Dagur - 28.12.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 28. desember 1993 - DAGUR - 3
FRETTIR
Húsavík:
„Staða fólks hefur gjörbreyst“
- segir Aðalsteinn Baldursson hjá VH, aðspurður um framfærslumál
„Þessi vandamál eru til staðar,
og við verðum í vaxandi mæli
vör við þau. Nokkuð mörgum
tilfellum hefur verið sinnt á
þessu ári. Félagsmálaráð hefur
starfað afskaplega vel og sam-
viskusamlega og sinnt málum af
mikilli elju. Bærinn er að aug-
lýsa eftir félagsmálastjóra, sem
yrði jafnframt félagsráðgjafi á
Heilsugæslustöðinni. Hann
verður starfsmaður bæjarins
varðandi framfærslumálin,“
sagði Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík, aðspurður um
fjölda framfærslumála.
Bæjarstjóri sagði að í sumar
hefði bæjarstjórn samþykkt reglur
um fjárhagslegan stuðning við
fólk og félagslega heimaþjónustu.
Hann sagði að reglurnar og um-
sóknareyðublöð lægju frammi á
bæjarskrifstofunni.
„Það fer stöðugt meira af okkar
starfstíma í að sinna fólki sem er
mát. Það er ekki spurning aó staða
fólks hefur gjörbreyst. Við reyn-
unt eins og við getum aö hjálpa
þeim sem til okkar leita. Eins
bendum við fólki á aó leita hjálpar
hjá Félagsmálaráði, og við hjálp-
um fólki við að fylla út umsóknir
um hjálp frá bænum,“ sagöi Aðal-
steinn Baldursson, varaformaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur, að-
spuróur hvort hann yrói var við að
fólk ætti í auknum erfiðleikum.
Hann sagðist fagna fyrirhug-
aðri ráðningu félagsmálaráðgjafa
og að vcrkalýðsfélögin hefðu
mjög beitt sér fyrir að ráðgjafi
yrói ráðinn. Aðalsteinn sagði aó
minna yrði vart við erfiðleika hjá
fólki í samfélögum á stærð við
Húsavík, þar væri samhjálpin ríkj-
andi og það drægi úr þjáningum
fólks. „En þaó hefur jafnvel korn-
ið til mín fólk í sjálfsmorðshug-
leiðingum. Vandantálin eru of
mörg og það þarf að taka á þeim,"
sagói Aðalsteinn.
„Þar á ofan er búið að breyta
atvinnuleysisbótunum það mikið
að ég hugsa að margt fólk þurfi
hreinlega að segja sig á bæinn á
næstu misserum. Með þessum
breytingum á kerfinu er hreinlega
verið að fara marga áratugi al'tur í
tímann og ég er rnjög óánægður
með þessar ráðstafanir. Erfiðleikar
fólks sem hefur ótrygga vinnu eða
er atvinnulaust tnunu stóraukast.
Bætur til viðbótar hálfsdagsvinnu
rnunu t.d. hreinlega detta út eftir
sex rnánuði samkvæmt ákvörðun
stjórnar Atvinnutryggingasjóós,“
sagöi Aðalsteinn. IM
Vinningstölur laugardaginn ÍÍÍ)(2Í) 23. des. 1993
Í25')jÉíír
Y22)
VINNINGAR | VINtTi^IaFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 | 1 17.920.277
2.4*1« 11 136.691
3. 4af5 I 399 6.500
4. 3af 5 | 12.846 471
Heildarvinningsupphæð þessa viku: Kr. 28.067.844
Jm MJ7 | / m m ®
UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 91 -681511 LUKKULlNA 991002
Haraldur hf. á Dalvík:
Framlengd
greiðslustöðvun
Greiðslustöðvun útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækisins Harald-
ar hf. á Dalvík rann út á Þor-
láksmessu. Hún hefur verið
framlengd.
Samkvæmt lögum var veitt
greiðslustöðvun í byrjun dcsember
til þriggja vikna eða til 23. desem-
ber. Héraðsdómur Norðurlands
eystra veitti svo fyrirtækinu fram-
lengingu greiðslustöðvunar um
þrjá mánuði eða til 23. mars. JOH
Sauðárkrókur:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráði hefúr borist bréf
frá Atvinnuleysistrygginga-
sjóði þar sem tilkynnt er að
stjóm sjóðsins hafi samþykkt
að veita Sauðárkrókskaupstað
styrk fyrir 13 störfum í 2 mán-
uði vegna sumarstarfa við at-
vinnuskapandi verkefni.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Fasteignamati ríksins,
Norðurlandsumdæmi, þar sem
fram kemur að fasteignamat á
Sauðárkróki hafi hækkað um
10,98% frá árinu 1992 og
álagningarstofn hækkað um
8,44%.
■ Bæjarráð hefur hafnað erindi
frá Olafi M. Jóhannessyni, þar
sem hann óskaði eftir styrk til
útgáfu blaós gegn atvinnuleysi.
■ A fundi bæjarráðs nýlega,
var lagður fram samstarfsamn-
ingur um ræktun landgræðslu-
skóga á landi í cigu Sauðár-
krókskaupstaðar, milli Skóg-
ræktarfélags íslands og Sauð-
árkrókskaupstaðar. Bæjarráð
samþykkti samninginn fyrir sitt
leyti en óskaði eftir umsögn
umhverfis- og gróðurverndar-
nefndar, sem einnig samþykkti
samninginn.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
verksamning milli Sauðár-
krókskaupstaðar og Umf.
Tindastóls, um uppbyggingu
og fullnaðarffágang á malar-
velli og grasvöllum á íþrótta-
svæði bæjarins. Jafnframt
leggur ráðið til að samningur-
inn verði tekinn inn á fjárhags-
áætlun fyrir árið 1994.
■ Bygginganefnd ræddi á
fundi sínum nýlega, um þörf á
endurskoðun aðalskipulags
Sauóárkróks 1982-2002. í
framhaldi af þeirri umræðu var
samþykkt að hefja vinnu við
endurskoóun aðalskipulagsins.
ÍNA ÞÁGII
■
- ;
WB&, - ■ -
• ■■
AKUREYRI
■ ■
V/SA
ir okkar eru:
Lundi við Viðjulund
r, Bílasalan
1kaup
Draupnisgötu
S Ý N I N G
00 við Lund