Dagur - 22.12.1993, Side 12
12 B - DAGUR - Miðvikudagur 22. desember 1993
BÓKARKYNNINO
Lífsgleði nefnist ein nýútkominna bóka. í
henni segja sjö þekktir samferðamenn, sem
komnir eru á efri ár, frá viðburðaríku lífí,
skemmtilegum persónum, gildi trúar og já-
kvæðs lífsstíls og fleiru. Þeir sem segja frá eru
Aslaug S. Jensdóttir, Einar J. Gíslason, Sigfús
Halldórsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
Kristinn Þ. Hallsson, Sigríður Rósa Kristins-
dóttir og Pétur Sigurðsson. Þórir S. Guðbergs-
son skráði en útgefandi er Hörpuútgáfan.
„Hvað gerðir þú við
kústinn, strákur“
Hér á eftir fer brot úr bókarkaflan-
um um Pétur Sigurðsson, fyrrum
alþingismann og formann Sjó-
mannadagsráðs. Millifyrirsagnir
cru blaósins.
Furðulegur farmur
Árið áður hafði faóir minn verið
meó bátinn í starfi hjá bandaríska
setuliöinu og siglt honum einn
suður. Menn geta rétt ímyndað sér
hversu auðvelt verk þaó hefur ver-
ið með þeirra tíma útbúnaói.
En nú vorum við sem sagt
tveir. Þegar fréttist af ferðum okk-
ar áskotnaóist okkur fremur l’urðu-
legur farmur. Hann samanstóð af
karli, kerlingu, syni þeirra, kusu,
hundi og ketti sem voru heimilis-
föst í Steingrímsfirði en þurftu að
fá far norður í Bjarnarfjörð vegna
ílutninga á búslóð og ætlaði karl-
inn að vera leiðsögumaóur innan
skerja því aó pabbi sagðist ekki
þekkja þar til siglingaleiða. Þegar
til kom vissi karlinn hvorki skil á
einu né neinu svo að faöir minn
þurfti að sigla eftir sýnilegum
skerjum, þaranum og tilfínning-
unni.
Eg hef oft hugsað um það síðar
hvað þetta er dæmigert fyrir lífið
sjálft. Við þurfum aö sigla eftir
sýnilegum skerjum, „þara", til-
finningu og eigin brjóstviti.
Kusa var bundin við mastrið og
stóð þar gleiðfætt og sýndi lítil
merki hræðslu en kerlingin og
strákurinn sem voru fram í líka
ældu og ældu svo að ég mátti
hlaupa meó æludallana til skiptis
fram og aftur. I öðru oróinu æpti
kerling á bónda sinn en spurði um
Skjöldu í hinu. Eg sagði henni að
Skjalda væri veikari en hún sem
þá fann til meó blessaóri skepn-
unni. Hundurinn ældi en kötturinn
svaf vært í minni koju. Fjölskyld-
unni skiluðum við af okkur til
Bjarnarfjarðar en héldum síðan
noróur með Ströndum.
Lærdómsrík ferð
Ég lærói mikið í þessari ferð.
Pabbi sagði mér hvernig stýra
skyldi og gaf mér mið en fór sjálf-
ur aö leggja sig. Átti ég aó hafa
Hornió vel laust. Var þetta mín
fyrsta kennsla í siglingafræði og
fannst mér að full nálægt væri
siglt frá Horni og breytti því um
stefnu út.
Einhverra hluta vegna kom
pabbi upp til að aðgæta eftir um
þaó bil klukkustund, en hann ætl-
aði að sofa í tvo til þrjá klukku-
tíma.
Hann rýkur að stýrinu og snars-
nýr því um leið og hann spyr:
„Ertu snarvitlaus, drengur? Hér
eru alls staðar sker framundan."
Eftir þetta breytti ég aldrei út af
skipunum yfirmanna sem sögðu
mér að stýra ákveðna stefnu.
Síðast var ég með föður mínurn
á Haföldunni vorið 1944 en þá var
bróðir minn, Guöjón, einnig með.
Eftir að Hafaldan varó öli varö ég
að leita mér að vinnu í landi þegar
skóla lauk. Þar var þó ekki feitan
gölt að flá. Ég stundaði verka-
mannaskýlið og elti Jón Rögn-
valdsson, verkstjóra hjá Eimskip,
eins og hinir og í lengstu lög von-
aði maður að hann mundi pikka
sig úr hópnum.
Mér þótti þetta óskaplega leið-
inlegt, ekki síst að sitja við spil
heilu morgnana í verkamanna-
skýlinu. Ég Iagði mig því allan
fram um að komast á sjó og svo
vildi til að ég komst á togarann
Þórólf vegna vináttu við þá tví-
burabræður Sigurð og Gísla Kol-
beinssyni, syni skipstjórans Kol-
beins Sigurössonar, en þeir höfðu
verið með mér í gagnfræðaskólan-
um.
Maríus Guðmundsson, sjómað-
ur, sem byrjaði með pabba á sjó
ungur aö árum sagði mér margar
sögur af sjóferðum þeirra og skap-
aðist mikil vinátta milli föður
míns, Maríusar, bræðra hans og
foreldra sem bjuggu aó Görðum í
Beruvík. Raunar gilti þaó einnig
um flest fólkið sem bjó þar undir
Jökli og margir voru með pabba
um Iangt árabil til sjós.
Eftir því sem árin færast yfir
verður mér æ oftar hugsað til þess
hvaó vinátta er manni mikils virði.
Vináttan er eitt af þeim verómæt-
- kafliúr
bókinni
„Lífsgleði“
um í lífinu sem ég met hvaö mest
þegar ég hugsa til baka.
Hrakfarir
Maríus eða Malli eins og ég kall-
aði hann jafnan segir svo frá að í
síðustu siglingu Hafaldar hafi þeir
verið þrír á bátnum og voru aó
fara suður fyrir Jökul í slæmu
veðri þegar Hafaldan „sló úr sér“
og fylltist af sjó svo ekki var um
annað að gera en að sigla henni
upp í Skarðsvík. En þeir voru á
siglingu þar skammt undan.
Kom þá tvennt til greina, að
sigla sem næst klettum sem þar
skaga fram eða sigla henni upp í
sandinn. Enginn þeirra var syndur
nema pabbi. Hann valdi svo þann
kostinn að hleypa upp í sandinn.
Batt hann um sig langa línu og
sagöi Maríusi að binda síðan um
Lárus og síðan endann um sjálfan
sig, en hann yrði síðan að velja
lagió fyrir Lárus.
Síðan syndir pabbi í land og
gefur Maríusi merki um að nú
megi hann láta Lárus koma á
næsta lagi. Lárus var hins vegar
ekki of hrifinn af þessu fyrir-
komulagi. Tvö lög komu en ekki
fékkst Lárus til að stökkva. Marí-
us kallar þetta í land en pabbi kall-
ar þá á móti:
„Hentu þá helvítis karlinum í
sjóinn."
Það var svo gert og Lárus dreg-
inn í land. Því var varla lokió þeg-
ar ógnarsjór kom og reió undir
bátinn. Við þaó kastaðist báturinn
alllanga leið og upp á klappirnar
svo að Maríus gat gengið þurrum
fótum í land. Mjög þungfært var í
landi vegna snjóalaga og langt til
byggöar sem var bær og viti á
Öndverðarnesi.
Til allrar hamingju höfðu þeir
haft vit á því að troóa asmalyfjun-
um í vasa pabba. Annars er ekki
að vita hvernig farið hefði. Studd-
ist hann við Maríus en Lárus fyldi
á eftir. Þegar kom að vitanum á
Svörtuloftum var pabbi orðinn all-
þrekaður enda rennandi blautur í
kuldanum og mjög sjúkur af and-
þrengslum. Hjá vitaverðinum og
fjölskyldu hans var vel tekið á
móti þeim og þeir háttaðir niöur í
rúm og náðu sér furóu fljótt.
Malli vann þarna mikió þrek-
virki enda hraustmenni, fylginn
sér og ósérhlífinn.
Þannig er líka óhætt að segja
að lífiö hér á Islandi hafi verið
þrotlaus barátta frá upphafi land-
náms. Barátta vió náttúruöfl og
drepsóttir, barátta vegna gæfta-
leysis, atvinnuleysis og hvers kyns
óáran. Oft barátta upp á líf og
dauða eins og þcssi saga sýnir
okkur.
En þjóð sem stendur saman og
er einhuga um aó komast af og
leysa vandann lyftir grettistaki.
Og þar megum við hvorki láta
hreppapólitík glepja okkur sýn ef
við viljum lifa af.
Fyrir borð
Eftir vorið 1944 var ég aðeins
einu sinni á bát með pabba. Hann
var þá með rcknetabát og mátti
ekki róa nema stýrimaður væri
skráóur á bátinn. Togarinn sem ég
var þá á var í siglingu og ég kom-
inn með mína stýrimannapappíra,
það er aö segja fiskimannaréttind-
in.
Ég fór því með gamla mannin-
um og við komum reknetum
þokkalega í sjóinn. Tekið hafði
BÆKUR
Gargantúi og
PantagrúU
- heildarverk franska
skáldjöfursins Rabelais
Mál og menning hefur sent frá sér
eitt af höfuðverkum heimsbók-
menntanna, skáldverkið Garg-
antúi og Pantagrúll eftir Francois
Rabelais (1484-1553).
Þetta er flokkur fimm skemmti-
sagna sem löngum hafa verið sett-
ar á stall með verkum helstu höf-
unda mannkynsins, s.s. Shakespe-
are, Dante og Cervantes. Höfund-
urinn, Francois Rabelais, var
munkur, læknir, húmoristi og
mannvinur. Hann var einn þeirra
sem lögóu grunninn að Endur-
reisninni á sínum tíma og margir
eru þeirrar skoðunar að hann hafi í
þessu verk' lagt grunninn að evr-
ópsku skáldsögunni.
I kynningu frá útgefanda segir
m.a.: „Lesandinn er í þessurn
vcrkum leiddur inn í töfraheim þar
sem allt getur gerst: barn fæðist út
um eyrað á móður sinni, risi
drekkir sex hundruð þúsund og
fjórtán Parísarbúum í hlandflóði,
maður leggur í langferð til að leita
sér að konu en þorir ekki að láta
til skarar skríða af ótta við að
verða kokkálaður, og svo fram-
vegis. Sögurnar eru sagðar af frá-
sagnargleði og húmor sem lair
hafa leikið eftir, en að baki glettni
höfundar býr þekking, viska og
snörp ádeila höfundar sem var
fjölfróðari en fiestir samtímamenn
•4 Pétur Sigurðsson.
verið úr lunningunni til að koma
fyrir netarúllu en á henni voru net-
in dregin inn. Var hún dregin meó
vírmannillutói sem tengt var línu-
spilinu. Við vorum að gera þetta
klárt og sátum sinn hvorum megin
á lúgunni og splæstum vírmanill-
una hvor sitt splæs.
Meö okkur var ungur maður
austan úr Flóa í nýjum stakk, nýj-
um stígvélum og með nýjan sjó-
hatt. Pabbi hafói sagt honum að
sópa þilfarið því að þar voru mikil
óhreinindi eftir að netin voru
komin í sjóinn.
Allmikill veltingur var og veit
ég ckki fyrr en ég sé undir nýju
stígvélin þegar hásetinn steyptist
út um skarðiö í lunningunni og
fyrir boró. Báturinn veltur yfir
einu sinni en þegar hann veltur til
baka var ég kominn á magann og
búinn aó skorða mig af mcó lapp-
irnar upp með Iunningu, teygði
mig út um skarðið sem gert var
fyrir netarúlluna og náði í háls-
málið á kauöa sem flaut á loftinu í
stakknum en var að súpa sjó. Ég
hélt í hann scm ég mátti og var í
hverri veltu á kafi upp að öxlum
cn sleppti ekki.
Ég finn svo að heldur sterklega
er tekió um annað lærió á mér.
Var þar pabbi kominn og hélt fast.
Raunar svo fast að ég var blár og
marinn eftir hann í langan tíma.
Við fórum svo að hrópa og
kalla og þcir heyróu til okkar há-
setarnir sem voru að iaga kaffi
frammi í lúkar og svo fór að þrí-
björn togaði í tvíbjörn og tvíbjörn
í cinbjörn, einbjörn í karlinn - og
að lokum náðum vió stráksa inn
fyrir hálf kjökrandi og stígvéla-
lausum. Það þótti honum mikill
skaði og tvísýnt hvort lífgjöfin
bætti stígvélamissinn.
En pabbi spurði hann aðeins:
„Hvaó geróir þú vió kústinn,
strákur?“
Það var eina huggunin scm
hann fékk frá formanninum.
hans. Ádeila hans á valdapot,
menntasnobb, vanahugsun og
helgislepju hverskonar kom illa
viö kauninn á mörgum samtíma-
mönnum hans, cinkum valda-
mönnum kóngs og kirkju. Allar
götur síóan hafa menn skipst í tvö
horn í afstöóunni til verka Rabela-
is. Enda eru verk hans háskaleg
fyrir þá sem ekkert skopskyn hafa.
Fyrir alla aðra eru þau gríðarleg
veisla.“
Erlingur E. Halldórsson ís-
lenskaði bókina, sem er 907 bls.
að stærð. Bókin er unnin í Prent-
smiðjunni Odda.
Andri og Edda
Almcnna bókafélagið hefur gefið
út þrjár nýjar bækur um Andra og
Eddu og kynnir þar með nýjan
bókaflokk eftir norsku verðlauna-
rithöfundana Tor Age Bringsværd
og Anne Holt.
Andri og Edda eru 4 ára og eru
bæði aó byrja í lcikskóla. Andri
hlakkar mikió til að byrja í leik-
skólanum, en er líka kvíðinn.
Fyrsta daginn í leikskólanum
kynnist hann Eddu, sem líka er
nýbyrjuð. Þau veröa góóir vinir og
hjálpa hvort ööru þegar þeim
reynist erfitt að sætta sig vió leik-
skólalífið.
Bókin er skreytt fjölda lit-
mynda. Bækurnar um Andra og
Eddu hafa hlotið lof gagnrýnenda
í þcim löndum þar sem þær hafa
komið út. Bækurnar eru fyrir börn
á aldrinum 2-5 ára. Þær eru um 32
síður hver og kosta 690 krónur.