deild, Halldórs Más Stefánsson- ar. Tónleikamir verða í Akureyr- arkirkju. Þriðjudaginn 11. maí verða tónleikar gítardeildar í kapellu Akureyrarkirkju. Mið- vikudaginn 12. maí kl. 20.30 veróa vortónleikar eldri nem- enda Tónlistarskólans í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju, fimmtu- daginn 13. maí kl. 19 verða tón- leikar strengjasveita í Glerár- kirkju, laugardaginn 15. maí kl. 16 verða á sal Tónlistarskólans söngtónleikar - brottfarartón- Ieikar Steinars Magnússonar, sem er að ljúka 8. stigi frá söng- deild Tónlistarskólans, og loks verða tónleikar blásaradeild- ar skólans í Safnaðarheimili Ak- ureyrarkirkju sunnudaginn 16. maí kl. 16. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.