Dagur - 15.05.1993, Blaðsíða 3

Dagur - 15.05.1993, Blaðsíða 3
Fréttir Laugardagur 15. maí 1993 - DAGUR - 3 Alþjóðlegur reyklaus dagur 31. maí: Kastljósinu næsta áríð beint að starfsfólki heilbrigðisstofiiana Tóbaksvarnanefnd ríkisins hitt- ist á fundi á Akureyri sl. fímmtudag og fundaði síðan með fulltrúum heilbrigðisstofn- ana á Norðurlandi. Tilefni þess fundar er alþjóðlegur reyklaus dagur 31. maí næstkomandi og hvatning Alþjóða heilbrigðis- stofnunarinnar næsta árið að starfsfólk heilbrigðisstofnana verði reyklaust. A fundinum meó starfsfólki heilbrigðisstofnana kom fram að víóa hafi oróið breyting í reyk- ingamálum sl. ár. Sem dæmi var nefnt að nú séu sjúkrahúsió og elliheimilið á Blönduósi reyklaus- ir vinnustaóir. Fulltrúi Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri sagði stefnuna þar að gera vinnustaðinn reyklausan og sem dæmi um breytingu á stuttum tíma megi sjá að fyrir fjórum árum hafí mátt sjá starfsfólk reykja á setustofum en slíkt sé óhugsandi í dag. í máli fulltrúa Tóbaksvarna- nefndar kom fram aö alþjóða heilbrigðisstofnunin setji nú á oddinn að starfsfólk heilbrigðis- stofnana gangi á undan með góðu fordæmi og reyki ekki. Þetta sé verkefni sem unniö verði að allt næsta ár. Fulltrúar frá Dalbæ, dvalar- heimili aldraóra á Dalvík, gerðu á fundinum grein fyrir skoðana- könnun meðal starfsmanna, þar sem spurt var um afstöðuna til þess að gera vinnustaðinn reyk- lausan. Þrjátíu voru því fylgjandi en aðeins þrír á móti og athyglis- vert er að reykingamenn eru á meðal þeirra sem vildu gera vinnustaóinn reyklausan. Þetta at- riði var nokkuð rætt á fundinum og upplýstu fulltrúar Tóbaks- Barnaheill boðar til stofnfundar Norðurlandsdeildar samtak- anna nk. miðvikudag á Hótel KEA, en áformað er að stofna deildir í öllum landsfjórðung- unum. BarnaheiII eru samtök sem berjast fyrir bættum hag barna, heima og erlendis og fyrstu tvö árin fór krafturinn í starfseminni í það að beita stjórnvöld þrýstingi með bréfa- skriftum þar sem bent var á hvað betur mætti fara börnum til heilla og á það úrræðaleysi sem ríkjandi væri á félagsmála- hliðinni. Þar vó þyngst afskipti samtak- anna af vegalausum bömum, sem reyndar er enn stærsta einstaka verkefni samtakanna, en nú hefur verið samþykkt að koma á lagg- varnanefndar að algengt sé að starfsfólk fyrirtækja setji ákveðin tímamörk á því hvenær gera eigi vinnustaðinn reyklausan. Oft séu það jafnvel reykingamenn sem séu fylgjandi þessum aðgerðum og noti þær sér til stuðnings við að hætta að reykja. JÓH imar meðferðarheimili að Geld- ingalæk í Rangárvallasýslu og er verið þessa dagana að standsetja húsið. Það heimili mun hýsa 6-7 böm en starfsmenn verða tvenn hjón. Bamaheill hefur einnig haldið málþing, þar sem rætt hefur verið um ofbeldi á bömum, afskipta- leysi og tómlæti sem er nokkuó ríkjandi og einnig hefur verið rætt um hagi skilnaðarbama. Bamheill hefur fengið að tilnefnda fulltrúa í nefnd á vegum Félagsmálaráðu- neytisins vegna Ars fjölskyldunn- ar 1994, en þar flutti Bamahcill tillögu um að nefndin kostaði rannsókn á högum skilnaðarbama og er tillagan nú í vinnslu hjá fé- lagsvísindastofnun Háskólans. GG Barnaheill stofnar Norðurlandsdeild: Meðferðarheimili að rísaað Geldingalæk - fyrir vegalaus börn ; , Rafmagnsveitur ríkisins: Viðurkenning til Stórutjarnaskóla - nemendur unnu verkefni um raforkumál Síðastliðinn fimmtudag voru nemendur úr Stórutjarnaskóla ásamt kennaranum Manfred Lemke boðaðir í höfuðstöðvar Rafmagnsveitna ríkisins á Ak- ureyri til að taka við viðurkenn- ingu fyrir verkefni um raforku- mál. Að sögn Ingólfs Árnasonar, rafveitustjóra, var öllum grunn- skólum á Norðurlandi skrifað bréf þar sem óskað var eftir þátttöku þeirra í verkefni sem tengdist ákveðnu þema, æska- orka- framtíð. Stórutjarnaskóli var eini skólinn í umdæminu sem treysti sér í slaginn. I tengslum við 50 ára afmæli Sambands íslenskra rafveitna og um leið 90 ára afmæli rafveitu- rekstrar á Islandi verður efnt til afmælisþings og sýningar í Reykjavík næsta haust. I máli Ing- ólfs kom fram að einn þáttur þingsins verður tileinkaður æsk- unni, undir nafninu æska-orka- framtíð. Hugmyndin var sú að þær bekkjardeildir grunnskóla sem lærðu um rafmagn (6. eða 7. bekkur) tækju þátt í verkefni tengdu þessu þema en sem fyrr segir var Stórutjamaskóli eini skólinn í umdæminu sem sinnti kallinu. Ingólfur færði nemendunum og kennaranum þakkir frá RARIK og sagði m.a.: „Bestu lausnimar verða valdar til sýningar á afmæl- isþinginu og höfundum boðið til þingsins í Reykjavík. Eg vona svo sannarlega að það komi í ykkar hlut.“ Tryggvi Aðalsteinsson, sem var tengiliður milli Rafmagns- veitna ríkisins og grunnskólanna í kjördæminu, afhenti nemendum skólans viðurkenningarskjal sem þakklætisvott fyrir þátttökuna. Manfred Lemke, kennari bekkjardeildarinnar sem tók þátt í verkefninu, sagði í samtali við Dag að verkefninu væri skilað sem tölvuforriti. Viðfangsefnið snerist um orku á Norðurlöndun- um, hvemig hún væri framleidd, hvaða leiðir væru færar, hvemig orkumálin væru leyst í hverju Norðurlandanna fyrir sig og þar væri líka að finna spumingar og svör sem tengdust mengun og fleiri þáttum. Verkefnið er 80 blaósíður með myndum og hreyfi- myndum og sagói Manfred að þetta hefði verið þemavinna í all- an vetur. „Nemendumir studdust mest við eina bók en þeir þurftu líka að afla upplýsinga upp á eigin spýtur, hringja I Raunvísindadeild Há- skólans og fleiri staði. Ég tel að þessi vinna hafi þroskað þá mikið og eflt sjálfstraustið,“ sagði Manífed. SS Nemendur í bekkjardeild Stórutjarnaskóla sem unnu verkcfnið stilltu sér upp fyrir framan húsakynni RARIK á Akureyri. Aftast til hægri er kcnnarinn Manfred Lemke og lengst til vinstri er Ingólfur Árnason, rafveitustjóri. Mynd: Robyn 3 dagar í París kr. 19.900,- Beint flug frá Akureyri 23. júní - 25. júní. kr. 22.700,- Flug — hótel -íslenskfararstjórn. AÖeins 50 sæti. Verð p. mann m.v. 2ja manna herbergi. Kr. 22.700,- Innifalið í verði er flug til Parísar frá Akureyri, hótel í 2 nætur og íslensk fararstjórn. Hópferð til SVISS OG ÍTALÍU 18. júní - 2. júlí. Verð kr. 84.200,- í tveggja manna herb. Barnaafsláttur kr. 14.200,- Flugvallarskattar. Flugvallarskattar og forfallagjöld eru kr. 3.150,- og kr. 1.895,- fyrir börn. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. Ferðaþjónusta Akureyrar Glerárgötu 20,2. hæð, 600 Akureyri. Sími (96) 11687. Heimsferðir hf. Austurstræti 17,101 Reykjavík. Sími (91) 624600.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.