Dagur - 06.07.1993, Side 16
Blönduós:
HeimiMsiðnaðarsafníð
að sjáifseignarstofiiun
- með þátttöku átta sveitarfélaga
Nýlega var Heimilisiðnaðarsafn-
ið á Biönduósi gert að sjálfs-
eignarstofnun sem að standa 8
sveitarfélög af 10 í A-Hún.
ásamt Sambandi a-húnvetnskra
kvenna, sem áður sá um rekstur
safnsins. Gerð hefur verið
skipulagsskrá fyrir safnið og
það samþykkt af Þjóðminjaráði,
sem er forsenda fyrir ríkis-
styrkjum.
Safnið tók til starfa 1. júní sl.
skv. hinu nýja formi. „Við töldum
aó þaó skipti verulegu máli upp á
framtíðina að breyta rekstrarform-
Dalvík:
Maður bitínn
í höndina
Nokkuó annasamt var hjá lögregl-
unni á Dalvík um helgina í
tcngslum við dansleik á staðnum
og m.a. voru kærðar tvær líkams-
árásir. I öðru tilvikinu var maður
bitinn til blóös í höndina af öðrum
manni það illa aó kalla varða til
lækni. Auk þessa voru átta teknir
fyrir of hraðan akstur og einn
vegna gruns um ölvun. SBG
Sýslumannsmálið:
Hlutimálsins
til sak-
sóknara
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur sent hluta máls vegna
meints smygls sýslumanns og
yfirlögregluþjóns á Siglufirði til
ríkissaksóknara. Það eru gögn
vegna smyglsins sjálfs, en enn er
ekki lokið rannsókn RLR og
Ríkisendurskoðunar á fjárreið-
um sýslumannsembættisins.
Bragi Steinarsson vararíkis-
saksóknari sagói í samtali við
Dag að enn væri beðið niðurstöðu
þeirrar rannsóknar og ekki yrði
tekin ákvörðun um hvort höfóað
yrði mál á hendur mönnunum
tveimur fyrr en að lokinni þeirri
rannsókn. Mennirnir tveir voru
báðir leystir frá störfum tíma-
bundið á meðan á rannsókn
stendur. Bragi sagðist ekki geta
sagt um hve langan tíma tæki fyr-
ir embættið aó komast að niður-
stöðu urn málshöfðun. PS
VEÐRIÐ
Það er ekki hægt að hrópa
húrra yfir veðrinu þessa dag-
ana. í dag spáir Veðurstofan
heldur þungbúnu veðri um
norðanvert landið og hita á
bilinu 6-15 stig. Á morgun
er spáð austan- eða suð-
austlægri átt og 9-12 stiga
hita. Á fimmtudag gengur
síðan aftur í norðanátt með
kólnandi veðri og þannig
verður veður væntanlega
einnig á föstudag.
inu til þess aó styrkja í raun stöðu
safnsins,“ sagði Elín S. Sigurðar-
dóttir formaður Sambands a-húnv.
kvenna, sem jafnframt er formaó-
ur stjómar hinnar nýju sjálfseign-
arstofnunar. Hún segir safnió
standa ágætlega fjárhagslega
þessa stundina, en búa við þröng-
an húsakost. Öll sveitarfélög í A-
Hún. standa að sjálfseignarstofn-
uninni, nema Bólstaðahlíðar-
hreppur og Höfðahreppur. í stjórn
sjálfseignarstofnunarinnar eru
fimm manns, tvær konur frá
Samb. a-húnv. kvenna, tveir frá
Blönduósbæ og einn frá sveitun-
um.
Engin reglugerð var til fyrir
safnið, en það er forsenda fyrir
samþykki Þjóðminjaráðs, sem er
aftur forsenda fyrir ríkisstyrkjum.
Aó vísu hefur safnið notið ríkis-
styrkja undanfarin ár, aó sögn El-
ínar, en þeir hefðu fallið niður ef
þessi skipulagsbreyting hefði ekki
komið til. Sveitarfélögin í kring
og fyrst og fremst Blönduósbær
hafa styrkt safnið fram til þessa.
Samband a-húnv. kvenna hefur
rekið Heimilisiðnaðarsafnið allt
frá 1976 er það var opnað í tilefni
100 ára afmælis Blönduóss. Safn-
ið hefur notið sjálfboóavinnu
kvennanna í sambandinu og það
gengur ekki lengur, að sögn Elín-
ar. Hún segir konum fremur fara
fækkandi í kvenfélögum, sérstak-
lega til sveita og auk þess hafi
konur í svo mörgu að snúast. El-
ísabet Sigurgeirsdóttir hefur verið
fastur starfsmaður safnsins til
fjölda ára, en nú hcfur verið gerð-
ur við hana samningur og starf
hennar er ekki lengur sjálfboða-
vinna.
Fastur opnunartími safnsins í
sumar er frá kl. 14-17 alla virka
daga. Einnig cr hægt að semja við
Elísabetu um að opna safnið utan
þessa fasta tíriia. sþ
Júlímánuður er sá mánuður
sem erlendir ferðamenn eru
hvað mest áberandi í íslensku
mannlífi, sama hvernig viðrar.
Tvær stúlkur frá Sviss, Ari-
anne og Sabine, urðu á vegi
blaðamanns á tjaldstæðinu á
Akureyri í gær og þrátt fyrir
rigninguna brostu þær sínu
breiðasta.
Reyndar er Ariannc ekki
hreinn og klár ferðamaður því í
sumar hefur hún verið að vinna á
Sólheimum í Grímsnesi og í
fyrrasumar var hún að vinna á
bænum Varmalæk í Skagafirði.
Hún er því farin að þckkja ís-
land nokkuð vel og búin að læra
*
„Island er frábært“
„pínulítið“ í íslensku. Þegar vin-
kona hennar kom í heimsókn
ákvaó hún hins vegar aö drífa sig
af stað í hringferó um landið og
lögðu þær í hann sl. laugardag.
„Við feróumst á puttanum og
okkur finnst þaó lítið mál hér-
Iendis mióað við heima í Sviss.
Aðallega eru það karlmenn á
milli þrítugs og fimmtugs sem
taka okkur upp í og hingað til
höfum við ekki átt í ncinum
vandræðum með að komast leið-
ar okkar," sögðu þær stöllur.
Arianne er að nema kennslu-
fræði í Sviss, en hefur hrifist
svo af íslandi að hún er nú þegar
búin aó veróa sér úti um vinnu
hérlendis næsta sumar. Hún
sagði að það væru víðátturnar
sem hcilluðu sig mest; hversu
auðvelt væri að komast burt frá
skarkala heimsins og út í mann-
lausa náttúruna.
Sabine byrjar í Iæknisfræði á
komandi hausti, en þangað til
sagóist hún vera að njóta lífsins.
Hún sagði aö ísland væri frá-
bært, þrátt fyrir votviðri síóustu
daga, og mikill munur að komast
út í náttúru sem væri laus við öll
ummerki um siðmenningu. Hún
lét vel af skemmtanagleði ís-
lendinga, en þær höfðu skellt
sér á dansleik á Fjórðungsmóti
norðlenskra hestamanna á Vind-
heimamclum um hclgina, og
sagði að í Sviss fyndist hvcrgi
nokkuð í líkingu við þetta; staö-
ur þar sem fólk sveiflaðist um
við undirleik hljómsveitar, æp-
andi, hlæjandi, dansandi og
drekkandi.
Frá Akureyri ætluðu þær
stöllur að fara austur á bóginn
og spurðu blaðamann um vcður-
spána um Icið og hann kvaddi.
SBG
Kjörmannafundur Búnaðarsambands S.-Þing.:
Barist verði af hörku gegn
sölu kjöts á svörtum markaði
Kjörmannafundur Búnaöar-
sambands Suður- Þingcyinga
23. júní sl. samþykkti harðorða
ályktun um framleiðslu og sölu
kjöts á svörtum markaði.
Töluverðar umræður spunnust
um þetta mál á fundinum í fram-
haldi af tillögu Sveinbergs Lax-
dals um svartamarkaðssölu á
kjöti.
Franr kom það álit Ara Teits-
sonar, ráðunautar hjá Búnaðar-
22 punda fiskur
úr Laxá í Aðaldal
Sigursveinn Magnússon frá
Vestmannaeyjum krækti held-
ur betur í þann stóra í Laxá í
Aðaldal sl. laugardagsmorgun.
Ekki nóg með að þetta væri
stærsti lax sem hann hefur
dregið á land, heldur reyndist
laxinn einnig vera sá stærsti
sem dreginn hefur verið á land
úr Laxá á þessu sumri.
Þann stóra fékk Sigursveinn á
Landhólmabreióu og tók hann
flugu, nánar tiltekið Dodda-
rauða nr. 6.
Sigursveinn gerði lítiö úr
veiðiskapnum. „Viðureignin tók
rúman hálftíma og var ekkert
sérstök, að því undanskildu að í
einni rokunni gaf sig fjöóur í
fluguhjólinu.“
Síðastliðinn sunnudags-
morgun var dreginn annar stór
lax úr Laxá í Aðaldal. Sigríður
Guðmundsdóttir fékk þá 20
punda fisk á maðk í Hólmatagli.
í vciðibók veiðihússins Vöku-
holts við Laxá í Aðaldal voru
síðdegis í gær skráöir 260 laxar.
óþh
Hér er Sigursveinn Magnússon
með þann stóra - að vonum
ánægður! Mynd: Svcinbjöm Jónvson.
sambandi Suður-Þingeyinga, aó ef
ekki tækist að flytja út kjöt fyrir
viðunandi verð, hryndi núverandi
kerfi vegna offramboðs og fram-
hjásölu.
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda, ræddi
um sölu á kindakjöti og nauta-
kjöti. Hann sagði að svo virtist
sem útsala fyrir sláturtíð dragi úr
sölu aóra mánuði ársins.
Varðandi nautakjötið sagði
Haukur að nú virtist sæmilegt
jafnvægi milli framboðs og eftir-
spurnar eftir kjöti. Haukur nefndi
að nokkuð bæri á því að framleið-
endur hinna ýmsu kjöttegunda litu
á hvern annan sem andstæóing.
Hvatti hann til þess aó allir bænd-
ur stæðu saman að sölumálum og
nefndi það fyrirkomulag hjá Bret-
um að hafa sérstakt kjötráð sem
samræmdi aógerðir og sölu allra
kjöttegunda.
Kjörmannafundurinn sanr-
þykkti síðan harðoróa ályktun um
framleiðslu og sölu kjöts á svört-
um markaöi. Þar er skorað á
Stéttarsamband bænda að taka af
fullri hörku á franrleiðslu og sölu
kjöts á svörtum markaði. Ef þurfa
þyki verði óskað lagahcimilda til
að uppræta slíka starfsemi. „Þá
telur fundurinn rétt að SB beini
því til bænda að þeir láni hvorki
né leigi aðstöðu í húsum né á
landi til slíkrar kjötframleiðslu,"
segir orórétt í ályktuninni. óþh
Norðurland vestra:
Mikil uinferð og
aukin löggæsla
Mikil umferð var á Norðurlandi
um helgina, en hún gekk vel og
engin slys eða meiriháttar
óhöpp urðu, að sögn lögreglu. Á
Ijórða þúsund manns voru á
hestamannamóti á Vindheima-
melum og talsverð umferð í
tengslum við það. Löggæsla í
Skagafirði var talsvert aukin
um helgina, en allt fór vel fram
og engin óhöpp, að sögn lög-
reglu á Sauðárkróki.
Venjulcga lætur Sauðárkróks-
lögreglan sér nægja tvo bíla til
starfa, en um hclgina fengu þeir
lánaöa þrjá til viðbótar. Alls voru
27 lögreglumcnn að störfum í
Skagafirði unr helgina. Björn
Mikaelsson yfirlögregluþjónn á
Sauðárkróki segist mjög ánægöur
nteð helgina, allt hafi gengið stór-
slysalaust, fyrir utan eitt hælbrot
og smámeiðsl. Lögreglan á
Blönduósi segir fáa hafa verið
tekna fyrir hraðakstur um helgina
og einungis eitt óhapp hafi orðið.
Það átti sér stað á laugardaginn í
Langadal, tvcir bílar rákust saman
en árcksturinn var vægur og litlar
skcmmdir urðu á bílum og engin
meiðsl á fólki. Það má því segja
að helgarumferðin á Norðurlandi
hafi veriö til fyrirmyndar, þrátt
fyrir að hún hafi verið mikil. sþ