Dagur - 06.05.1993, Side 15

Dagur - 06.05.1993, Side 15
Fimmtudagur 6. maí 1993 - DAGUR - 15 Íþróttir Halldór Arinbjarnarson Handknattleikur, Toyotamótið á Húsavík: Metþátttaka og mikíð fjör íþróttahöllin á Húsavík iðaði af lífi um síðustu helgi þegar þar var haldið hið árlega Toyotamót í handknattleik. Það er hand- knattleiksdeild Völsungs sem fyrir mótinu stendur en það er fyrir 5. og 6. flokk stráka og stelpna. Mótið var nú haldið í 3. sinn og sló þátttaka öll met, því alls voru 488 krakkar mætt til leiks og spilaðir voru 103 leikir. Að sögn Haraldar Haraldssonar hjá Völsungi er þetta mesti hugs- anlegur fjöldi sem getur verið á mótinu og eins og gefur að skilja fylgir slíku stórmóti mikil skipu- lagning og einnig vinna meðan á því stendur, t.d. að útvega dómara í 103 leiki. Krakkarnir komu frá 8 félögum og voru mörg lið frá sumum. Allir gestir fóru ánægðir til síns heima og luku lofsorði á mótshaldið, ekki síst dómgæslu, en brenna hefur viljaó við að hún sé ekki sem best á mótum hjá yngri flokkum. Urslit urðu eftir- farandi: 5 flokkur drengja: A lió B lið C lið 1. KA Þór ÍR 2. ÍR KA KA 3. Þór Grótta Fram 5. flokkur stúlkur: Alið B-Clið: 1. ÍR ÍR b ® /X% 18. -fyrír þig og þina fjöiskyidu! 16 Í kV Í kd Tekst markverðinum að verjast sjúkraþjálfaranum ? Guðmundur Jónsson, sjúkraþjálfari á Dalvík, var yfirburða sigurvegari í síðasta Getraunaleik Dags. Hann heldur því áfram og hefur skorað á Sigurvin Jónsson, markvörð 3. deildar liðs Dalvíkinga í knattspyrnu. Síðan er að sjá hvort markverðinum tekst að koma í veg fyrir enn einn sigur sjúkraþjálfarans. Um síðustu helgi gekk heldur illa hjá íslendingaliðunum í Svíþjóð. Degerfors, lið Einars Páls Tómassonar, gerði 1:1 jafntefli við Frölunda. Valsmaðurinn lék sinn fyrsta leik með liðinu og átti ágætan leik. Hlyn- ur Stefánsson hjá Örebro átti einnig ágætis leik en lið hans mátti sætta sig við 1:0 tap á móti Malmö. Hácken, með Arnór Guðjónsson og Gunnar Gíslason í broddi fylkingar, lék á útivelli gegn stórliði AIK. Heimamenn skoruðu tvívegis í síðari hálfleik og hirtu því öll stigin. Öster er nú efst í deildinni með 12 stig, hefur unnið alla sína leiki, og AIK kemur næst með 10. íslendingaliðin eru öll við botninn. Vert er að minna á að getraunasalan verður í fullum gangi í sumar. Getraunaleikur Dags fer nú í sumarfrí en hefst aftur með haustinu. í staðinn verður greint frá 13 leikjum réttum á getraunaseðlinum í þriðjudagsblaði Dags og jafnvel látin fylgja með stutt umfjöllun um sænku knattspyrnuna. Guðm. Sigurvin 'fö Q- un C. £L 1. Brage-Trelleborqs FF X2 2 2. Degerfors-Hacken X 12 3. Norrköping-Örebro 1 1 4. Örgryte-AIK X2 X2 5. Öster-Helsingborg 1 1 6. Arsenal-Crystal Palace 1X 1X 7. Blackburn-Sheff. Wed. 1X 1 8. Ipswich-Notth. Forest 1 1X 9. Liverpool-Tottenham 1 1 10. Manch. City-Everton 1 1X 11. Middlesbro-Norwich. 12 12 12. Oldham-Southamton 1X 1 13. Sheff. Utd.-Chelsea 1 1 Upplýsingar um rétta röö og vinningsupphæðir: Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455 Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888 Lokahóf SRA Næstkomandi sunnudag heldur Skíðaráð Akureyrar lokahóf í Sjallanum. Allir eru velkomnir og sérstaklega eru foreldrar og aðrir velunnarar hvattir til að mæta. Veitt veróa verðlaun fyrir Ak- ureyrarmót og innanfélagsmót vetrarins, bæði í alpagreinum og norrænum greinum. Hófið hefst kl. 14.00 með verðlaunaafhend- ingu fyrir 12 ára og yngri og þar á eftir fyrir 13 ára og eldri, eða um kl. 14.00. A eftir verða veitingar. 2. KA Fram b 3. Fram KA b 6. flokkur drengir: Alið B-Clið: 1. Þór Grótta b 2. KA 1 KAbl 3. KA 2 Þórb 6. flokkur stúlkur: Alið: 1. KA 2. Völsungur 2 3. Völsungur 1 Bestu markmenn: Hermann Þ. Grétarsson, IR 5. fl. A. Vignir Stefánsson, Völs. 5. fl B. Hlynur Ö. Sigurósson, Fram 5. fl. C. Rósa Sigbjömsdóttir, KA 5. fl. A. Aslaug Gunnarsdóttir, Fram 5. fl. B-C. Þóra Rögnvaldsdóttir, KA 6. fl. Barði Jónsson, Þór 6. fl. A. GrétarD. Sigurðsson, Gróttu 6. fl. B-C. Bestu lcikmenn: Atli S. Þórarinsson, KA 5. fl. A. Indriði Sigurðsson, 5. fl. B. Ragnar, Gróttu 5. flokkur C. Ingibjörg Yr Jóhannsdóttir, Fram 5. fl. A. Þórdís Brynjólfsdóttir, ÍR 5. fl. B. Ebba Brynjarsdóttir KA, 6. fl. Kristján V. Kristjánsson, Þór 6. fl. A. Asgeir Halldórsson, Þór 6. fl. B. Markahæstu leikmenn: Heiðar Jakobsson, Fram 5. fl A (31). Indriói Sigurðsson, Gróttu 5. fl B (20). Bjöm Hjörtur, ÍR 5. fl C. (13). Ingibjörg Yr Jóhannsdóttir, Fram 5. fl A (14) Þórdós Brynjólfsdóttir, ÍR 5. fl. B (10). Ebba Brynjarsdóttir, KA 6. fl. (13). Pétur Kristjánsson, Þór 6. fl. A (17) Ásgeir Halldórsson, Þór 6. fl B. (19). Leikmaöur Mótsins var valinn Jónatan Þór Magnússon KA og prúðasta liðið kom einnig frá KA. Krakkarnir á Toyotamótinu voru að sögn mótshaldara til mikillar fyrir- myndar og allt gekk vel þrátt fyrir mikinn fjölda þátttakenda. Mynd: im Skíðaganga, íslandsgangan: Norðlendingar sigruðu í öllum flokkum íslandsgöngunni, sem er röð skíðamóta einkum ætluð fyrir almenning, Iauk um síðustu | helgi á ísafirði með svokallaðri Fossavatnsgöngu. Keppt var í 3 | aldursflokkum karla í vetur og Sigurgeir Svavarsson og Jóhannes Kárson sigruðu í sínum flokkum í ís- landsgöngunni. þegar samanlagður árangur er skoðaður kemur í ljós að Norð- lendingar hafa sigrað í þeirn öll- um. Alls voru mótin 5 talsins en til útreiknings koma 3 bestu göngur hvers og eins. Sigurgeir Svavarsson frá Ólafs- firði sigraði í flokki 17-34 ára. Hann tók þátt í 3 göngum, Skíða- staðatrimminu, Fjaróargöngunni og nú síðast Fossavatnsgöngunni og hlaut samtals 75 stig en 25 stig eru gefin fyrir sigur^ í hverri göngu. Isfirðingurinn Ami Freyr Elíasson kom næstur að heildar- stigatölu með 60 stig. Hann vann Bláfjallagönguna, varö 2. í Fjarð- argöngunni og 3. í Fossa- vatnsgöngunni. Kári Jóhannesson frá Akureyri hafnaði í 3. sæti meó 28 stig og jafnir í 4.-5. sæti urðu Gísli Einar Arnasqn Isafirði og Ólafur Björnsson Ólafsfirði meó 20 stig. Handknattleikur: Alfreð Gíslason i /ii) xr k /n Alfreð Gíslason. Alfreð Gíslason mun halda áfram sem þjálfari meistara- flokks KA í handknattleik. Að sögn Sigurðar Sigurðssonar, formanns handknattleiksdeild- ar, verður endanlega gengið frá framhaldssamningi á næstu dögum um að AIIi þjálfl liðið næsta vetur. Alfreó hefur verið cinn af burðarásum liðsins undanfarin 2 ár ásamt því að þjálfa. Ljóst er að einhverjar mannabreytingar verða á liðinu en flest lió halda að sér höndum í þessum málum þar til keppni lýkur á íslands- mótinu. Jóhannes Kárason Akureyri bar sigur úr býtum í flokki 35-49 ára. Hann keppti á öllum mótunum nema Bláfjallagöngunni, varð þrí- vegis í 2. sæti og vann Skíðastaða- trimmió. Fyrir þetta hlaut hann 65 stig. Jafn mörg stig í 2. sæti hlaut Sigurður Gunnarsson Isafirði. Hann vann tvívegis og varó 3. í Fossavatnsgöngunni. I næstu þremur sætum komu Akureyring- ar. Sigurður Aðalsteinsson varð 3. í heildarstigakeppninni með 46 stig, Ingþór Bjamason 4. með 40 og Konráð Gunnarsson hlaut 26 stig í 5. sæti. Björn Þór Ólafsson frá Ólafs- firði sigraði með yfirburðum í flokki 50 ára og eldri. Hann tók þátt í öllum keppnunum nema Skógargöngunni og vann ætíð sig- ur. Fyrir þetta hlaut hann 75 stig eða fullt hús. Elías Sveinsson ísa- firði kom næstur með 55, þá Þor- lákur Sigurðsson Akureyri með 51 og Rúnar Sigmundsson Akureyri hlaut 40.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.