Dagur - 06.07.1993, Blaðsíða 10

Dagur - 06.07.1993, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 6. júlí 1993 Iþróttir Um helgina héldu Þórsarar sitt árlega og sívinsæla Pollamót í fímmta skipti. Mótið hét að þessu sinni Pollamót Þórs og FN en Flugfélag Norðurlands styrkti mótið veglega og gaf öll verðlaun. Að vanda var hart barist á leikvellinum en góða skapið var aldrei langt undan og léttleikinn svo sannarlega í fyrirrúmi þó svo að sumir kepp- endur hafi verið komnir af „léttasta“ skeiði. Meðal helstu nýjunga má nefna að í fyrsta skipti var keppt í fíokki 40 ára og eldri, svokallaðri Lávarða- deild og einnig voru ný verðlaur veitt sem voru Skaphundur mótsins. Mæltust þau vel fyrir nema hjá þeim sem þau fengu, óverðskuldað að eigin mati. Halldór Arinbjarnarson Víkverjar sigruðu á Pollamóti Þórs og FN að þessu sinni. í fyrsta skipti var keppt í Lávarðadeiid og þar unnu Framarar. Pollamót Þórs og FN „Við kuimum ekki við að vinna þá,“ - sagði fyrirliði Þórs-c eftir að liðið hafði tapað úrslitaleiknum fram vítaspymukeppni og þá sýndu Þórsarar af sér þá gestrisni að skora ekki úr tveimur fyrstu spyrnum sínum og færa Víkvcrja þar með Pollameistaratitilinn á silfurfati. Þórsarar höfðu að sjálf- sögðu skýringar á tapinu á reiðum höndum og sögðust einfaldlega ekki hafað kunnað við að vinna andstæðingana. Þeir sem sáu leik- inn drógu þá fullyrðinu þó í efa. Lokahóílð hápunkturinn Það er ekkert Pollamót án loka- hófs og það var að þessu sinni haldið í íþróttahöllipni. Þar var gómsætur matur á boröum frá Bautanum og ýmislegt brallaó. Veislustjóri kvöldsins, sr. Pétur Þórarinsson, fór á kostum aó venju og stjórnaði samkomunni af röggsemi. Skemmtiatriðin voru í umsjón liðanna sjálfra og þau kitl- uðu mörg hláturtaugar veislu- gesta. Karl Þórðarson knattspyrnu- maður af Akranesi fór til að mynda á kostum sem Skreiðar Hirtinn og atriði Aftureldingar vakti einnig mikla athygli. Samkvæmt venju voru verð- laun afhent á lokahófmu. Auk hefóbundinna verðlauna fyrir 1.-3. sæti voru ýmis aukaverðlaun í boði. Árni Stefánsson úr Tinda- stóli var valinn markvörður Polla- mótsins og Þorsteinn Olafsson IBK markvörður Lávarðadeildar- innar. Bestu varnarmenn voru kosnir Gunnar Austtjörö Þór-a og Haraldur Erlendsson UBK. Karl Þórðarson IA var besti sóknar- maður Pollamótsins og Atli Jósa- fatsson Fram í Lávarðadeildinni. Sverrir Brynjólfsson Þrótti og Haraldur Guðmundsson Aftureld- ingu voru markahæstir á Polla- Skemmtiatriði á Iokahófínu komu frá liðunum sjáifum. Það er Róbcrt B. Agnarsson bæjarstjóri í Mosfellsbæ og fyrrvcrandi framkvæmdastjóri Kís- iiiðjunnar sem hér er til skoðunar. Bestu menn PoIIamótsins. Frá vinstri: Þorsteinn Ólafsson markvörður Lávarðadcildarinnar, Árni Stcfánsson mark- vörður PoIIamótsins, Gunnar Austfjörð varnarmaður PoIIamótsins, fulltrúi Haraldar Erlendssonar varnarmanns Lávarðadeildarinnar, Atli Jósafatsson sóknarmaður Lávarðadeiidarinnar og Karl Þórðarson sóknarmaður Polla- mótsins. Myndir: HA Metþátttaka var í mótinu að þessu sinni. Til leiks mættu 50 lið og haföi fjölgað frá 39 á síðasta ári. Sem fyrr segir var sérstakur flokkur 40 ára og eldri en þau lið tóku þó einnig þátt í keppninni um hinn eiginlega Pollameistaratitil. Rétt til þátttöku hafa annars þeir sem eru 30 ára og eldri. Kalt var í veðri meóan á mótinu stóð en keppendur og áhorfendur létu það lítið á sig fá og allir fóru ánægðir heim, staóráðnir í að koma aftur að ári. Keppnin Keppni hófst á föstudagsmorgun og þá um kvöldið var haldin mikil grillveisla í Hamri þar sem glatt var á hjalla. Keppni var síóan fram haldið árla næsta morgun og úrslit hófust upp úr hádegi. Liðum var skipt í 8 rióla og komust 2 áfram úr hverjum í 16 liða úrslit. Að riðlakeppni lokinni var Ijóst að það voru Framarar sem voru sig- urvegarar í Lávarðadeildinni, ÍBK í 2. sæti og KA í því 3. Keppnin um hinn eiginlega mótinu með 8 mörk hvor en Heió- ar Breiófjöró skoraði 7 mörk í Lá- varðadeildinni fyrir UBK. Ætíð er spenningur í loftinu þegar úrslitin í vali á persónuleika mótsins eru kynnt. Að þessu sinni komu þau í hlut liðs Garpanna. Þeir settu sér það markmið fyrir mótið að skora helmingi fleiri mörk í ár heldur cn síðast og það tókst. Liðið skoraði 2 mörk. Krist- inn Pétursson Fram var valinn Persónuleiki Lávarðadeildarinnar. Skaphundur Pollamótsins voru verðlaun sem veitt voru í fyrsta skipti. Þau komu í hlut Einars Tryggvi markvörður Víkverja fær „viðeigandi“ meðferð eftir að hafa varið vítaspyrnu í úrslitaieiknum. Sr. Pctur Þórarinsson fór á kostum sem veislustjóri á lokahófí Polla- mótsins. Vióarssonar hjá Þór-a og Vífils Karlssonar hjá Sindra. Báðir komu að sjálfsögðu af fjöllum og töldu sig ekki veróskulda þennan „heiður" umfram aóra. En allt var þetta í gríni gert. Að lokinni vcrðlaunaafhend- ingu og skemmtiatriðum var dans- inn stiginn fram eftir nóttu og víst cr að allir þeir sem þátt tóku í mótinu voru staóráðnir í að koma aftur að ári. Pollameistaratitil var æsispenn- andi og lið Einherja frá Vopna- ftrði tryggði sér bronsverðlaun með því að leggja IR í leik um 3. sætió 1:0. Um 1. sætið kepptu hins vegar lið Víkverja og Þórs-c. Gestrisnir Þórsarar Þau voru ekki mörg glæsimörkin sem litu dagsins Ijós í úrslitaleik Þórs og Víkverja. Bæði lið léku stífan vamarleik og voru hikandi í öllum sínum sóknaraðgerðum. Leikurinn einkenndist af miðju- þófi en inn á milli brá fyrir „snilldartöktum“ sem yljuðu áhorfendum í noröannepjunni. Frammistaða dómarans vakti sérstaka athygli. Þar var á feró Sveinbjörn nokkur Hákonarson og hafði hann örugg tök á leiknum. Sveinbjöm er vanur „dómgæslu- störfum" í 1. deildinni, eða hefur í það minnsta verið óspar á aó segja þeim svartklæddu til í gegnum tíö- ina. Honum urðu ekki á mörg mis- tök, enda leikurinn stuttur. Þegar Sveinbjörn blés til loka leiksins hafði hvorugu liðinu tek- ist aö klúðra tuðruni í netið hjá andstæðingnum. Því þurfti að fara

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.