Dagur - 22.12.1993, Blaðsíða 20

Dagur - 22.12.1993, Blaðsíða 20
Akureyri, miðvikudagur 22. desember 1993 SHÁAVGLÝSINGAR okkar ERV STÆRRIEN ÞV HELDVR! Verð miðað við staðgreiðslu er 1.300 hrénur fyrsta birting eg hver endurtekning 400 hrénur. J j) smáauglýsingar á krénur M) 'J 'V Sæplast hf. á Dalvík: Reksturinn gengur vel Börnin á Hamarkoti og Brekkukoti á Akureyri, hcldu fyiktu liði ásamt starfsfóiki á bæjarskrifstofurnar í gærmorg- un og sungu þar Lúsíusöngva fyrir starfsfólk. Þessi uppákoma vakti að vonum mikla athygii og kunni starfsfólk vel að meta hana. Frá bæjarskrifstofunum héldu börnin á Iðavclli, sameinuðust í söng með börnunum þar og drukku saman. Þaðan héldu börnin niður á Ráðhústorg og sungu þar saman jólasöngva og dönsuðu kringum jólatréð. Mynd: MH Vaxandi líkur á sjómannaverkfalli: Sanuimgaviðræðum slitið Á mánudagskvöldið slitnaði upp úr samningaviðræðum sjó- manna og viðsemjenda þeirra eftir að fulltrúar SSÍ, FFSÍ og VFÍ höfðu setið daglangt í við- ræðum við fulltrúa VSI í Karps- húsinu undir stjórn ríkissátta- semjara. Ástæða þess að upp úr slitnaði er sú að fuiltrúar Vinnuveitendasambandsins telja að sjómenn séu að fara út í verkfall sem beinist að stjórn- völdum en ekki viðsemjendum þeirra og hafa því vísað deilunni til félagsdóms. Félagsdómur skal skera úr um réttmæti verk- fallsboðunarinnar. Þar er fyrst og fremst höfðað til þess að sjó- menn hafa sett það á oddinn í komandi kjaraviðræðum að ekki megi þvinga þá til þess að taka þátt í kvótakaupum. „Að sjálfsögðu höfum við talið að okkar kröfur beindust að okkar viðsemjendum og teljum okkur hafa nægjanleg rök því til stuón- ings. Við erum með í höndunum yfirlýsingu frá okkar viðsemjend- um frá árinu 1992, þar sem reynt er með kjarasamningi að koma í Loðnusjómenn í jólafrí: Heildarafli 450 þús. tonn Vegna ótíðar hafa allir loðnu- bátar hætt veiðum og haldið í jólafrí. Það jólafrí kann hins vegar að lengjast eitthvað ef af sjómannaverkfalli verður, en eftir að upp úr samningum slitnaði í fyrradag hafi líkur fyr- ir því aukist. Hæsta löndunar- höfnin er Siglufjörður með 96.067 tonn og síðan Seyðis- fjörður með 60.339 tonn. Á Raufarhöfn lönduðu fjórir bátar um sl. helgi, Albert GK, Grindvíkingur GK, Björg Jóns- dóttir ÞH og Örn KE, samtals 867 tonnum og þar hefur því verið VEÐRIÐ Stóra lægðin er enn fyrir austan land og því verður norðanáttin áfram viðvar- andi en búist er við aö held- ur dragi úr henni í dag. Einnig mun draga nokkuð úr frosti. Um norðanvert landið er gert ráó fyrir minnkandi norðanátt og einnig minni úrkomu. Þó má búast við einhverjum élja- gangi - einkum á annesjum. landað 58.934 tonnum. í Krossa- nes komu tveir bátar, Víkurberg GK og Guðmundur Ólafur ÓF og er búið að landa þar 26.465 tonn- um. Engin loðna barst til Þórs- hafnar eóa Vopnafjarðar um helg- ina en Júpíter ÞH landaði 333 tonnum í Bolungarvík. Heildar- löndun á Þórshöfn er 35.402 tonn en 15.847 tonn á Vopnafirði. GG veg fyrir kvótabrask en því miður hefur það ekki haldið. Vió viijum því tryggja okkar umbjóóendum að ekki komi til að þeir verði þvingaóir til kvótakaupa. Við vildum að þeir frestuðu málskot- inu til Félagsdóms meðan reynt yrði að ná samningum en á það féllust þeir ekki og því töldum við það tilgangslaust að hafa viðræð- um áfram,“ segir Óskar Vigfús- son, formaður Sjómannasambands Islands. Óskar hefur lýst því yfir, m.a.í fundaherferð Sjómannasamtak- anna fyrr í haust, að hann byggist ekki viö löngu verkfalli. Er hann enn sama sinnis? „Eg býst ekki við löngu verk- falli þrátt fyrir málskotið til Fé- lagsdóms. Vió erum boðaðir á fund Félagsdóms klukkan fjögur á morgun (miðvikudag, innsk. blm.) en ég vil ítreka aó ábyrgðin vegna seinkunar kjarasamninga er öll á heróum Vinnuveitendasambands- ins.“ Viss ótta gætir meðal sjómanna unt að sett verði bráðabirgðalög til lausnar kjaradeilunni, þar sem Al- þingi kemur ekki saman aö nýju fyrr en 24. janúar nk. GG Rekstur Sæplasts hf. á Dalvík hefur gengið vel á þessu ári. Sala á framleiðslu fyrirtækisins hefur farið fram úr björtustu vonum og stefnir í að um nokkra veltuaukningu verði að ræða milli ára. Framleiðsla hef- ur verið í gangi allt árið á sóiar- hringsvöktum 5 daga vikunnar og verður unnið á vöktuni út ár- ið til að framleiða upp í fyrir- liggjandi pantanir. Sala fyrirtækisins hefur skipst nokkuð jafnt milli innanlands- markaðar og útflutnings á árinu. Sala á fiskkerum hefur verið svip- uð og á sl. ári og nýir markaðir hafa bæst við, auk þess sem hefð- bundnir markaðir hafa verið sterk- ir, eins og segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Þannig hefur sala til Danmerk- ur verið mjög mikil og hefur um helmingur af útfluttum kerum ver- ið seldur þangað. Á meðal nýrra markaðssvæða má nefna Rúss- land, Indland, Indónesíu, Malasíu, Grikkland og Sameinuðu arabísku furstadæmin. Framleiðsla ársins er um 16 þúsund ker en það er svip- uð framleiðsla og á síðasta ári. Sala á trollkúlum hefur verið góö á árinu og nokkuð betri en í fyrra en aftur hefur skipting söl- unnar breyst nokkuð. Söluaukning hefur orðið á innanlandsmarkaói en nokkuð hefur dregið úr sölu er- lendis. Sala á rotþróm hefur verið góð á árinu og hafa selst vel yfir 300 rotþrær það sem af er árinu. Af nýjum framleiðsluvörum er það að frétta, að verið er að leggja síðustu hönd á þróunarvinnu við tengibrunna fyrir fráveitulagnir og verður hafin sala á þeim í upphafi næsta árs. Þótt erfitt sé að spá fram í tímann, eru forsvarsmenn Sæplasts bjartsýnir á rekstur fyrir- tæksins í nánustu framtíó. KK Fosshóll: Árekstur á brúnni Tveir fólksbílar skullu santan á brúnni yfir Hrúteyjarkvísl, rétt hjá Fosshóli, um miðjan dag á mánudag. Tvær konur úr öðr- um bílnum voru fluttar með sjúkrabíl til Húsavíkur. Þær reyndust ekki alvarlega slasað- ar, en önnur var lögð inn yfir nótt vegna heilahristings. Bílarnir skemmdust mikið og voru báðir óökufærir. Hálka var á slysstað. 1M Akureyri: Friðarganga á Þoriáksmessu Á morgun, Þorláksmcssu, verð- vænta aðstandendur göngunnar á ur efnt til friðargöngu á Akur- Akureyri að hér nyrðra geti hún eyri. einnig oróió árviss atburóur á Þor- Gengið verður frá bílastæði láksmessu. óþh Menntaskólans við Hrafnagils- stræti, nióur Eyrarlandsveg, Kaup- vangsstræti, göngugötuna og út á Ráðhústorg. Gangan hefst kl. 20. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju og Kór Glerárkirkju leióa jólasöng í göngunni. Á Ráðhústorgi verður llutt stutt ávarp og að lokum verð- ur sunginn jólasálmurinn „Heims um ból“. Gengió verður með kyndla og geta þeir sem vilja keypt þá á kostnaðarverði við upphaf göngunnar. Aðstandendur frióargöngunnar hvetja fólk til að taka sér örstutt fri frá hefðbundnum jólaundirbún- ingi, íhuga friðarboóskap jólanna og eiga eftirminnilega samveru- stund. Til fjölda ára hefur verið efnt til friðargöngu á Þorláksmessu í rniðbæ Reykjavíkur. Þátttaka í henni hefur vaxið ár frá ári og Fjárlögin: Heimild tfl að selja hlut í skólabyggingum á Laugalandi Við afgreiðslu fjárlaganna á Al- þingi í fyrrinótt voru samþykkt- ar ýmsar breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar sem fela í sér heimildir til handa fjármálaráðherra. Eftirfarandi liðir taka til Norð- urlands. Heimild til að: - Selja allt að 7 ha landspildu ásamt útihúsum á jörðinni Lauf- túni í Seyluhreppi í Skagafirði. Selja allt að 20 ha úr jörðinni Löngumýri í Seyluhreppi í Skaga- firöi. - Selja eignarhluta ríkisins í fasteigninni Mímisvegi 16 á Dal- vík. - Selja eignarhluta ríkissjóðs í skólabyggingum að Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. - Selja 15 ha landspildu úr jörðinni Laxamýri í Reykjahreppi Suður-Þingeyjarsýslu. - Kaupa húsnæði fyrir Háskól- ann á Akureyri og taka til þess nauðsynleg lán. - Kaupa eða leigja húsnæði fyrir Fræðsluskrifstofu Norður- lands eystra á Akureyri og taka til þess nauðsynleg lán. - Leggja fjármagn í Vinnu- matssjóð Háskólans á Akureyri í samræmi vió kjarasamninga þegar reglur um vinnumatskerfi hafa verið afgreiddar. óþh Vandaðir djúpsteikingar- pottar Frá kr. 6.480,- H KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 íslenskt og gott Byggðavegi 98 Opið til kl. 22.00 alla daga

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.