Dagur


Dagur - 25.05.1993, Qupperneq 7

Dagur - 25.05.1993, Qupperneq 7
íslandsmótið íknattspyrnu 1. deild: KR-íngar erfiðir heim að sækja - Þórsarar máttu sætta sig við tap í fyrsta leik ÍR-ingar sóttu Tindastól heim á Sauðárkrók í fyrstu umferð 2. deildar Islandsmótsins í knatt- spyrnu sl. laugardag. Leikurinn fór fram í ágætis veðri en Það var sannkölluð hátíðar- stemmning á KR-vellinum sl. sunnudagskvöld þegar Þórsarar sóttu þá heim. Þeir höfðu ný- lega tekið í notkun glæsilega stúku og hér eftir verður KR- völlurinn sannkölluð ljónagrifja því stúkan var þéttsetin og mikil stemmning. Leikurinn var mjög skemmtilegur, kraftmikill og fjörugur og lofar svo sann- arlega góðu varðandi fram- haldið í sumar. KR-ingar komu mun ákveðnari til leiks og á 5. mínútu skoraði Omar Bentsen eftir aukaspymu. Boltinn fór hátt í loft^ innan vió teiginn og barst til Ómars sem náði að teygja sig fram og skora undir Lárus í markinu. Lárus Orri átti næsta færi í leiknum fyrir Þór er hann skaut framhjá, dauðafrír, einn í vítateignum utarlega. A 15. mínútu bjargaði Lárus meö út- hlaupi og skömmu fyrir leikhlé fékk Ásmundur Arnarsson gott færi fyrir Þór sem hann náði ekki aö nýta. Þórsarar voru miklu betri en KR-ingar fyrstu 20. mínútumar í síðari hálfleik. Þeir mættu mjög grimmir og Hlynur Birgisson, besti maður Þórs, lék einn í gegn en Ólafur Gottskálksson bjargaði glæsilega. Hann greip aftur inn í á 57. mínútu eftir glæsilegan samleik Þórsara og hirti boltann af tám Hlyns og enn bjargaói hann glæsilega í hom á 61. mínútu eftir góðan skalla Júlíusar Tryggvason- ar. Þetta var lang hættulegasta færi Þórsara í leiknum. Annað markið kom á 71. mín- útu eftir homspymu KR-inga. Boltinn fór yfir 3 Þórsara sem allir stukku upp en misstu boltann yfir sig. Aftan við þá var Tómas Ingi einn og óvaldaður og renndi bolt- anum í netið. Næst bar það til tíð- inda að Birgir Karlsson Þórsari fékk að líta rauða spjaldið á 78. mínútu eftir samskipti við einn KR-ing og var það mjög rökréttur dómur. Litlu mátti muna að KR- ingar bættu 3. markinu við þegar 2 mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Þrír KR-ing- ar komust innfyrir en Lárus varöi stórglæsilega. Bestu menn vallar- ins voru Olafur Gottskálksson og Þormóður Egilsson hjá KR en Hlynur Birgisson hjá Þór. Guð- mundur Stefán Maríusson dæmdi leikinn vel og honum til aðstoðar voru Kristján Guðmundsson og Gísli Guðmundsson. Leikurinn lofaði góðu. Liðin voru bæði mjög ákveðin, leikinn var hraður bolti og kraftmikill, lít- ið var um opin færi en leikmenn tóku vel á. Ljóst er að KR-ingar verða ekki auðveldir heim að sækja í sumar með þessu áfram- haldi. HB Lið KR: Ólafur Gottskálksson, Óskar Þorvaldsson, Izudin Dervich, Þormóður Egilsson, Atli Eðvaldsson, Sigurður Ómarsson (48. mín.), Rúnar Kistisson, Gunnar Skúlason, Einar Þór Daníelsson, Óniar Bntsen, Tómas Ingi Tómasson og Steinar Ingimundarson. Lið Þórs: Lárus Sigurðsson, Öm V. Am- arson, Birgir Þ. Karlsson, Láms Orri Sigurósson, Asmundur Amarsson, Sveinn Pálsson, Heiðntar Felixson, Júlíus Tryggvason, Páll Gíslason, Þórir Askelsson, Gísli Gunnarsson (50. mín.) og Hlynur Birgisson. Fyrrum Leiftursmaðurinn Steinar Ingimundarson er hcr í harðri baráttu við Þórsarann Pál Gíslason í leiknum á sunnudagskvöld. Það voru Steinar og félagar sem höfðu bctur og verða án efa sterkir í sumar. Mymt kk Sverrir Sverrisson skoraði 3. mark Tindastóls í stórsigri þcirra á ÍR íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: Leiftursmenn í óstuði - náðu sér ekki á strik gegn Stjörnunni Leiftur frá Ólafsfirði náði sér ekki á strik í 1. leik sínum á þessu íslandsmóti. Liðið hélt til Garðabæjar og lék þar við heimamenn í Stjörnunni. Garð- bæingar höfðu undirtökin lengst af og það var aðeins á 20 mínútna kafla í síðari hálfleik sem Leiftursmenn sýndu sitt rétta andlit en náðu þó ekki að koma boltanum í netið. Stjarn- an sigraði í leiknum, 2:0 og Heiðmar lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Heiðmar Felixson lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk og jafnframt sinn fyrsta leik í 1. deild, á sunnudaginn þegar Þórsarar töpuðu fyrir KR. Hann þykir mjög efnilegur íþróttamaður og var einnig í eld- línunni í handboltanum með Þór í vetur. Hann er enn í 3. flokki og á því svo sannarlega framtíðina fyr- ir sér. I leiknum á sunnudaginn þótti hann standa fyllilega fyrir sínu á miðjunni og gaf hvergi eft- ir í baráttunni við lióið sem spáð er titlinum af mörgum. Heiðmar Felixson voru bæði mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikur var sérlega slakur hjá Olafsfirðingum. Eyja- maóurinn fyrrverandi, Leifur Geir Hafsteinsson, sem gekk til liós við Stömuna í vetur, reyndist Garðbæingum mikilvægur í sínum fyrsta leik. Hann skoraði bæði mörk þeirra, hið fyrra á 29. mín- útu og hið síðara á 31. mínútu. Leiftursmenn mættu mun grimmari til síðari hálfleiks og sýndu þá á köflum ágætis spil. Sóknaraðgerðir þeirra báru þó ekki tilætlaðan árangur og virtist þetta mótlæti fara illa í liðið. í síðasta hluta leiksins gerðist fátt markvert, en Gunnar Már Másson var þó nærri búinn að jafna undir lokin þegar hann átti skot í stöng. Pétur H. Marteinsson var í banni í leiknum og í raun var liðið að koma saman í fyrsta sinn þar sem Gunnar Már er nýkominn til landsins. íslandsmótið í knattspyrnu, 2. deild: nokkrum strekkingi þó, sem setti visst strik í reikninginn. Tindastóll byrjaði betur og skoruðu reyndar fyrsta markið eft- ir aóeins 3 mínútur og var þar að verki Stefán Pétursson sem fékk boltann eftir innkast og skoraði af miklu harðfylgi. Við þetta hresst- ust IR-ingar nokkuð og sóttu grimmt en Gísli Sigurðsson í marki Tindastóls sá til þess að boltinn lenti ekki í netinu, leikur- inn jafnaðist aftur og stuttu fyrir lok fyrri hálfleiks skoraði Þórður Gíslason fyrir Tindastól 2:0 og þannig var staðan í hálfleik. Seinni hálfleikur var nokkuð jafn framan af og áttu bæði lið sín færi sem illa gekk að nýta en Sverrir Sverrisson bætti þriðja marki Tindastóls vió á 17. mín. eftir góða sendingu frá Tryggva Tryggvasyni. Stuttu síðar urðu þeir Sverrir og Tryggvi að yfir- gefa völlinn vegna meiðsla og inn á komu þeir Ingi Þór Rúnarsson og Bjöm Sigtryggsson. Áfram börðust IR-ingar en óheppnin elti þá og Gísli lokaði markinu, loks innsiglaði Þórður Gíslason sigur heimamanna eftir klaufaleg mis- tök í vöm ÍR-inga og Tindastóll sigraði því 4:0. Besti maður vall- arins var án efa Gísli Sigurðsson markvörður Tindastóls en hann varði eins og ljón þegar vömin sofnaði á verðinum. Pétur Pétursson þjálfari Tinda- stóls sagði eftir leikinn að hann væri ánægður með sína menn því alltaf væri erfitt að leika fyrsta heimaleikinn, þó liðið gæti vissu- lega leikið betur þá var hann ánægður. Dómari var: Marinó Þorsteins- son og línuverðir þeir Ámi Arason og Rúnar Steingrímsson og áttu þeir ágætan leik. Glæsileg byijun Stólanna - sigruðu ÍR 4:0

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.