Dagur - 22.03.1994, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 22. mars 1994
Skriðu-, Glæsibæjar- og
Öxnadalshreppur:
Sameiningar-
tillaga felld
Tillaga um sameiningu Skriðu-,
Glæsibæjar- og Öxnadalshrepps
í Eyjafirði var felld í atkvæða-
greiðslu um helgina. Þrátt fyrir
þessa niðurstöðu verður
væntanlega ræddur möguleik-
inn á því að sameina Glæsibæj-
ar- og Öxnadalshrepp.
Sameiningartillagan fékk mest-
an stuðning í Öxnadalshreppi. Þar
voru 40 á kjörskrá. Atkvæði
greiddu 27 eða 67,5%. Já sögðu
22, nei sögðu 4 og 1 seðill var
auður.
í Glæsibæjarhreppi voru 167 á
kjörskrá. Atkvæði greiddu 89 eða
53%. Já sögóu 50, nei sögðu 38
og 1 seðill var auður.
I Skriðuhreppi voru 76 á kjör-
skrá. Atkvæði greiddu 55 eða
73%. Já sögðu 23, nei sögóu 28
og 4 seðlar voru auðir.
Til þess að sameiningartillagan
næði fram að ganga þurfti meiri-
hlutinn í öllum sveitarfélögunum
að segja já. Sú varð niðurstaðan í
Glæsibæjarhreppi og Öxnadals-
hreppi en í Skriðuhreppi var til-
lagan felld. Þrátt fyrir þessa niður-
stöðu er ekki útilokað að Glæsi-
bæjarhreppur og Öxnadalshreppur
verði sameinaðir, enda er heimild
í lögum til slíkrar sameiningar.
Sveitarstjórnir hreppanna munu
væntanlega fyrr en síðar ræóa nið-
urstöóur kosninganna og meta
hvort samcining þeirra verði
könnuð. óþh
Akureyri:
Rúður brotnar
í GA og Amaro
Aðfaranótt sl. laugardags voru
brotnar rúður í annars vegar
Gagnfræðaskóla Akureyrar og
hins vegar versluninni Amaro
við Hafnarstræti. Fyrrnefnda
rúðubrotið er upplýst en síðdeg-
is í gær var ekki búið að upplýsa
Amaro-rúðubrotið.
Ymislegt fleira var skráð í
bækur lögreglunnar á Akureyri
eftir helgina. Meóal annars voru
ökumenn teknir fyrir að aka rétt
yfir 100 kílómetra hraöa þar sem
hámarkshraði er 70 km, nokkrir
voru uppvísir af því að tefja um-
ferð og einnig bar á akstri móti
einstefnu.
A laugardag var minniháttar
árekstur á móts við KEA-Nettó og
sl. sunnudag voru skráðir tveir
árekstrar, annars vegar árekstur
vélsleða og bifreiðar á Syóri-
Brekkunni og hins vegar árekstur
tveggja ökutækja á mótum Aðal-
strætis og Hafnarstrætis. Ökumað-
ur annarrar bifreiðarinnar er grun-
aður um ölvun við akstur. óþh
VEÐRIÐ
Eftir sunnanhvassviðrið í gær
meó tilheyrandi úrkomu eru
líkur á því að veðrið verði á
fremur rólegum nótum í dag.
Það er þó varla nema lognió
á undan storminum því Veð-
urstofan spáir því að á morg-
un snúist vindur til noróanátt-
ar með snjókomu. Á fimmtu-
daginn er einnig spáð
norðanátt en á föstudag eru
líkur á hægri breytilegri átt.
Þessi mynd var tekin á kjörstað í Glæsibæjarhreppi si. laugardag.
Mynd: Robyn.
Vaxandi ágreiningur um yfirráðarétt yfir
Hatton-Rockall svæðinu:
Breskt herskip færði
togarinn Rex tll hafnar
Togarinn Rex, sem áður hét Arn-
ar HU, og var gerður út frá
Skagaströnd, hefur að undan-
fórnu verið að veiðum á Hatton-
Rockall svæðinu. Bretar hafa
gert tilkall til klettsins og hclgað
sér 200 mílna landhelgi umhverf-
is hann en sú ákvörðun þeirra
hefur ekki verið viðurkennd af
öðrum þjóðum við Norður-Atl-
antshaf. Breskt herskip kom að
togaranum fyrir helgi og færði
hann til hafnar í Skotlandi.
Skagstrendingur hf. stofnaði
sérstakt fyrirtæki um reksturinn á
togaranum Rex, Atlantic Sea
Shipping, og er það skráð á Kýpur,
en það er alfarió í eigu Skagstrend-
ings hf.
Sveinn Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Skagstrendings hf„
segir að ekkert sé að frétta af mál-
inu, það hafi enn ekki verið tekið
fyrir. Utgerðarstjórinn, Jón Steinar
Arnason, sé að vísu kominn til
Skotlands og standi í einhverju
„rexi“ við yfirvöld.
Islensk stjómvöld hafa lýst yfir
því að ekki verði um nein afskipti
að ræða af þeirra hálfu í þessu
máli. Framganga Breta í málinu
veltir hins vegar upp þeirri spurn-
ingu hvort nýtt þorskastríð sé í
Sjúkrahúsið á Húsavík:
Friðflnnur Her-
mannsson ráðinn
framkvæmdastjóri
Friðfinnur Hermannsson, við-
skiptafræðingur, var valinn úr
hópi 19 umsækenda í starf
framkvæmdastjóra Sjúkrahúss-
ins á Ilúsavík á fundi stjórnar
Sjúkrahússins í gær.
Hilmar Þorvaldsson, stjórnar-
formaður, sagði að algjör einhug-
ur hefði ríkt í stjórninni er Friö-
frnnur var valinn úr hópi þriggja
manna sem hæfnisnefnd taldi hæf-
asta að gegna stöðunni. Ekki hefur
verið rætt hvenær Friðfinnur tekur
við stöóunni.
Friðfinnur er fæddur 1963.
Hann starfar á endurskoóunar-
skrifstofu og er að ljúka prófum
sem löggiltur endurskoðandi.
Kona Friðfinns er Berglind Svav-
arsdóttir, fulltrúi sýslumanns á
Húsavík. Þau eiga einn dreng. IM
uppsiglingu milli íslendinga og
Breta, en með öfugum formerkjum
frá fyrri „stríðum" við íslands-
strendur. GG
Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit:
Tapið á fjórða tug
milljóna í fyrra
- róttækar aðhaldsaðgerðir miða
að hagnaði í ár
Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit
tapaði 32 milljónum króna á
síðasta ári. Nú þegar hefur verið
gripið til aðgerða til að snúa
taprekstrinum við og er stefnt
að 25% fækkun starfsmanna,
eða um 13. Tíu þeirra láta af
störfum um næstu mánaðamót.
Ennfremur eru hafnar viðræður
um Iækkun flutningskostnaðar
og fyrir dyrum standa viðræður
við orkusala um lækkun á orku-
kostnaði.
Nýir kjarasamningar vió starfs-
menn eru í burðarliðnum en þeir
fela í sér nýtt vaktavinnukerfi þar
sem tekið hefur verið tillit til
fækkunar starfsmanna. Með að-
haldsaðgerðum á að ná 15% lækk-
un rekstrargjalda og vænta for-
Loðnan:
Helga II aflahæst
norðlensku skipanna
Heildarafli sjö loðnuskipa á
Norðurlandi var sl. sunnudag
kominn í 81.442 tonn en heildar-
aflinn á vetrarvertíðinni á sama
tíma var 436.040 tonn og afli
skipanna því 19% af heildar-
veiðinni.
Það er heldur minna magn en
sem borist hefur til norðlensku
verksmiöjanna en þar hafa fengið
um 23% af heildaraflanum.
Tvö skipanna, Súlan EA og
Guðmundur Ólafur ÓF, hafa veitt
allan sinn kvóta, aðrir eiga mis-
jafnlega mikið eftir. Af heildarút-
hlutun, 1.072.000 tonnum, voru
óveidd 167.000 tonn síódegis í
gær, þar af tæp 25.000 tonn hjá
norðlensku skipunum, þó mjög
misjafnlega mikið.
Helga II er aílahæst áóur-
nefndra sjö skipa á vetrarvertíðinni
með 16.400 tonn, en er hætt á
loðnu, en veriö er að gera skipið
klárt á rækjuveiðar á Dohrnbanka.
Síðan kemur Júpíter ÞH 15.200
tonn; Hákon ÞH með 12.000 tonn;
Súlan EA með 10.600 tonn; Guð-
mundur Ólafur ÓF með 9.900
tonn; Þóröur Jónasson EA með
9.300 tonn og Björg Jónsdóttir ÞH
með 8.200 tonn. GG
Þrefalt hjá KA í 6. flokki
KA náði þeim giæsiiega árangri um hclgina að tryggja sér ísiandsmeist-
aratitil í öllum þremur styrkieikaflokkum 6. flokks drengja í handbolta,
þ.e. hjá , A- B- og C- liðum. Er þetta árangur sem afar fá félög geta stát-
að af. Að sögn Jóhanncsar Bjarnasonar, þjálfara liðanna, eru strákarnir
samt hvað ánægðastir mcð að ciga inni hamborgara- og pizzuvcisiur hjá
veitingahúsum í bænum, sem höfðu heitið á liðin fyrir mótið. Á mynd-
inni hér að ofan er A-liðið mcð verðlaun sín. Efri röð fv.: Þórir Sig-
mundsson, aðst. þjálf., Hafþór Úlfarsson, Atli Þór Ingvason, Einar Frið-
jónsson, Ingóifur Axclsson og Jóhanncs Bjarnson, þjálfari. Ncðri röð fv.:
Helgi Jónasson, Gísli Grétarsson, Baldvin Þorsteinsson, fyrirl., Birkir
Baldvinsson, Einar Egilsson og Stefán Pálsson. Mynd: Þórir.
Sjá nánar á íþróttasíðum bls. 7-10.
svarsmenn félagsins þess aó það
skili fyrirtækinu í hagnaðarrekstur
á ný en árið 1992 var hagnaður
Kísiliðjunnar 5,7 milljónir króna.
Kísiliöjan hf. framleiddi á síð-
asta ári 17.743 tonn, sem er 25%
minna magn en að meðaltali síö-
ustu fimm ár. Útflutningurinn
jókst þó frá 1992 en engu að síður
var þann mun minni en aö meðal-
tali síðustu fimm árin.
A þessu ári er gert ráó fyrir að
framleiðslan verði rúm 19 þúsund
tonn og salan verði 19.500 tonn.
A fyrstu mánuðum þessa árs hefur
oröið 20% söluaukning miðað við
sömu mánuði í fyrra og er það í
samræmi við framleiðsluáætlun,
að sögn Friðriks Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar
hf. Hann telur að fyrirtækió sé að
komast í uppsvciflu á ný en allar
aðgerðir miði að því að rcksturinn
standi undir 19-20 þúsund tonna
framleiðslu á ári. Öll sala umfram
þaó mark á næstu árum verði bón-
us fyrir fyrirtækið.
Rekstrartekjur Kísiliðjunnar
voru rúmar 340 milljónir króna í
fyrra og hækkuóu um 8% milli
ára. Rekstrargjöld, án tjármagns-
gjalda, voru 390 milljónir en voru
332 milljónir árið 1992. Hækkun-
in er 17%, sem, að sögn Frióriks,
skýrist aðallega af mun minna
framleiðslumagni. JÓH
■BBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBB
f
Trio
Eldavél, bökunarofn og uppþvottavél
kr. 99.845
10 KAUPLAND \
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565 £
5== ik
Við
tökum vel á
móti ykkur
alla daga
til kl. 22.00
Byggðavegi 98