Dagur - 06.07.1993, Síða 3

Dagur - 06.07.1993, Síða 3
Þriðjudagur 6. júlí 1993 - DAGUR - 3 í hita og þunga dagsins-á AKUREYRI Róbcrt Ragnarsson að leggja úr höfn a smaum Borgarfossi. „Fjarstýrt og umhverfisvænt“ - segir Róbert Ragnarsson, módelsmiður Áhugamenn um siglingar stórra skipa geta tekið gleði sína. Nú gefst mönnum nefnilega kostur á því að bregða sér inn á Leiru- tjörn og taka skip á leigu, smækkaða útgáfu og fjarstýrða. Frá og með liðinni helgi gefst Akureyringum og nærsveitar- mönnum kostur á því að taka fjar- stýrð skip á Ieigu og sigla þeim á Leirutjörninni eins og þeim Iystir. Róbert Ragnarsson smíðaði skipin sjálfur og kemur meó þau úr Reykjavík þar sem sunnanmenn hafa siglt þeim á Rauðavatni og Reykjavíkurtjörn. Hann segir sig hafa langað að prófa eitthvað skemmtilegt og öðruvísi og því ráðist í þetta. „Það skemmtilega við þetta er að allir sem koma eru ánægðir. Pabbarnir hafa gaman af því að koma og leyfa krökkunum að sigla. Þeir taka mjög gjarna aðeins í þetta líka,“ segir Ragnar og bætir því við að stelpur hafí ekkert síður áhuga en strákar. „Ég segi gjama að þetta sé fjarstýrt og umhverfis- vænt því engin er mengunin af þessu.“ Módelin eru öll af svipaðri gerð, um einn meter á lengd og 60 kíló að þyngd og stefnir Ragnar að því að vera hér með þau fram yfir Verslunarmannahelgi. Leigan fyrir skipin í fimmtán mínútur er 250 krónur og 450 krónur fyrir hálftímann. Svæðió verður opið alla daga frá kl. 11 -22. SV Systurnar Dagný og Katrín Kristjánsdætur voru að byggja í göngugötunni á föstudag. LitHr og stórir puttar í legó - Dagný og Katrín í byggingasamkeppni Keppni var haldin í legókubba- byggingum í göngugötunni fyrir helgina og þrátt fyrir Ieiðinlegt veður var töluvert af börnum að glíma við að hrinda hugmynd- um að listaverkum í fram- kvæmd. Dagný Kristjánsdóttir var þungt hugsi yfir einhverju, sem ekki er vitað hvað á endan- um varð, þegar blaðamaður rakst á hana. „Ég hef eiginlega ekki hug- mynd um hvað þetta á að verða. Kannski verður þetta eitthvert listaverk og kannski verður ekkert úr þessu,“ sagði Dagný Kristjáns- dóttir í byggingasamkeppni í göngugötunni fyrir helgina. Hún var að passa litlu systur, Katrínu, sem er að veröa tveggja ára. „Hún er alveg brjáluð í að fá að byggja en ég nenni ekki að leyfa henni það því hún setur allt á annan end- ann,“ sagði Dagný. Katrín litla var farin aó ókyrr- ast í kerrunni sinni og vildi fá aö komast að borðinu. Litlu puttana var farið að klæja allverulega í að fá að handleika kubbana. Þegar blaðamaður spurði hana hvort hana langaði að byggja bað hún hann um að hjálpa sér. Hún hafói fengið kubba í hendur og sagðist ætla að byggja hús og húsið ætti að verða stórt. Það var aðeins hönnunin sem vafðist fyrir henni. Þar eð blaóamanni er ýmislegt frekar til lista lagt en að byggja úr kubbum ákvað hann að kveðja þær systur. Engum frekari sögum fer af húsbyggingum eða öðrum framkvæmdum í legókubbalandi í göngugötunni. SV „Vinnum þakklátt starf ‘ — segir Óskar Bernharðsson, hjá Pósti og síma Þeir voru í óða önn að gera þjónustu Pósts og síma enn betri með því að leggja rör, fraintíðarlínur, í jörðina við Hjalteyrargötuna. Kranamað- urinn stóð léttur á brún skurð- arins og gaf eftir af hjólinu þeg- ar félagar hans sögðu til. „Þaó er búið að vera nóg að gera hjá okkur cnda vill fólk alltaf meiri og betri þjónustu," sagði Oskar Bernharðsson, bæjarmaður. Hann sagðist hafa unnið hjá Pósti og síma í 16 ár og sér líkaði þaö vel. „Við vinnum nokkuð þakklátt starf. Það er allt í þjónustunni í dag. Fólkið vill þjónustu og er til- búið að borga fyrir hana. Tækn- inni fleygir svo ört fram aó það þarf sífellt að vera að breyta og bæta í þessu og ætli það sé ekki þess vegna sem við höfum haft nóg að gera,“ sagði Óskar. Hann segir gott að nota símann í þeirri dýrtíð sem við lifum í; bensínið sé t.d. allt of dýrt og því borgi sig að nota símann. „Þetta er eins og segir í auglýsingunni á hurðum símabílanna; við erum að spara fólki sporin á meðan ríkisstjórnin hækkar veröið á öllu.“ Aðspuróur hvort fólk væri að rexa í þeim vegna þjónustunnar, uppgraftar lands eða annarra hluta, sagði Óskar svo ekki vera. „Það hefur ekkert upp á sig að vera að kvarta við okkur; við hægjum þá bara á framkvæmdun- um,“ sagði Óskar og hló dátt. Hann sagði þá hafa stóru svæói að sinna; þeir færu allt noróur í Grímsey, austur í Ljósavatnsskaró og þræddu alla dalina hér. Óskar Bernharðsson stóð kampakátur viö kranann og kvaddi blaðamann með þeim orð- um að nú færi veðrið að skána; sumarið væri á næsta leiti. SV Óskar Bernharðsson, bæjarmaður, sagði þá símamenn spara fólki sporin. HEILSUDRYKKUR MEÐ ÁVAXTABRAGÐI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.