Dagur - 25.05.1993, Blaðsíða 3

Dagur - 25.05.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 25. maí 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Verkmenntaskólanum á Akureyri slitið: Stefnir í að byggingartímiiin verði 20 ár - nýr framhaldsskóli mun rísa í Grafarvogi á aðeins 5 árum Verkmenntaskólanum á Akur- eyri var slitið í íþróttahöllinni sl. laugardag. Brautskráðir voru 111 stúdentar, 14 sjúkra- liðar, 11 húsasmiðir, 6 kjötiðn- aðarmenn, 18 rafvirkjar, 2 blikksmiðir og 1 húsgagnasmið- ur, múrari, vélvirki, prentsmið- ur og rafsuðumaður. Sem sjá má er rafvirkjun tískugreinin í ár og uppsveifla er í kjötiðn. I ræðu Bernharós Haraldsson- ar, skólameistara, kom fram að við upphaf haustannar voru 992 nemcndur innritaðir til náms í dagskóla í Verkmenntaskólanum á Akureyri og 170 í öldungadeild. Sambærilegar tölur fyrir vorönn eru 922 og 108. Auk þess sóttu um 200 manns ýmis námskeið, m.a. á vegum stéttarfélaga. Bernharð var tíðrætt um aðbún- aó nemenda, langan vinnudag og þröngan húsakost skólans. Hann nefndi aó hópar nemenda á tæknisviði, sem stunduðu viöa- mikið verklegt nám auk hins bók- lega, væru 48 stundir á viku í skólanum samkvæmt námskrá. Sumir nemendur væru þannig að jafnaði 10 tíma á dag í skólanum og þyrftu að auki að sinna héima- vinnu. Ekki taldi skólameistarinn að svo langur vinnudagur væri skynsamlegur. Þegar kom að húsnæðismálum var Bernharó ómyrkur í máli og sagði að nemendur og starfsfólk VMA hefðu búið við erfiðleika í þeim málum alla tíð. Hann nefndi sérstaklega hússtjómamámið í gamla Húsmæðraskólanum og trésmíðadeildina í kjallara Há- skólans. „Við höfum á hverju ári þóst sjá betri tíð, nú lyki byggingum Verkamannasambandið: Vill setja skorður á ut- flutning grásleppuhrogna Grásleppuveiðin virðist ætla að verða rýrari á þessu vori en vonir stóðu til og þar með ljóst að minna verður saltað af grá- sleppuhrognum en oft áður þrátt fyrir síst lakara verð. Á Raufarhöfn voru á síðasta ári Akureyri: Saga Reisen óskar eftir framlengingu á Á fundi bæjarráðs Akureyrar nýlega var tekið fyrir erindi Beat Iseli, forstjóra svissnesku ferðaskrifstofunnar Saga Reisen, þar sem hann óskar eftir fram- Iengingu á samstarfssamningi Saga Reisen við Akureyrarbæ, en eins og kunnugt er stendur Saga Reisen fyrir beinu flugi milli Zurich og Akureyrar. Á sínum tíma var gerður sam- starfssamningur Akureyrarbæjar og Saga Reisen um þetta beina flug og rennur hann út á þessu ári. Samningurinn felur m.a. í sér greiðslu bæjarins til þessa til- raunaverkefnis. Bæjarráö samþykkti að fela Jóni Gauta Jónssyni, starfsmanni atvinnumálanefndar, að skoða þetta mál áður en ákvörðun verði tekin. „Áður en nokkuð verður í málinu gert viljum við fá fram frá hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu hér á svæðinu hvaða þýðingu þetta beina flug hafi haft,“ sagði Sigurður J. Sigurðsson, formaður bæjarráðs. óþh saltaðar um 700 tunnur en í ár stefnir í aðeins um 450-500 tunna framleiðslu. Þetta leiðir til þess að innlendir framleið- endur á kavíarlíki úr söltuðum grásleppuhrognum, svokölluð- um „íslenskum kavíar“ hafa enn ekki tryggt sér það magn til framleiðslu sem aftur leiðir til þess að það fólk sem ella hefði fengið vinnu við þessa fram- leiðslu mun bætast í þann hóp atvinnulausra sem fyrir er. Af þessu tilefni hefur Verka- mannasamband íslands sent utan- ríkisráðuneytinu bréf varðandi út- flutning grásleppuhrogna þar sem segir m.a.: „Framkvæmdastjóm Verkamannasambandsins vill vekja athygli á þeirri hættu að u.þ.b. 200 störf við kavíarfram- leiðslu úr grásleppuhrognum kunna að vera í hættu verði ekki skoróur settar gegn ótakmörkuð- um útflutningi hráefnis. Islenskir kaupendur bjóða fyllilega sam- bærilegt verð fyrir hráefnið og greiðslutryggingu þannig að hags- munir framleiðenda (sjómanna) eru tryggðir“. Síðan er vakin athygli á því að söluverðmæti hrognanna eykst um allt að 100% séu þau fullunn- inn hérlendis. Islenskar kavíar- verksmiðjur sendu utanríkisráð- herra nýlega áskorun þar sem hvatt er til þess að ekki verði veitt útflutningsleyfi fyrir söltuðum grásleppuhrognum í tunnum fyrr en tryggt hefur verió að íslensku verksmiójumar hafa fengið þaó hráefni sem þær þurfa, þ.e. 10.000 tunnur en hægt er að tryggja sölu á öllum þeim grásleppuhrogna- kavíar. GG Verkmenntaskólanum ó Akureyri var slitið sl. laugardag. Brautskráðir voru 111 stúdentar, 14 sjúkraliðar og 42 í hinum ýmsu iðngreinum. Á stærri myndinni má sjá hluta stúdentanna og á þeirri innfelldu er Bernharð Ilaraldsson, skólamcistari, sem flutti kjarnyrta skólaslitaræðu. í kveðjuorð- um til nemenda sagði hann m.a.: „Temjið ykkur gagnrýna hugsun og leysið ykkar eigin vandamál sjálf. Látið ekki lýðskrumara og lcppa spillingarinn- ar hrekja ykkur af leið.“ Myndin Robyn brátt, öll starfsemin yrði á sama stað og vinnudagurinn rétt eins og hjá öðru fólki. Þeim, sem fínnst vió vera óþolinmóð, en það stefnir í að byggingartíminn verði allt að tuttugu ár, bendi ég á, að nú alveg nýverió var gerður samn- ingur um byggingu nýs fram- haldsskóla í Grafarvogi í land- námi Ingólfs og Hallveigar Fróóadóttur. Þessi skóli á að vera svipaöur að gerð og skólinn okkar og bjóða upp á líkt nám, nám, sem við köllum stundum starfs- tengt. Hins vegar verður bygging- artíminn stuttur, því það var aug- lýst rækilega í útvarpinu, auðvit- að sem frétt, að skólinn skyldi fullbúinn, 10 þúsund fermetrar, á árinu 1998, eftir 5 ár, þá hafa byggingaframkvæmdir okkar staðið í 17 ár. Mér dettur ekki annað í hug en aó það sé einskær tilviljun að tveir deildarstjórar í menntamálaráðuneytinu eru í byggingamefnd þessa nýja skóla,“ sagói Bemharð Haralds- son. SS Stöplar hf: Framkvæmaastjóri ráðinn - tilraunaframleiðsla hjá Stöplafiski Lundi í Öxarfirði og er 27 ára. Stöplafiskur verður til húsa í 260 fm nýbyggingu Stöpla á Skarðahálsi. Þar verður hafm til- raunavinnsla á harðfiski og gælu- dýrafóðri um 10. júní. Þorgrímur Sigurðsson, oddviti í Reykja- hverfi, sagðist vona að styrkur til verkefnisins fengist úr Átvinnu- tryggingasjóði og ef til vill fleiri sjóðum. IM Stöplafiskur, fyrsta fyrirtækið sem starfa mun í skjóli Stöpla hf. í Reykjahverfl mun hefja starfsemi um næstu mánaða- mót. Framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn og er þaó Gunnlaugur Að- albjamarson. Gunnlaugur er að ljúka prófum í viðskiptafræði frá Háskóla Islands. Hann er frá U S ORIGINAL Wrangler vika 24.-29. maí Sérstakt tilboð Wrangler buxur Wrangler Polo bolur Venjulegt verð 6.990,- Tilboðsverð 3.990 Aðeins þessa viku mj HERRADEILD Sími11500 Á söluskra: + Stapasíða: 5 herb. raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr, samtals um 163 fm. Skipti á minni eign hugsan- leg. * Espilundur: 5 herb. einbýlishús ásamt bílskúr, samtals um 159 fm. Skipti á 4ra-5 herb. eign hugsan- leg. * Arnarsíða: 5-6 herb. raðhús á tveimur hæð- um ásamt bílskúr, samtals um 232 fm. Skipti á minni eign hugs- anleg. * Skálagerði: Mjög gott 4ra-5 herb. einbýlishús ásamt garðstofu og rúmgóðum bllskúr. Skipti á eign á Reykja- víkursvæðinu hugsanleg. * Heiðarlundur: 5 herb. raðhús á tveimur hæðum um 118 fm. Laust 10. júlí. * Aðalstræti: Neðri sérhæð I tvíbýlishúsi ásamt miklu rými I kjallara, sam- tals rúml. 160 fm. Áhvílandi húsn.lán um 4.6 millj. Laus eftir samkomulagi. MS1ÐGNA&M SHMMUSSI NOKDURLANDS fl Opið virka daga kl. 13-17 og á morgnana eftir samkomulagi. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Æ* Benedikt Ólafsson hdl. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindri eign sem hér segir: Heiðarlundur 6 b, Akureyri, þingl. eig. Pétur Jósefsson, gerðabeið- endur Húsnæðisstofnun ríkisins, og innheimtumaður ríkissjóðs, 28. mal 1993 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Akureyri 24. maí 1993.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.