Dagur


Dagur - 26.01.1994, Qupperneq 11

Dagur - 26.01.1994, Qupperneq 11
IÞROTTIR Miðvikudagur 26. janúar 1994 - DAGUR -11 HALLÞÓR ARINBJARNARSON Ekkert verður af híngaðkomu serbneska knattspyrnu- mannsins Srdan Bajic, sem bæði Leiftur og Skagamenn höfðu augastað á. Skv. frétt DV eru líkur á aö hann verói seldur til Rayo á Spáni. Islcnska U-18 landsliðið í badminton endaði í 3. sæti í Evrópukeppni B-þjóða í bad- minton sem lauk í Tékklandi um helgina. Þessi árangur hefur það í för með sér að íslenska lióið flyst upp um styrkleikaflokk og mun keppa mcðal A-þjóða í Evrópukeppninni á næsta ári. Þar munu 16 bestu lið Evróðu taka þátt. Einn íslendingur var með alla 13 leikina rétta á enska get- raunaseðlinum um síðustu helgi. í fyrstu var haldið að aðeins 3 raðir hefðu komið fram með öll- um leikjunum réttum en á mánu- daginn bættist sú 4. viö þegar einn vafaseðill í Svíþjóð var dæmdur gildur. Vinningur fyrir 13 rétta lækkaði því úr 11,2 í 8,4 milljónir. Kristján Arason, þjálfari 1. deildar liös FH í handknatt- leik, veróur næsti þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Bayer Dor- magen. Hann mun skrifa undir tveggja ára santning viö þýska liðið og tckur við því í vor. Með liðinu leikur m.a. Svíinn Robert Anderson. Kristján lék sem kunnugt er um árabil í Þýska- landi og varð m.a. þýskur meist- ari með Gummersbach. Landsliði íslands í knatt- spymu hefur verið boðið til Japan í rnars. Fyrir þcssu stcnd- ur stærsta íþróttablaðiö í Japan og mun liðið leika einn leik við Hitachi, efsta lið 1. deildar. Lið- iö heldur utan 18. mars, leikur þann 21. og kemur hcim daginn cftir. kvöld munu Þór og Höttur leika í 1. deildinni í körfu- bolta á Egilsstöðum. Leiknum var frestað sl. sunnudag. Kvennaknattspyrna: Dalvík tekur sæti í 1. deild Á fundi sínum sl. mánudag tók mótanefnd KSÍ ákvörðun um að Dalvík taki sæti Þróttar Nes í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Þróttur dró lið sitt til baka og sl. haust var Dalvík næsta lið til þess að fara upp. Einnig hafði heyrst að Höttur íhugaði að draga lið sitt til baka, en fram- kvæmdastjóri félagsins sagði í gær að svo væri ekki og liðið yrði örugglega með í 1. deild næsta sumar. Eiríkur Helgason, formaður knattspyrnudeildar Dalvíkur, sagði þessa niðurstööu geta verió bæði góða og slæma fyrir félagió. „Auðvitað er þetta upplyfting fyrir fótboltann hér á staðnum en síóan er spurning hvað gerist þegar farið vcrður að spila. Þetta er auðvitað talsvert dýrara dænii en 2. deildin og síðan held ég aó styrkleika- munurinn á 1. og 2. dcild sé tals- vcrður. Það sást glöggt þegar við lékurn vió Stjörnuna í bikarnum sl. surnar," sagði Eiríkur. Hann taldi þó víst aö Dalvík mundi taka þetta sæti. Heyrst hefur að einhverjir leik- rnenn frá IBA hefðu íhugað aó spila á Dalvík ef liðið yrði í 1. deild. Eiríkur sagðist hafa heyrt af því en engar hreyfingar í þá átt hafi átt sér stað enn. „Ég held það sé þó alveg ljóst að við verðum að styrkja liðið eitthvað fyrir sumar- ið." Iris Fönn Gunnlaugsdóttir er hér til vinstri í lcik með Dalvík gcgn Stjörnunni sl. sumar. Hún lék áður með KA og spurning hvort fleiri knattspyrnukonur af Akureyri fylgja í fótspor hcnnar og halda út með firði til að leika með Dalvík í 1. dcild. Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu: Island á raunhæfa möguleika úrslitakeppni 18 ára og yngri hér á landi árið 1997 Um síðustu helgi var dregið í riðla í Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu. Alls taka 53 lið þátt í undankeppninni og er þeim skipt í 8 riðla. Að jafnaði eru 6 í hverjum en ísland er í 5 liða riðli með Svíum, Svisslend- ingum, Ungverjum og Tyrkjum. Urslitakeppnin fer fram í Eng- landi sumarið 1996. Drátturinn í riðla fór fram í Manchester á Englandi og þar var einnig ákveðið að Evrópukeppni lands- liða, skipuð leikmönnum undir 18 ára, fer fram hér á landi árið 1997. Evrópska knattspyrnusamband- ió hcfur þegar ákveðið leikdaga í Handbolti, 3. flokkur karla: KA öruggt í úrslitakeppnina - en Þór féll í 3. deild Evrópukeppni A-landsliða, sem þó gætu tekið einhverjum breyt- ingum. Samkvæmt því verða leik- ir Islendinga cftirfarandi: 3,- 7. sept. 94 Ungv.-ísl. 8,- 12. okt. 94 Ísl.-Sví. 12 .-16. nóv. 94 Tyrk.-ísl. 25 .-29. ntars 95 Isl.-Sviss 7,- 11. júní 95 Ísl.-Ungv. 15 .-16. ág. 95 Sví.-Isl. 2,- 6. sept. 95 Ísl.-Tyrk. 7,- 11. nóv. 95 Sviss-ísl. Sú nýjung verður tekin upp að 3 stig fást fyrir sigur. Efstu lið hvers hinna 8 riðla komast beint til Englands. Þau sex lið sem eru með bestan árangur í 2. sæti kont- ast einnig beint til Englands í lokakeppnina en þau 2 lið í öðru sæti scm eru með lakastan árangur þurfa að leika aukaleik um sæti 1 lokakcppninni. Við þessa útreikn- inga telja ekki úrslit gegn nestu tveimur liðunum í hverjum riðli, en þar sem aðeins eru 5 lið í okkar riðli dragast bara frá úrslit gegn neðsta lióinu. Ljóst má vera að Island á raun- hæfa möguleika á að komast til Englands og við hefðum getað verið mun óheppnari meó riðil. Hins vegar er enn allt of snemmt aó spá um úrslit. Hlynur Rirgisson og félagar hans í íslenska landsliðinu eiga erfitt verkefni fyrir höndum í Evrópukeppni landsliða. Akureyri, gönguskíði: Gönguskóli Andrésar Andar Um helgina fór fram 3. fjölliða- mót vetrarins í 3. flokki karla. Þórsarar kepptu í 2. deild og voru Selfyssingar umsjónaraðil- ar þess móts. KA keppti í Reykjavík í íþróttahúsinu Aust- urbergi, en þar fór keppni í 1. deild fram. Þórsarar riðu ekki l'eitum hesti frá mótinu á Sclfossi. Þeir máttu sætta sig við tap í öllum leikjum og fall í 3. deild. Þeir töpuðu fyrir Stjörnunni 17:21, Haukum 17:18, Selfossi 8:13 og Fram 12:23. Jens Ólafsson var lang markahæstur Þórsara með 22 niörk en næstur kom Svavar Arnarsson með 12, Felix Felixson skoraði 8, Jón B. Lúðvíksson 6, Gísli Hilmarsson 4, Óðinn Arnason 1 og Kristinn Gunnarsson 1. KA gekk betur og tapaði aðeins einum leik. Liðið er nú öruggt í úrslitakeppnina og um helgina cndaði það í 2. sæti 1. dcildar. „Við vorum í 3. sæti á fyrsta mót- inu og 2. sæti í næstu tveimur, töpuðum bara fyrir KR í bæði skiptin. Það heiur veriö góður stígandi í leik liósins og við steln- unt ótrauóir á aó verja íslands- meistaratitilinn," sagði Árni Stef- ánsson þjálfari. Um helgina tapaði KA í fyrsta leik fyrir KR 16:21 en vann síðan FH 21:16, ÍBV 21:17 og Val 22:12. Halldór Sigfússon skoraði 22 mörk fyrir KA, Sverrir Björns- son 16, Óskar Bragason 14, Orri Stefánsson 11, Arnar Gunnarsson 11, Guðmundur Pálsson 3 og Is- leifur Einarsson 1. Flóki Ólafsson varði markið af stakri prýði. Frá og meó nk. mánudegi 31. janúar hefst skráning í Göngu- skóla Andrésar Andar. Hann er fyrir byrjendur á gönguskíðum, 10 ára og yngri. Alls verður kennt í 10 skipti, eina klukkustund í senn. Skráning í gönguskólann er hjá íþróttafulltrúa Akureyrar í síma 22722 f.h. Þátttökugjald er 1000 kr. Handbolti: • i •! víkur sama daginn Arni Stefánsson, liðsstjóri KA í handknattleik og þjálfari 2. og 3. flokks, var mikið á ferð- inni sl. laugardag, Þriðji flokkur KA tók þátt í fjölliðamóti í Rcykjavík og byrj- aði Ámi daginn á því aó keyra suður í rútu með strákunum og stjórna þeim í einum leik. Síðan llaug hann norður til aö ná í leik KA og ÍR í meistaraflokki. Þar stjórnaði hann með harðri hendi og flaug síðan aftur suður mcð ÍR-liðinu til aó halda ál’ram með strákana í 3. flokki. Hann fór því tvívegis til Reykjavíkur sama daginn. Þess má geta að KA vann ÍR og strákarnir t 3. flokki náðu mjög góðum árangri á fjöl- liðamótinu. Arni Stefánsson var mikið á fcrð og flugi sl. laugardag.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.