Dagur - 05.01.1994, Síða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 5. janúar 1994
FRÉTTIR
Breytingar á rekstri einangranarstöðvarinnar í Hrísey:
Kári Þór Jónsson ráðinn bústjóri holdanauta-
stöðvar og Kristinn Arnason bústjóri svínastöðvar
Akureyri:
Piltar í yflr-
heyrslu vegna
bensínstuldar
Tveir piltar 16 og 17 ára
voru í gær til yfirheyrslu hjá
rannsóknarlögreglunni á Ak-
ureyri vegna bensínstuidar i
bílageymslu við Hjallalund.
Síðdegis höfóu þeir játaó aó
hafa tekió bensín af btlum í
bílageymslunni og einnig stol-
ið bcnsíni af bílum við Gróðr-
arstöðina á Akureyri. Sam-
kvæmt upplýsingum rannsókn-
arlögreglunnar hefur annar
piltanna komið við sögu lög-
reglunnar áður. ÞI
Akureyri:
Leit stendur enn
Leit stendur enn yfir að Sig-
tryggi Jónssyni frá Akureyri,
sem hvarf heiman frá sér 22.
desember síðastliðinn, en leit
hófst aðfaranótt Þorláks-
messu og hefur engan árang-
ur borið.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar á Akureyri var fjölmennt
lcitarlið að störfum síóastliðinn
sunnudag og voru þá meðal
annars gengnar fjörur meðfram
Eyjafirói. Fyrirhugað er aó
halda leit áfram næstu daga aó
minnsta kosti. ÞI
Verulegar breytingar urðu á
rekstri Einangrunarstöðvarinn-
ar í Hrísey nú um áramótin.
Stöðin hefur frá upphafi verið
rekin af ríkinu, en í byrjun
þessa árs tók Landssamband
kúabænda við einangrunarstöð
holdanauta; Svínaræktarfélag
Islands við verðandi svínarækt-
arstöð en a.m.k. fyrst um sinn
verður einangrunarstöð fyrir
gæludýr rekin af Landbúnaðar-
ráðuneytinu. Að sögn Brynjólfs
Sandholt, yfirdýralæknis, hefur
rekstur gæludýrastöðvarinnar
verið boðinn út og verður reynt
að afgreiða málið eins fljótt og
kostur er.
Þeim starfsmönnum sem störf-
uðu á búinu hefur verið sagt upp
störfum og tóku þær uppsagnir
gildi nú um áramótin. Þeirra á
meðal er Helgi Sigfússon bús-
stjóri. Ráðinn hefur verió dýra-
læknir að stöðinni, Aðalbjörg
Jónsdóttir frá Þórshöfn, og hefur
hún þegar hallö störf. Þrátt fyrir
rekstrarbreytingarnar um áramótin
eru uppi hugmyndir um ákveðið
samstarf milli einangrunarstöðv-
anna, t.d. hvað varðar afleysingar
en rekstrarlega veróa þær aðskild-
ar en afskipti ríkisvaldins af
rekstrinum verður eingöngu á
heilbrigðissviði og þcim öðrum
þáttum sem falla undir dýralækni.
Kári Þór Jónsson hefur verió
ráóinn bússtjóri holdanautaræktar-
innar, en hann er ættaður frá Há-
túnum í Vestur-Skaftafellssýslu.
Kári er búfræóingur frá Hvanneyri
og hefur unnið sem afleysinga-
maður á kúabúum um allt land.
Starfió var auglýst laust til um-
sóknar og bárust átta umsóknir um
starfið.
„Gallowaystofninn veróur að
sjálfsögðu áfram á einangrunar-
stöóinni en til stendur að flytja inn
ný holdakyn í formi fósturvísa, og
er mestur áhugi fyrir Abcrdeen
Angus frá Skotlandi og Limousim
sem er franskt kúakyn. Til greina
kemur að flytja inn báðar tegund-
irnar en það ræðst á næstunni",
segir Valdimar Einarsson á Skarði
í Lundarreykjardal, framkvæmda-
stjóri Landssambands kúabænda.
Hríseyingurinn Kristinn Arna-
son hefur verið ráóinn forstöðu-
maóur einangrunarstöðvar svína
og hóf hann störf 1. septembcr sl.
Kristinn segir að í kringum 10.
mars nk. séu væntanlegar 10
fengnar gyltur frá Noregi, og eru
þær af tegund sem frábugðin er
þeirri sem fyrir er í landinu. I
stöðinni verður rými fyrir 30 gylt-
ur. Auk þess að foróast skyld-
leikaræktina fæst með hinum nýja
stofni mciri vaxtarhraói, betri fóö-
urnýting og þar með verður hægt
að bjóóa svínakjöt á lægra verði á
markaónum.
„Þetta cr gert til þess að hleypa
nýju blóói í stofninn og draga úr
þeirri skyldleikarækt, sem farið cr
svolítið aö gæta í svínaræktinni.
Það verður svo þrióji ættliður frá
þeim gyltum, sem koma frá Nor-
egi, scm hægt verður að flytja í
land og það ætti aó geta átt sér
stað á árinu 1995. Eg hef farió á
milti svínabúa í haust og aflað
mér þekkingar til undirbúnings
starfinu og hef því verið í hörðum
undirbúningsskóla," segir Kristinn
Arnason.
I einangrunarstöó gæludýra eru
nú 10 hundar, en væntanlegir eru
nokkrir kettir strax í þessum mán-
uði. Nokkrir hundanna eru af
Schaeffer-kyni en einnig eru þar
svokallaðir fiðrildahundar, eða
papilion, sem er ntjög smávaxinn
smáhundur, sem dregur nafn sitt
af stórum eyrum sem minna á
flórildi. Þessi hundategund hefur
ekki verið flutt til landsins fyrr
(a.m.k. ekki löglega), en erlendis
njóta þcir tölverðra vinsælda. GG
Álfabrenna Þórs 1993:
Karlrembuþættínum lokið
- álfadrottning syngur jafnt á við mann sinn
é
c. Krabbameinsfélagið
S
Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis
óskar félagsmönnum sínum og velunnurum
gleðilegs árs
og þakkar ómetanlegan stuóning
á liðnu ári
Þrettánda-
flugeldar
Flugeldasala opin í Lundi
6. janúar frá kl. 13-19.
Hjálparsveit Skáta Akureyri
Næstkomandi fimmtudag, 6.
janúar, á þrettándanum, verður
hin árlega álfabrenna íþróttafé-
lagsins Þórs og er þetta 58. árið
sem félagið stendur fyrir þessari
uppákomu. Gleðin hefst með
skrúðgöngu frá Hamri, félags-
heimili Þórs, klukkan 20.00 og
að venju eru það álfakóngur,
álfadrottning og álfabarn sem
leiða skrúðgöngu álfa, trölla,
púka og hinna ýmsu dýra og
verður mikið um söng og gleði.
Verður þetta í fyrsta sinn sem
álfadrottning syngur jafnt á við
mann sinn og dóttir þeirra mun
einnig syngja.
Aflabrennan er einn af föstu
punktunum í bæjarlífinu hér á Ak-
ureyri og má segja að börn og
fullorðnir bíöi eftir þessu allt árió
með eftirvæntingu. Það verður
höfóað mcira til yngri áhorfenda
nú en áður og má nefna að þeir
Völustakkur og Langleggur, synir
Grýlu, sem ckki fengu að vera
jólasveinar, sluppu í bæinn og
munu koma vió á brennunni og
segja frá sínurn högurn. Svo konia
bræður þeirra, Skyrgámur, Kerta-
sníkir og Kjötkrókur en þeir eru
einmitt á leióinni hcim eftir jólin.
Pálmi Gunnarsson mun koma og
syngja sérstaklega fyrir krakkana.
Söngvarinn Jóhann Már Jó-
hannsson mun að venju vera á
staðnum, en hann er einn af föst-
um liðum hátíðarinnar. Tröllin og
álfarnir ásamt dýrunum rnunu
gantast við krakkana og halda
uppi tjöri út um allan völl.
Að venju veröur boöið upp á
hcitt kakó og hefur þaö verið vin-
sælt, enda hefur „kuldaboli" oft
verið á staónum. En fólk hefur
ekki látið það aftra sér frá því að
koma á brennuna. Húllumhæinu
Iýkur svo upp úr klukkan 21.00
meó glæsilegri flugeldasýningu.
Aðgangur að brennunni kostar
600 krónur en frítt er fyrir 5 ára
og yngri. Börnunum gefst kostur á
að láta mynda sig með tröllum,
púkum cða cinhverjum öórum.
GG
Dalvík:
Stórfelld rúðubrot upplýst
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur upplýst stórfelld
rúðubrot, sem framin voru á
Dalvík 28. nóvember síðastlið-
inn. Fjórir ungir Dalvíkingar
voru valdir að rúðubrotunum.
Alls náóu skemmdarvargarnir
að brjóta um 40 rúður auk þess
sent þeir brutu rúður í fjórurn bíl-
urn á Dalvík. Eru þeir á aldrinum
15 til 18 ára og viróast ckki hafa
haft neitt sérstakt tilefni til þcssara
skcmmdarverka. Nokkuð cr mis-
munandi hvcrsu margar rúöur
hver þcirra náði aó brjóta. Að
sögn rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri ncma framkomnar
skaðabótakröfur vegna rúðubrot-
anna nú um 300 þúsund krónum
en óvíst hvort allar kröfur eru
komnar fram. ÞI
Akureyri:
Vatnsleiðsla
sprakk
Vatnsleiðsla sprakk í Hafnar-
stræti 100 milli jóla og nýárs og
lak vatn um allar hæðir hússins.
Lekans varð vart þegar hann
náði niður á fyrstu hæð en þar
er bókabúðin Edda til húsa en
efri hæðir hússins eru auðar.
Samkvæmt upplýsingum
slökkviliósins á Akureyri er talið
að frosttappi hafi myndast í vatns-
leióslu á fjóróu hæó hússins um
jólin. Þegar þiðnaði skömmu fyrir
áramót hafi tappinn losnað og
vatn farið að lcka. Þar sem cngin
starfsemi er á þrcmur efri hæðun-
um uppgvötvaöist lckinn ekki fyrr
cn hans varð vart á jarðhæð og í
kjallara þar sem bókabúðin Edda
er til húsa. Nokkrar skemmdir
uröu af völdurn lekans. ÞI
Fyrsta barn ársins á Sjúkrahúsi
Húsavíkur var Keldhverfingur.
Hann fæddist kl. 21.30 sl. sunnu-
dagskvöld. Drcngurinn cr hér með
stóra bróður, Bjarka Þór og for-
eldrum þeirra, Hrund Asgeirsdótt-
ur og Kristni Rúnari Tryggvasyni.
Á innfcildu myndinni er fyrsti Hús-
víkingur ársins, stúlka sem fæddist
aðfaranótt 3. janúar. Hún er hér
með forcldrum sínum, Þóru Krist-
ínu Jónasdóttur og Sigurjóni Sigur-
björnssyni.
Myndir: Völundur Þorbjömsson.