Dagur


Dagur - 02.06.1993, Qupperneq 10

Dagur - 02.06.1993, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 2. júní 1993 Iþróttir Halldór Arinbjarnarson Siglingar: Nökkví að missa aðstöðuna ríður á að fínna úrlausn í málefnum félagsins hið fyrsta Siglingafélagið Nökkvi á Akur- eyri er nú að missa aðstöðu þá sem félagið hefur haft í gömlu tunnuverksmiðjunni gegnt Hö- epfnersbryggju. Húsið þar verð- ur rifið, að öllum líkindum inn- an hálfs mánaðar. Sumarstarfíð er nú í þann veginn að fara af stað hjá Nökkva og sem stendur er félagið á götunni í orðsins fyllstu merkingu, hefur hvorki aðstöðu fyrir búnað né félags- starfsemi. Nökkvi hefur verió með aðset- ur í gömlu tunnuverksmiðjunni undanfarin ár en félaginu var á sínum tíma útlilutað húsnæðinu til bráðabirgða. Ávallt var vitað að það þyrfti að rífa fyrr eða síðar og nú er komið að því. Það var hins vegar ekki fyrr en nýlega að sigl- ingafólk komst á snoðir um þetta en framhaldið er mjög á huldu. Fundaó var um málið sl. fímmtudagskvöld og þar kom fram að finna verður lausn sem allra fyrst þar sem starfsemin er í þann veginn að fara af stað, m.a. siglinganámskeið. Bæði er um að ræða siglingaaðstöðu og ekki síð- ur félagsaðstöðu og hreinlætisað- stöðu. Eins og gefur að skilja er vart forsvaranlegt að bjóða upp á siglinganámskeið ef ekki er svo mikið sem eitt klósett til staóar. Af máli fundarmanna á fimmtu- dagskvöldið mátti ráða að vænleg- asta lausnin í flestra augum sé bráðabirgöaaðstaða sem hægt verður að standsetja á mjög skömmum tíma, svo tóm gefist til að vinna að framtíðarskipulagi þessara mála í bænum. Fram kom einnig að náttúru- legar aðstæður til siglinga eru óvíða betri en einmitt á pollinum vió Akureyri en aðstöðuleysi hef- ur staðið starfseminni mjög fyrir þrifum undanfarin ár og gengu sumir svo langt að segja að verið væri að ganga af siglingaíþróttinni dauðri. Félagsaðstöðu vantar ekki seinna en strax svo starfsemin geti þrifist. Varðandi staðsetningu er helst rætt um þann stað þar sem nú er „gert út“, þ.e. á tanganum sunnan Höepfnersbryggju. Einnig var rætt um krikann við Strand- götuna norðan Torfunefsbryggju en aðstæður til siglinga eru þar allar miklu verri, m.a. mun vera nær ógemingur fyrir óvana að komast frá landi í sunnanátt, sem verður aó teljast fremur óhagstætt. Körfubolti, drengjalandslið - unglingalandslið Dregið í riðla fyrir EM Eins og fram hefur komið náði íslenska drengjalandsliðið og unglingalandsliðið í körfubolta, sem skipað er sömu leikmönn- um, frábærum árangri á Evr- ópumótunum fyrir skömmu. Liðið er komið í úrslitakeppni drengjalandsliða og í milliriðil hjá unglingalandsliðum. Nú hefur verió dregið í rióla í úrslitakeppni drengjalandsliöa, sem fram fer í Trabzon í Tyrk- landi dagana 1.-8. ágúst. Island er í riðli með ítölum, Tyrkjum, Frökkum, Þjóðverjum og Rússum. Ljóst er að róðurinn verður þung- ur fyrir Axel Nikulásson og læri- sveina hans því Island lenti í sterkari riðlinum. Einnig hefur verið dregið í rióla í EM unglingalandsliða. Þar leika 18 lið í þremur riðlum. Is- lenska liöið leikur í Þýskalandi og er riðillinn skipaður eftirtöldum þjóðum: Ukraínu, Slóveníu, HM í badminton: Gengur bæði upp og ofan íslendingar taka nú þátt í HM í badminton sem fram fer í Birmingham í Englandi. ís- lenska Iiðinu tókst ekki að vinna sig upp um styrkleika- flokk í liðakeppni og nú stend- ur yfír einstaklingskeppni. íslendingar höfðu um tíma góða möguleika á að vinna sig upp um styrkleikaflokk í liða- keppninni, en við erum í 6. riðli. Tap fyrir Tékkum í síðasta leik gerði þær vonir hins vegar að engu. Kóreumenn uróu Heims- meistarar landsliða er þeir lögðu Indónesíu með 3 vinningum gegn 2. Nú stendur yfir einstaklings- keppni. Broddi Kristjánsson komst í 2. umferð í einliðaleik en tapaði þar fyrir næst sterkasta spilara Englendinga, Anders Nil- sen. Árni Þór Hallgrímsson komst í 3. umferð í einliðaleiknum sem er mjög góður árangur. Þar lenti hann gegn besta spilara Englend- inga og tapaði í tveimur lotum Árni Þór Hallgrímsson og Broddi eru komnir í 2. umferð í tvíliðaleik, sem og Þorsteinn Páll Hængsson og Nich Hall frá Nýja Sjálandi, sem léku saman. Keppni í tvíliða- og tvcnndarleik var fram haldið síðdegis í gær en úrslit höfðu ekki borist þegar blaðið fór í vinnslu. Þýskalandi, Lettlandi, Rúmeníu og íslandi. Efstu 3 þjóðirnar kom- ast áfram í úrslitakeppnina sem verður í Israel í júlí á næsta ári. Stefnan hefur þegar verið sett þangað þó á brattan verði að sækja. Með liðunum leika sem kunnugt er 2 Norðlendingar, Haf- steinn Lúðvíksson úr Þór og Omar Sigmarsson úr Tindastóli. Nökkvi hefur haft aðstöðu í gömlu tunnuverksmiðjunni og gert út frá tang- anum. Nú er hins vegar óvissa um hvert framhaldið verður og ríður á að finna lausn hið fyrsta. Mynd: ha Knattspyrna, Star mót 1. flokks: Jaftitefli í 1. leik Fyrsti leikurinn í 1. flokks móti liðanna á Norðurlandi, Star mótinu, fór fram um helgina. Þar áttust við Þór og Dalvík á heimavelli þeirra síðarnefndu. Leikurinn var nokkuð kafla- skiptur en lokatölur urðu 2:2. Dalvíkingar léku undan vindi í fyrri hálfleik og sóttu þá mun meira. Þeir náðu að skora 2 mörk í fyrri hálfleik og voru þar að verki Ingvar Jóhannsson og Daníel Hilmarsson. Dæmió snerist við í síðari hálfleik og þá höfðu Þórs- Þýska knattspyrnan: Werder Bremen í toppsætið - sigur hjá Stuttgart Qórða leikinn í röð Nú þegar aðeins einni umferð er, ólokið í Þýsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu er Bayern Miinchen í fyrsta skipti í allan vetur ekki á toppnum. Stórsigur Werder á HSV fleytti þeim, vegna hagstæðs markahlutfalls, í toppsætið. Stuttgart heldur enn í vonina um Evrópusæti eft- ir sigur á Saarbriicken á úti- velli. Eyjólfur Sverrisson mátti sætta sig við að sitja á bekknum annan leikinn í röð þegar Stuttgart sótti Saarbrúcken heim. Með sínum öðrum útisigri í vetur, sendu leik- menn Stuttgart heimamenn endan- lega í aðra deild. Gaudino skoraði tvö mörk fyrir gestina og þeir Knup og Schafer sitt markið hvor. Eina mark gestanna gerði Wyn- alda. Eyjólfur lék síðustu þrjátíu og fimm mínúturnar og stóð sig vel. Bayern fékk Bochum í heim- Saarbrucken-Stuttgart Gladbach-Niirnbcrg Dresden-llerdingen Köln-Schalke Bayern-Bochum Wattenscheid-Karlsruhc Dortmunt-Lcverkasen Frankfurt-Kaiscrslautern Werder-HSV 1:4 2:1 1:1 2:1 3:1 0:2 1:2 3:0 5:0 Bremen Bayern Borussia Frankfurt Levcrkusen Karlsruhe Stuttgart Gladbach Kaiscrslaulern Schalkc HSV Wattcnscheid Köln Drcsdcn Niirnberg Bochum Uerdingen Saarbriicken 33 18-10-5 60:3046 3318-10-5 71:4246 3318-5-1061:4041 3314-12-7 54:3840 3313-12-8 60:4538 3313-11-9 57:5437 33 12-12-9 56:47 36 3313-9-1159:5535 3312-9-12 48:4033 3311- 11-1139:4033 33 8-15-1041:4231 3310-8-1545:6428 3312- 3-1841:5127 33 7-13-1332:4727 33 9 - 8-1626:4626 33 7-10-1642:5124 33 7 - 9-17 35:64 23 33 5 -13-15 36:67 23 sókn og sigraði 3:1. Staöa Boch- um er nú orðin mjög erfið í deild- inni og liðið er nánast fallið. Scholl, Ziege og Mattháus gerðu mörk heimamanna en Wosz mark gestanna. Leikmenn Bayern óðu í færum allan leikinn, en slæm nýt- ing þeirra hafði það í för með sér að liðið missi toppsætið til Wer- der. I síðasta leiknum mætir liðið Schalke á útivelli. Werder vann stórsigur á HSV, 5:0. Herzog og Rufer gerðu tvö mörk hvor og Kohn bætti því fimmta við. I síðasta leiknum þurfa leikmenn Werder að sækja Stuttgart heim og þar verður ör- ugglega við ramman reip að draga. Karlsruhe sem háir harða bar- áttu við Stuttgart um að ná Evr- ópusæti, gerði góða ferð til Boch- um þegar liðið lagði Watten- scheid, 0:2, að velli. Carl sá um að gera bæði mörkin. Dresden losaði sig endanlega við falldrauginn þegar liðið gerði jafntefli við Uerdingen, 1:1, á heimavelli. Uerdingen er þar með fallið í aðra deild. Melzig skoraði fyrir heimamenn, en Kúhn fyrir gestina. Sömu sögu er að segja um Köln, sem með 2:1 sigraði á Schalke, bjargaði sér endanlega frá falli. Steinmann og Greiner skoruðu mörk liðsins en Möller klóraði í bakkann fyrir gestina. Leverkusen vann sigur á Dort- mund á útivelli, 1:2. Kirsten og Hapal skoruðu fyrir gestina en Grauer fyrir Dortmund. Frankfurt vann öruggan sigur á Kaiserslautern á heimavelli, 3:0. Binz, Bindewald og Yeboah sáu um að koma knettinum í netið. Borussia Mönchengladbach fékk Núrnberg í hcimsókn og sigr- aði 2:1. Oechler kom gestunum yfir, en Pflipsen og Kastenmaier svöruðu fyrir heimamenn og náðu þar með að tryggja þeim sigur. Núrnberg er enn í bullandi fall- hættu, en nái liðið öðru stiginu þegar það fær Saarbrúcken í heim- sókn á laugardaginn heldur þaó sér í deildinni.^ Árni Hermannsson, Þýskalandi. arar töglin og hagldimar. Þegar um 15 mínútur voru búnar af síð- ari hálfleik minnkaði Elmar Ei- ríksson muninn og Brynjar Karl Ottarsson jafnaði skömmu síöar. Þrátt fyrir ákafar tilraunir voru fleiri mörk ekki skoruð og úrslitin því 2:2. Besti maður vallarins var Birgir Þór Karlsson hjá Þór. Auk þessara liða eru lió frá KA, Tindastóli og Leiftri með í mótinu. Leiftur er framkvæmdar- aðili en Tölvutæki-Bókval aðal styrktaraðili og er mótið nefnt Star mótið eftir samnefndum tölvuprenturum. Reglumar eru þær að liðin geta notað þá leik- menn sem ekki hófu síðasta meistaraflokks leik síns félags, í móti á vegum KSI, fyrir 1. flokks leik félagsins. Svo dæmi sé tekið þá gat Birgir Þór Karlsson leikið með Þór þar sem hann var í leik- banni á móti Fram. Með þessu móti fá þeir leikmenn sem eru aó banka á dyr meistaraflokks leik- æfingu. HVERSDAGSLEIKAR I gær var í 3. sinn dregið í happdrætti Hversdagsleikanna á Ak- ureyri, en allir sem skráðu sig, hvort heldur er í síma eða á þátttökublöðin, geta átt von á vinningi. Elva Ólafsdóttir, Birkilundi 16, hlaut íþróttaskó frá Sport- veri, Glerárgötu 28. Ragnhildur Hjartardóttir, Fögrusíðu 1 hlaut mánaðarkort í Vaxtarræktina. Gunnlaugur Sigvaldason, Kambagerði 6, hlaut árskort í Sundlaug Glerárskóla. Dregið verður í síðasta sinn á morgun. Baldur Dýrfjörð bæjarlögmaður annaðist sem fyrr útdráttinn og hann er hér ásamt Hermanni Sigtryggssyni, ívari Sigmundssyni og Bergljótu Jónsdóttur sem fylgdust með að allt færi vel fram.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.