Dagur - 06.05.1993, Síða 14

Dagur - 06.05.1993, Síða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 6. maí 1993 Ferðafélag Akureyrar kynnir ferðaáætlun sína - boðið upp á fjölbreyttar gönguferðir Fimmtudagskvöldið 6. maí mun Ferðafélag Akureyrar kynna ferðaáætlun sína að Galtalæk, húsi Flugbjörgunarsveitarinnar. Þar verða einnig sýndar myndir í tengslum við ferðirnar. Ferðafélag Akureyrar var stofnað 1936 og er sjálfstæð deild innan Feröafélags Islands. Stofn- félagar voru 50 en nú eru 450 skráðir félagar í F.F.A. Félagið á og rekur 5 skála, Þorsteinsskála í Herðubreiðarlindum, Dreka í Dyngjufjöllum, Bræðrafell austan Kollóttudyngju, Laugafell og Lamba á Glerárdal. Sjötti skálinn er í byggingu en það er göngu- skáli sem áætlað er að setja niður í Dyngjufjalladal í sumar. En sá skáli er í gönguleið sem F.F.A. er að skipuleggja um Ódáðahraun frá Herðubreióarlindum í Svartárkot. Áhugi fyrir gönguferóum hefur aukist nú hin síðari ár. F.F.A. hef- ur reynt að koma til móts viö þenn- an áhuga bæði með því að setja niður gönguskála og bjóða upp á fjölbreyttar gönguferðir bæði um byggðir og óbyggðir. Á áætlun eru léttar dagsgönguferðir auk lengri og erfiðari ferða. Undanfar- in ár hefur verið boðið upp á gönguferðir á Homstrandir og svo er einnig í ár. í fyrra var farið í Reykjafjöró norður og þaðan farið í dagsferðir. Hér var ekki um erf- iða ferð aó ræða, þar sem fólk þurfti ekki að bera farangur með sér, kokkur var einnig með í för svo ferðalangar þurftu aðeins að huga að nesti til dagsins, fengu bæði morgunmat og heitan kvöld- mat. Þar sem þessi ferð mæltist mjög vel fyrir var ákveðið að hafa aðra slíka á áætlun í ár. Sumar- leyfisferóin í ár verður um Austur- land en þá veróur haldið til á Hér- aði og farið þaðan í dagsferðir t.d. niður á firði og inn að Snæfelli. Einnig er ástæða til aö vekja sérstök athygli á tveimur eyja- ferðum sem famar verða snemm- sumars. I lok maí verður farin bátsferð út í Málmey og helgina á eftir flogið út í Grímsey. Fólki er bent á að panta tímanlega í þessar ferðir þar sem getur þurft að tak- marka þátttöku í þær, hið sama gildir um ferðina á Homstrandir. Reynt er að stilla verði á ferð- um í hóf. í lengri ferðum er inni- falinn matur. Félagar í F.F.A. fá árbók F.í. og Ferðir rit F.F.A. Rétt er aó geta þess að hægt er að fá alla árganga Tónlist árbókarinnar og Ferða á skrifstofu F.F.A. Eldri árganga er hægt að fá á mjög lágu veröi en þar er að finna mikinn og fjölbreyttan fróð- leik. Veittur er 25% afsláttur ef allir árgangar árbókarinnar eru keyptir í einu. Állir eru velkomnir í ferðir F.F.A. og fólk hvatt til að líta vió á skrifstofunni og afla sér upplýs- inga, líta í bækumar og fá sér kaffisopa. Allar ábendingar eru líka vel þegnar. Skrifstofan verður opin í maí miðvikudaga og föstu- daga frá kl. 17-19 en yfir sumar- mánuðina mánudaga til föstudaga frá kl. 16-19. Nú er tilvalið tæki- færi til að líta á ferðaáætlunina og koma síðan á kynningarkvöldið og fá nánari upplýsingar. Mynd: GG Gljúfrabú, verslunarhúsnæðið við Laxárvirkjun. Enginn grundvöllur fyrir verslun við Laxárvirkjun yfír vetrartímann: KÞ leigir húsnæðið - og verður opið frá 10. maí til ágústloka Þijár konur - þijú hljóðfæri Kaupfélag Þingeyinga hætti rekstri verslunar við Gljúfrabú í september á sl. ári en þá hafði verið rekin þar verslun í 33 ár. Gljúfrabúsverslunin er staðsett við Laxárvirkjunina. Fyrir sl. áramót fór Elín Kjartansdóttir í Norðurhlíð þess á leit að fá verslunina leigða yfir sumar- tímann og hefur fengið já- kvætt svar við þeirri umsókn. Elín segir ekki vera grundvöll fyrir því að reka verslun þarna nema yfir sumartímann því bæði sé dýrt að vera með stóran lager og ekki mikil hreyfing á honum og eins fari þeir sem næst versl- uninni búa mikið til Húsavíkur og Akureyrar enda sé ekki mögu- legt að keppa við stórmarkaðina í verði, ekki síst þegar samgöngur eru orðnar eins góðar og raun ber vitni. „Fyrir ekki stærri verslun er svona stór lager og birgðasöfnun mikið vandamál og engin grund- völlur fyrir þessum rekstri yfir vetrarmánuðina. Yfir sumarmán- uðina kemur hins vegar mikið af ferðafólki hingað og eins veiði- menn og svo fjölgar mikið á bæjunum yfir sumartímann og fólk hefur mun minni tíma þá til að fara í verslun, bæði vorverkin og heyskapurinn eru það tíma- frek. Fólkið kaupir oft aðeins það nauðsynlegasta, mjólk og brauð, en á þeim vörum er einna lægst álagning," sagði Elín Kjart- ansdóttir. Til stendur að opna 10. maí nk. og hafa opið til ágústloka og að sögn Elínar hefur fólki þótt einna lakast að geta ekki keypt bensín á staðnum en styst er í dag að fara í Laugar eða til Húsavík- ur. Mjólkurframleiðendur fá mjólk og mjólkurvörur til baka með mjólkurbílnum þrisvar í viku og eru því sæmilega settir að því leyti. GG 29. apríl stóð Tónlistarfélag Akur- eyrar að tónleikum í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju. Fram komu Hólmfríður Benediktsdóttir, sópran, Helga Bryndís Magnús- dóttir, píanóleikari, og Jennifer Spear, gítarleikari. Hólmfríður Benediktsdóttir hóf tónleikana á flutningi sjö vinsælla spænskra söngva eftir Manuel de Falla. Undirleikari á gítar var Jennifer Spear. Spönsk söngtónlist er nokkuð sérstök ekki síst hvað raddbeitingu snertir. Hólmfríður hafði þann þátt ekki á valdi sínu sem skyldi. Hins vegar var flutn- ingur hennar áferðargóður að flestu öðru leyti og víða innilegur svo sem í vögguvísunni Nana. Jennifer Spear studdi söngkon- una allvel með undirleik sínum. Hún naut sín best í þeim lögum, sem voru róleg og nokkuð róman- tísk, en síður í þeim, sem kröfðust meiri hraða og átaka, svo sem Jot- unni frá Andalúsíu. Jennifer Spear lék Fimm smá- verk frá Venesúela eftir Vincente Passíukórinn undir stjóm stofn- anda síns, Roars Kvam, efndi til tónleika í Glerárkirkju 28. apríl. Á efnisskrá voru tvö verk. Hið fyrra Stabat Mater eftir G. Pergolesi, en hiö síðara Messa í A-dúr eftir César Franck. Passíukórinn líður fyrir það, hve ójafnt hann er skipaóur. Söng- fólk á tónleikunum í Glerárkirkju var þrettán kvennaraddir og fjórar karlaraddir. Þegar um svo ójafnt skipaðan kór er að ræða, er ekki von til þess, að flutningur verði svo góður, sem æskilegt er. Þessa gætti óneitanlega á tónleikunum ekki síst í fyrra verkinu, Stabat Mater. Sem betur fer voru þó hlut- ar í flutningi kórsins, sem tókust allvel; einkum í nokkrum hlutum seinna verksins. Þar átti kórinn talsvert hrífandi kafla í til dæmis Gloríunni. Einnig náðist nokkuð oft góður stígandi í styrk og einn- ig vel unnin blæbrigði í túlkun. Einsöngvarar í flutningi Stabat Maters voru Guðrún Jónsdóttir, sópran, og Þúríóur Baldursdóttir, alt. I Messunni í A-dúr sungu ein- söng Guðrún Jónsdóttir, Jón Þor- steinsson, tenór, og Michael Jón Clark, bariton. E. Soho. Leikur hennar var víða fallegur, svo sem í hinu þýðlega Candico og í Cancion. Nokkurrar ónákvæmni gætti hins vegar í öðr- um verkanna svo sem í Arie Vene- zolano. Tónn Jenniferar Spears er oft fallegur og víða brá fyrir hita, sem átti vel við hina sólríku, suðrænu tónlist. Hólmfríður Benediktsdóttir flutti næst tíu laga flokk eftir Samuel Barber, sem ber heitið Hermit Songs. Undirleikari á pí- anó var Helga Bryndís Magnús- dóttir. Hér var Hólmfríður miklu nær heimaslóð. Henni tókst víða vel og var iðulega nánast í essinu sínu. Svo var til dæmis í At Saint Patrick’s Purgatory, Crusifixion og The Desire for Hermitage. Þá náði Hólmfríður skemmtilega að túlka kímni sumra laganna, svo sem í Heavenly Banquet og The Monk and His Cat. Undirleikur Helgu Bryndísar Magnúsdóttur var víða hrífandi og hvarvetna vel við hæfi. Samvinna hennar og söngkonunnar var náin og stuðningur við flutning Hólm- Þuríóur Baldursdóttir gerði vel og söng af öryggi og festu. Hin breiða rödd hennar naut sín víða fallega. Guðrún Jónsdóttir náði vel styrk og þó nokkurri breidd á háum tónum, en lágir tónar höfðu tilhneigingu til þess að verða nokkuð þunnir og þróttlitlir. Fyrir brá, að tónhæð hjá Guðrúnu væri ekki alls kostar rétt. Michael Jón Clark skilaói sínum hluta fallega og virtist hvergi vera í vandræðum með hvort heldur tónhæð eða styrk. Jón Þorsteinsson hafði gott vald á flutningi þeirra hluta, sem voru í meðalhæð, en virtist þurfa að beita nokkurri þvingun á háa tóna. Lítil hljómsveit lék með flutn- ingi Passíukórsins og einsöngvar- anna á tónleikunum í Glerár- kirkju. Hún var skipuð Grétu Baldursdóttur og Ástu Oskarsdótt- ur, fiðluleikurum, Jónínu Auði Hilmarsdóttur, lágfiðluleikara, Eileen Silcocks, sellóleikara, Jóni Rafnssyni, kontrabassaleikara, Helgu Kvam, slagverksleikara, Moniku Abendroth, hörpuleikara, og Richard Simm, sem lék á hljómborð og orgel. Leikur hljómsveitarinnar var nokkuð góður í Messunni í A-dúr, fríðar sem næst ætíð svo sem best verður á kosið. Helga Bryndís flutti sem loka- atriði tónleikanna Sonatina Pour Yvette eftir Xavier Montsalvatge. Verkið er í þrem þáttum, sem bera heitin Vivo et spirituoso, Moder- ato molto og Állegretto. Leikur Helgu Bryndísar var í stuttu máli glæsilegur og verður ekki ýkja miklu við það bætt. Skemmtilegt var að fylgjast með öryggi hennar í hinum ýmsu köflum verksins, sem hún Iék bæói af þrótti og til- finningu jafnframt því, sem hún dró fram úr hljóðfærinu aðskiljan- leg blæbrigði af kunnáttu þess, sem gerþekkir og veit, hvað unnt er að gera og á við að gera í túlk- un tónlistar á flygil. Vel er til fundið hjá þessum þrem konum að vinna saman aó tónleikum. Vonandi flytja þær efnisskra sína víðar og ekki síður væri það tilhlökkunarefni að eiga þess kost að heyra þær síðar með aðra efnisskrá, því vafalítið hafa þær af nógu að taka. Haukur Ágústsson. en verulega lakari í Stabat Mater. I Stabat Mater var leikur hljóm- sveitarinnar iðulega ekki hreinn, einkum í fiðlum, og auk þess gjarnan heldur hávær, en það spillti fyrir öðrum flytjendum, einkum kórnum. I Messunni í A- dúr, sem virtist betur æfð, var styrkur hljómsveitarinnar mun hóflegri. Eileen Silcocks, Richard Simm, Jón Rafnsson og Monika Abendroth voru hinar styrku stoð- ir hljómsveitarinnar og gerðu víða fallega. Monika Abendroth lék reyndar ekki með nema í A-dúr messunni og hið sama gilti um Helgu Kvam. Það er að ýmsu Ieyti lofsverð dirfska, að leggja upp í flutning verka, sem þeirra, sem flutt voru á tónleikum Passíukórsins 28. apríl í Glerárkirkju, með flytjendahóp, sem ekki er betur skipaður til þess, en Passíukórinn því miður er. Vonandi verður eitthvað til þess, að kórinn nái liði, svo að söngmenn í honum og stjórnandi hans hafi þann mátt, sem þarf til þess að standa undir þeim metn- aói, sem þetta fólk allt hefur greinilega til að bera. Haukur Ágústsson. Aðalfundur Félags hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu verður haldinn í húsakynnum endurhæfingastöðvarinnar að Bjargi, laugardaginn 8. maí 1993, og hefst kl. 15, að lokinni göngu. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Gestir fundarins verða hjónin María Guðmundsdóttir og Haukur Þórðarson, yfirlæknir á Reykjalundi. Félagar, fjölmennið og takið maka ykkar með. Nýir félagar, verið velkomnir. Kaffiveitingar. Stjórnin. Passíukórinn

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.