Dagur - 06.07.1993, Side 1

Dagur - 06.07.1993, Side 1
76. árg. Akureyri, þriðjudagur 6. júlí 1993 124. tölublað r//rs LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sfmi 23599 Sjávarútvegssýning í Oman í haust: Líkur á þátttöku akureyrskra fyrirtækja Verið er að kanna grundvöll fyrir þátttöku akureyrskra fyr- irtækja í sjávarútvegssýningu í ríkinu Oman sem fram fer í októbermánuði í haust og að þau fyrirtæki sem aðild eiga að Omak, sem er samstarf fyrir- tækja um aðstoð og samvinnu við stjórnvöld í Oman, fyrst og fremst í sjávarútvegsmálum, muni hafa forgöngu um þátt- töku í sýningunni af hálfu Is- Iands en fleiri fyrirtæki víðs vegar að af landinu sem tengjast sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti munu þá bætast í hópinn. Ef af þátttöku verður mun áhersla verða lögó á að sýna ís- lenskan sjávarútveg í hnotskurn og þá þjónustu sem hcfur byggst í kringum hann, eins og t.d. veiðar- færi, búnað til vinnslu og fleira tengt því og hefur þá fyrst og fremst vcrið horft til Slippstöðv- arinnar Odda hf. Þátttaka íslensku fyrirtækjanna byggist nokkuð á því hvort af sölu tvcggja 8 mctra langra plast- báta (hefðbundinna hraðfiskibáta) verður þangaó en þeir veróa þá notaðir til tilraunaveióa á vegum opinbcrra aðila í Oman. Ef það gengur eftir kemur þátttaka ís- lensku fyrirtækjanna í kjölfarió en bátarnir verða þá einnig til sýnis þar. GG Bleikjuútflutningur: Fyrsta sending árins frá Vatnafangi „Þetta er rétt að byrja hjá okk- ur í ár og fyrsta sendingin fer á markað á meginlandinu í þess- ari viku,“ segir Bjarni Egilsson, formaður Vatnafangs, félags silungsveiðibænda. Vatnafang hefur tckið upp samstarf viö Fagráó bleikjufram- leiðenda og mun ráóið sjá um markaðssetningu fyrir félagió og nýta til þess verkefnis styrk sem Framleiðnisjóður landbúnaðarins veitti Vatnafangi nýverið til markaðsmála. Að sögn Bjarna er stefnan tekin á meginland Evrópu og í þessari fyrstu sendingu verða 300 kíló af ferskri bleikju. Bjarni segir að þrátt fyrir að út- flutningurinn hafi oróió heldur endasleppur á síðasta ári sökum verðhruns á mörkuðum, séu mcnn bjartsýnir og tilbúnir í slag- inn. Félagar í Vatnafangi cru um 80 talsins um þcssar mundir og dreifast vítt og breitt um landið, cn aðalvirknin í veióinni er að sögn Bjarna á Norðurlandi vestra og á Snæfellsnesi. „Við erum að vonast til að geta haldið þessu gangandi og framlag Framleiðnisjóðs hjálpar okkur töluvert svo við rciknum með einhvcrjum útflutningi í ár, en auðvitað fer magniö eftir ýmsu; ekki síst hvort eitthvað veiðist," segir Bjarni Egilsson. SBG Fékk há tilboð í Hraftitmnu - en sagði nei takk! Að öðrum ólöstuðum verður Baldvin Ari Guðlaugsson^ Létti á Akureyri, að teijast knapi Fjórðungsmóts norðlenskra hestamanna á Vindheimamel- um, sem lauk sl. sunnudag. Baldvin Ari og Hrafntinna sigr- uðu A-flokk gæðinga með mikl- um yfirburóum og hann og Nökkvi náðu öóru sæti í tölt- keppninni. I B-flokki gæðinga misstu Baldvin Ari og Nökkvi af sigri vegna þess að þeir fóru ein- um hring of mikið. „Þetta gekk mjög vel. Ég stefndi mjög hátt - stefndi að því að sigra bæði A-flokk og B-flokk. Það gekk að vísu ekki alveg upp, en ég sigraði þó A-flokkinn, náði öðru sæti í töltinu og átti tvær af fimm efstu kynbótahryssunum," sagði Baldvin Ari. ,3>etta er fyrst og fremst viður- kenning á mínum störfum," sagói Baldvin Ari, aðspurður um hvað þessi frábæri árangur þýddi fyrir liann sem hestamann. „Þetta er það sem knapar þurfa á að halda til þess að halda sér í ákveðnum flokki. Auðvitað liðkar þetta fyrir öllu.“ Þegar úrslit í A-flokki gæóinga lágu fyrir á Vindheimamelum sagói Baldvin Ari að hann hafi fengið fleiri milljóna króna tilboð í Hrafntinnu, en hún er í eigu þeirra bræðra Baldvins Ara og Heimis og föður þeirra, Guðlaugs Arasonar. Það er skammt stórra högga á milli hjá Baldvini Ara. Um næstu helgi fer hann með Nökkva á úr- tökumót fyrir heimsmeistaramótið og hann gerir sér góðar vonir um að komast í landsliðió. Hrafntinna er að sögn Baldvins Ara einstakt hross. Hún er fædd á Dalvík, undan hryssu Rafns Am- bjömssonar, Hrafnkötlu. Síóan átti Baldvln Ari Guðlaugsson ásamt kostagripnum Hrafntínnu. Myndin var tekin í gær í hólfi sunnan Akurcyrar. Mynd: Pjciur. Ingvi Baldvinsson á Bakka í Svarfaðardal Hrafntinnu, en þeir feögar keyptu hana af honum fyrir þrern ámm. „Hrafntinna cr stórbrotinn gæó- ingur. Hún er engin puntudúkka - hún er skapmikil og maður þarf alltaf að semja við hana. Ef mað- ur býóur henni of mikið - þá svarar hún fullum hálsi. Hún hefur frábæran gang og býr yfir miklum vilja og karakter,“ sagði Baldvin Ari. Þýskir og bandarískir aðilar buðu fleiri milljónir í Hrafntinnu, en Baldvin Ari segir að ekki komi til greina að selja svo mikinn kostagrip úr landi. „Við ætlum að nota hana scm ræktunarhross. Vió eruni komnir rneð fimm fyrstu verðlauna merar og Hrafntinna verður flaggskipið í okkar rækt- un,“ sagði Baldvin Ari Guðlaugs- son. Á bls. 4-5 í dag cru birt úrslit og myndir frá Fjórðungsmótinu á Vindheimamelum. óþh Nýsköpun í Reykjahreppi: Harðfiskur og gæludýrafóður Að sögn oddvita Reykjahrepps, Þorgríms J. Sigurðssonar, er hafín framleiðsla á harðfíski auk þess sem vinnsla gæludýra- fóðurs er í burðarliðnum á veg- um Stöplafísks sem er nýstofnað fyrirtæki í sveitarfélaginu. „Harðfiskurinn frá okkur er kominn á markað og við stefnum rnjög ákveðió inn á gæludýrafóð- ur,“ sagði Þorgrímur í samtali við Dag. Vonir eru ekki síður bundn- ar við sölu á gæludýrafóðri að sögn Þorgríms cn harðfiskurinn er á þrengri markaði. „Hann hefur hlotió góð vióbrögð,“ sagði odd- vitinn að lokum. GT Hálendið: Vegir enn á kafi Sprengisandsleið verður ekki opnuð næstu tvær vikurnar vegna mikilla snjóa á leiðinni. Fært er í Kverkfjöll og í Dreka- gil en enn vantar 3 kílómetra upp á planið að Öskju. Ófært er upp að Laugfelli. Þær upplýsingar fcngust hjá Vegagcrö ríkisins að mjög mikill snjór væri á Sprengisandslcið og að þar yrði ckki opnað næstu tvær vikurnar að minnsta kosti. Ovenju mikill snjór er á lciðinni í ár og sýnist mönnum sem þar sé nú allt þremur vikum á cftir áætlun, mið- að við árið í fyrra. Ekki hcfur al- vcg tekst að opna inn að planinu á Öskju cn l'ært cr oröið í Kverktjöll og Drekagil. Kjalvegur cr fær jeppum. Á Dcttisfossvegi vestri er mikil aurbleyta og fcstist rúta þar á dögunum. Inn að Laugafclli er rneð öllu ófært vcgna vatns og snjóa en maður á vinnuvél er á svæðinu að rcyna að ryója sér leið en vegna vatnsclgsins gcngur það fremur hægt. SV Loðnuvertíðin hefst með krafti: Ríkisverksmiðjumar greiða Qögur þúsund krónur fyrir tonnið Um 3.300 tonnum hefur verið landað af loðnu hjá Síldarverk- smiðjum ríkisins á Raufarhöfn síðan á fímmtudag er sumar og haustvertíðin hófst. Fyrst land- aði þar Gígja VE-340, sem var með 715 tonn, Sunnuberg GK- 199 með 1.445 tonn í tveimur löndunum, Keflvíkingur KE- 100 með 507 tonn og í gær landaði Örn KE-13 þar 600 tonnum. Bræðsla hófst í verksmiðjunni á laugardagsmorguninn og er peningalykt því komin í þorpiö. Veiði var orðin treg þar sem bát- arnir byrjuðu á fimmtudag og voru þeir því að færa sig norðar en 10 bátar eru komnir á miðin og búist er viö a.m.k. 5 bátum í við- bót nú í þessari viku. Fyrsta loðnan kom til Þórs- hafnar sl. sunnudag er Þórshamar GK-75 landaði þar 600 tonnum. Fyrsta loðnan barst ekki til Þórs- hafnar í fyrra fyrr en um mánaða- mótin júlí/ágúst enda mun meiri kraftur í veiðunum nú í byrjun vertíðar og fleiri skip á veiðum. Börkur NK-122 landaði um helg- ina 1240 tonnum á Neskaupstað, Víkingur AK-100 1300 tonnum á Seyðisfirói og Hólmaborg SU-11 1380 tonnum á Eskfirói og var væntanleg í gær meö fullfcrmi, um 1300 tonn. Vegna þess hve mikil áta er í loðnunni þarf að vinna hana jöfn- um höndum en væntanlega á hún eftir að fitna töluvert vegna át- unnar. Síldarverksmiðjur ríkisins greiða nú 4.000 krónur fyrir tonn- ið en það verð kemur til rneð að verða í stöðugri cndurskoðun og ræður fituinnihald loðnunnar þar miklu um. Mjölmarkaóurinn er- lcndis er nú mjög tregur vegna mikillar samkeppni, fyrst og fremst frá Chile, þar sem veiðar og bræósla hafa stóraukist undan- farin ár. GG Dalvík: Fallið frá ákæru á Otur EA-162? Rækjubáturinn Otur frá Dalvík var færður til hafnar í lok maí- mánaðar af varðskipi, þar sem báturinn var á veiðum á Skjálf- andaflóa, en varðskipsmenn töldu að báturinn væri með ólöglegan útbúnað veiðarfæra. Utan um annan pokann var höfð hlíf sem bundið er fyrir með til að loka honum en ekki bundið fyrir hinn pokann sem raunar er rækjunetið hcldur var hafður sá háttur á að í stað- inn fyrir að binda fyrir var vöðlað upp á pokann. Landhelgisgæslan taldi þennan útbúnað ólöglegan, það eigi að láta pokann lafa opinn aftur úr, hugsanlega mætti hnýta fyrir hann utan við. Lögrcgluskýrsla var tek- in strax og báturinn kom til hafn- ar á Dalvík og send sýslumanns- cmbættinu á Akureyri en Eyþór Þorbergsson fulltrúi sagði að- spurður að líklega yrði fallið frá ákæru en það væri þó ekki cndan- lega ákvcðið. Málið væri í bið- stöðu vegna breyttra reglna urn búnað sem settar höfóu verið skömmu el'tir aó varðskipið tók Otur EA. GG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.