Dagur - 22.03.1994, Blaðsíða 6

Dagur - 22.03.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriójudagur 22. mars 1994 Vinningstölur laugardaginn FJÖLDI UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA 1. 5a)5 1 2.107.789 4af5* 2if 3 122.158 3. 4af5 118 5.357 4. 3af 5 3.724 396 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.581.093 UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 91 -681511 LUKKULlNA 991002 Ráðhústorgi 5, 2. hæð Gengiö inn frá Skipagötu Sími 11500 Á söluskrá Vídilundur: 3ja herb. endaíbúð á 3. hæð um 78 fm. í ágætu lagi. Laus strax. Víðilundur: 2ja-3ja herb. íbúð á 3. hæð um 77 fm. Áhvdandi 40 ára lán um 3,5 millj. Laus strax. Skarðshlíð: 4ra-5 herb. Ibúð á 2. hæð um 116 fm. í ágætu lagi. Laus eftir samkomulagi. 2ja herb. íbúðir: Við Hjallalund 54 fm, Smárahlíð 58 fm, Borgarhlíð 60 fm. Gilsbakkavegur: 3ja-4ra herb. neðri hæð í tvlbýli um 93 fm. Laus eftir samkomulagi. Heiðarlundur: 5 herb. mjög gott raðhús á tveimur hæðum um 117 fm. Hagstæð húsn.lán. Laust eftir samkomulagi. Norðurbyggð: 5-6 herb. raðhús á tveimur hæðum m. kjallara samtals um 167 fm. Lltil íbúð ( kjallara. Hugsanlegt að taka litla íbúð upp í kaupverðið. FASTEIGNA&M SKIPASALA NORÐURLANDSÍI Ráðhústorgi 5, 2. hæð gengið inn frð Skipagötu Opiö virka daga frá kl. 9.30-11.30 og 13.15-17. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Benedikt Ólafsson hdl. fl™ HEILRÆÐI SLYSAVARNAFÉLAGÍSLANDS RAUÐI KROSS ÍSLANDS VARIST AD SKILJA STRAUJÁRN EFTIR ÞAR SEM BÖRN GETA NÁÐ TIL ÞEIRRA, JAFNVEL ÞÚ BÚID SÉ AD TAKA ÞAU ÚR SAMBANDI. Fíðla og píanó Góðír gestir sóttu tónlistarunnendur á Akureyri heim fimmtu- daginn 17. mars og efndu tíl tónleika í Safnaðarheimili Ak- ureyrarkirkju. Hér voru ferð Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari, og Peter Maté, píanóleikari. Efnisskrá tónleikanna var harla forvitnileg: Þrjár sónötur fyrir fiðlu og píanó eftir norska tónskáldið Ed- ward Grieg, sem nefnast Sónata nr. 1, op. 8 í F-dúr, Sónata nr. 2, op. 13 í G- dúr og Sónata nr. 3, op. 45 í c-moll. Þessar sónötur eru ekki míkíð leiknar, nema vera skyldi hin síðastnefnda. Þær eru hefðbundnar að uppbyggingu og fylgja hinu fyrírskrifaða formi klassískrar sónötu í öllum atriðum. Ef til vill er það þess vegna meðal ann- ars, sem þær þykja ekki forvítnilegar til flutnings. Hér er samt um fagra tónlist að ræða, svo sem við er að bú- ast úr smíðju híns norska tónsnillings. Stefin eru Iagræn flest og sönghæf. Þau minna mörg á hin fögru norsku þjóðlög, sem Grieg hafðí einmitt svo mikla unun af að búa í tónaklæðí, ekki síst sú, sem er númer tvö. Yfir verkunum er heiðríkja og blámi hínna norsku fjalla, hinna snævi þökktu tinda og hinna tæru fossa. Leikur hljóðfæraleíkaranna tveggja gerðí tónverkunum þrem góð skil. Reyndar var stilling fiðlunnar ekki alveg í fullu Iagi í fyrsta þætti Sónötu nr. 1, Allegro con brío, en hinir þrír þættirnir, Állegro quasi andantino og Allegro molto vivace Iiðu ekki fyrir slík atriði. Þessí sónata er einlæg tónsmíð og víða stórfalleg í steQum. Guðný Guðmundsdóttir fór vel með verkið. Leikur hennar féll vel að Ijúfum anda þess og ekkí spillti píanóleikur Peters Matés, en hann var ætíð vel við hæfi og studdi við í hví- vetna. Önnur sónatan er þjóðlagalegust verkanna þriggja. Fyrsti kafl- inn, Lento doloroso - Alíegro vivace er sérlega áhrifamikill og magnaður, fullur ólgandí fjörs í seinni hluta sínum og var fagurlega fluttur. Ann- ar kaflinn Alllegretto tranquillo er hrífandí í kyrrlæti sínu og lokakaflinn Allegro ani- mato fullur gleðí og lífsþróttar, sem virð- ist sem næst sprengja af sér öll bönd. Lokaverkið, Sónata nr. 3, er ef til víll myndrænust þessara þriggja sónata. Fyrstí hlutinn, Allegro molto ed appassionato er furðu heit tón- list, og var leikinn af miklum þrótti og tilfinningu. Annar hlutinn, Allegretto espressivo alla romanza er sérlega hugljúfur. í þess- um hluta má segja að eini gallinn í samleik píanós og fiðlu hafi komið fyrír. Leikur hins fyrmefnda var heldur sterkur undir plokkuðum strófum fiðlunnar og svo að segja kæfði hana. Einníg var smávægílegur galli í lokatóní fiðlunnar, en hann er mjög hár. Lokakaflinn Allegro animato byggir upp míkinn tilfinn- ingahita, sem skilaði sér vel í leik tónlistarmannanna og var áhrifamíkill. í þessum hluta var smástrófa í fiðlu ekki alveg í tón- hæð, en annars var ekki galla að finna. Þetta voru góðir tónleikar og sannarlega þess virði að sækja þá. Hér voru góðir tónlistarmenn á ferð, sem jusu ótæpilega af brunnum hæfni sínnar í túlkun og tækni. Komi þeir sem fyrst aftur. TONLIST Hauktir Ágústsson skrifar Þriðja stuttmynd Sævars Guðmundssonar frumsýnd: Ég negli þig nœst er gamansamur „krimmi“ Sýslumaðurinn á Akureyri Hafnarstræti 107, 600 Akureyri, sími 96-26900. Uppboð Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, 3. h. Akureyri, föstudaginn 25. mars 1994 kl. 10.00, á eftirfarandi eignum. Brekkugata 9. Hrísey, þingl. eig. Ársæll Alfreósson og Erla Geirs- dóttir, gerðarbeiðendur Landsbanki íslands og Sýslumaðurinn á Akur- eyri. Fagrasíða 15c, Akureyri, þingl eig. Randí Ólafsdóttir og Valdimar B. Davíðsson, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður verkamanna. Furuvellir 5, B-hluti, Akureyri, þingl eig. Eyri h.f. gerðarbeiðandi Iðn- lánasjóóur. Grundargata 4, suðurendi, Akur- eyri, þingl. eig. Guðlaug Ósk Guð- jónsdóttir, gerðarbeiðendur Akur- eyrarbær og Byggingarsjóður ríkis- ins. Hafnarstræti 77, 3. og 4. hæð, Ak- ureyri, þingl. eig. Rolf Jonny Ingvar Svard og Jóna Ákadóttir, gerðar- beiðandi Akureyrarbær. Hafnarstræti 9, n.h. Akureyri, þingl. eig. Ólafur Guðmundsson og Ragnheiður Antonsdóttir, gerðar- beiðandi Sparisjóður Glæsibæjar- hrepps. Hamarstígur 30, Akureyri, þingl. eig. Frióný Friðriksdóttir, gerðar- beiðandi íslandsbanki h.f. Hjallalundur 18, íb. 02-05, eignarhl, Akureyri, þingl. eig. Hafdís Einars- dóttir, gerðarbeiðandi Kreditkort h.f. Hjallalundur 20, íb. 401, Akureyri, þingl. eig. Margrét Þorvaldsdóttir, geróarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Klapparstígur 2, Hauganesi, þingl. eig. Valdimar Kjartansson, gerðar- beiðendur, Oiíuverslun íslands og Tryggingarstofnun ríkisins. Steindyr, Svarfaðardal, þingl. eig. Ármann Sveinsson og Jarðasjóður ríkisins, gerðarbeiðendur Búnaðar- banki íslands, Féfang h.f., Stofn- lánadeild landbúnaðarins og ís- landsbanki h.f. Strandgata 49, ásamt öllum vélum og tækjum, Akureyri, þingl. eig. Gránufélagið h.f. gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður. Sunnuhlíö 12, Þ-hl, Akureyri, þingl. eig. Skúli Torfason, gerðarbeióend- ur, Akureyrarbær og Kaupþing h.f. Sveinbjarnargerói 2, Svalbarös- strandarhreppi, þingl. eig. Fjöregg h.f. gerðarbeiðandi, Stofnlánadeild landbúnaöarins. Tungusíða 23, Akureyri, þingl. eig. Freyja Guðmundsdóttir, gerðar- beiðendur Akureyrarbær og Bygg- ingarsjóður ríkisins. Þórunnarstræti 127, e.h. n-hl. + bílg. Akureyri, þingl. eig. Stefán Tryggvason, gerðarbeiðendur Ak- ureyrarbær og Byggingarsjóður rík- isins. Sýslumaðurinn á Akureyri. 21. mars 1994. Sl. sunnudag frumsýndu Filmu- menn stuttmyndina Ég negli þig nœst, sem er sakamálasaga með mjög hraðri atburðarás. Mynd- in verður sýnd daglega til 30. mars nk. í Borgarbíói en um framhald sýninga á henni víðar um landið ræðst af viðtökum á Akureyri. Stjórn upptöku, klipping og leikstjórn er í hönd- um Sævars Guðmundssonar og er þetta þriðja stuttmyndin sem hann framleiðir. Hinar eru Skotinn í skónum og Spurning um svar. Myndin hefur verió í fram- leiðslu í hálft annað ár en handrit- ið var samið haustið 1992 af Sæv- ari og Oddi Bjarna Þorkelssyni sem jafnframt er höfundur sögu. Myndatöku annaóist Gunnar Árnason, hljóð Gunnar Bjarni Gunnarsson, lýsingu Davíö Rúnar Gunnarsson og Gunnar Árnason og förðun og framkvæmdastjórn Kristrún Lind Birgisdóttir. Með aðalhlutverk fara Hatþór Jónsson, Arnar Tryggvason, Kristján Krist- jánsson, Hanna Ólafsdóttir og Tinna Ingvarsdóttir og sórstakir gestaleikarar eru þau Gestur Einar Jónasson og Freygerður Magnús- Sævar Guðinundsson, lcikstjóri. Mynd: GG dóttir. Tónlist var í höndum Trausta Haraldssonar, Jóns Andra Sigurðarsonar og Borgars Þórar- inssonar en titillag myndarinnar cr sungið af Stel'áni Hilmarssyni. Lagið Tómarúm meó texta Odds Bjarna Þorkclssonar er sungið al' Selmu Björnsdóttur cn útsctningu annaðist Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson. Myndin ljallar um mann sem sefur hjá fjölda kvcnna cn cr svo skyndilcga sakaóur um að hafa myrt eina þeirra scm dcilir með honum rúmi. Maðurinn reynir að hvítþvo sig af þessari alvarlegu ákæru en sekkur þá bara dýpra og dýpra í fcnið. Leikstjórinn, Sævar Guö- mundsson, cr að þreyta inntöku- próf í London hjá National l'ilm and television school ( NFTS ) og sest þar á skólabekk í haust el' hann kenist inn. I þeim skóla hafa tleiri Islendingar sótt nárn, m.a. Oskar Guómundsson scm leik- stýrói Sódómu Reykjavík er hlaut mjög góðar viðtökur hérlendra kvikmyndahúsagesta. GG Oskum eftir að ráða fólk til liðveislu við fatlaða fáeinar klst. í mánuöi, einkum karlmenn því margir karlar bíöa eftir að fá liöveislu. Liðveisla felst í persónulegum stuðningi og aóstoð til að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs. Ennfremur afleysing aðstandenda fatlaðra í sama skyni. Umsóknarfrestur er til 29. mars. Upplýsingar gefur Anna Marit í síma 25880 eftir há- degi. Félagsmálastofnun Akureyrar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.