Dagur - 16.04.1994, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 16. apríl 1994
Umsjón: Vilborg Gunnarsdóttir
HALLO KRAKKAR!
Hafið þið tekið eftir hvað það er nú lengi bjart á
daginn? Þið vitið væntanlega öll hvers vegna
það er og eruð sennilega komin með vorfiðr-
ing. Þá er hægt að fara að huga að hvað hægt
er að gera í sumar. Einhver ykkar fara senni-
lega í skólagarðana og önnur fá kannski vinnu.
Þá stunda margir íþróttir sem er hollt og gott
áhugamál. Spyrjið vini ykkar hvað þeir ætli að
gera ef þið eruð í vafa og skortir hugmyndir.
Kannski dettur þeim eitthvað sniðugt í hug?
©KFS/Disir BULLS
„Sjáðu. Þetta eru alveg eins og ungbarnamyndir,
nema hvað fyrirsæturnar eru fullorðnar!"
63 H ^ ' Jj Kk II JV\ty> M n
„Nei, Kalli minn. Útkoman úr þessu dæmi er ekki
sérhljóði!"
Rebbi Hólms
Siggi slóttugi fullyrðir að bíl hafi
verið ekið í veg fyrir hann, inn á
vitlausa akrein. Hann hafi neyðst
til að aka útaf veginum en að sér
hafi tekist að stökkva út úr bílnum
rétt áður en hann fór fram af.
Rebbi heldur að Siggi hafi sett
„slysið" á svið til að fá út úr trygg-
ingunum. Hvaða sannanir styója
þessa kenningu Rebba?
■ujnin68A jb Luejj
IpuefijA oas Lunujs umuijq ijjA 60 pipuSeA
jnejq i66is ’ufiasuiq pinus ujjojq npjeq
'JB jn puej fpjsq b66is ||jq h uinuiéaA
PB buijj? J jsb[6|8as ujjOjqnjAds lusnsq
Frænka lét Svínku litlu hafa fimm hundruð krónur fyrir ís sem kostaði 135 krónur.
Hvað á hún að fá mikið til baka? -jnu9JH luluij 6o nijxes pnjpung nfjc) yj pe 9 uph lusneq
Hvert þessara dýra getur andað
og drukkið í gegnum húð sína?
a) Bifur b) Froskur
c) Önd d) Skjaldbaka
(q ubas
RÚBERT BAIMG5I '
Róbert fylgist með þegar lauf fellur hægt í
áttina til hans. „Húrra!“ hrópar hann þegar
hann stekkur upp og grípur það örugglega.
Hann snýr sér við og sýnir hinum það en
brosið hverfur um leið af andliti hans.
„Hvað er að?“ spyr Villi. „Sjáðu!“ stynur
Róbert. „Þetta er alls ekki lauf! Þetta er
saman krumpað blað og það stendur eitt-
hvað á því. H...J...Á...L...P... HJÁLP!“
Vinirnir verða áhyggjufullir. Einhver er í
vandræðum en' hver er það og hvaðan
kom þessi dularfulli bréfmiði?