Dagur - 28.12.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 28. desember 1993
FRÉTTIR
ÓlafsQörður:
Bæjarmáia-
punktar
■ Byggingamefnd hefur sam-
þykkt umsókn Einars Ámunda-
sonar um rekstur knattborðs-
stofu í bílskúmum vió Aðal-
götu 36. Nefndin gerði könnun
á viðhorfi íbúa í næstu húsum
gagnvart rekstrinum og sam-
þykkti umsóknina að fengnum
jákvæðum viðbrögðum þeirra.
■ í byggingamefnd hefur
einnig verið samþykkt að fá
Halldór Jóhannsson, landslags-
arkitekt á Akureyri, til að
skipuleggja svæðið noróan
hótelsins sem garð og útivistar-
svæði en lóð vestan hótelsins.
■ Heilbrigðisnefnd ræddi á
fundi skömmu fyrir jól um
mikilvægi þess að ákvaróa
vemdarsvæði vatnsbóla bæjar-
ins, ekki sist með tilliti til
hagsmuna matvælavinnslu í
Ólafsfirói. Nefndin skorar á
bæjarstjóm aó ákvarða vemd-
arsvæói unr vatnsból bæjarins í
samræmi við reglur þar um.
Heilbrigðisfulltrúa er falið aó
fylgja málinu eftir.
■ Bæjarráð hefur óskað eftir
kostnaðaráætlun frá bæjar-
tæknifræðingi vegna valkosta
sem em varðandi gerð göngu-
stiga frá Túngötu nióur að
Bamaskólanum.
■ Þorsteinn Bjömsson, bæjar-
tæknifræðingur, kynnti bæjar-
ráói bréf frá Orkustofnun varó-
andi rannsóknarboranir eftir
heitu vatni í landi Hólkots og
Reykja. Bæjarráð samþykkti
að vísa málinu til gerðar fjár-
hagsáætlunar fyrir I994.
■ Bæjarráð hefur samþykkt að
þiggja gcithafur frá Ástvaldi
Hjálmarssyni til að setja á
Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar
og voru honum færðar þakkir
fyrir boðið.
É Foreldrar og aðstandendur
nemenda í Tónskóla Ólafs-
fjarðar hafa sent bæjaryfirvöld-
um áskomn um bót á húsnæð-
ismálum skólans. I bókunun
bæjarráðs segir að innan bæjar-
kerfisins sé unnió aó því að
finna lausn á húsnæðismálum
Tónskólans og sé niðurstöðu
að vænta innan skamms.
■ Samykkt hafa verið erindis-
bréf fyrir starfsmenn við nýju
íþróttamióstöðina og stendur
umsóknarfrestur um störfin til
29. desember.
■ Hesthúsaeigendur hafa
óskað eftir aó Olafsfjaróarbær
taki að sér rekstur á hesthúsa-
hverfinu vestan flugbrautarinn-
ar. Bæjarráð frcstaói erindinu.
■ Bæjarstjóri gerói bæjarráði
grein fyrir sölu á Lísu Maríu
ÖF á fundi 15. desember. Þar
kom fram að niðurgreiðsla
lánsins sem bæjarsjóður er
með ábyrgð gagnvart mun
lækka um a.m.k. 20 milljónir
króna. Þessi málsmeðferð mun
ekki þýða að virk ábyrgð lækki
heldur fremur að líkur á að hún
snerti bæjarsjóð með áþreifan-
legum hætti minnki.
Magnúsína Sæmundsdóttir við véiasamstæðuna á Hvammstanga.
Draumur okkar að
auka framleiðsluna
- segir Magnúsína Sæmundsdóttir, sem
rekur fyrirtækið Skarp hf. á Hvamms-
tanga ásamt manni sínum og framleiðir
meðal annars eyrnapinna
„Vissulega er draumur okkar
að geta skapað að minnsta kosti
eitt fullt starf við þessa fram-
leiðslu,“ sagði Magnúsína Sæ-
mundsdóttir, en hún starfrækir
fyrirtækið Skarp hf. á Hvamms-
tanga ásamt manni sínum Frið-
rik Friðrikssyni. Skarp fram-
leiðir aðallega eyrnapinna undir
framleiðslumerkinu JOFO en
þau hjón festu kaup á vélum og
framleiðslurétti þess fyrir um
tveimur árum.
„Við rákum þetta í fyrstu á
Sauðárkróki en þaðan keyptum
við vélarnar og framleiðsluréttinn.
En vegna vegalengdarinnar var
óhentugt fyrir okkur aó starfrækja
þetta þar - mikill tími fór í ferðir
þannig að þegar okkur gafst kost-
ur á húsnæði hér á Hvammstanga
ákváðum við að fiytja fram-
leiðsluvélarnar,“ sagði Magnús-
ína. Sem stendur starfar hún ein
við fyrirtækið - kvaðst vinna í um
hálfu starfi um þessar mundir en
draumurinn væri að geta aukið
framleiðsluna. „Þetta byggir eðli-
lega á að fólk velji innlenda fram-
leiðslu - taki hana fram yfir er-
lenda,“ sagði Magnúsína. Hún
kvað sölu framleiðslunnar vera að
aukast, fleiri og fleiri verslanir
hefðu tekió JOFO vörurnar til
sölumeðferðar og söluhorfur væru
nokkuð góðar. Eyrnapinnarnir frá
Hvammstanga eru einu íslensku
pinnarnir á niarkaðnum og er verð
og gæói þeirra talið fyllilega sam-
bærilegt við erlenda framleióslu.
Framleiðsla á JOFO snyrtivörun-
um er ein af þeim nýjungum, sem
oröió hafa í atvinnulífinu á
Hvammstanga að undanförnu. ÞI
Jólaverslunin:
Víða ifflnni vegna verðstríðs og verslunarferða
Jólaverslunin hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga á Siglufirði var álíka
og hún var í desembermánuði
1992 og segir útibússtjóri að
þegar leið frá mesta æsingnum
vegna verðstríðsins á Akureyri
hafi hún aukist aftur.
Siglfirðingar sóttu tölvert til
Akureyrar meðan tíðin leyfði,
„Við höfum engin viðbrögð
fengið,“ sagði Jón Eiður Jóns-
son, verslunarmaður hjá Versl-
unarfélagi Raufarhafnar hf.
Verslunarfélagið sendi fyrir
nokkru dreifibréf til Raufarhafnar-
Austur-Eyjafjarðarumdæmi:
Staða héraðs-
dýralæknis laus
til umsóknar
Landbúnaðarráðuneytið hefur
auglýst embætti héraðsdýra-
læknis í Austur- Eyjafjarðar-
umdæmi laust til umsóknar og
einnig embætti í Snæfellsnesum-
dæmi.
Ágúst Þorleifsson hefur gegnt
stöðu héraðsdýralæknis í Austur-
Eyjafjarðarumdæmi en nýlega
veitti landbúnaðarráðherra honum
embætti héraðsdýralæknis Vestur-
Eyjafjarðarumdæmis og Akureyr-
ar frá næstu áramótum.
Umsóknarfrestur um áður-
nefndar stöður er til 20. janúar nk.
KK
SJAUMST
MED
ENDURSKINI!
UMFEROAR
RAO
fengu líka töluverða umfjöllun í
fjölmiólum, sem var jafnvel betri
en besta auglýsingaherferð.
Hjá Kaupfélagi Eyfiróinga á
Dalvík var verslun svipuð og búist
var við þrátt fyrir alla þá athygli
sem Bónus og Nettó fengu, þ.e.
áhrifin hafi verið minni en ætla
mætti þegar mest gekk á. Utibús-
búa þar sem tekið var fram að
óvíst væri hvort rekstri verslunar-
innar yrði haldiö áfram eftir ára-
mót. Hins vegar var þeim sem
heföu áhuga á að taka þátt í
rekstrinum, annað hvort í sam-
starfi við núverandi rekstraraðila
eða meö því að taka reksturinn yf-
ir, bent á að hafa samband við
stjórn Verslunarfélagsins fyrir 20.
desember sl.
„Eg veit ekki hvernig málið
þróast. Vió erum með fólk á laun-
um út janúar. Ef ekkert nýtt gerist
Mikil og þung umferð var á hál-
um götum Akureyrar á Þorláks-
messu og fram eftir aðfangadegi
og var töluvert um óhöpp.
Klukkan 16.22 á Þorláksmessu
var tilkynnt um þriggja bíla
árekstur á Glerárgötu. Öku-
maður eins bílsins var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild
FSA og einn farþegi kvartaði yf-
ir eymslum í hálsi.
Tveir árekstrar til viðbótar voru
tilkynntir til lögreglu sama dag og
á aðfangadag uróu fjórir árckstrar
og bílvelta að auki. Laust eftir kl.
13 rákust tveir bílar saman á mót-
stjóri segir hins vegar að auóvitað
hefði hann viljað sjá Dalvíkinga
versla enn meir í heimabyggð en
hann búist vió aó þetta ástand
gangi til baka þegar líóur fram á
veturinn. I ársbyrjun var ekki gert
ráö fyrir neinni söluaukningu og
það virðist ætla að ganga eftir og
um smávægilega söluaukningu
á þeim tíma, þá gæti það blasió
við aö þyrl'ti að fækka starfsfólki
cnn frekar, stytta opnunartíma og
draga úr innkaupum. Við munum
meta stöðuna mjög ítarlega að
lokinni vörutalningu núna um ára-
mótinu og taka ákvöróun um
framhaldió,“ sagói Jón Eióur.
Fram hefur komið að verðstríð
lágmarksverðsverslana á Akureyri
hafi leitt til mikils samdráttar í
veltu Verslunarfélagsins og nam
hann fyrstu mánuði ársins á bilinu
50- 60%. óþh
um Austursíðu og Hörgárbrautar.
Farþegi var fluttur á slysadeild.
Bílarnir skemmdust mikið. Klukk-
an 14.35 missti ökumaður vald á
ökutæki sínu á Þingvallastræti við
Skógarlund. Bifreiöin fór upp í
snjóruðning og valt.
Jóladagur var óhappalaus en
26. desembcr varð árekstur á mót-
um Einilundar og Mýrarvegar.
Tvö ökutæki rákust saman og lét
annar ökumaðurinn sig hverfa af
vettvangi. Lögreglan hafði upp á
honum og cr hann grunaður unr
ölvun við akstur. Þá varð annar
árekstur þennan sama dag. SS
verði að ræða.
Hjá kökuhúsinu Krútt á
Blönduósi skiptir jólaverslunin
minna máli en hjá mörgum öórunr
verslunum en slæmt sumarveður
dró verulega úr versluninnni og
varð því samdráttur á ársgrund-
velli.
Hjá versluriinni Litlagarði á
Hvammstanga var verslunin fyrir
þessi jól minni cn gert var ráð fyr-
ir og segist talsmaóur verslunar-
innar halda að orsök þess séu
minni auraráð almennings auk
verslunarferóa erlendis, til
Reykjavíkur og til Akureyrar. GG
Spilavélar HHÍ:
Fyrsti silfur-
potturmn til
Akureyrar
Skömmu fyrir jól vannst svo-
kallaður silfurpottur á Akur-
eyri í Gullnámunni, spila-
vélakerfi HHÍ. Þetta var
þriðji silfurpotturinn frá því
spilavélakerflð var tekið í
notkun. Vinningurinn fékkst
á vél í spilasalnum við Hofs-
bót.
Silfurpotthafinn á Akureyri
fékk tæpar 275 þúsund krónur í
sinn hlut. Gísli Jónsson, um-
boðsmaður Happdrættis Há-
skóla íslands á Ákureyri, segir
aó kerfið gangi allt eins og til
var ætlast. „Aðsóknin í vélarn-
ar er ágæt en hins vegar gerir
maður sér grein fyrir því að
þetta er ekki besti tíminn. Það
eru margir í ati fyrir jólin en
við erum mjög ánægðir meö
þann tíma sem af er,“ segir
Gísli.
Þess er nú beóið að Gull-
pottur happdrættisvélanna
gangi út. Sá pottur getur orðið
mjög stór og fyrir jólin var
hann kominn í tæpar 3 milljón-
ir króna. Gísli sagðist auðvitað
vonast til aö potturinn komi
norður yfir heióar þegar þar aó
kemur. JÓH
Verslunarfélag Raufarhafnar hf.:
Gnginn sýnt áhuga á sam-
starfi eða yfirtöku reksturs
Umferðin á Akureyri fyrir jólin:
Harðir árekstrar
- og slys á fólki