Dagur - 30.10.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 30. október 1993 - DAGUR - 19
BOR6ARLÍF
Hundum og konum óheinull
aðgangur að verslunum
- Agiies Smáradóttir, lækiianemi, flugfreyja
í Saudi Arabíu í sumar
Hún var ckki há í loftinu þegar
hún tók ákvörðun um að verða
læknir. Um tíma stóð líka til að
fara í lögfræði en af því varð ckki.
Nú er farið að sjá fyrir cndann á
fyrsta áfanga læknanámsins því
fimmta árið er nú u.þ.b. að verða
hálfnað. Hún heitir Agnes Smára-
dóttir, er Akureyringur, útskrif-
aðist frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1987 og drcif sig síðan út
til New York þar sem hún vann
sem Au pair í citt ár. I sumar sem
lcið flaug hún sem flugfreyja í
„pílagrímafluginu“ með Atlanta
og segir veruna í Saudi Árabíu
hafa víkkað mjög út sjóndeildar-
hring íslendingsins í sér.
Meinafræði- og
breiðþotupróf
Agnes segir að töluverður aðdrag-
andi hafi vcrið að því að hún drcil'
sig út til Saudi Arabíu á liðnu
suniri.
„Við vonjm tvær vjnkonumar að
drukkna í próflestri að vori þriðja
árs þcgar við sáuni auglýst ilug-
freyjuuániskeiö og sóttum unt. I>að
er í raun merkilegt hvað rnaður fær
oft furðulegar hugmyndir þcgar
stressið er að ganga frá manni og
þetta var eiginlega ein slík. Nám-
skeiðið var á daginn í heila viku og
viö lásunt iæknisfræðina á kvöldin
og nætumar. A laugardegi áttum við
síðan að mæla í tvö próf á sama
tíma; vcrklega meinafræöi uppi í
skóla og breiðþotupróf á flugnám-
skciöinu. Við fcngunt meinafræð-
inni flýtt og skunduðum síöan úl á
flugvöll lil að gangast undir.llug-
lreyjuprófið. betta gekk allt mjög
vel enda ólík fög og lítil hætta á aö
maðurruglaði þessu tveimu saman."
Ekkeit varð úr fiugi þetta sumar
en þcgar auglýst yar eftir flugfreyj-
um til Jx'ss að vinna við „pílagríma-
fiugið“ nú í vor ákvað hún að sækja
um og lékk vilyrði fyrir plássi um
miðjan júní.
Runnu á mann tvær grímur
„I>að var svo á föstudagskvöldi í
byrjun júní að kallið kom og aðfara-
nótt sunnudags var ég komin upp í
fiugvél á leið til Amsterdam. Þaðan
lá leiðin til Jeddah í Saudi Arabíu
og áður cn ég vissi af lékk ég svart-
an kufi og slæðu og mér bannað að
fara út fyrir hússins dyr án þess að
klæðast þcssu. Þá l'yrst runnu á mig
tvær grímur; livaö í ósköpunum var
ég nú búin að þvæla mér í? Næsta
áfall var síðan fyrsta fiugið. Þotan
fylltist af gömlu fólki þar sem mcð-
aldurinn leit út l'yrir að vera ein-
hvers staöar á niilli 80 og 100 ár.
Allir vom eins klæddir og allir ro-
guöust meö 20 lítra vatnsbrúsa
ásamt kynstrunum öllum af pinklum
og pokum. Það var ótrúlcgt livað
þctta gamla fólk gat borið. Sam-
skiplin við það fóru að mestu frant á
einhvcrs konar táknmáli og í Ijós
kom að þetta var hið indælasta
fólk."
Ekki mestu snyrtimenni
heims
Agnes segir að hún hafi ekki vitað
við hverju hún ætti að búast þegar
út kæmi cn segist hafa viljaö hafa
vaðiö fyrir neðan sig og því gripið
mcð sér helstu hreinlætisvörur, tók
t.a.m. með sér sjampóbirgðir til
margra mánaða.
„Maöur hefur heyrt að þcir séu
ekki mestu snyitimemii heims og
því kont þaö mér á óvart að það er
allt til þama. Verslunamiiðstöðvani-
ar citJ glæsilegar og matvörtibúðim-
ar mjög góðar. Reyndar sjá arabam-
Agncs Smúrudúttir t.h. ásumt Ás-
gerði Júhunnsdúttur, sem einnig cr
frá Akureyri. Eins og sjá má cr hár
þeirru vundlegu fulið.
ir ekki um matvælafranúeiðsluna
sjálfir og þania var danskur mjólk-
urmatur og franskir ostar mcöal
þess sem var á boðstólnum. Þetta
var mikill kostur því það er slæmt
að þurfa endalaust að vera að liafa
áhyggjur af því hvort manni sé
óhætt að láta þelta eða hitt ofan í
sig. Við sluppunt að vísu ckki því
við fengum aðeins aö kyimast þess-
ari hlið mála í Egyptalandi þar sem
klósettfcrðir „fiugfólksins“ uröu
heldur fieiri en æskilegt hefði verið.
I Jedda var vestræn „menning" í há-
vegum höfð og á næsta götuhomi
slóð Pizza-Hut, Kentucky Fried eða
dýrindis ítalskur nialsöluslaður."
Sér inngangar fyrir konur
Það var þó ekki svo að ailt liafi vcr-
iö eins og Agnes álti að venjast.
Næturlífið ekkert; engin kvik-
myndaliús og mcðferð víns algcr-
lega bötmuð. Sjáist vín á manni
þama cr hann umsvifalaust hýddur
i'jörutíu sinnum. Refsilögin cru
frumstæð og t.d. ent opinberar af-
tökur nteð sverðum í miðborg
Jeddah fiesta föstudaga. Þehrí iðju
að höggva hendur og fætur á opin-
berum vettvangi er hætt og nútíma-
tækni sjúkrahúsanna er notuö til
þess að afiima þjófa þess í staö.
Viðhorf til kveima cru heldur ekki
alveg í samræmi við það sem þekk-
ist á Islandi.
„Viðhorfið tii kvenna er með
ólíkindum og það tók tíma að venj-
ast því að þurfa alltaf að ganga um í
síða kufiinum og nteö slæöu yfir
hárinu. Við sluppum þó viö að hylja
andlit okkar eins og arabískar konur
þurfa aö gera. Sunts staðar er kon-
urn ekki heimill aðgangur og víóa í
verslunum málti sjá skilti þar sent
hundum og konum (í þeini virðing-
attöð) er meinaöur aðgangur. Sér-
staklega man ég eftir plötu- og ís-
búðunt meö lúgum þar sem konur
gátu fengið þjónustu. A veitinga-
stöðum sér maður vitanlega bara
karlmcnn. Konur þurfa að fara inn
um sér innganga og þeim er gert að
sitja uppi á lofti þar sem dregið er
l'yrir glugga."
í sund í öllum fötunum
Þótt vestrænu konunum hafi oft ver-
ið misboðið í þessu karlaríki íslants
þá segir Agnes að ekki sé hægt að
líta á þessi viðhorf eingöngu frá nci-
kvæöunt „kúgunarsjónarhóli".
Tvennt geti kornið til greina.
„I sumum tilvikum held ég að
konan sé hreinlega ekki samboóin
körlunt og sé álíka hátt skrifuð og
heimilishunduriim en í öðrum hylur
hún sig vegna þess hún er perla
heimilisins og fegurð hemiar þar af
Kinn af þcssum gömlu sem roguðust
um með 20 lítru plastbrúsa og
kynstrín öll af pinklum.
lciðandi ekki ætluð öðrum. Innan
veggja heimilisins klæðist konan
því sem henni sýnist en annars stayV
ar gilda nijög strangar reglur. Eg
varö til að ntynda ákafiega hissa
þcgar ég sá konur stinga sér til
sunds í alhi „múnderinguimi" jafn-
vel þótt unt sér kvennatíma hafi að
sjálfsögóu verið að ræða og allt í
laingum sundlaugina margra metra
háir stcyptir veggir til að koma í vcg
l'yrir að citthvað sæist inn. Eg trúði
vaft mínum eigin augum fyrst þegar
ég sá þetta. Reyndar cni sumar kon-
ur, þær sem em öruggasUir með sig,
ekki cins mikið klæddar og l'ara í
e.k. leikl'imisfötum ofan í sundlaug-
ina.
Setjast að á Akureyri
Þótt maöur hafi ol't þurft að bíta á
jaxlinn og tclja upp aó tíu til þess aö
missa ekki stjónj á sér þegar kom aö
öllum boðunum og bönnunum þá
var þetta mjög skemmtilegur tími
og geysilega góð lífsreynsla. Það
var skrýtiö að konia út og sjá livað
fólkið býr við mikinn aga, aga þar
scm orð Kóransins eru lög. Manni
brá óneitanlega við að koma úr aga-
lcysinu hér lieima. í Jeddali er öll
háreysti böimuð og maður fann fyrir
því hvcrsu hljótt hafði vcriö þar
þcgar viö stoppuðum í London á
leiöinni licim."
Agncs segir að allt sé óráðið
varðandi framtíðina hjá sér. Eftir
læknisl'ræðina hér heima og aö
kandídatsári loknu verði stefnan sett
á séniám erlendis.
„Síðan stefnir maður alltaf að því
að sctjast að á Akureyri og eignast
þar fjölskyldu,“ segir Agnes Srnára-
dóttir, Akureyringur og læknanemi
við Háskóla íslands. SV
KOUPASS
Notaðu KOMPASS
sem brú til betri
reksturs.
Sími 91-654690
Fax 91-654692
Bæjarhrauni 10-200 IlafnarDrði
FYRIRTÆKI
í FISKIÐNAÐI
Stöplafiskur hf. í Reykjahreppi S.-Þing. auglýsir eftir
samstarfsaðilum um starfsemi sína sem er harðfisk-
verkun, áformuð framleiðsla á gæludýrafóóri og önnur
tengd starfsemi.
Um getur verið aó ræða útgeróarfyrirtæki eða sjómenn
sem lagt geta til afla, söluaðili, aðili sem vill verða
meöeigandi og/eóa sjá um rekstur fyrirtækisins.
Til greina kemur aó leigja út starfsemi fyrirtækisins.
íbúðarhús er laust á staðnum sem stendur.
Þeir sem hafa áhuga geta snúið sér til Þorgríms í síma
96-43918 og Þorsteins í síma 96-43926.
Laus staða
Staða skrifstofustjóra viróisaukaskattsskrifstofu skatt-
stofu Reykjavíkur er laus til umsóknar og veitist frá 1.
desember 1993.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lögfræði, hag-
fræði eóa viðskiptafræði eða hafa aflað sér víðtækrar
sérmenntunar eða sérþekkingar um skattalöggjöf og
framkvæmd hennar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 22. nóvem-
ber 1993.
Fjármálaráðuneytið, 28. október 1993.
YVA
HITA- OG VATNSVEITA
AKUREYRAR
Utboð
Hita- og vatnsveita Akureyrar óskar eftir tilboð-
um í einangruð stálrör „Hitaveiturör“.
Um er að ræða u.þ.b. 10.800 m (900x12 m), 175
mm stálrör einangruó í plastkápu, ásamt tilheyrandi
samsetningum. Utboðsgögn fást hjá V.S.T. Glerár-
götu 30, Akureyri.
Tilboðsfrestur er til 23. nóvember nk.
Hita- og vatnsveitustjóri.
Akureyrarkirkja
óskar eftir starfskrafti, „húsmóður“, í fullt
starf, frá og með 1. jan. 1994.
Til greina kemur að tveir skipti starfinu með sér.
Verksvið: Ræsting og umsjón meö veitingum í kapellu
og Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Laun samkv. samningum Einingar.
Upplýsingar og eyðublöð er að fá hjá Endurskoðun
Akureyri hf.
DDRÁÐNINGAR
Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600
„Égheld
ég gangi heim “
Eftir einn -ei aki neinr
m|UMFERÐAR
lÍRÁÐ