Dagur - 25.05.1993, Side 9
Þriðjudagur 25. maí 1993 - DAGUR - 9
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótið í knattspyrnu, 2. deild:
Blikarnir betri gegn KA
Leikur UBK og KA, fallkandíd-
ata síðasta árs, fór fram í frem-
ur leiðinlegu veðri á Kópavogs-
velli á sunnudaginn. Rigningar-
úði var í fyrri hálfleik og þétt
rigning í þeim síðari. Völlurinn
var loðinn og því bæði þungur
og háll. Blikarnir voru betri að-
ilinn í leiknum og unnu sann-
gjarnan sigur með marki Arn-
ars Grétarssonar.
Fyrri hálfleikur var að mestu í
eigu Blikanna og færin flest
þeirra. Strax á 2. mínútu lék Amar
Grétarsson í gegn, gaf á Hákon
Sverrisson, en Haukur varði vel.
Á 6. mínútu var Grétar Steindórs-
son með boltann eftir vamarmis-
tök en skaut yfir og á 25. mínútu
skall hurð nærri hælum þegar
Willum Þ. Þórsson skallaði í
þverslána eftir misheppnað út-
hlaup Hauks í marki KA. KA-
menn áttu aðeins eitt umtalsvert
færi en glæsilegur samleikur
þeirra endaói með skoti Þorvalds
Sigbjörnssonar en Hajrudin Card-
aklija varði í horn. Blikar fengu
margar hornspyrnur og eftir eina
þeirra, á 35. mínútu, björguðu
KA-menn á línu og enn átti Hauk-
ur misheppnað úthlaup.
Þegar 2 mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma í
fyrri hálfleik skoraði Arnar Grét-
arsson eftir aukaspymu Blika. KA
menn höfðu verið í þungri sókn,
en dæmið snerist við og Blikar
komust í sókn, fengu dæmda
aukaspyrnu og upp úr henni skor-
aði Amar.
Síðari hálfleikur byrjaöi með
þrumuskoti Kristófers Sigursteins-
sonar sem Haukur varði meistara-
lega vel. Jón Þ. Jónsson fékk tvö
góð færi til viðbótar fyrir UBK en
KA-menn björguðu í bæði skiptin.
Blikar vom mun ákveðnari að-
ilinn í þessum leik. KA- menn
léku vel úti á vellinum en áttu lítil
sem engin færi. Þeir spiluðu stífa
„rangstöðutaktik" sem gekk að
mörgu leyti vel en þó opnaóist
vörnin oft illa og sigur UBK var
sanngjarn. Besti maður vallarins
var Amar Grétarsson en í annars
jöfnu liði KA var Ormarr Örlygs-
son langbestur. Gylfi Orrason
dæmdi leikinn ágætlega og honum
til aðstoðar voru Jón Sveinsson og
Einar Guðmundsson. HB
Mjólkurbikarinn:
Athyglisverðir leikir
á Norðurlandi
Fyrsta umferó Mjólkurbikar-
keppninnar í knattspymu fer fram
í dag. Á Norðurlandi eru 3 athygl-
isveröir leikir. Dalvík og Tinda-
stóll leika á Dalvík, Hvöt og
Magni á Blönduósi og Völsungur
tekur á móti Þrym á Húsavík. All-
ir leikimir hefjast kl. 20.00. KA,
Leiftur, KS, Neisti og Austri R.
sitja hjá.
Ormarr Örlygsson var besti maður KA í Ieik þcirra við UBK í Kópavogi.
Mynd: KK
Heilsuhlaup Krabbameinsfelagsins
- er að þessu sinni hluti af
dagskrá Hversdagsleikanna
Hið árlega heilsuhlaup Krabba-
meinsfélagsins verður á Akur-
eyri á morgun 26. maí (Grímsey
5. júni). Að þessu sinni verður
hlaupið með nokkuð öðru sniði
en vant er þar sem það verður
hluti af dagskrá Hversdagsleik-
anna, sem eins og kunnugt er
ber upp á þennan dag. Hlaupið
hefst við Dynheima og sem fyrr
geta þátttakendur hvort heldur
sem er, gengið, skokkað, hlaupið
eða hjólað, allt eftir þörfum
hvers og eins.
Skráning hefst við Dynheima
kl. 18.00, léttar upphitunaræfingar
og teygjur verða kl. 18.30 og að
því búnu hefst hlaupið. Lúðrasveit
Akureyrar undir stjóm Atla Guð-
laugssonar leikur fyrir þátttakend-
ur fyrir hlaupið. Allir sem skrá sig
fá merki. Sömu vegalengdir verða
í boði og vant er, eða u.þ.b. 4,4 og
2,5 km. Aó hlaupinu loknu gefur
Mjólkursamlag KEA öllum
Blöndu að drekka.
Sigurganga Stuttgart heldur áfram
- Bayern og Bremen nú jöfn efst
Eftir leiki helgarinnar í þýsku
úrvalsdeildinni er spennan í há-
marki eftir að Bayern Miinchen
tapaði leik sínum gegn Karlsru-
he á meðan að Werder Bremen
lagði Saarbriicken að velli. Lið-
in eru nú jöfn að stigum í topp-
sætinu, en Bayern hefur örlítið
betra markahlutfall. Það er því
ljóst að úrslit deildarinnar ráð-
ast ekki fyrr en í síðustu um-
ferðinni sem leikin verður 5.
júní nk.
Leikur Karlsruhe og Bayem
Múnchen sem háður var á sunnu-
dagskvöldið var geysifjörugur og
vel leikinn, sérstaklega af hálfu
heimamanna sem skoruðu þrjú
mörk í fyrri hálfleiknum án þess
að gestirnir næðu að svara fyrir
sig. Fyrstu tvö mörkin gerði Carl á
24. og 34. mín. og síðan bætti
Rolff þriðja markinu við á 45.
mín. Strax í upphafi síðari hálf-
leiks bætti Schútterle, besti maður
vallarins, fjórða markinu við fyrir
Karlsruhe. Það sem eftir lifði
leiksins sóttu leikmenn Bayern án
afláts og uppskáru tvö mörk. Þar
voru þeir Mazinho á 65. mín. og
Zieg á 90. mín. að verki.
Stuttgart vann gífurlega mikil-
vægan sigur á laugardaginn, þegar
liðið fékk Borussia Mönchengl-
adbach í heimsókn. Knup náði
forystunni strax á 7. mín. og stuttu
síóar bætti Gaudino öðru markinu
við. Gestirnir voru síður en svo
búnir að gefa upp alla von og með
góðri baráttu tókst þeim aó jafna
leikinn með mörkum þeirra Wyn-
hoff og Klinkert. Um miðjan síð-
ari hálfleikinn fengu leikmenn
Stuttgart dæmda vítaspyrnu, en
Buchwald, fyrirliða, brást boga-
listin, skaut framhjá. Það var síðan
ekki fyrr en á síóustu mínútu
leiksins að Dubajic tókst að
tryggja heimamönnum sigurinn,
með glæislegu skallamarki. Eyj-
ólfur Sverrisson lék aðeins síðustu
tíu mínútur leiksins, þar sem svo
stutt var liðið frá landsleiknum sl.
fimmtudag. í athyglisverðum töl-
fræðiupplýsingum sem birtar voru
á laugardagskvöldið í sjónvarpi,
kemur í ljós að harðjaxlinn Eyjólf-
ur hefur brotið oftast allra af sér í
vetur, 89 sinnum, sex sinnum oft-
ar en næsti maður sem er Buchw-
ald félagi Eyjólfs hjá Stuttgart.
Númberg er í bullandi fall-
hættu eftir tap gegn Dortmund á
heimavelli 1:2. Eckstein kom
heimamönnum yfir með stórglæsi-
legu marki á 32. mín. en í síðari
hálfleik skoraói landsliósmaóur-
inn Sammer tvö mörk fyrir gestina
og þar við sat.
Frankfurt virtist hafa gert góða
ferð til Krefeld, þegar liðið vann
stórsigur á Bayer Uerdingen, 2:5.
Eftir leikinn kom hins vegar í ljós
að þjálfari Frankfurt hafði gert
sömu mistök og Daum, þjálfari
Stuttgart gcrði á móti Leeds í Evr-
ópukeppninni. Hann skipti fjórða
útlendingnum inn á og Uerdingen
verður því að öllum líkindum
dæmdur 2:0 sigur. Þetta er sér-
staklega gremjulegt fyrir Yeboah,
framherja Frankfurt, sem skoraði
fjögur mörk í leiknum og var þar
með orðinn markahæstur í deild-
inni ásamt Ulf Kirsten.
Bochum og Köln gerðu marka-
laust jafntefli í leiðinlegum botn-
baráttuslag á heimavelli þeirra
fyrmefndu.
Saarbrúcken er svo gott sem
fallið eftir tap á heimavelli gegn
Werder Bremen, 0:4. Mörk gest-
anna í leiknum skoruðu þeir Kohn
með tvö, Neubarth og Herzog.
I Hamborg skildu lið heima-
manna og Keiserslautem jöfn, 2:2.
Fyrir HSV skoruðu þeir Weichert
og von Heesen, en fyrir gestina
þeir Haber og Zeyer.
Scahlke vann góðan sigur á
Dynamo Dresden, 2:0, og heldur
enn í vonina um Evrópusæti.
Rússinn Borodjuk og Múller sáu
um að skora mörkin.
Yeboah, framherji Frankfurt, hefur vakið mikia athygli í þýsku úrvalsdeild-
inni í vetur og er með markahæstu mönnum þó hann verði að öllum líkind-
um af mörkunum 4 sem hann skoraði á móti Uerdingen.
Halldór Arinbjarnarson
Leikir
sumarsins
- 1. og 2. deild
karla
-1. deild kvenna
1. deild karla
27. maíkl. 20.00
5. júní kl. 16.00
9. júní kl. 20.00
20. júní kl. 20.00
24. júníkl. 20.00
I. júlí kl 20.00
14. júlí kl. 20.00
22. júll kl. 20.00
29. júlí kl. 20.00
8. ágúst kl. 19.00
12. ágúst kl. 19.00
19. ágústkl. 18.30
22. ágúst kl. 18.30
4. sept. kl. 14.00
II. sept kl. 14.00
18. scpt. kl 14.00
25. sept.kl. 14.00
1. deild kvenna
29. maí kl. 14.00
5. júní kl. 14.00
19. júní kl 14.00
23 júní kl. 20.00
26 júní kl. 14.00
10. júlí kl. 14.00
13. júlíkl. 20.00
24. júlí Id. 14.00
11. ágúst kl. 19.00
15. ágúst kl. 14.00
25. ágúst kl. 18.30
5. sept. kl. 14.00
12. sept. kl. 14.00
2. deild karla
28. maí kl. 20.00
29. maí kl. 14.00
29. maí kl 14.00
4. júní kl. 20.00
4. júní kl. 20.00
12. júníkl. 14.00
12. júní kl. 14.00
18. júní kl. 20.00
18. júní kl. 20.00
18. júní kl. 20.00
25. júní kl. 20.00
25. júníkl. 20.00
26. júníkl. 14.00
30. júní kl. 20.00
30. júní kl. 20.00
4. júlí kl. 20.00
4.JÚII kl. 20.00
4. júlí kl. 20.00
14. júlí Id. 20.00
14. júlí kl. 20.00
14. júlí kl. 20.00
22. júlíkl. 20.00
22. júli kl. 20.00
23. júlíkl 20.00
28. júlíkl 20.00
28. júlí kl. 20.00
28. júlí kl. 20.00
lOágústkl. 19.00
10. ágúst kl. 19.00
13. ágúst kl. 19.00
14. ágústkl. 14.00
20. ágúst kl. 18.30
20. ágúst kl. 18.30
21. ágúst kl. 14.00
28. ágústkl. 14.00
28. ágústkl. 14.00
28. ágúst kl. 14.00
4. sept. kl. 14.00
5. sept kl. 14.00
11. sepk kl. 14.00
U.septkl. 14.00
12. scpt kl. 14.00
18. sept. kl. 14.00
18. sept. kl. 14.00
18. septkl. 14.00
Fram-Þór
Þór-ÍA
Víkingur-Þór
Þór-Fylkir
ÍBV-Þór
Þór-ÍBK
Valur-Þór
Þór-FH
Þór-KR
Þór-Fram
ÍA-Þór
Þór-Víkingur
Fylkir-Þór
Þór-ÍBV
ÍBK-Þór
Þór-Valur
FH-Þór
Valur-ÍBA
ÍBA-ÍA
ÍBA-Stjarnan
KR-ÍBA
ÍBA-ÍBV
UBK-ÍBA
Þróttur N.-ÍBA
ÍBA-Valur
ÍA-ÍBA
Stjarnan-ÍBA
ÍBA-KR
ÍBV-ÍBA
UBK-ÍBA
KA-Sjarnan
Leiftur-BÍ
Þróttur N.
Tindastóll
BÍ-KA
Tindastóll
Leiftur
KA-Tindastóll
Iæiflur-ÍR
ÍR-KA
Tindastóll
Grindavík
Þróttur N.
Leiftur
UBK-Tindastóll
KA-Þróttur N.
Þróttur R.
Leiflur
Tindastóll
Stjaman
Uiftur-KA
Grindavík
Leiffur
Þróttur R.-KA
BÍ-Tindastóll
Tindastóll
Þróttur R.
KA-Grindavík
Lciflur-UBK
Leiflur-Stjaman
ÍR-Tindastóll
KA-UBK
Stjarnan-KA
Bl-Leiflur
Tindastóll
Þróttur N.
KA-BÍ
Leiflur
Tindastóll
Tindastóll-KA
ÍR-Lciftur
Grindavík
Tindastóll
KA-ÍR
Uiftur
Þróttur N.
Leiftur
Þróttur R.
Tlndastóll-UBK
Þróttur N.-KA
Stjarnan
Tlndastóll
KA-Lciflur
KA-Þróttur R.
Tindastóll-BÍ
Leíftur
Grindavik
Þróttur R.
Tindastóll
Grindavík-KA
UBK-Leiftur