Dagur - 26.02.1994, Page 4

Dagur - 26.02.1994, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 26. febrúar 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SlMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON. LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Þjónustugjöld bankanna Sú fyrirætlan forráðamanna banka og spari- sjóða að innheimta gjöld af viðskiptavinum sínum fyrir ýmsa þá þjónustu, sem þeir hafa til þessa ekki þurft að greiða sérstaklega fyr- ir, hefur mætt harðri andstöðu meðal al- mennings. Væntanlega koma þau viðbrögð fáum á óvart. Um langt árabil hefur verið óeðlilega mikill munur milli innláns- og út- lánsvaxta í bönkum og sparisjóðum landsins. Innlánsvextir eru í sumum tilfellum allt of lágir, á sama tíma og útlánsvextir hafa verið óheyrilegir. Þeir umtalsverðu fjármunir, sem peningastofnanir hafa haft af viðskiptavinum sínum með þessu móti, hafa verið notaðir til að fjármagna hið allt of stóra og óhagkvæma bankakerfi. Almenningur, vinnuveitendur og verka- lýðsforystan hafa árum saman barist fyrir því að vextir verði lækkaðir. Stjórnvöld hafa síð- ustu mánuði lagt þeim lið í baráttunni, með ánægjulegum árangri. Vextir eru ekki lengur í sömu ógnarhæðum og fyrr, þótt þeir séu óneitanlega enn of háir, sérstaklega af óverð- tryggðum útlánum. Forsvarsmenn peningastofnana hafa full- yrt að þjónustugjöldin séu réttlát. Með þeim sé verið að sjá til þess að þeir sem njóti þjón- ustunnar greiði fyrir hana, en ekki allir lán- takendur og sparifjáreigendur í formi of hárra vaxta. Þetta er rétt, svo langt sem það nær. Staðreyndin er þó því miður sú að pen- ingastofnanir hafa síðustu mánuði lækkað vexti sína með semingi - og ávallt tekið minni skref í þeim efnum en efni hafa staðið til. Vextir hafa sem sagt alls ekki lækkað meira en efnahagsaðstæður hverju sinni hafa gefið tilefni til. Vaxtamunurinn hefur einnig minnkað nokkuð en er ennþá meiri en eðli- legt getur talist. Ef hann nægir ekki til að fjármagna rekstur bankakerfisins ber for- ráðamönnum þess að grípa til aðhaldsað- gerða í stað þess að finna nýjar leiðir til að láta viðskiptavininn borga brúsann. BB. I UPPAHALDI VÍSNAÞÁTTUR Svanhvít Ingvarsdóttir Syóri-Skál sendi mér nokkrar snjallar vísur, og ber henni besta lof fyrir tiltæk- ið. Hér á eftir birtast nokkrar góö- ar úr bréfi Svanhvítar. Fyrstu þrjár vísumar eru eftir Jón S. Berg- mann. Þá hina fyrstu nefnir hann pólítík: Fólkið sér í seinni tíð sitja í tryggðum griðum, kögurbörn sem leiða lýð, logagyllt ísniðum. Valdatindi til að ná tign og launabótum, stikla heimsku annarra á alveg þurrumfótum. Og um menningu vora yrkir Jón svo: Góðan ávöxt aldrei ber okkar tískumenning. Tildur, heimska og hrtvsni er hennar trúarþrenning. I eldhúsdagsumræðum ársins 1959 gengu klögumálin á víxl, rétt eins og gerist í dag. Undir þessum umræðum orti Gísli Ólafsson: í næstu tveimur vísum Gísla leynir sér ekki gremjan út í atóm- kveðskap. Vísna-glóðin fölna fer, flestir hljóðir stara. Atómljóðin eru hér orðin móðins vara. Metur þjóðin menntafróð mikla kvœðafenginn? Silt úr hverju horni hljóð en höfuðstafur enginn. Og meira gott úr bréfi Svan- hvítar á Skál. Jón frá Pálmholti sendi Steingrími í Nesi Aðaldal vísukorn í Degi, og var að kvitta fyrir skeyti, sem Steingrímur hafði áður sent Jóni. Vísa Jóns þótti ekki með miklum meistarabrag, og höl'ðu margir orð á. Vísan er svona: Stcingríms varnarvísunni veitist þungt á bárunni, hallar niður að heimskunni hennar nesjamennskunni. En Steingrímur henti leirinn á lofti, og sendi skeyti til baka: Og ekki var látió hér við sitja. Egill Jónasson Húsavík, hnykkti betur á leirburói Jóns frá Pálm- holti: Omurleg sjón! Fádtvma bögubósi birtist í „Dagsins“-ljósi. Hann hcitir Jón. Heyrðu mig Jón! Vertu' ekki’ að reyna að ríma rím skaltu spara og tíma. HyggilegtJón. Trúðu mér Jón! Þó Ijóðskáld þig langi að vera, láttu sem minnst á því bera. Gerðu það Jón! Þá koma nokkrar vísur Bjarna frá Gröf: Siðgœðis er brotin brú, börn í villu sveima, glötuð okkar gamla trú, Guð á Itvergi heima. Þó að líftð þyki kalt, þrjóti vinafúndir, hlýja manni eftir allt ýmsar gleðistundir. Upp skal rísa, ennþá mér, yljað vísan getur. Karla hýsa, kominn er kaldur ísa vetur. ÁRNI JÓNSSON Næst ætla ég aó bera niður í Alþingisrímum. Bregð ég þar gróficga út af mínum fyrstu hcit- strcngingum um að birta ekki vís- ur né ljóð án þess aö þckkja höf- und að. En því cr nú þannig varið, að hreint er ekki með öllu Ijóst hver höfundur, eöa höfundar eru að Alþingisrímum, en þær eru ort; ar fyrir og cftir aldamótin 1900. í rímunum má kcnna marga af þekktustu þingmönnum landsins, og hvergi spart farið með lýsing- arorðin. En lítum á smá sýnishorn: Nú skal byrja braginn á Bcnsa hinum gamla, mest á þingi þótti sá þjáðskörungur bramla. Hátt var ennið, hvatleg brá, harka í andlitsdráttum, gustur kaldur gaus um þá úr geysimörgum áttum. Og þá var barist ekki síður cn í dag: Enginn brosti, öðlings þjóð eins og lostin þrumu stóð. Mevlti hraður hilmir þá: „Hvað cr það, scm gcngur á. “ Allt í brandi og báli er þar blóði randir litaðar, bragna fall og brandshviður, berst þar allur þingheimur. Skortir Valtý vopn og lið, varla er talað þar um frið. Býsna hnellinn brands við el Bensiféll, og þarfór vel. Þetta hefur ekki verið hótinu bctra en í Króatíu nú til dags: Rœðumenn mistök á mótflokkinn sverja, sem ma’ðist á villustig. Grátklökkir enda þeir gloríu hvcrja í Guðsnafni kjósið þið - mig. Atómskáldin óljóst kveða, almenningur leitarfrétta: Erþað prentvillupúkinn eða Pálmholts-Jón, sem yrkirþetta? Óll mín fögru œskublóm eru löngu slegin. Eftir þungan atvidóm urðu lítil heyin. Þar hafa örlög ramma rún rist, erfáir skilja, atalt skein und augnabrún eldur þrjósku og vilja. „Hvaða vandi?" hilmir kvað, „höndum vandi kemurað, eyðist ríkið, yndi þver, illa líkar stríðið mér. “

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.