Dagur - 25.05.1993, Side 4

Dagur - 25.05.1993, Side 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 25. maí 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFTKR. 1200ÁMÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Vond þjóðarsátt Kjarasamningarnir, sem undirritaðir voru sl. föstu- dag, verða að teljast einstakir í sinni röð. í fyrsta lagi er ekki gert ráð fyrir að laun hækki um svo mik- ið sem eina krónu á samningstímabilinu, sem er eitt og hálft ár. í annan stað er gert ráð fyrir því að ríkissjóður greiði nær allan þann kostnað, sem af samningunum hlýst, en hann er talinn nema um 3.500 milljónum króna á samningstímabilinu. Hvort tveggja er nokkur nýlunda þegar kjarasamningar eru annars vegar. Samkomulagið, sem fulltrúar ríkisvalds, atvinnu- rekenda og flestra stærstu launþegasamtaka lands- ins, undirrituðu á föstudaginn, er afrakstur langra og strangra viðræðna. Það ber öll merki þess að vera gert í tímahraki og raunar er enginn samn- ingsaðilanna allskostar ánægður með niðurstöðuna. Það er ofur eðlilegt, því nýju kjarasamningarnir eru meingallaðir og of dýru verði keyptir, hvernig sem á þá er litið. Sem fyrr segir fá launþegar enga beina kaup- hækkun á samningstímabilinu. Helsti ávinningur þeirra felst hins vegar í „ríkisstjórnarpakkanum". Ríkið skuldbindur sig til að lækka matarskattinn svonefnda úr 24,5% í 14% frá og með næstu ára- mótum en greiða niður verð á kjöt- og mjólkurvör- um sem þeirri lækkun nemur, frá og með 1. júní nk. til áramóta. Að auki skuldbindur ríkissjóður sig til að leggja tvo milljarða króna til atvinnuskapandi aðgerða á samningstímabilinu. Flestum er hulin ráðgáta hvernig ríkisvaldið ætlar að standa straum af þessum stórauknu útgjöldum. Hallinn á ríkissjóði er geigvænlegur nú þegar og stefnir í stjarnfræði- lega upphæð, verði kjarasamningarnir að veruleika. Á sama tíma lofar ríkisvaldið því samt sem áður að beita sér fyrir lækkun vaxta og er sú fyrirætlan vit- anlega dæmd til að mistakast. Sýnu verst er að sjálfar forsendur kjarasamning- anna eru mjög hæpnar, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þannig ganga samningsaðilar út frá því að aflakvótar á næsta fiskveiðiári verði ekki minni en á yfirstandandi fiskveiðiári, að verðlag sjávarafurða verði að meðaltali þremur af hundraði hærra á þriðja ársfjórðungi 1993 en á þeim fyrsta og loks að gengi íslensku krónunnar verði innan viðmiðunar- marka Seðlabanka íslands. Það er ekki aðeins óraunhæft heldur einnig í hæsta máta óskynsam- legt að ganga út frá því að sú ofveiði, sem hefur verið stunduð á íslandsmiðum undanfarin ár, verði leyfð áfram. Staðreyndin er samt sem áður sú að rányrkja er ein meginforsenda hinna nýgerðu kjara- samninga og er það vafalaust einsdæmi í íslands- sögunni. Svo sem marka má af framangreindu er hin nýja þjóðarsátt aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins afar óhyggileg. í raun er fullkomið ábyrgðarleysi að „skrifa upp á‘‘ að ríkið taki að sér að borga þann kostnað sem samingarnir hafa í för með sér. Ríkið - það er að segja íslenska þjóðin í heild sinni - rís ekki undir hinum nýju skuldbindingum. Vafalaust verður þrautalendingin sú að slá fleiri og stærri lán, innan lands og utan. Þjóðarsátt sem felur slíkt í sér er í einu orði sagt vond. BB. Friðrik Sigurðsson: Talað gegn betri vitund Ekki nenni ég að fara í þrætubók- arlist vió Þorgrím Starra Björg- vinsson, en sé mig þó tilknúinn að andmæla hluta af samhljóða greinum hans í Morgunblaðinu þann 11. maí sl. og Degi þann 14. maí sl. Um áraraðir hefur Þorgrímur Starri haldið á lofti röngum og órökstuddum fullyrðingum um meinta skaðsemi Kísiliðjunnar á lífríki Mývatns. Rannsóknir á líf- ríki vatnsins hafa staðið yfir árum saman og kostað hátt í eitt hundr- að milljónir króna. Þar hefur ekk- ert komið fram sem styður álit Þorgríms Starra og skoðanabræðra hans. Þegar svo er komið sögu, bregður Þorgrímur Starri á það ráð, með dyggum stuðningi sveit- unga síns, Eysteins Sigurðssonar á Amarvatni, aó beina spjótum sín- um að persónu framkvæmdastjóra Kísiliójunnar. Dylgjur þeirra eru ekki svaraverðar. Þær lýsa aðeins rökþroti. Þeir Þorgrímur Starri og Ey- Friðrik Sigurðsson. steinn saka framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar um að ala á sveita- ríg. Sjálfir hafa þeir í áraraðir staðið að árásum á starfsemi Kísil- iðjunnar og allt sem henni tengist og þannig átt í útistöóum við að minnsta kosti 40% Mývetninga. Þeir hafa stefnt lífsafkomu þessa fólks í voða, sem og möguleikum Skútustaðahrepps til að veita þá þjónustu sem honum ber. Hver el- ur á sveitaríg? I áðumefndri Morgunblaðs- og Dagsgrein reynir Þorgrímur Starri að bera til baka yfirlýsingar sínar í frægu viðtali við Þjóðviljann árið 1959. Hann segir að ekki hafi sést önnur eins veiði í Mývatni og sumarið 1959. Þá er talið að veióst hafi 47.500 silungar. „Slík tala hefur ekki sést á blaði síðan Kísil- iðjan fór að láta að sér kveða,“ segir Þorgrímur Starri í grein sinni. Þetta er rangt. Þegar Kísiliðjan hélt upp á 20 ára starfsafmæli sitt árið 1986, sama ár og þáverandi iðnaðarráð- herra framlengdi námaleyfi fé- lagsins til 2001, veiddust 45.826 silungar í Mývatni, eða 96,5% af veiðinni 1959. Hvers vegna velur Þorgrímur Starri að geta þess ekki? Höfundur er framkvæmdastjóri Kísil- iðjunnar við Mývatn. Haukur Þorsteinsson, starfsmaður Vinnueftirlits ríkisins t.h., afhendir Birgi Snorrasyni hjá Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co. viðurkenningarskjal verk- efnisstjórnar en fyrirtækið ótti ekki fulltrúa við athöfnina í Reykjavík fyrir skömmu. Með þeim á myndinni er Ófcigur Marinósson, öryggistrúnaðar- maður fyrirtækisins. Á innfeiidu myndinni er Reynir Eiríksson, framieiðslu- stjóri og öryggisvörður hjá íslenskum skinnaiðnaði hf., með viðurkenning- arskjai fyrirtækisins, sem afhent var af frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands. Myndir: Robyn. Viðurkenning fyrir vinnuverndarstarf - í lok vinnuverndarárs: 16 fynrtæki og stofiianir fengu viðurkermingu verkefiiisstjómar - tvö akureyrsk fyrirtæki, Kristjánsbakarí og íslenskur skinnaiðnaður, þar á meðal Hér á landi voru lok evrópska vinnuverndarársins mörkuð með hátíðlegri athöfh, sem hald- in var í Borgartúni 6 í Reykja- vík fyrir skömmu. Þar afhenti forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, 16 fyrirtækjum og stofnunum viðurkenningu verk- efnisstjórnar vinnuverndarárs- ins. Þessir aðilar tóku allir áskorun si. haust að efna til átaks til að efla eigið vinnu- verndarstarf. Fjögur skilyrði voru sett fyrir þátttöku í þessu átaki, þ.e. að hafa stefnu í vinnuverndarmálum, hafa ör- yggisnefnd, vinna markvisst að úrbótum og halda skrá yfir vinnuslys. Af þeim sem hófu þátttöku, reyndust 16 fyrirtæki og stofnanir skara fram úr í ýmsu sem ber vitni um gott vinnuvemdarstarf. Hjá sumum þeirra er slysaskráning ná- kvæmari en hjá öðrum og hún notuð í fyrirbyggjandi tilgangi. Hjá nær helmingi aðilanna höfóu verió gefnar út starfsmannahand- bækur eða ítarlegar öryggisreglur sem fylgt er eftir. Nokkrir hafa reglubundna og víðtæka fræðslu um öryggismál fyrir stjómendur og starfsmenn. Nokkrir hafa gert vinnustaði sína reyklausa og víða má finna snjallar úrlausnir á vandamálum sem tengjast aðbún- aði og öryggi á vinnustöðum og dæmi um að verulegar úrbætur hafi verið gerðar. Sérstaka viðurkenningu verk- efnisstjómar vinnuvemdarársins hlaut Iðnskólinn í Reykjavík. Þar var að ljúka framkvæmd á víð- tækri áætlun í 24 liðum um úrbæt- ur í öryggis- og heilbrigðismálum. Öryggisnefnd og stjómendur skól- ans hafa sýnt í verki sterkan vilja til að ná því markmiði að skapa verðandi iónaðarmönnum starfs- umhverfi sem telja má til fyrir- myndar og getur orðið þeim for- dæmi í framtíðinni. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands og vemdari vinnuvemdarársins, af- henti Ingvari Ásmundssyni, skóla- meistara, listaverk eftir Jón Snorra Sigurðsson, gullsmið, sem vott hinnar sérstöku viðurkenningar. Vióurkenningu sem veitt var fyrir skipulegt starf sem miðar að því að tryggja öryggi og góðan aðbúnað innan fyrirtækisins eða stofnunarinnar, hlutu eftirtaldir aðilar: Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co. á Akureyri, Fönn hf. í Reykja- vík, Hraðfrystihúsið hf. Hnífsdal, Iðntæknistofnun íslands, Islenskur skinnaiðnaður hf. á Akureyri, ís- tex hf. í Mosfellsbæ, Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, Keflavíkurverk- takar sf. á Keflavíkurflugvelli, Kennaraháskóli Islands, Mjólkur- samsalan í Reykjavík, Póstur og sími, Rafmangsveitur ríkisins, Se- mentsverksmiðja ríkisins á Akra- nesi, Vinnslustöðin hf. í Vest- mannaeyjum og Vífilfell hf. í Reykjavík.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.