Dagur - 28.12.1993, Page 9

Dagur - 28.12.1993, Page 9
IÞROTTIR Þriðjudagur 28. desember 1993 - DAGUR - 9 HALLDÓR ARINBJARNARSON Nýlega bætust tveir ungir handknattleiksmenn úr Val í raðir KA og því munu fjórir fyrrverandi leik- menn Vals leika með liðinu í vetur. Sú spurning vakn- ar hvort allt Valsliðið sé á leið norður en annar nýju leikmannanna, Oskar Bjarni Oskarsson, segist ekki hafa trú á því. Alfreð Gíslason, þjálfari KA, segir fé- lagið ekki hafa haft frumkvæði að félagaskiptunum heldur hafi piltarnir sjálfir sett sig í samband við Iiðið. Það cr ætíð stutt í góða skapið hjá þeim Val Krni Arnarsyni og Óskari Bjarna Óskarssyni, jafnt innan vallar sem ut- an, enda hafa þeir féiagar troðið upp við ýmis tækifæri. Mynd: Robyn. Ævintýramenn en engir kokkar - segja „súkkulaðidrengirnir“ Óskar Bjarni og Valur Örn, sem gengu úr Val í KA Óskar og íelagi hans, Valur Örn Arnarson, eru báðir aldir upp í Val; hafa leikið í öllum llokkum félagsins frá átta ára aldri. Strák- arnir eiga ekki langt að sækja áhugann á handbolta. Afi Vals, Hallstcinn Hinriksson, hefur vcrið kallaður „faðir handknattleiks á Islandi" og afi Óskars, Valdimar Sveinbjörnsson, var frumkvööull handknattleiks á Akureyri. Valur og Óskar luku stúdcnts- prófi sl. vor og höfðu ákveóið aó fara til Noregs til aö spila hand- bolta en það brást á síðustu stundu. „Okkur langaði til að gera hlé á náminu í eitt ár og breyta um urn- hvcrfi," segir Óskar. „Það eru ekki mörg tækifæri í Reykjavík núna, leikmannahópur Vals er svo stór aö hann nægir í tvö lið. Við erum haldnir ævintýraþrá og okkur fannst spennandi að fara noróur." Óskar segir að í raun hafi bæði Akureyrarliðin komið til greina en KA þó verið meira spennandi, ckki síst vegna þess að þar voru Valsmenn fyrir. Valdi ranga menn í liðið! Óskar og Valur leika báðir í vinstra horninu cn Óskar scgir þá þó ekki vera í samkeppni því Val- ur leiki einnig á miójunni. Alfreð Gíslason vill ckki játa að KA hafi vcrið í vandræðum nteð þessar stööur en segir nýju leikmcnnina koma til með aó styrkja liðiö mik- ió. Óskar hefur leikið tvisvar mcð landsliði leikmanna scxtán ára og yngri á alþjóðlegu móti, Benelux- mótinu. I síðara skiptió var hann valinn besti sóknarmaður mótsins. „Einu sinni vorum við valdir í landslið átján ára og yngri, sem átti að taka þátt í Evrópukeppni landslióa. Við æfðum í heilan vet- ur, fórum m.a. í keppnisferð til Vestmannaeyja og lékum æfinga- leik við lið S-Kóreu. Viku áður en við fórum út lásum við það í Morgunblaóinu aó þjálfarinn hefði valió ranga mcnn í liðið! Mciri- hluti lcikmannanna var of garnall, þ. á m. við Valur." Óskar segir að erfiðast hall vcr- ið að skilja við jafnaldrana í Val. „Viö vorum fimmtán strákar jafn- gamlir sem spiluðum saman upp alla yngri fiokkana. I átta ár þjálf- aði Thcodór Guðfinnssson okkur og viö vorum cins og stór fjöl- skylda. Vió strákarnir héldum mikið hópinn og skemmtum okk- ur saman." Einhæfur matseðill Valur og Óskar voru ásamt flcir- um úr þcssuni hópi félagar í hinu svokallaóa Súkkulaóifélagi. Súkklaðidrengirnir sáu um skemmtiatriði á þorrablótum og árshátíðum Vals og segir Óskar þá Val ætla aö halda sprellinu áfram í KA. Þeir félagar leigja saman íbúð og segir Óskar að búskapurinn gangi erfiðlega. „Matseóillinn hjá okkur er l'rekar einhælur, ýmist pasta og bakaðar baunir eða bak- aðar baunir og pasta. Til hátíðar- brigða höfum við pylsur og bak- aðar baunir. Vió reynum að láta bjóöa okkur í mat sem oftast. Þeg- ar við förum í hcimsóknir, gleym- um viö yllrhöfnunum okkar vís- vitandi svo við neyðumst til að koma og sækja þær. Þá komum við auðvitað á matmálstíma!" Öðruvísi andrúmsloft Óskari líst vel á starfið hjá KA. „Stór hópur af ungum strákum cr aö koma upp úr yngri flokkunum, æfingarnar hjá Alfreð eru góðar og öll aðstaða í KA-húsinu er til fyrirmyndar. Andrúmsloftið í íþróttahúsi KA er öðruvísi en í Valsheimilinu. Húsið er mjög lif- andi, þar er gaman að sitja eftir æfingar því þangað kemur fólk úr öllum áttum. I Valsheimilinu þckkti maður alla því þar voru að- eins Valsmenn. Andinn í KA-lið- inu er góður og mér líst vel á vet- urinn." Erna Björnsdóttir. Höfundur er nemi í hagnýtri fjölmiðlun við Há- skóla íslands. Ema Björasdóttir er fædd 2. júní 1967 í Reykjavík. Hún stundar nám í hagnýtri fjölmiölun viö H. í. og Iýkur B.A.-prófi í þýsku í febrúar 1994. íþróttamaður Norðurlands 1993 Nafn íþróttamanns: (þróttagrein: 1. 2. 3. 4. 5. Nafn: Sími: Heimilisfang: Sendist til: íþróttamaður Norðurlands 1993 B.t. Dagur, Strandgötu 31,600 Akureyri Skilafrestur er til 7. janúar 1994 Ungmennafélag Akureyrar: Akureyrarmót og Gamlárshlaupið Ungmennafélag Akureyrar stendur samkvæmt venju fyrir tveimur frjálsíþróttaviðburðuni niilli jóla og nýárs. Hið fyrra er Akureyrarmót í frjálsuni íþrótt- um innanhúss og hið síðara ár- Akureyrarmót í frjálsum íþróttum innanhúss fer fram í íþróttahöllinni í dag á vegum UFA og hefst kl. 13.00. legt Gamlárshlaup. Akureyrarmótiö í frjálsum fer fram í Iþróttahöllinni á Akureyri í dag og hefst keppni kl. 13.00. Skráning er á staönum kl. 20.30. Mcðal helstu nýmæla má nefna að hlaupið verður 50 m hlaup og er þaó í fyrsta skipti utan Reykjavík- ur, en íþróttahöllin er eini staóur- .inn á landsbyggóinni sem boóiö getur upp á þessa grein, sem m.a. er keppt í á íslandsmóti. Hið árlega Gamlárshlaup fer síðan fram á Gamlársdag. Tvær vegalcngdir eru í boði, 4 og 10 km. Skráning í hlaupið hefst ki. 10.30 við Dynheima og er skrán- ingargjald 300 kr. keppt verður í fiokkum 14 ára og yngri, 15-39 ára og 40 ára og eldri. Verðlauna- alhending verður við Dynheima eftir hlaup.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.