Dagur


Dagur - 02.06.1993, Qupperneq 14

Dagur - 02.06.1993, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 2. júní 1993 SÁÁ-N Aðalfundur Norðurlandsdeildar SÁÁ verður haldinn, miðvikudaginn 9. júní kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu á Akureyri, 4. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Áðalfundur Handknattleiksdeildar Þórs verður haldinn í Hamri, mánudaginn 7. júní kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Fiskeldi Eyjafjarðar hf. Aðalfundur Fiskeldis Eyjafjarðar hf. verður haldinn í Sæluhúsinu á Dalvík laugardaginn 5. júní kl. 15.00. Stjórnin. tilefni af 70 ára afmæli mínu 26. maí, þakka ég fyrrum samstarfsfólki, börnum, tengdabörnum og öðrum ættingjum fyrir margvíslegar gjafir, blóm og skeyti. Guð veri með ykkur öllum. FRIÐFINNUR GÍSLASON. Af tilefni 70 ára afmælis míns 19. maí, vil ég færa öllum þeim, fjær og nær, sem glöddu mig með gjöfum, blómum og heillaóskum, hugheilar þakklætiskveðjur. HARALDUR M. SIGURÐSSON, ifB Útför eiginkonu minnar og móður okkar, ÞORGERÐAR RÓBERTSDÓTTUR, Skarðshlíð 32 b, Akureyri, verður gerð frá Glerárkirkju föstudaginn 4. júní kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Árni Jakob Stefánsson, Stefán B. Árnason, Róbert Árnason, Sólborg Árnadóttir, Magnús Árnason, Bragi Árnason. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ' GUÐRÚNAR JÓNÍNU ÓLAFSDÓTTIR, áður til heimilis að Þverholti 12. Kolbrún Geirsdóttir, Jóhann Hauksson, ívar Geirsson, Guðrún Þórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Alúðar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför, ODDU MARGRÉTAR JÚLÍUSDÓTTUR, Jón Laxdal Halldórsson, Valgerður Dögg Jónsdóttir, Rósa Kristín Júlíusdóttir, Guðmundur Arnar Júlíusson, Oddný Laxdal. Minning íi* Tryggvi Héðinsson Fæddur 11. júní 1974 - Dáinn 16. maí 1993 Mjög erum tregt tungu að hrœra. (Egill Skallagrímsson: Sonartorrek) Þær sorgarfréttir bárust okkur aó kvöldi sunnudagsins 16. maí aó skólafélagi okkar og vinur, Tryggvi Héðinsson væri látinn. Þessi fregn fékk mikið á okkur, það er erfitt að sætta sig viö að missa góðan félaga. Tryggvi var búinn að vera með okkur í skóla í mörg ár og voru kynni okkar góð á þessum árum. Best kynntumst við honum nú síðasta vetur þegar að við vorum saman í liði Lauga- skóla í spumingakeppni fram- haldsskólanna. Þær voru ekki ófá- ar stundimar sem við eyddum saman við það að lesa ýmsan fróðleik. A þeim stundum var allt- af stutt í glensið hjá Tryggva og var hann iðinn við að lyfta okkur hinum upp með góðu gríni ef hon- um fannst við vera of niðursokkn- ir. Það voru margar gleðistundim- ar sem Tryggvi skapaði okkur í vetur og horfum við nú með sökn- uði á framtíðina. - Framtíð án nærvem Tryggva, - en samt get- um við ennþá horft til baka og munað hann eins og hann var þeg- ar viö þekktum hann og um leið óskað þess að honum líði vel þar sem hann er staddur núna. Það var mjög gott aö starfa með Tryggva og sýndi hann vin- um sínum alltaf mikil liðlegheit þegar þeir þurftu á að halda. Það er mikil eftirsjá að svo góðum fé- laga sem Tryggvi var og það tekur tíma fyrir okkur að venjast því að hann hafi verið kallaður frá okkur. Við kveðjum Tryggva hryggir í huga, hann veitti okkur gíeði og við nutum hennar. Við vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu sam- úð. Við kveðjum þig, Tryggvi, klökkir í huga. Deyr fé deyja frœndur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Hávamál). Raggi og Bjössi. Gj aldeyrismarkaður: Nýtt gengisfyrirkomulag Nýtt gengisfyrirkomulag hefur tekið gildi hér á landi. Eftirleiðis er gert ráð fyrir að gjaldeyris- markaðurinn verði millibanka- markaður og að þátttakendur á Sími11500 honum verði auk Seðlabankans, viðskiptabankarnir þrír og Lánastofnun sparisjóðanna hf. I nýju gengisfyrirkomulagi felst að gengi krónunnar mun ekki lengur verða ákveðið einhliða af Seðlabankanum að morgni hvers dags heldur ákvarðast af framboði og eftirspurn á mark- aði. Þetta er hliðstætt gengisfyr- irkomulag og í flestum ná- grannaríkjunum, þ. á m. öðrum Norðurlöndum. Stofnun gjaldeyrismarkaðar hefur engin áhrif á gengisstefnu ríkisstjórnarinnar. Meðalgengi krónunnar verður eftir sem áður haldið stöðugu gagnvart meðaltali erlendra gjaldmiðla skv. núgild- andi gengisvog. Leyfileg fráviks- mörk frá meðalgengi verða áfram þau sömu, þ.e. 2,25% til hvorrar áttar. Sú mikilvæga breyting verð- ur hins vegar frá núgildandi geng- isfyrirkomulagi að Seðlabankinn mun halda gengi krónunnar innan fyrrgreindra marka með markaðs- aógerðum en ekki einhlióa ákvörðun, þ.e. meö kaupum og sölum á erlendum gjaldeyri á markaði og með því að beita stjórntækjum sínum í peningamál- um til að hafa áhrif á skammtíma- vexti í landinu og þannig á fram- boð og eftirspurn eftir erlendum gjaldeyri. A söluskrá: + Bakkasíða: 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr, samtals um 175 fm. * Borgarhlíð: 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í svalablokk, um 61 fm. + Hríseyjargata: 3ja herbergja efri hæð í tvíbýli, um 79 fm. * Móasíða: 4ra herbergja raðhús á einni hæð með bílskúr. Samtals um 150 fm. Ekki alveg fullgerð. Áhvílandi húsnæðislán u.þ.b. 7.8 millj. Skipti á minni eign. ★ Móasíða: 4ra herbergja raðhús með þak- stofu og bílskúr, samtals um 145 fm. Mjög vönduð eign. * Matvöruverslun í grónu hverfi. Afbragðs tækifæri fyrir þá sem vilja breyta til. FASTÐGHA& M amsiuSSI N0RDURLANDSII Opið virka daga kl. 13-17 og á morgnana eftir samkomulagi. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Benedikt Ólafsson hdl. Veitingahúsið Fiðlarinn á Akurcyri býður gestum sínum upp á humar, sem fluttur er iifandi til landsins frá Maine í Bandaríkjunum. Hugmyndin cr fyrst og fremst að bjóða upp á fjölbreyttari matseðil. Humarinn er mjög stór, miðað við þann humar sem veiðist við íslandsstrcndur og er hann geymdur lifandi í búri í veitingasal staðarins. Gestirnir geta sjálflr valið þann humar sem þcir vilja gæða sér á og cr honum stungið lifandi í sjóð- andi vatn, eða hann grillaður. Humarinn er mjög bragðgóður og heftir þessi nýbreytni mælst vel fyrir. Humarinn verður á boðstólum í sumar og í haust verður athugað með hvort framhald verður á. Verðið er mjög svipað og á íslenska humrinum. Á myndinni er Snæbjörn Kristjánsson, kokkur á Fiðl- aranum að stinga einum vænum humri í pottinn.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.