Dagur - 05.01.1994, Blaðsíða 12

Dagur - 05.01.1994, Blaðsíða 12
Stórviðburður í Eyjafjarðarsveit síðla næsta sumars: Landbúnaðarsýning aðHrafnagili í undirbúningi Undirbúningur er hafínn að viðamikilli landbúnaðarsýn- ingu, sem fara á fram að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit, síðari hluta ágústmánaðar í sumar. Jóhannes Geir Sigur- geirsson og Hreiðar Hreiðarsson hafa fyrst og fremst unnið að hugmyndinni á síðustu mánuð- um en framundan er stofnun sérstaks félags um framkvæmd- ina. Ráðinn hefur verið starfs- maður til að vinna að undirbún- ingi sýningarinnar. Samkvæmt upplýsingum að- standenda sýningarinnar veróur markmið þessa félags að sinna verkefnum sem tengjast ferðamál- um á svæðinu og verður sýningar- haldið sjálft fyrsta verkefni þess. Frá upphafi hefur verið unnið að málinu í samráði við sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og viðræður við hana um aðstöðu fyrir sýninguna eru á lokastigi. Einnig hefur verið haft samráð við Búnaóarsamband Eyjafjarðar um málió. Frágengió er aó Vaka Jónsdótt- ir, sem var að ljúka námi í ión- rekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri, verði framkvæmdastjóri sýningarinnar og tekur hún strax til starfa. Þá hefur verið haft sam- band við nokkra af þeim aðilum sem líklegt er að hafi áhuga á aó notfæra sér þá aðstöu sem þarna verður komið upp til sýningar- halds. Að sögn Jóhannesar Geirs Sig- urgeirssonar hefur málinu alls staðar verið vel tekið. Hann segir það vilja aöstandenda sýningar- innar að á henni verói lögð áhersla á að kynna sem flestar fram- leiósluvörur íslensks landbúnaðar og aðrar afuróir sem unnar eru í sveitum landsins. Sérstök áhersla verði lögð á nýjungar í atvinnulífi svo og þaó sem verið er að vinna að varðandi útflutning á íslensk- um hágæða búvörum. Þá munu sýningaraðilar leggja metnað sinn í aó standa fyrir dagskrá þar sem fram koma sýnishom af því fjöl- þætta menningarstarfi, sem fer fram í hinum dreifðu byggðum landsins. Von sýningarhaldara sé sú aö standa megi þannig að mál- um að þessi viðburður geti orðið áhugavert innlegg í að efla inn- lenda feróaþjónustu um leið og vakin sé athygli á mikilvægi land- búnaðarins fyrir þróun islensks at- vinnulífs á næstu árum. Ekki er frágengið hvaða daga sýningin stendur en miðað er viö aó hún verði einhvern tímann á tímabilnu frá 19. til 28. ágúst í sumar. JÓH Reykjahverfi: Harðfiskverkun haf- in á ný hjá Stöplafiski - Tryggvi Óskarsson leigir reksturinn Harðfiskframleiðsla hófst á ný hjá Stöplafiski í Reykjahverfi 3. janúar sl. Það er Tryggvi Ósk- arsson frá Þverá, sem tekið hef- ur húsnæði og vélar á leigu til sex mánaða, en framleiðslu Stöplafisks var hætt snemma í haust og leitað eftir samstarfs- aðila um reksturinn eða leigj- anda. Hráefni til framleiöslunnar fékk Tryggvi af frystitogara frá Þórshöfn. Framleiðsla fyrir þorra- blótsmarkaðinn er hafin, en einnig stendur yfir útsala á eldri birgðum fyrirtækisins. Tryggvi sagði aó þó nokkur störf sköpuðust við harðfisk- VEÐRIÐ Gert er ráð fyrir norðanátt í dag og heldur vaxandi frosti. Um norðanvert landið má búást vió norðaustan kalda og éljum á miðum og annesjum en bjartara veðri inn til landsins. Heldur mun birta útifyrir þegar líður á daginn. vinnsluna og enginn hörgull væri á vinnuafli. Reiknaði hann með aó allt að fimm manns fengju vinnu hjá fyrirtækinu. Hann hyggur á verkun gæludýrafóðurs, þegar hægjast fer um á harðfiskmark- aðnum. Einnig býður hann versl- unareigendum að þurrka saltfisk fyrir þá og er að reyna að finna fyrirtækinu fleiri verkefni. IM Fjögur glaðleg í leik í snjónum á nýbyrjuðu ári. Mynd: Robyn. Silfurstjarnan hf. í Öxarfirði: Fær 22% hærra verð fyrir laxinn en Norðmenn á þýskum mörkuðum Vaxandi eftirspurn er eftir laxi frá laxeldisstöðinni Silfurstjörn- unni hf. í Öxarfirði á markaði í Munchen í Þýskalandi og fæst nú 441 króna fyrir kg, sem er 70 til 80 krónum hærra verð en Norðmenn eru að fá fyrir sína framleiðslu á sama markaði. Norðmenn selja ekki til Banda- ríkjanna og því hafa þeir snúið sér af fullum þunga að Evrópu- markaðnum og hófu í desem- bermánuði að bjóða laxinn í Þýskalandi og Belgíu á 260 krónur meðalverð, allar stærðir. „Mér er ekki alveg ljóst af hverju við getum selt okkar lax á svona miklu hærra verði en Norð- menn. Við notum miklu minna lýsi í fóðrið hér en fóðurverk- smiðjur almennt gera, en lýsið er ódýrasta orkan sem völ er á. Hún er 18% hér en er víða allt upp í 30%, og þó ég sé ekki fóðurfræð- ingur veit ég þó að fiskurinn er aldrei neitt annað en það sem hann étur, rétt eins og með aórar skepnur,“ segir Björn Benedikts- son. „I ár seljum við um 35% af lax- inum til Þormóðs ramma hf. á Siglufirði, sem flytur hann síóan reyktan á Bandaríkjamarkað. Framleióslan á síðasta ári var tæp 500 tonn og um 100 tonn af bleikju sem að mestu fer á Banda- ríkjamarkað en einnig fer nokkuð til Bretlands og Þýskalands. Viö fáum mjög gott verð fyrir bleikj- una í Bandaríkjunum, 7,7 dollara eða 559 krónur, en hún þarf að ná 900 grömmum, slægð. Hér innan- lands fáum við 350 krónur fyrir hana, fyrir utan skatt. Við höfum selt þeim innlendum aðilurn sem sóst hafa eftir bleikjunni og geta borgað en það eru aðallega nokkr- ar fiskbúðir og hótel á höfuðborg- arsvæðinu. A sumrin eykst svo eftirspurnin“. Rekstur Silfurstjörnunnar hf. gekk þokkalegaá árinu 1993, en fyrirtækið á vel fyrir breytilegum kostnaði og afskriftum. Það var nokkurt kappsmál á nýloknu ári því ljóst er að það greiöir enginn mcð rekstri árum saman. Björn segir að hægt sé að unilíöa endur- greiðslu á fjárfestingarfé eftir aó búið er að eyða því en annað ekki. Ymsir möguleikar eru til að auka afköst Silfurstjörnunnar hf. án þess að kostnaóur vaxi að sama skapi en fyrirtækið á möguleika á því að auka laxasöluna umtalsvert. Verið er að bæta súrefnisinn- blöndunina og verður hægt að ráða henni ásamt straumþungan- um og svo hefur fyrirtækió jarð- hita, nánast við verksmiójuvegg- inn. GG TILBOÐ PFAFF SAUMAVÉL 6085 HEIMILISVÉL 20 SPOR VERÐ KR. 39.805 □ KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565 Bæjarpólitíkin á Akureyri: / / 1 Svo gæti farið að framboðslist- um fyrir næstu bæjarstjórnar- kosningar á Akureyri fjölgi frá síðustu kosningum. Menn spyrja hvort Kvennalistinn ætli að hella sér í slaginn í kjölfar uppsveifiunnar á landsvísu og þá er komin fram sú hugmynd að Þórsarar og/eða íbúar í Glerárhverfi bjóði fram sér- stakan lista. Aöalstcinn Sigurgeirsson, for- maður íþróttafélagsins Þórs, staðfesti í samtali við Dag aó menn hefðu viðrað framboðshug- myndir við aðalstjóm Þórs og stjómin myndi að sjálfsögóu skoða þetta nánar. „Því er ekki að leyna að það hefur gætt óánægju hjá ýmsum félagsmönnum og þó nokkrir hafa haft samband við aóalstjórn- armenn og viðrað hugmynd að framboóslista. Viö munum skoða þetta og væntanlcga boða til fundar í framhaldi af því,“ sagði Aóalsteinn. Aóspurður kvaðst hann bæöi hafa heyrt hugmyndir um fram- boð Þórsara og sérstakan lista íbúa í Þorpinu, þ.e. norðan Gler- ár. Hann sagói síðamefndu hug- myndina hafa verið í umræóunni í nokkur ár enda staðreynd að enginn bæjarfulltrúi er búsettur í Glerárhverfi og íbúum þar finnst þeir afskiptir að mörgu leyti, s.s. hvað ýmsa þjónustu varðar. Aðalsteinn ítrekaði að ekkert væri ákveóið í þcssum efnum. Þetta væru hugmyndir sem kom- ið hefðu fram, félagsmenn hefðu viðrað skoóanir sínar og málið yrói rætt gaumgæfilega á næst- unni. SS rýWM - íslenskt og gott Byggðavegi 98 Opið til kl. 22.00 alla daga

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.