Dagur - 22.12.1993, Blaðsíða 13

Dagur - 22.12.1993, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 22. desember 1993 - DAGUR - 13 -tt- Jólamyndir Borgarbíós: » H- „Maður án andlits“ og „Krunnnarnir11 Jólamyndir Borgarbíós á Akur- eyri eru tvær að þessu sinni og er um frumsýningu að ræða í báðum tilfellum, í samvinnu við stóru bíóhúsin syðra. Hér eru á ferðinni bandaríska stórmyndin „Maður án andlits“, og hin danskættaða „Krummarnir“, sem er leikin mynd fyrir alla Qölskylduna - og það sem meira er - með íslensku tali! Frumraun Gibsons sem leikstjóra „Maður án andlits“ (The Man Wit- hout a Face) er fyrsta kvikmyndin sem ástralska stórstjarnan Mel Gibson leikstýrir en hann leikur jafnframt aðalhlutverkið. Myndin fjallar um vináttusamband sem tekst á milli tólf ára drengs og manns sem þarf að berjast við skugga fortíðar sinnar. Söguþráðurinn Justin McLeod (Mel Gibson) hefur verið utanveltumaður þau sjö ár sem hann hefur búið í hinu frið- sæla sjávarþorpi, Cranesport. Hió skaddaða andlit hans og dulúðin, sem fortíð hans er sveipuð, hafa orðið tilefni kjaftagangs og hæðni þorpsbúa. I gangi eru alls kyns sögur, m.a. um hryllilegt umferðar- slys sem hann lenti í, ncmenda hans sem lét lífið og glæsilegan kennsluferil, sem tók skyndilega endi. Hinn 12 ára gamli Chuck Norst- adt (Nick Stahl) er einnig utanveltu en þó fyrst og fremst innan fjöl- skyldu sinnar. Hann býr hjá tveim- ur hálfsystrum sínum og daður- gjarnri móður sinni sem er í þann veginn að krækja í fimmta cigin- manninn. Chuck á aðeins óljósar minningar um látinn föður, sem hvarf honum þegar Chuck var cnn smábam. Ovissan varðandi fööur- hvarfið og sú tilfinning að hann sé óvelkominn í eigin tjölskyldu, hafa gert Chuck fjarrænan og í eilífri varnarstöðu á ytra borðinu en innra með honum býr mikil óhamingja. Hann er staðráðinn í að skapa sér hlutverk í lífinu þar sem hann þarf ekki að standa í samkcppni við systur sínar og hyggst hann eyða sumrinu í Cranesport til að undir- búa sig undir inntökupróf í heima- vistarskóla, sem faðir hans hafði verió nemandi í. Chuck hefur þeg- ar fallið á prófinu einu sinni og þess vegna snýr hann sér til McLcods í leit að aóstoð við nám- ið. Eftir því sem Iíður á sumarið læra bæði Chuck og McLeod meira en þeir höfðu vænst í upp- hafi. Vinátta þeirra þróast í einlæg og falslaus skoöanaskipti, sem reynast báóum gagnleg og varpa nýju og mikilvægu ljósi á líf þeirra. Chuck uppgötvar náms- hæfni sína og greind, traust og um- burðarlyndi en McLeod uppgötvar á ný hæfileikann til að tengjast annarri manneskju og ánægjuna sem fylgir því aó vera í kcnnarar- Mel Gibson í „andlitslausa mannsins“. hlutverki Hinn ungi Nick Stahl þykir fara frábærlega með hlutverk Chuck Norstadt í mynkinni „Maður án andlits“, þótt um sc að ræða frumraun lians í kvikmyndaleik. sig um að leika aðalhlutverkið meðfram leikstjórninni! Hrifnir gagnrýnendur Frammistaða Gibsons í kvikmynd- inni, beggja vegna myndavélarinn- ar, hefur hvarvetna hlotið mikið lof gagnrýnenda og þar sem myndin hefur verið tekin til sýninga hefur aðsókn verið geysigóð. Þá spillir þaö ekki fyrir velgengni myndar- innar að Nick Stahl þykir sýna sannkallaðan stjömuleik í hlutverki unga drengsins en þetta er frum- raun hans í kvikmyndaleik. „Maö- ur án andlits" þykir líkleg til ósk- arsverðlauna og þeir sem leggja leið sína í Borgarbíó geta dæmt um hversu vel hún væri aó slíkri til- nefningu komin. Myndin er sýnd samtímis í Borgarbíói og Regnboganum í Reykjavík. „Krummarnir“: Dönsk/ „íslensk“ fjölskyldumynd! Hin jólamyndin í Borgarbíói er danska fjölskyldumyndin „Krummamir“ (The Crumbs), sem sló öll aósóknarmet í Danmörku á síðasta ári og þykir með fyndnustu myndum sem Danir hafa gert. Til marks um vinsældir myndarinnar má nefna að hún var sýnd fyrir fullu húsi í sex mánuði samfleytt í kvikmyndahúsum víða í Dan- mörku. Aðalpersóna myndarinnar er hinn 12 ára gamli sakleysingi, Crumb, sem býr meó fjölskyldu sinni í átta hæða fjölbýlishúsi. Faó- ir hans er kennari í bamaskóla bæj- arins, móðirin er nemi í öldunga- deild, systir hans er táningur og litli bróóir hans er rúmlega eins árs. Einn góóan veóurdag fá ná- grannar Cmmb góða ástæðu til að kvarta hressilega undan honum, því hann tekur til við vægast .sagt mjög sérstaka eldamennsku, ásamt Tom, vini sínum. Dauninn af elda- hlutverki. En þorpsbúar, sem vanir eru aó sjóöa saman og leggja trúnað á alls kyns sögusagnir um McLeod, fyll- ast tortryggni í garó mannsins sem þeir bæði óttast og skilja engan veginn. Móðir drengsins leggst á sveif með þeim og krefst þess að McLeod komi ekki nærri syni hennar. Og þá fer eitt og annað að gerast... Samdi við sjálfan sig Astalski leikarinn Mel Gibson er einn vinsælasti leikarinn í Holly- wood. Hann getur valió úr hlut- verkum enda hafa myndir hans síð- ustu ár allar reynst pottþéttar „að- sóknarmyndir“. Gibson fannst hins vegar tími til kominn að flytja sig hinum megin við myndavélina og prófa aó leikstýra og framleióa kvikmynd sjálfur. I þeim tilgangi stofnaði hann sitt cigið fyrirtæki, Icon, ásamt umboðsmanni sínum. Fljótlega rak á fjörur þeirra hand- ritið að „Maður án andlits" en þaó er gert eftir skáldsögu Isabelle Holland. Gibson ákvaó að slá til en ætlaði ekki upphaflega að leika að- alhlutverkið sjálfur. Sagan segir að hann hafi sent handritið til þriggja valinkunnra leikara en enginn þeirra verið til í slaginn, ýmist vegna anna eða þá aó þeir þorðu ckki að taka áhættuna á aö vera með í frumraun Gibsons sem leik- stjóra. Hann samdi því við sjálfan Crumb-fjölskyldan ræður ráðum sínum yfir Ieifunum af því scm Crumb Iitli mallaði í pottinum og gerði alla nágrannana snaróða. Svo vond ku fylan hafa verið að Þorláksmessufnykur af vei kæstri skötu þætti ilmur í samanburðinum! LETTIB b Hestamenn - Hesthúsa- eigendur! Tökum að okkur morg- ungjafir í hesthúsahverf- unum á Akureyri í vetur. Nánari upplýsingar veitir Stefán Erlingsson í síma 26163 eða 23258. Hestamannafélagið Léttir. mennsku þeirra félaga leggur inn í allar íbúóir fjölbýlishússins um loftræstikerfið og nágrannamir brjálast. Þeir láta skammimar dynja á foreldrunum og svo mikið gengur á að föðumum er misboðið fyrir hönd sonar síns. Hann ákveð- ur að flytja úr blokkinni og kaupa hús handa fjölskyldu sinni. Við flutninga fjölskyldunnar færist heldur betur fjör í leikinn. Crumb litli og Tom komast á slóð bankaræningja, sem eru álíka heimskir og þeir líta út fyrir að vera. Svo einkennilega vill til að þeir hafa falið pcningana í kjallara hússins sem fjölskyldan ætlar að kaupa... Þess utan lenda þeir félagarnir og fjölskyldan öll í margvíslegum ævintýrum og aðstæðum sem svo sannarlega kitla hláturtaugar áhorf- enda. „Krummarnir" er gerð eftir sögu rithöfundarins Thöger Birke- land en hann hefur skrifað alls þrjár bækur um ævintýri Crumb litla og hafa þær allar notið gífur- legrar hylli í Danmörku. Leikstjóri myndarinnar er Sven Methling en meó helstu hlutverk fara Laus Höj- bye, sem þykir frábær sem Crumb litli; Dick Kaysöc, Karen Lise Mynster, Line Kruse og Lukas Forchhammcr. Myndin er með íslensku tali, sem fyrr segir, og hafa margir þekktir leikarar Ijáó raddir sínar. Þeirra á meðal eru Jóhann Ari Lárusson, Sólveig Arnardóttir, Edda Heiðrún Backmann, Jóhann Sigurðsson, Sigurður Skúlason, Ari Matthíasson, Gísli Halldórsson og Róbert Arnfinnsson. Tækni- vinnu við hljóðsetningu stjómaði Þorbjöm Erlingsson. Myndir er sýnd samtímis í Borgarbíói og Háskólabíói. Jóiagjöf vélsleða- og útilífsfólksins ☆ Vatnsheld Moon Boots kuldastígvél með filt innleggi, auka filtsokkar ávallt til. ☆ Hjálmar, margar gerdir. ☆ Vélsleðagallar, margar gerðir. ☆ Þykkar fóðraðar skyrt- ur. ☆ Kortatöskur - vatnsþétt- ar farangurstöskur. ☆ Silva áttavitar á sleða. ☆ Bensínbrúsar, hanskar, aukahlutir. stöðin Tryggvabraut. Stansið ávallt við gangstéttarbrún % Opnunartími verslana umfram venju Miðvikudaginn .............22. desember 9-22 Fimmtudaginn ..............23. desember 9-23 Aðfangadag ................24. desember 9-12 Mánudaginn..................27. desember Lokað Gamlársdag.................31. desember 9-12 Kaupmannafélag Akureyrar. % Nýjar vörur - vandaóar vörur & Kaupmannafélag Akureyrar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.