Dagur - 26.01.1994, Blaðsíða 12

Dagur - 26.01.1994, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur 26. janúar 1994 e’raartNM allfflr @.Q7%Sr -Mmr&Sr líiMaaiinn • Tölvugataða • Frostþolna • Tölvuvogamiða • Strikamerki LIMMIÐAR NORÐURLANDS HF. Strandgötu 31 • 600 Akureyri • Sími 96-24166 Handíðaverkstæði komið á fót á Akureyri: Verður í húsnæði Striksins Um fímmtíu manns mættu á stofnfund handíðaverkstæðis á Akureyri, sem Akureyrarbær stóð fyrir sl. mánudag. Verk- stæðið, sem verður til húsa þar sem skóverksmiðjan Strikið var áður, verður öllum opið, en kveikjan að stofnun þess er það mikla atvinnuleysi sem er á Ak- ureyri um þessar mundir. Gert er ráð fyrir aö starfsemi handíóaverkstæðisins verði ýtt úr vör í næstu viku, en þessa viku verður unnið að því aó standsetja húsnæðið. Jón Bjömsson, félagsmálastjóri Akureyrarbæjar, segir hugsunina þá að þarna verði um að ræða tómstundaióju en ekki eiginlega vinnu. Fólk hafi möguleika á að Barnadeild FSA: Magnús Stefánsson ráðinn yflrlæknir Magnús Stefánsson hefur verið ráðinn yfírlæknir barnadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri frá og með 15. janúar sl. Magnús tekur við stöðunni af Baldri Jónssyni, sem lét af störf- um fyrir aldurs sakir um sl. ára- mót. Auk Magnúsar sóttu þrír um stööu yfirlæknis barnadeildar. Einn umsækjenda dró umsókn sína til baka, en hinir voru Geir Friðgeirsson, barnalæknir á FSA, og Hákon Hákonarson, starfandi læknir í Bandaríkjunum. Magnús Stefánsson er fæddur 1936. Hann lauk læknaprófi frá Háskóla íslands árió 1964. Frá ár- inu 1975 hefur Magnús starfaó sem sérfræóingur á bamadeild FSA. Ingi Björnsson, framkvæmda- stjóri Fjóróungssjúkrahússins, segir að við þessa ráóningu losni staða sérfræðings við barnadeild- ina og hún verði fljótlega auglýst laus til umsóknar. óþh Hofsós: Brotist inn í verslunKS Á mánudagskvöld eða aðfara- nótt þriðjudags var brotist inn í verslun Kaupfélags Skagfirð- inga á Hofsósi og stolið þaðan tóbaki og sælgæti. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu komust þjófamir inn meó því að brjóta rúðu í hurð á starfs- mannainngangi. Þeir höfóu á brott með sér tóbak og sælgæti en ekki var tilkynnt um aó peningum heföi verið stolið. Málið er í rann- sókn. SS VEÐRIÐ A hádegi í gær var 9 stiga frost á Akureyri og 18 á Grímsstöðum. Enn á að kólna. í dag verður norð- austan átt og svipað frost og á fimmtudag og föstudag er spáð norðan og norð- austan strekkingi, éljagangi norðanlands og 8-15 stiga frosti. Á laugardag styttir upp með hörkugaddi. koma á handíðaverkstæðið meó sín áhugamál og þar verói því lið- sinnt með að hrinda þeim í fram- kværnd á einn eða annan hátt. „Til dæmis gæti fólk komið þarna með sín áhugamál og fengió aðstöðu, leiðbeiningu og notið samveru við aðra sem hefðu sömu áhugamál. Þaó gæti líka verið um það að ræða að fólk gerði sér eitthvað til búdrýginda, ég nefni til dæmis bókband, kjólasaum eða hús- gagnaviðgerðir,“ sagði Jón. Félagsmálastjóri segir aó Akur- eyrarbær eigi í fórum sínum ýmis tæki og tól sem komi aö góðum notum á handíðaverkstæóinu. I því sambandi nefndi hann leir- brennsluofn, leðurvinnusett og margt fleira. „Við munum reyna að tryggja að fólk geti komið þarna og fengið leiðsögn fagfólks um hina og þessa hluti. Ef við gef- um okkur að upp komi mikill áhugi fyrir húsgagnaviðgeróum, þá höfum vió til dæmis möguleika á að ráða smið innan ramma at- vinnuátaksins sem gæti veitt leið- beiningar." Starfsmannafélag Sambands- verksmiðjanna bauð afnot af borð- um og stólum á handíðaverkstæð- ió og síðan er að sögn Jóns ætlun- in að afla húsbúnaðar eftir öðrum leiðum. Eins og áður segir er gert ráð fyrir að eiginleg starfsemi hand- íóaverkstæðisins hefjist í næstu viku og er gert ráð fyrir að ráðinn verði starfsmaður sem haldi utan um starfsemi þess. Jón Björnsson segir ekki endanlega ákveðið með opnunartíma, en væntanlega verói hann á vinnutíma, t.d. frá kl. 9 til 17. óþh Börn og gæslukonur á Icikvelli á Skagaströnd á dögunum. Mynd: ÞI Skagstrendingar vilja sameinast Skagahreppi - lítill áhugi á annarri sameiningu samkvæmt könnun sem gerð var í sveitarfélaginu Yfir 70% þeirra er þátt tóku í skoðanakönnun á Skagaströnd í desember síðastliðnum um hvort samcina ætti Höfðahrepp og Skagahrepp töldu að sam- eina bæri þessi tvö sveitarfélög. Um 12% þeirra er svöruðu kváðust vera hlutlausir gagn- vart þessari sameiningu og tæp 15% reyndust henni andvíg. Að fengnum niðurstöðum í kosningunum um sameiningu Akureyri: Margir árekstrar A mánudaginn urðu fímm árekstrar á götum Akureyrar og var lögreglunni reyndar kunnugt um fleiri umferðaró- höpp þar sem ekki var óskað eftir aðstoð lögreglu. Að sögn lögregluvarðstjóra voru þessir árekstrar allir minni háttar og engin meiósl á fólki en einhverjar skemmdir á ökutækj- um. Hálkan hafði sitt að segja í flestum tilvikum, en göturnar eru svellaðar þótt víða sé þunnt snjó- lag yfir. Hins vegar má brýna fyrir ökumönnum að haga akstri eftir aðstæðum. í gær virtist ástandið ekki ætla að verða eins slæmt því síðdegis var lögreglunni aðeins kunnugt um einn árekstur á Akureyri. SS sveitarfélaga þann 20. nóvember síðastlióinn óskaói umdæmanefnd Norðurlands vestra eftir því að sveitarstjórnir svöruðu því hver fyrir sig hvort um einhverja sam- einingarmöguleika væri að ræða af þeirra hálfu. Að sögn Magnúsar B. Jónssonar, sveitarstjóra á Skagaströnd, ákvaó hreppsnefnd Höfðahrepps að efna til skoóana- könnunar á meóal íbúa sveitarfé- lagsins urn hver væri vilji þeirra til sameiningar. I könnuninni var spurt um þrjá valkosti til samein- ingar. Hinn fyrsti var sameining Höfóahrepps og Skagahrepps. Annar var sameining allrar Aust- ur-Húnavatnssýslu og hinn þriöji sameining Höfóahrepps (Skaga- strandar) og Blönduósbæjar. Urslit könnunarinnar voru þau að yfirgnæfandi meirihluti þeirra er svöruðu eóa 71,4% voru fylgjandi sameiningu Höfða- hrepps og Skagahrepps, sem er sveitahreppur í nágrenni Skaga- strandar. Rúm 16% kváðust telja sameiningu allrar Austur-Húna- vatnssýslu besta kostinn og um 13% vildu samcinast Blönduósbæ. Þá taldi ríflega helmingur þátttak- enda eða 50,7% að sameining ætti að eiga sér stað innan 10 ára. Alls tóku 217 íbúar í Höfðahreppi þátt í skoðanakönnuninni. Niðurstöóur hennar eru á engan hátt bindandi fyrir sveitarstjórn Höfðahrepps. ÞI íþróttafélagið Þór: manna tíl Danmerkur á næsta ári hópur stefnt að beinu leiguflugi frá Akureyri Unglingaráð handknattleiks- og knattspyrnudeilda Þórs hafa ákveðið að halda með 3. og 4. flokk pilta og stúlkna í 8 daga ferð til Randers í Dan- möku í júlí 1995. Hugmyndina átti Jan Larsen, þjálfari nieist- araflokks I»órs í handbolta, og var henni tekið mjög jákvætt í unglingaráðum beggja deilda. Stefnt er að því að halda racð allt að 150 manna hóp í beinu leiguflugi frá Akureyri til Dan- merkur. Þó enn sé um eitt og hálft ár til stcfnu, er undirbúningur ferð- arinnar þegar hafinn og sagöi Ámi Oðinsson, einn þcirra sex sem sæti eiga í undirbúnings- nefndinni, að gefa ætti öllum þeim bömum sem æfa handbolta og fótbolta í 3. og 4. aldursflokki kost á að fara í þessa fcrð. Hér er um að ræða böm sem fædd cru 1979, ’80, ’81 og’82. í Randers taka Þórsarar þátt í 3ja daga handboltamóti og 3ja daga fótboltamóti, ásamt liðum frá fjölmörgum löndum. Ein- hverjir þátttakcndur keppa í báð- um greinunum en þeir sem það ekki gcra, fá cngu að síður nóg að gera. Einnig er hugmyndin að heimsækja tvo skemmtigarða í ferðinni. „Það er stefnt að því að þetta verói ódýr ferð, þannig að allir sjái sér fært að fara meó og vió eigum von um að ferðin verði jafnvcl styrkt af dönskum aðil- um. Eins er stefnt að góðu sam- starfi við forcldra við allan und- irbúning," sagói Ámi. Hann sagði jafnframt aö ef vel tækist til, yrði stefnt að því að fara slíka feró á tveggja til þriggja ára fresti í framtíðinni. KK TILBOÐ PFAFF SAUMAVÉL 6085 HEIMILISVÉL 20 SPOR VERÐ KR. 39.805 KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565 Við tökum vel á móti ykkur alla daga til fcl. 22.00 Byggðavegi 98

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.