Dagur - 15.05.1993, Page 6
6 - DAGUR - Laugardagur 15. maí 1993
Tveir ungir dýralæknar frá Litháen á íslandi í boði Dýralæknafélags fslands:
Hafa um 1300 krónur í mánaðarlaun
Þeir félagarnir brugðu scr á hcstbak á Akureyri í siðustu viku og fannst mikið til mýktar íslenska hestsins koma. Zygimantas Simelionis t.v. og Darius
Bakutis. Mynd: Robyn.
Darius Bakutis kemur frá Kaunas, næst stærstu borg Litháens, en Zygi-
mantas Simelionis frá Vilnius, höfuðborg Iandsins. Kon: óskar i>6r Haiidórsson.
Þessa dagana eru hér á landi
tveir ungir dýralæknar frá Lit-
háen í boði Dýralæknafélags ís-
lands til þess að kynna sér ýmis-
legt er að dýralækningum og
heilbrigðiseftirliti hér á landi
lýtur. Þeir voru í nokkra daga á
Akureyri og þar hitti blaða-
maður þá að máli.
Dýralæknamir heita Darius
Bakutis og Zygimantas Simelion-
is. Darius er 26 ára en Zygimant-
as 28 ára. Blaðamaður hafði af því
töluverðar áhyggjur að þeir félag-
arnir gætu lítt tjáð sig nema á
móðurmálinu, en sá ótti reyndist
sem betur fer ástæðulaus. Darius
talar prýðisgóða ensku, en minna
fer fyrir enskukunnáttu hjá Zygi-
mantasi. Því kom í hlut Dariusar
að svara spumingum blaða-
manns.
„Dýralæknafélag íslands varsvo
höfðinglegt að bjóða okkur í
heimsókn til Islands til þess að
fræðast um dýralækningar hér á
landi og störf dýralækna. Einnig
höfum við m.a. kynnt okkur starf-
semi sláturhúsa og lækningar á
gæludýrum. Takmarkið með þess-
ari heimsókn er auðvitað að auka
þekkingu okkar og henni munum
við miðla heima í Litháen.
Sláturhúsin hér komu okkur á
óvart. Þau eru afar fullkomin,
mun fullkomnari en við eigum að
venjast heima. Sláturhús í Litháen
eru gamaldags og vélakostur er
ekki til að hrópa húrra fyrir.
Fjárskortur kemur hins vegar í
veg fyrir að við getum lagt í
nauðsynlegar breytingar og úrbæt-
ur á honum.
Ég neita því ekki að það kom
okkur spánskt fyrir sjónir að Is-
lendingar skuli ekki nýta innyfli
betur en gert er. Heima er allt nýtt
til matar - meira að segja
lungun!“
Margt komið á óvart á
Islandi
Þeir félagarnir komu til Islands
30. apríl sl. en fara aftur til Lithá-
en 25. maí nk. Þeir gátu ekki var-
ist brosi þegar þeir rifjuðu upp
komuna til Keflavíkur. „Veðrið
kom okkur í opna skjöldu. Við
fórum úr 26 gráðu hita í Litháen
en stórhríó tók á móti okkur í
Keflavík! En veórið hefur sem
betur fer skánað og mér skilst að
vorið sé komið hér. Við treystum
því aó minnsta kosti!
Vissulega hefur margt hér á
landi komið okkur á óvart. Til
dæmis fer hér heldur lítið fyrir
trjám. í Litháen eru um 3/4 hlutar
landsins þaktir trjám. Okkur
fannst leiðin frá Keflavík til
Reykjavíkur líkjast einna helst
eyðimörk! Sama gilti um háhita-
svæðið í Mývatnssveit. Það var
engu líkara en þar væri maður
kominn til tunglsins!"
Erfitt efnahagsástand
Dýralæknanám tekur fimm ár í
Litháen. Darius segist hafa sótt
menntunina að hluta til Tékkó-
slóvakíu, en lokið náminu heima í
Litháen. Langskólanám er ekki
metið á nokkum hátt til launa í
Litháen og sagði Darius dýra-
lækna hafa mun lægri laun en
yerkamenn. Launakjör alþýðunnar
í Litháen er reyndar sérstakur
kapítuli. Þó að hvorki sé hægt að
bera efnahag né framfærslu íbúa á
Islandi og í Litháen saman á einn
eóa annan hátt, þá segir það sína
sögu að Darius hefur aðeins 21
dollara í mánaðarlaun, eða heilar
1300 krónur!
„Efnahagsástandið í Litháen er
mjög erfitt um þessar mundir og
lífskjör versna dag frá degi. Ég er
ekki viss um verðbólgustigið
núna, en ég hygg aó 1000 til 1200
prósent séu ekki fjarri lagi. Með-
allaun eru um 20 dollarar (um
1240 íslenskar krónur - innsk.
blaóam.) á mánuði. Þetta eru auð-
vitað hlægileg laun og 93% af
þjóðinni eiga í verulegum fjár-
hagserfiðleikum. A sama tíma og
við búum við gífurlega mikla
verðbólgu og verðlag á öllum
sköpuðum hlutum hækkar dag frá
degi, þá hækka launin ekki að
sama skapi,“ sagði Darius. Hann
sagði aðspurður að mjólkurlítrinn
kostaði tæpar 13 krónur. Sam-
kvæmt því getur launamaður í
Litháen með 1300 krónur í mán-
aðarlaun keypt 100 lítra af mjólk
fyrir launin sín, en láglaunamaður
á Islandi með 50 þúsund krónur í
mánaðarlaun getur hins vegar
keypt 746 lítra mjólkur fyrir þá
upphæð.
Stéttskipting er þekkt hugtak í
Litháen eins og víðast annars
staðar. Á sama tíma og bróður-
partur þjóðarinnar býr við fátækt-
armörk eru örfá prósent Iauna-
manna meó svimandi laun, allt aó
3-400 þúsund krónur á mánuði.
Þetta eru forstjórar einkafyrir-
tækja, sem í sumum tilfellum eru
að hluta til í eigu erlendra aðila.
Ætla að sigrast á
erfiðleikunum
Darius segir atvinnuleysi í Litháen
vaxandi vandamál og því miður sé
það svo að ungu menntafólki bíði
ekki björt framtíð. Hins vegar sé
litháenska þjóðin ákveðin í því að
sigrast á erfiðleikunum og sýna
sjálfri sér og öðrum fram á að
hún geti staðið efnahagslegan
brotsjó af sér.
Efnahagslífið í Litháen er þjak-
að af fjárskorti. Eitt helsta vanda-
mál sem fyrirtæki standa frammi
fyrir er að hafa ekki peninga til aö
tæknivæðast og geta þannig verið
samkeppnishæf á erlendum mörk-
uðum. Landbúnaðurinn er gamal-
dags og dráttarvélar og önnur
landbúnaðartæki úrelt. Dráttarvél-
ar eru að stærstum hluta rúss-
neskar, en kaup á vestrænum vél-
um, t.d. Massey Ferguson, er fjar-
lægur möguleiki.
ísland á allra vörum í
Litháen
Darius sagði að íbúar í Litháen
vissu heilmikið um Island, enda
hefði landið verið á allra vörum
þegar Islendingar viðurkenndu
fyrstir þjóða sjálfstæði Litháen.
„Við erum Islendingum afar þakk-
látir fyrir þennan mikilvæga
stuðning og munum alltaf minn-
ast þess dags þegar tilkynnt var að
íslensk stjórnvöld hefðu ákveðið
að viðurkenna sjálfstæði okkar.
Þetta var gríðarlega mikilvæg
ákvörðun gagnvart öðrum þjóðum
og braut ísinn.“
Darius kemur frá Kaunas, næst
stærstu borg Litháens, en Zygi-
mantas frá Vilnius, höfuðborg
landsins. Darius sagðist minnast
þess að daginn sem Island viður-
kenndi sjálfstæði Litháens, hafi
Landsbergis, þáverandi forseti
Litháa, fyrirskipað að rússneskur
skriðdreki, sem lengi hafði staðið
í miðborg Kaunas, yrði fjarlægð-
ur og í hans stað byggt hvítt fjall
til heiðurs íslendingum. „Þetta var
gert og á topp fjallsins var settur
hvítur kross. Fjallið stendur ennþá
og mun væntanlega standa um
alla framtíð,“ sagði Darius. óþh
Hús til sölu á Húsavík
Til sölu er 3ja ára einbýlishús að Stekkjarholti 6,130
fm ásamt 40 fm bílskúr.
Uppl. í síma 41826.
Frá menntamálaráðuneytinu.
Styrkveiting úr
Þróunarsjóði leikskóla
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefn-
um í leikskólum/skóladagheimilum. Með þróunar-
verkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í
uppeldisstarfi. Um styrk geta sótt sveitarstjórnir/leik-
skólastjórar/fóstruhópar/einstakar fóstrur. Sækja má
um styrk til nýrra verkefna og verkefna sem þegar
eru hafin. Umsókn fóstru skal fylgja umsögn viðkom-
andi rekstraraðila.
Styrkumsóknir skulu berast menntamálaráðu-
neytinu fyrir 30. maí næstkomandi á þar til gerð-
um eyðublöðum sem liggja frammi í afgreiðslu
menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík.