Dagur - 25.05.1993, Side 2

Dagur - 25.05.1993, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 25. maí 1993 V „Hvað er einkavæðing? Hvaða gagn hefur þú af einkavæðingu?“ Fundur um einkavæðingu verður haldinn á Hótel KEA í dag, þriðjudaginn 25. maí, og hefst hann kl. 20.00. Á fundinum verður fjallað um starf og stefnu ríkis- stjórnarinnar í einkavæðingu. Ræðumenn eru Hreinn Loftsson formaður einkavæðingarnefndar og Finnur Sveinbjörnsson skrifstofustjóri í viðiskipta- ráðuneytinu. Allir velkomnir. FRAMKVÆMDANEFND UM EINKAVÆÐINGU. / Aukaaðalfundur Veiðifélags Hörgár og vatnasvæðis hennar verð- ur haldinn að Melum, laugardaginn 5. júní kl. 14.00. Aðalmál fundarins: 1. Ný arðskrá. 2. Önnur mál. Stjórnin. Bridge - Bridge Opið Húsavíkurmót í tvímenningi í bridge verður laugardaginn 29. maí. Spilað verður um silfurstig eftir Michell fyrirkomulagi. Mótið byrjar kl. 10.00. Þátttökugjald kr. 1.800 á mann. Matur innifalinn. Skráning hjá Björgvin í s. 96-42076, v.s. 41344, Svenni s. 96-42026, v.s. 41510. gjalddagi húsnæðislána I .iVfA Í I DRÁTTARVEXTIR leggjast á lán með lánskjaravísitölu J - 6,. m u DRÁTTARVEXTIR leggjast á lán með byggingarvísitölu ijíím i [£] HÚSNÆÐISSTOfNUN RÍKISINS U LÁNADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REVKJAVÍK • SÍMI91-696900 Fréttir Heraðssýning kynbótahrossa á Melgerðismelum um helgina: í heildina mjög góð útkoma - segir Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur Röð efstu hesta á Melgerðismel- um Einstaklingssýndir stóðhestar 6 vetra og eldri Óður frá Torfunesi aðaleink. 8,07 Rökkvi frá Álftagerði 8,03 Þytur frá Kúskerpi 8,02 Einstaklingssýndir stóðhestar 5 vetra Gustur frá Hóli aðaleink. 8,14 Dynjandi frá Þverá Skíðad. 7,90 Vængur frá Akureyri 7,87 Einstaklingssýndir stóðhcstar 4 vetra Óður frá Brún aóaleink. 7,87 Meili frá Miðdal 7,51 Fleygur frá Selá 7,50 Ungfolar byggingardæmdir Amor frá Árgerði sköpulag 7,73 Einstakiingssýndar hryssur 6 vetra og eldri Saga frá Þverá aðaleink. 8,21 Hoffa frá Litla-Dal 8,10 Dögun frá Ytra-Hóli 8,06 Einstaklingssýndar hryssur 5 vetra Tinna frá Bringu aðaleink. 7,85 Laufa frá Þverá Skíðadal 7,81 Snælda frá Akureyri 7,75 Einstaklingssýndar hryssur 4 vetra Brynja frá Hrafnsstöðum aóal. 7,74 Heiðdís frá Ytra-Dalsgerði 7,70 Þruma frá Höskuldsstöóum 7,55 Afkvæmi Fjölnir frá Gili aóaleink. 7,96 Runni frá Heiði 7,84 Tjörfi frá Akueyri 7,83 „í heild var útkoman mjög góð og segja má að í öllum flokkum hafi komið fram vel frambærilegir hestar,“ sagði Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur, en hann ásamt Þorkeli Bjamasyni og Vík- ingi Gunnarssyni dæmdu um 170 hross af Norðausturlandi um helg- ina. Kristinn sagði að á yfirlitssýn- ingunni á Melgeróismelum um helgina hafi komið fram nokkrir einkar eftirminnilegir hestar. í flokki stóðhesta nefndi hann Gust frá Hóli (for. Gáski frá Þessi mynd var tekin tyrir hclgina og sýnir Þorkel Bjarnason, hrossa- ræktarráðunaut, að störfum. Mynd: Robyn Hofsstöðum og Abba frá Gili), 5 vetra í eigu Ragnars Ingólfssonar á Hóli í Eyjafjaröarsveit og Óð frá Torfunesi (for. Ófeigur frá Flugmýri og Kvika frá Rangá), 6 vetra í eigu Vignis Siguróssonar á Akureyri. Af hryssum nefndi Kristinn m.a. Sögu frá Þverá í Skíðadal (for. Kjarval frá Sauðár- króki og Nótt frá Leifsstöðum), 6 vetra í eigu Baldvins Ara Guð- laugssonar á Akureyri. „Utkoman hjá hryssunum var mjög góð. Margar þeirra fengu einkunn yfir átta og fara á fjórðungsmótið á Vindheimamelum um mánaða- mótið júní-júlí,“ sagði Kristinn. „Hins vegar var útkoman hjá unghryssum dræmari en oft áóur. Ég er viss um aó það býr töluvert í sumum hryssunum, en engin þeirra bar af núna,“ bætti hann við. Almennt sagði Kristinn aó staða hrossaræktar á Norðaustur- landi væri góð. „Umtalsverður ár- angur hefur náðst á síðustu árum og það er greinilegt að menn eru famir að hafa miklu meiri skilning á dómkerfínu. A næstu árum þurfa menn að leggja áherslu á að grisja meira úr stofninum. Þama eru mjög góð hross inn á milli, en aftur á móti er of mikió af hinu. Kúnstin er sú að nota dómana, sem eiga að vera afgerandi leið- beining, til þess að ná umtals- verðum árangri. Ræktuninni hefur farió fram, en aftur á móti er of mikill ásetningur. Hrossin eru oróin óþarflega mörg. Menn á þessu svæði hafa alveg efni á að grisja úr stofninum. Það er til hagsbóta fyrir alla, líka þá sem eiga löku hrossin,“ sagði Krist- inn. Fyrr í þessum mánuði dæmdu hrossaræktarráðunautamir hross í Austur- og Vestur-Húnavatns- sýslu og sagði Kristinn að þar hafi útkoman aldrei verið eins góð, einkum þó í Vestur- Hún. „Þetta eru bestu sýningar sem þar hafa verið frá upphafí,“ sagði Kristinn. Af eftirminnilegum hrossum í Vestur-Hún. nefndi hann Gust frá Syðra-Langholti í eigu Halldórs P. Sigurðssonar á Efri-Þverá. Þá nefndi hann tvær hryssur frá Grafarkoti. Ekki voru allir hestamenn ánægðir með dóma þremenning- anna um helgina og tóku stórt upp í sig. Kristinn segir að auðvitað sé það alltaf svo að ekki séu allir jafn ánægðir. „Menn geta hafa gert sér óraunhæfar vonir og einnig kemur það til að menn hafa misjafnan skilning á dóm- kerfinu. Én ég tel aó skilningur manna á því hafí aukist og útgáfa bókarinnar Kynbótadómar og sýn- ingar markar þáttaskil, því þar hafa menn aðgang að öllum upp- lýsingum um dómkerfió," sagði Kristinn Hugason. I gær hófust kynbótadómar á skagfirskum hrossum á Vind- heimamelum í Skagafirði og sagði Kristinn að dæmd yrðu á þriðja hundrað hross. Niðurstaóan ligg- ur trúlega fyrir nk. föstudag. óþh Framkvæmdanefnd um einkavæðingu fundar á Hótel KEA í kvöld: Tilgangurimi að koma á framfæri upplýsingum til almennings - um áform ríkisstjórnarinnar í einkavæðingu ríkisfyrirtækja Framkvæmdanefnd um einka- væðingu gengst þessa dagana fyrir kynningarfundum um stefnu og störf ríkisstjórnarinn- ar í einkavæðingu. Fyrsti fund- urinn var í Borgarnesi í gær- kvöld en í kvöld verður fundur nefndarinnar að Hótel KEA á Akureyri og hefst kl. 20.00. Hreinn Loftsson, formaður einkavæðinganefndar, sagði í samtali við Dag, að tilgangur fundanna sé að koma á framfæri upplýsingum til almennings um einkavæðingaáform ríkisstjómar- innar og eins að heyra sjónarmið almennings gagnvart þeim hug- myndum. „Okkur hefur fundist að um- ræðan sé farin að fara um of um víðan völl í sambandi við þetta viðfangsefni og ýmsir hópar að heimfæra alls kyns áhugamál sín þama undir. Þaó sem þessi ríkis- stjóm stendur fyrir er hins vegar mun afmarkaðra og sérstaklega tilteknir ákveónir þættir.“ Hreinn segir að það sem helst hafi gerst fyrir tilstilli nefndarinn- ar, sé sala þeirra ríkisfyrirtækja sem átt hafi sér stað, m.a. á Jarð- borunum ríksins, Ferðaskrifstofu Islands, Prentsmiðjunni Guten- berg og íslenskri endurtryggingu. „Að auki hefur nefndin unniö að undirbúningi frumvarpa og stefnumörkun á þessu sviði. En við erum fyrst og fremst að hugsa um sölu fyrirtækja sem að okkar mati eru betur komin í höndum einstaklinga. Það sem einnig hefur gerst í þessum málum, þó það sé ekki fyrir tilstiili nefndarinnar, er m.a. niðurlagning Ríkisskipa og Alafoss, svo dæmi séu tekin.“ Hreinn segir að önnur mál sem eru á dagskrá, séu sala Búnaðar- bankans og þá hafi orðið að lög- um frumvarp um að breyta Síld- arverksmiðjum ríkisins og Se- mentsverksmiðju ríkisins í hluta- félög og að sá undirbúningur sé í fullum gangi. Fundurinn á Hótel KEA í kvöld er öllum opinn og eru áhugasamir hvattir til að mæta og hlýða á sjónarmið nefndarmanna og eins til aó koma sínum skoðun á fram- færi. KK Ferðafélag Akureyrar Bæjarbúar athugið Tímasetning breytist á gönguferðinni „Innbærinn og fjaran,“ sem er þáttur í Hversdagsleikunum, miðvikudaginn 26. maí. Lagt verður af stað frá Dynheimum kl. 20 og áætluð göngulok kl. 22. Að göngu lokinni verður fólki séð fyrir fari til baka að Dynheimum. Óbreytt fyrirkomulag er á gönguferðinni „Oddeyr- in, hernámsárin og liðnir dagar.“ Brottför frá skrifstofu félagsins, Strandgötu 23, kl. 17.30 og áætluð göngulok kl. 19.00. Ferðanefnd.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.